Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Síða 17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
.ttKl íiATi.H'Jr« tr.HT rnAíT' n.-irm vr
DV. ÞFOÐJUmGUR 14. FEBRUAR1964..
Nafnspjöld og alls konar
skírteini
ÍSKORl
^ HJARÐARHAGA 27 S22680 .
FJ©L
RITUN
U©S
RTUN
SAMRÖÐUN
HEFTING
BROT
SKURÐUR
LÍMING
FRÁGANGUR
-STEHSILL
NÓATÚN117 SÍMI 24250
Aldrei séð snjóstorm
eða fárviðri í Reykjavík
— segirbréfritarl ■
Sædis K. Baldursdóttir skrifar:
Hundurinn minn var tekinn af
hundafangara hér í Hverageröi þann 3.
febrúar. Var hann settur í geymslu og
síðan var hringt í mig og sagöi sveitar-
stjórinn mér að hundinum yröi lógaö.
Mamma fór og talaði viö sveitar-
stjórann og baö um aö fá hundinn laus-
an, en var sagt aö vegna ítrekaöra
brota yrði aö lóga hundinum. Þessi
brot voru þau aö hundurinn slapp
þrisvar út á fjórum mánuðum. Ekki
geröi hann flugu mein.
Sveitarstjórinn hringdi svo út á Sel-
foss til aö fá leyfi til aö lóga hundinum,
en leyfiö var ekki veitt. Þá gaf hann
okkur tvo kosti, aö setja hundinn í sveit
eða skrifa undir leyfi til aö lóga hon-
um. Þetta voru ekki góðir kostir, viö
vorum búin aö eiga hundinn í fimm ár
og hann orðinn næstum eins og einn af
fjölskyldunni.
Sveitarstjórinn hálfpartinn neyddi
okkur til aö láta lóga hundinum.
Hundafangarinn lagöi hundinn eigin-
lega í einelti.
Af hverju er verið aö eltast viö
húnda sem engum gera mein, í staöinn
fyrir aö reyna að ná hundum sem ekki
eru úr Hverageröi? Þessi hundur var
svo blíöur að ef einhver kallaöi á hann
kom hann hlaupandi, þar meö talinn
hundafangarinn.
Af hverju eru þorpsbúar ekki
spuröir álits á hundahaldi?
Karl Guðmundsson, sveitarstjóri í
Hveragerði, sagði aö bann viö hunda-
haldi heföi veriö samþykkt einróma á
sveitarstjórnarfundi ’82. Þaö var gert
tíl að stemma stigu viö uppivöðslusemi
hunda á staðnum. Ástandið heföi stór-
skánaö frá því sem áöur var, þegar
mönnum ofbauö aö hundar gengu í
flokkum um bæinn. Settar heföu veriö
reglur sem ætlast væri til aö fólk færi
eftir. Þegar svo væri ekki þá þyrfti aö
grípa til aðgerða.
Hvaö þetta mál varðar var eiganda
hundsins boöiö aö koma hundinum
fyrir í sveit, eöa aö veröa kærður fyrir
hundahald og greiöa sekt. vegna þess
og í þriðja lagi aö láta lóg:< hundinum.
Eigandinn valdi siðasta kostinn o ö
sáum um að aflífa huúdin
,,Það kostar lh-áf hóviðá aö fran
fylgja banni víö hundahaldi,’
KarlGuömundr ■ ffa-stjú
bétnum og sýnið sórstaka
varúð ef skipta þarf um sæti.
/ Hveragerði eru hundar sem ganga lausir ekkert velkomnir.
Einn sem er á móti því að kasta skít í
landsbyggðina skrifar:
„Ofsaveður geisar í Reykjavík,”
heyrist í útvarpinu og sjónvarpinu, en
þegar betur er að gáö þá er ekkert svo
slæmt veður. Bolvíkingurinn sem
skrifaöi áöur sagöi bara eins og er um
ástandið í Reykjavík (en ykkur hefur
bara sámaö sannleikurinn, þegar þiö
hafið áttað ykkur á því aö allt fennti í
kaf ífjölmiðlum).
