Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1984, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1984, Side 2
2 DV. FÖSTUDAGUR 2. MARS1984. Nú treysta Bakkfiröingar á litlu trillurnar sínar sem þeir veröa að geyma uppi á bryggju á milli róðra, vegna lélegra bafnarskilyrða. Fæ sama kvóta á bátinn og ég fiskadi á triiiuna — uggvænlegar atvinnuhorfur á Bakkaf irði vegna lítils kvóta „Eg fæ að jafnaði 130 tonna þorsk- kvóta á hvom 30 tonna bátinn og heild- arkvóti annars er 200 tonn en hins 250 tonn. Þetta er álíka magn og ég veiddi aö meðaltali í nokkur ár í röð á 3,5 tonna trillu,” sagði Kristinn Péturs- son, varaoddviti á Bakkafirði og fram- kvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Utvers þar. Báðir bátar Kristins eru mjög nýleg- ir stálbátar af f ullkomnustu gerð þann- ig að þeir eiga að geta aflaðmikið. „Eg er núna að ganga frá sölu á öðrum þeirra til Suðumesja. Hinn er enn bundinn við bryggju því ég ætla aö taka kvótann á besta tíma vertíðarinn- ar,” sagðiKristinn. Alls em fimm bátar af stærðinni 17 til 34 tonn gerðir út frá Bakkafirði en sumir þeirra landa aðallega annars staðar. Þeir, eíns og flestir aðrir, ætla að bjarga sér á djúprækjuveiði en eng- in rækjuvinnsla er á Bakkafirði svo sá veiöiskapur skapar enga atvinnu í landi. Heimamenn lifa því í voninni um góðar gæftir svo smátrillumar geti dregið einhverja björg í bú. -GS Bergþórshvolsprestakall: SÁTTAFUNDUR HJÁ BISKUPI Smábátamenn óttast að togararnir sópi allri djúprækjunni upp: „Biskup er búinn aö boða sóknar- nefndimar í Austur- og Vestur-Land- eyjum á sinn fund. Það er út af þess- um leiðindum sjálfsagt,” sagöi Tómas Kristinsson, formaður sóknarnefndar Vestur-Landeyja, í samtali við DV í gær. „Biskup hringdi í mig seint í gær- einnig verið boðaður á biskupsstofu í kvöldi og óskaði eftir að fá samtal dag. við sóknamefndirnar. Fundurinn er „Eg er bjartsýnismaður. Eg vona fyrirhugaöur á morgun,” sagði að þetta leysist vel,” sagði Erlendur Tómas. Amason sem bráðum hefur verið Sóknarpresturinn í Bergþórshvols- sóknarnefndarformaður í Austur- prestakaíli, séra Páll Pálsson, hefur Landeyjum í hálfa öld. -KMU EV- SALURINN A 3. HÆÐ I FIATHUSINU 800 FERMETRA SÝNINGARSALUR / dag se/jum við m.a: Bronco1973 Lada 13001982 L ... jasm (m tggsagÆnm Plymouth Volaré 1977 Chevrolet Concours 1977 Subaru 1979. SÍFELLD ÞJÓNUSTA SÍFELLD BÍLASALA EV-KJÖR = SÉRKJÖR Mikið magn af notuðum ódýrum bílum er fást Ál\l ÚTBORGUNAR Við lánum í 3, 6, 9 eða jafnvel í 12 mánuði. Opið alla virka daga kl. 9—18. Laugardaga kl. 10—16. 1929 ALLT Á SAMA STAÐ 1984 MUNIÐ EV-KJÖRIN EV- SALURINN notadir bílorr prjT T í eigu umbodssins VILHJALMSSON HF Smidjuvegi 4c — Kópavogi — Simi 79944 Fimm togarar eru byrjaðir á rækju — og fjöldi annarra að búast til veiða Utgerðarmenn fiskibáta óttast nú mjög að togaraflotinn muni „ryksuga” djúprækjumiðin þannig að ekkert verði eftir handa bátunum þegar þeir hyggjast fara á djúprækjuveiðar að vertíð lokinni. Fimm togarar em þegar byrjaöir djúprækjuveiöar og afla vel auk þess sem fjöldi togara er nú aö búast til rækjuveiða. Verður sóknarþunginn orðinn mikill strax í þessum mánuði. Sem kunnugt er er djúprækjuveiði óháð öllum kvótum og dregst ekki frá þeim. Því hyggjast útgeröarmenn mörg hundruð báta og togara mæta aflasamdrættinum meö djúprækju- veiði í ár. Netaverkstæði, sem gera rækjutroll, sjá ekki fram úr verkefnum og inn- flutningur tilbúinna rækjutrolla gerist núlíflegur. „Hömlulaus ævintýri hafa ekki stýrt góðri lukku hér og ég tel þessa skipan óráölega. Það er auk þess útilokað að rækjan geti bjargað öllum flotanum,” sagði Ingvar Hallgrímsson fiskifræð- ingur í viötali við DV. Hann sagði eng- an vita hversu mikia rækju væri að hafa við landið þótt hún hafi fundist á mjög stóru svæði og væri vaxandi allstaðar í N-Atlantshafi. Varðandi skyndilokanir sagði hann aö ekki væri hægt að grípa til þeirra fyrr en jafnvel væri komið í óefni. En hann benti á að rækjunni virtist ekki eins hætt við viðkomubresti og öðrum fisktegundum, hins vegar gæti það tek- iö nokkur ár fyrir stofninn að ná sér upp eftir ofveiði. -GS Erlent f lugfélag kannar möguleika á millilendingum á Kef lavíkurf lugvelli í sumar: Yf ir 20 þús. farþegar kæmu hér við í sumar Bandariska leiguflugfélagið World Ways hefur óskaö eftir tilboði frá Flug- leiðum um að afgreiða flugvélar þess á leiö milli Bandaríkjanna og Evrópu í sumar. Að öörum kosti verða vélar fé- lagsins að lenda í Goose Bay eöa á Shannon. Ef samningar nást er um 114 lend- ingar DC-8 þotna að ræða og gæti f jöldi gesta á Keflavíkurflugvelli orðið á bil- inu 20 til 25 þúsund í þessum lending- um. Samningur þessi yrði þýðingarmikill fyrir ríkið vegna lendingargjalda, þá yrði um mikla olíusölu að ræða, Flug- leiðir fengju afgreiðslugjöld og myndu jafnvel leggja til matvæli í vélarnar og loks myndu Fríhöfnin og Islenskur markaður sjálfsagt njóta góðs af viö- skiptum f arþeganna. -GS Hækkun Rússa á hráolíuverði: HEFUR EKKIÁHRIF HÉR Vegna hækkunar Rússa á hráolíu- verði var Þórhallur Asgeirsson, ráðu- neytisstjóri í viöskiptaráðuneytinu, inntur eftir því hvort hún myndi hafa áhrif á Rotterdammarkaöinn og kaup Islendinga á olíu. Sagði Þórhallur Asgeirsson að þar sem hér væri ekki um meiriháttar hækkun aö ræða teldi hann ekki aö áhrifanna gætti á Rotter- dammarkaði á hráoliuverð og afurðir. En finnska olíufyrirtækið Neste greindi frá þvi í fyrradag að olíuút- flytjendur í Sovétríkjunum hefðu til- kynnt að verðiö á hráoh'u myndi hækka á næstunni. Nemur hækkunin 50 bandarískum sentum á hverja tunnu af olíu. Mun tunnan af sovéskri hráolíu þá kosta 29 dollara. HÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.