Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1984, Síða 5
DV. FIMMTUDAGUR 5. APRIL1984.
5
Ingibjörg fyrir framan fiskvinnslu-
húsiö á leið í bankann með dagleg skjöl
ogpappira. DV-mynd: GVA
Ingibjörg Kristinsdóttir,
framkvæmdastjóri
Hólaness á Skagaströnd:
„Hleypíþetta
til bráðabirgöa”
Ingibjörg Kristinsdóttir hefur tekið
við framkvæmdastjórn fiskvinnslu-
fyrirtækisins Hólaness hf. á Skaga-
strönd. Sem kunnugt er hætti fyrrver-
andi framkvæmdastjóri skyndilega
vegna meints misferlis sem nú er í
rannsókn.
Ingibjörg gjörþekkir rekstur fyrir-
tækisins þar sem hún hefur unniö á
skrifstofu þess í allmörg ár. „Eg er
alls ekki að sækjast eftir þessu til
frambúðar,” segir Ingibjörg og gerir
lítiö úr stöðunni.” Eg tók þetta aðeins
aö mér á meðan viö erum að bíða eftir
nýja framkvæmdastjóranum.”
Það verður Lárus Ægir Guðmunds-
son, sveitarstjóri á Skagaströnd.
Hann hefur gegnt því starfi i 12 ár og
færir sig ekki yfir í Hólanes fyrr en eft-
irmaöur er fundinn og settur inn í
starfið.
Hólanes er nýhætt skelfiskvinnslu
þar sem vertíðin er búin en þessa
dagana er unnið úr afla skuttogarans
Arnars sem landaði 160 tonnum á
sunnudaginn var. -GS.
Óven julegt mál hjá Lífeyrissjóði VR:
FÆR EKKIMAKALIF-
EYRIÞAR SEM HÚN
ER AÐEINS 39 ÁRA
Nokkuö óvenjulegt mál er komiö
upp hjá Lífeyrissjóði verslunar-
manna og hefur stjóm sjóðsins
skipað nefnd til að f jalla um málið.
Forsaga þessa máls er sú að
maður, 45 ára að aldri, lést og lét
eftir sig 39 ára gamla eiginkonu og
þrjú böm, hiö yngsta þeirra nýorðið
18 ára. Maðurinn hafði greitt í líf-
eyrissjóð VR í 26 ár. Þegar ekkjan
ætlaöi að sækja makalífeyri í sjóðinn
var henni tjáð að hún ætti ekki rétt á
þeim greiðslum þar sem hún væri
ekki fædd fyrir 1940. Greiðslur, þær
sem maðurinn hefði innt af hendi við
sjóðinn, var sagt að rynnu til sjóðsins
og væm nú hans eign.
„Þetta er fyrsta dæmið þar sem
sjóðfélagi lendir rétt undir þeim
mörkum sem sett em til veitingar
makalífeyris hjá okkur og við emm
að athuga það núna,” sagði Pétur
Blöndal, forstjóri Lífeyrissjóös VR í
samtali við DV er við spurðum hann
um þetta mál.
Hann sagði að samkvæmt reglu-
gerð sjóðsins hefði viðkomandi kona
átt rétt á að fá makalífeyri og bama-
lífeyri hjá sjóðnum ef yngsta barn
hennar hefði ekki verið orðiö 18 ára
gamalt og hefði hún átt rétt á þeim
greiöslum þar til yngsta barnið væri
orðið 23 ára gamalt.
Hvað makalífeyrinn varðar segir
í reglugerð sjóðsins m.a. um réttindi
til greiðslna að; „Maki sjóöfélaga er
fæddur fyrir 1940. Þó skal maka-
lifeyrir.. . skerðast um 2% fyrir
hvert ár sem makinn er fæddur eftir
1. janúar 1920 og um 6% að auki fyrir
hvert ár sem hann er fæddur eftir 1.
janúarl930.”
