Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1984, Blaðsíða 1
Grisjan gleymdist
inni í siúklingnum
Piltur frá Dalvík varö nýlega fyrir
þeirri reynslu aö þurfa tvívegis í
uppskurö vegna þess aö í fyrra skipt-
ið gleymdist inni í honum grisja.
Málsatvik eru þau, aö hann var
fluttur á Fjóröungssjúkrahúsiö á
Akureyri 31. janúar eftir úrskurö
læknis á Dalvík um botnlangabólgu.
Urskurður sjúkrahússins var hins
vegar ekki bólga heldur stíflur í ristli
og drengurinn var sendur aftur
heim. Fimmtudaginn 2. febrúar er
hann aftur fluttur til Akureyrar enda
héldu verkirnir áfram. Aftur var
hann skoðaöur og síðan skorinn upp
um kvöldiö. Reyndist þá botnlanginn
gróinn viö hrygginn og tókst með
ágætum aö laga þaö.
I svona tilfellum mun þess vera
vandalega gætt að allar bólgur séu
farnar áöur en hægt er aðleyfa sjúkl-
ingi aö fara heim. Pilturinn var því
myndaöur á mánudagi og kom þá i
ljós aðskotahlutur í líkama hans. Lék
grunur á að þetta væri ein af grisjun-
um, sem notuð var við skurðaðgerð-
ina. Grisjumar eru haföar til aö
þerra blóð og hreinsa sáriö. Þær eru
taldar inn í sjúklinginn og síðan tald-
ar út aftur. Tekin var mynd af grisju
til aö sjá hvort hér væri sami hlutur-
inn á ferö og reyndist svo vera. Því
er ljóst mistök hafa átt sér stað við
talningu grisjanna.
Pilturinn var aftur skorinn upp á
fimmtudegi og grisjan fjarlægö.
Hann mun ekkert hafa fundiö fyrir
henni og er á góðum batavegi.
Ekki náðist í Gauta Arnþórsson
yfirlækni vegna þessa máls, þrátt
fyrir ítrekaöar tilraunir.
-JBH/Akureyri
- sjá einnig bls. 18 og 19
nýjan leik
„Við erum heldur hressari núna en
aö undanfömu, þaö tókst aö loka þessu
við Markarfljót í gær og Suðurlands-
vegur er orðinn fær,” sagði Stefán
Kjartansson, héraösstjóri Vegagerðar
ríkisins í Rangárvallasýslu, i samtali
viöDVímorgun.
Unniö var aö því í alla nótt aö gera
viö veginn en í dag og næstu daga
veröa varnargarðarnir viö Dímon,
sem fljótið fiæddi yfir, styrktir enn
frekar.
A bls. 18 og 19 í blaöinu í dag segir
frá ferö blaðamanna austur í gær og
kemur þar meðal annars fram gagn-
rýni á Vegagerðina frá bændum á
flóðasvæðinu við Markarfljót.
Bændurnir segja aö þegar í nóvember
hafi vatn verið fariö að seytla yfir
varnargaröana og því ljóst að hverju
stefndi. Þessari gagnrýni vísar Stefán
á bug en viöurkennir að garðarnir hafi
ekki verið hækkaöir á undanfömiun
ámm, aöallega vegna fjárskorts.
„Þegar klakahrannir, allt aö fjórir
metrar á hæö, stífla fljótið hafa
garðarnir lítiö að segja,” sagöi Stefán.
-SþS
Svona leit Suðurlandsvegur út i gærdag
við Hólmalænu i Austur-Landeyjum en
vegurinn er nú orðinn fær á nýjan leik
og fióðin í rénun.
DV-mynd GVA.
Thor Vilhjálmsson rit-
höfundur.
Jón Nordal tónskáld.
Valdimar Harðarson
arkitekt.
Egill Eðvarðsson kvikmynda-
leikstjóri, fulltrúi Sagafilm.
Magnús Loftsson, stjórnar-
formaður Stúdentaleik-
hússins.
MENNINGARVERÐLAUNAHAFARNIR1984
Nú í hádeginu voru menningar-
verölaun DV 1984 afhent við sér-
stakan hátíðarmálsverð í Þingholti,
Hótel Holti, aö viöstöddu listafólki,
dómnefndum og fulltrúum blaösins.
Þetta er í sjötta sinn sem þessi verð-
laun eru afhent en í ár gerði Jens
Guöjónsson gullsmiður verðlauna-
gripina.
Sex dómnefndir, skipaöar list-
gagnrýnendum DV, gagnrýnendum
annarra blaða og sérfræöingum utan
blaðanna komust að þeirri niöur-
stööu aö eftirtalið listafólk skyldi
hljóta þéssa viöurkenningu í ár:
Thor Vilhjálmsson rithöfundur, fyrir
þýðingu sína á skáldsögunni Hlut-
skipti manns, eftir Malraux. Jón
Nordal tónskáld fyrir framlag sitt til
íslenskrar tónlistar, Jóhann Brlem
listmálari, fyrir framlag sitt til
íslenskrar myndlistar. Valdimar
Harðarson arkitekt fyrir hönnum á
stól sem nú er aö fara í framleiðslu
erlendis. Kvikmyndaverðlaunin
hlaut að þessu sinni kvikmyndin
Húsið, sem Sagafilm framleiöir.
Stúdentaleikhúsið hlaut svo leik-
listarverðiaunin fyrir starf sitt árið
1983.
Nánari fréttir af afhendingu
menningarverðlaunanna verða birt-
aríDVámorgun.
-óbg