Eg hef sjálfur búiö á Vestfjörðum í
10 ár og nú í Reykjavík í tæp þrjú ár og
unniö viö leigubílaakstur. Þennan tíma
hef ég hvorki séð snjóstorm né fárviöri
(stormur= 10 vindstig og fárviöri=
talsvert meira en 12 stig) hér í
Reykjavík. Aöeins talsverða snjókomu
og snjófjúk (skafrenning).
Aftur á móti hef ég séö aö um 90% af
ökumönnum á Reykjavíkursvæðinu
halda af staö á nauöasköllóttum sum-
ardekkjum og sjálfir aöeins á
nælonskyrtum, sitjandi fastir og
spólandi um allan bæ, skóflulausir,
keðjulausir, úlpulausir og allslausir, í
staðinn fyrir aö vera á vel búnum bíl-
um og sjálfir vel búnir.
Þetta er aöallega vegna þess aö
strætó er í vandræðum með aö komast
feröa sinna. Auk þess er ágætt að vera
vel klæddur ef maður skyldi þurfa aö
ganga heim eftir að hafa skiliö bíl sinn
eftir, í staöinn fyrir og hrópa á hjálp.
Hjálparsveitarmenn eru ekkert
ööruvísi menn en viö hin, þeir eru bara
vel klæddir, og þá er ósköp einfalt aö
Þessi mynd var tekin fyrir stuttu þegar „óveður" geisaði i Reykjavík. Slikt veður kalla þeir sem kynnst
hafa veðrum á Vestfjörðum „ekkert svo slæmt veður".
labba úr Breiðholtinu niður í bæ. Þáö
ætti ekki að drepa neinn, þetta eru litlir
10 til 12 kílómetrar (ég á við heilbrigt
og hraust fólk). Og þeir sem eiga
minnstu bílana eiga bara loka þá niðri
í geymslu í staö þess að reyna aö leika
einhverja ofurhuga á leikfangabílum.
Þetta eru bara sumartíkur og gætu
horfið í snjóblásarana og ekki fundist
aftur.
Mér finnst höfuðborgarbúar ekki
hafa rétt á aö hnýta í Bolvíkinga, þetta
er engin gorvík, heldur er þetta reglu-
lega snyrtilegt sjávarpláss og meö
þeim stærstu á Vestfjöröum, og ef
þessar gorvíkur væru ekki til þá væri
Reykjavík líka gorvík.
Og hættiö þiö að flauta eins og fávit-
ar ef eitthvað skeöur, fariö frekar út og
ýtiö þeim sem fastir eru og í vandræö-
um. Þiö eruð ekkert of finir til þess.
Um daginn labbaði ég frá Hlemmi
og upp íBreiöholt (ekki ífyrsta skipti).
Og var ég hissa á því aö strætó gekk
ekki (veður var þokkalegt, snjókoma
og skafrenningur) en á leiðinni skildi
ég þaö, þegar ég sá hvað margir bílar
voru fastir á leiðinni. Eg var ekki
nema 40 til 50 mínútur aö labba þennan
spotta, en ég hugsa að hinir hafi komiö
heim til sín í morgunsáriö miðað viö
hvaö bílar þeirra voru vanbúnir.
Að lokum: setið keöjur undir bíla
ykkar og skóflu í skottið, þá komist þiö
kannski á leiðarenda. Eg legg til aö
þeir sem fara á vanbúnum bílum í um-
ferðina veröi skildir eftir og næsta dag
verði bílum þeirra rutt burt meö snjó-j
ruöningstækjum. Menn geta allt eins
fariö út í umferðina á Soda-stream
tækjunum sínum eins og illa búnum
bílum.
HUNDILÓGAÐ
í HVERAGERDI