Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1984, Qupperneq 19
i.WÆ4MíyfföÐAG®By6/FIEÐíi®ARiö84
19« r
AUSTUR-LANDEYJUM
Þeir Auðunn Leifsson, Valdimar Auðunsson, Einar Jónsson og Björgvin Guðmundsson Farþegar á leið austur á bóginn skipta um bila eftir að hafa komist yfir mesta flóðasvæðið
voru ekkipar hrifnir af frammistöðu Vegagerðarinnar i flóðunum að undanförnu. með aðstoð björgunarsveitarinnar i Landeyjum.
HEFÐIMÁTT KOMA
í VEG FYRIR FLÓÐIN
—segja bændur á f lóðasvæðinu í Landey jum
„Vegageröin hefur ekki staðiö sig
sem skyldi í þessu máli. Menn tóku
eftir því þegar í nóvember síöastliön-
um aö vatn var farið aö seytla yfir
varnargaröana viö Dímon en Vega-
gerðin hefur látiö allar viövaranir sem
vind um eyru þjóta,” segja þeir Valdi-
mar Auðunsson, bóndi á Grenstanga,
og Auöunn Leifsson, bóndi á Leifs-
stööum í Austur-Landeyjum.
Þeir Valdimar og Auðunn segja aö ef
gripið heföi verið til varnaraðgerða
þegar í nóvember hefði mátt komast
hjá þeim flóðum sem duniö hafa yfir
nú.
„Varnargöröunum viö Dímon hefur
ekki verið haldið nægjanlega vel viö.
Þeir hafa vissulega ekki gefið sig en
fljótið hefur hreinlega flætt yfir þá,”
segjaþeir.
Astæöuna fyrir því að fljótið hefur
runniö yfir garðana segja þeir vera þá
aö framburður fljótsins hefur hlaöist
upp við garðana gegnum árin og
yfirborð fljótsins við garðana þar af
leiðandi hækkað. Nauðsynlegt hefði
því verið að hækka garðana aö sama
skapi til að fyrirbyggja það sem nú
hefur gerst.
En þeir Valdimar og Auðunn hafa
einnig ýmislegt við aðgerðir Vega-
geröarinnar aö athuga eftir að flóðin
skullu á.
„Við álítum svo að það sé tóm vit-
leysa að hamast við að reyna að stöðva
flóöiö við varnargarðana viö Dímon.
Það er næsta vonlaust verk þegar
vatnsflaumurinn liggur þar á meö
jafnmiklum þunga og raun ber vitni.
Það sem hefði þurft að gera strax var
að veita vatninu austur frá klakastífl-
unni með því að gera skurö og losa
síðan um stífluna og styrkja garðana,”
segjaþeir.
Þeim finnst heldur illa fariö með
peninga skattborgaranna eins og er og
nefna sem dæmi að þegar flóðin rénuðu
um stundarsakir í fyrradag rauk
Vegagerðin til og fór að fylla upp í
skörðin sem rofnað höföu í veginn. Allt
þetta verk var svo unnið fyrir gýg
þegar flóðin jukust á ný og vatnið tók
veginn aftur með sér á stórum
svæðum.
„Þannig er þetta alltaf að það er
ekkert hlustað á okkur heimamenn
sem þekkjum þetta kannski betur en
sérfræðingar Vegagerðarinnar, þó svo
að við höfðum ekkert próf upp á
vasann,” segja þeir Valdimar og
Auðunn.
-SÞS
Hér hefur vatnið grafíð undan veginum við brúna á Hólmalænu við bæinn
Leifsstaði i Austur-Landeyjum.
Hér er verið að kanna dýptina i álnum sem lokar fóðurflutningabilinn inni
að austanverðu. Hann komstklakklaust yfir. DV-myndir GVA.
Texti: Sigurður
ÞórSalvarsson
Myndir: Gunnar
V. Andrésson
Torfærutröll björgunarsveitarinnar i Landeyjum öslar yfir túnin á Brú eftir að tekist hafði að koma fóðurflutningabílnum i baksýn á öruggan stað en
hann lokaðist inni á milli tveggja skarða i veginn.