Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1984, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1984, Blaðsíða 39
♦ 801 SAOHSa'? .81HUOAQUTMMS .VQ DV. FIMMTUDAGUR16. FEBRUAR1984 39 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL; DÆGRADVÖL j I Listen to Radio lapan Mr. Georges Moej,. Hen»i>taíseboo« 376, 2 i 00 Ðeume - öelgtym Mr. Uwe Aiberli, Hefnior-.rt-Ounckef'SírctBe 9 DDR-5320 Apolda, GermoO'Demccfolic Reopublíc Mr. Roediíto Gíoacorlo, P O 8ox J06, 4501) Adria (RO) Itoly Þessi úrklippa, iir blaðinu Radio Japan News, birtist í septemberhefti blaðsins 1982. Jón er annar frá vinstri. Jafnvel skemmtilegra að hlusta á Moskvu rætt við Jón Viðar Sigurðsson, 17 ára MR-ing, sem náð hef ur 250 stöðvum á útvarpið sitt „Eg hlusta mest á BBC Radio Scot- land. Þeir eru meö einstaklega skemmtilega dagskrá,” sagöi Jón Viðar Sigurösson, 17 ára MR-ingur, er við röbbuöum viö hann um dægradvöl hans, hlustun á stuttbylgjuútvarps- stöövar. Og þetta er engin venjuleg útvarps- hlustun hjá Jóni. Ahugamáliö felst í því aö ná sem flestum stöövum í heim- inum og senda þeim síðan kort um aö hafa heyrt í þeim. Stöövarnar senda svo aftur staöfestingarkort til Jóns. ,,Eg hef náð um 250 stöövum hvaðanæva í heiminum og fengiö 150 staöfestingarkort frá stöðvum í 70 löndum.” — Hvaöa stöö hefur þú orðið hrifn- asturyfiraðná? „Tvímælalaust stöö á Suðurskauts- landinu. Þetta er mjög veik stöö og ég heyrði fyrst í henni í byrjun desember 1982. Síðan hef ég náö henni nokkrum sinnum.” Á meðal stööva, sem Jón hefur náö, má nefna stöðvar í Nýja-Sjálandi, Jap- an og Argentínu. „Þá hlusta ég tals- vert á miðbylgjustöövar í Noröur- Ahneríku.” — Hvenær hófst áhugi þinn á út- varpshlustuninni? „Eg byrjaöi aö fikta viö þetta í kringum 12 ára aldurinn, en síðustu þrjú árin hef ég fengist hvaö mest viö þetta. Þaö var eftir aö ég keypti mér sérlega gott tæki, Panasonic.” — Ertumeövenjulegtloftnet? „Nei, ekki get ég sagtþað. Eg er meö tvö vírloftnet, sem ég smíðaði sjálfur og eitt ágætis útiloftnet. Loftnetin skipta mjög miklu máli.” — Hvenær eru bestu hlustunarskilyrð- in? „Það er best aö hlusta á kvöldin og nóttunni á miðbylgju. Stöövamar í Norður-Ameríku hhista ég þó mest á snemma á morgnana.” Jón er í tveimur erlendum stutt- bylgjuklúbbum. Annar er í Danmörku, hinn er í Equador. Mánaöarlega fær hann fréttabréf frá þeim. Þá er hann áskrifandi aö ritinu World radio TV handbook sem gefiö er út í Danmörku. Jón sagðist aðeins vita um einn Is- lending annan í erlendum útvarps- klúbbum. „Þorvaldur Stefánsson heit- ir hann og viö ræöum þessi mál þó nokkuð. En ég veit ekki um fleiri hér- lendis sem hafa útvarpshlustun sem áhugamál meö pessum hætti.” I ritinu World radio TV handbook er getið um 7 til 8 þúsund stöövar. En tal- iö er aö í heiminum séu á milli 10 og 20 þúsund útvarpsstöðvar. Mestu skemmtunina viö þetta hobbí, sagöi Jón vera eftirvæntinguna viö aö finna stöö. „Nú, og þá er ekki síður skemmtilegt aö hlusta á fréttir og tón- list í erlendum útvarpsstöövum.” — En hvað um gamla góða gufu- radíóið? „Aöur en rás 2 kom, hlustaði ég nán- ast ekkert á íslenska útvarpið. Þaö var jafnvel skemmtilegra aö hlusta á Moskvu.” -JGH Jón Viðar Sigurðsson, 17 ára nemandi i stærðfræðideiid Menntaskólans i Reykjavik. Um 12 ára aldur fór hann að fá áhuga á að ná erlendum útvarpsstöðvum. Nú hefur hann náð alls 2SO slikum. Og hann er i tveim erlendum styttbylgjuklúbbum. Hér bendir Jón okkur á kort frá útvarps- stöðinni á Grenada sem nýlega var sprengd upp. REPUBLICA ARGENTINA Kort sem Jón fékk frá argentinskri útvarpsstöð á Suðurskautslandinu. DV-myndir Loftur. ir austan. Þar er oft mikiö fjör, fariö í boltaleiki og þess háttar.” Um þaö hvers vegna þau keyptu hjólhýsið, sagöi Guðlaugur aö eigin- kona sín hefði veikst og ekki heföi verið hentugt lengur aö ferðast og gista í tjaldi. „Og viö vildum geta haldiö áfram aö ferðast um og keyptum því gripinn.” — Er ekki erfitt aö aka um með hjólhýsi á Islandi? „Nei, alls ekki ef maður ætlar sér ekki að fara of hratt”. — Margir sem sýna óþolinmæöi og flauta? „Nei, nei. Þaðerlítiö umslíkt.” Hjólhýsi Guðlaugs er um 750 kíló aö þyngd og það má hlaða í þaö um 250 kílóum í ferð. Það má því segja aö um tonn sé í eftirdragi. — Þarf ekki jeppa fyrir svona farar- tæki? „Þaö er auövitað betra. En ég hef mest ekið um meö hjólhýsiö á Citroén- bílnum mínum og ekki lent í neinum erfiðleikum.” Guölaugur sagði aö þegar þau „færu á flakk” á sumrin þá væri bara komiö viö á Þingvöllum og náö í „sveit- ina hans afa” og síöan væri ferðast um. „Þaö má eiginlega líkja þessu viö það aö skreppa austur og ná í sumar- bústaðinn sinn. Munurinn á þessum sumarbústaö og öðrum er bara sá aö þessieráhjólum.” -JGH „Viö keyptum hjólhýsiö fyrir um 6 eöa 7 árum og höfum farið nokkuð víöa meö þaö hér innanlands. Flakkað mik- iö um Suöurlandiö og eins höfum viö farið um Vestfirðina og um Noröur- land,” sagöi Guðlaugur, er við skrupp- um suöur í Fjörö í hjólhýsarabb. Þaö má segja aö okkur „hafi ekki fundist ráð nema um hjólhýsi væri f jallaö,” því aö senn líður víst aö sumri og menn farnir aö huga aö sumárleyf- um og sumarferðum. Guðlaugur og kona hans, Kamma Karlsson (danskt nafn), voru á sínum tíma í hjólhýsaklúbbnum, „meöan Búinn að renna upp að sundlauginni á Akureyri. Gamii Citroén. Hann er hann var og hét”, svo aö notuð séu orö lóttur á sór þrátt fyrirnánast tonn ieftirdragi. „Sveitin hans afa" er bara nokkuð rúmgóð. Hér er eiginkona Guðlaugs, Slappað af i sól á sumri i Skaftafelli. Kamma Karlsson Idanskt nafn) að gefa barnabörnunum i svanginn. Guðlaugur Atlason, bókbindari i Prentsmiðju Hafnarfjarðar. Hann er einn þeirra sem á „sumarbústað á hjólum ", Bústaðir sem nefnast öðru nafni hjólhýsi. DV-mynd: Loftur. „SVEITIN HANS AFA” — já, hjólhýsið hans Guðlaugs Atlasonar bókbindara gengur undir ýmsum nöfnum „Sveitin hans afa.” Svo kallar ein afastúlkan hans Guölaugs Atlasonar, bókbindara í Prentsmiöju Hafnar- fjaröar, hjólhýsi afa síns og ömmu. Oneitanlega skemmtilegt nafn á hjól- hýsi, finnst okkur. Guðlaugs. Klúbburinn mun einhverra hluta vegna hafa lognast út af. En hvar skyldi „sveitin hans afa” oftast vera geymd yfir sumartímann? Viö spuröum og í ljós kom aö þau Guö- laugur geyma hjólhýsið mestan part sumars á Þingvöllum. „Æth þaö séu ekki um 40 fjölskyldur meö hjólhýsi á Þingvöllum yfir sumar- ið. I rauninni er þarna orðiö um skemmtilegan hóp að ræöa sem heldur kunningsskapinn í gegnum dvölina fyr-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.