Hvað þessa grein reglu-
gerðarinnar varðaði sagði Pétur að
honum væri ekki kunnugt um að nein
bamlaus kona sem fædd er eftir 1940
sæti heima fullfrisk og sæi um
heimilishald. Nánast allar þeirra
væru famar að vinna úti og afla sér
lífsviðurværis sjálfar.
Pétur sagði einnig að þessi grein
væri þannig tilkomin aö á sínum
tíma hefðu margar eiginkonur sjóð-
félaga, sem féllu frá, ekki haft annað
til að lifa af en makalifeyrinn en upp
úr stríðsárunum heföi þetta tekið
miklum breytingum með aukinni
þátttöku kvenna i atvinnulífinu.
Hvað varðaði þetta sérstaka dæmi
sem hér er fjallað um þá þyrfti að
koma til reglugerðarbreyting til að
breyta því og slikt tæki nokkum
tíma. Fyrst þyrftu þau samtök sem
stæðu að sjóðnum að fjalla um og
samþykkja slíka breytingu og síðan
þyrfti fjármálaráöuneytið að
staðfesta hana. Þetta gæti tekið
nokkra mánuði.
Hvað það atriöi varðaöi að þetta
væri kona sem í hlut ætti sagði Pétur
að hjá þeim ríkti algjört jafnrétti
kynjanna og gætu þeir ekki brotið þá
reglu í þessu einstaka tilfelli. — „En
ef reglugerðarbreytingin gengur í
gegn fær hún væntanlega leið-
réttingu sinna mála,” sagði hann og
nefndi sem dæmi að hugsanlegt væri
að borga t.d. bamalífeyrinn til 20 ára
aldurs yngsta barnsins þótt það hefði
þegar náð 18 ára aldri. Einnig væri
til i dæminu aö konan fengi borgaðan
óskertan makalíf eyri i eitt ár.
Hér er ekki um háar upphæöir að
ræða. Bamalífeyrir hjá sjóönum er
nú að meðaltali 800 kr. á mánuði og
makalífeyririnn 3400 kr. á mánuði.
Þetta er þó háð þeim tekjum sem
sjóðfélagi greiddi af til sjóðsins.
„Rétt er að benda á að tilveru-
grundvöllur sjóðsins er greiddur af
sjóðfélögum í heild og huga þarf vel
að því hvað menn vilja tryggja,”
sagði Pétur.
-FRI
FLENSUFARALDUR í STYKKISHÓLMI
Frá Róbert Jörgensen, fréttaritara
DV í Stykkishólmi:
Flensufaraldur geisar nú í Stykkis-
hólmi. Svo rammt kveður að flensunni
að f jarvistir í grunnskólanum eru allt
upp í 50 prósent i einstaka árgöngum.
Flensan virðist frekar leggjast á
börn og unglinga en fullorðna. Að
minnsta kosti harka þá þeir fullorönu
það frekar af sér, séu þeir eitthvað
slappir.
Fólk hér í Hólminum segir um flens-,
una að það muni vart eftir öðrum eins
veikindum og nú her ja á Hólmara.
Þess má geta að fyrirhuguðum,
skíðaferðum barna og unglinga í
grunnskólanum hefur verið frestað.
-JGH
SKEIFUNNAR).
AÐSMIBJUVEGI6:KÓPAVOQ1
tHÚS MÓSQA-QNAVWIStOI
l'fjillill' T^M
• Eldhús-, baðinnréttingar og fataskápar frá STAR og MARBODAL;
• Eldhústæki frá BLOMBERG
• Innihurðir frá IDÉ
• Inni- og útihurðir frá SVENSKA DÖRR JI-TE og SCADANIA DÖRE
• Parketfrá KÁHRS og JUNCKERS
• Futura — handföngin frá ROSTI
Vönduð vara við vægu verðL
tmmmmmmmmmmmmm■
mmmmmmmmmmmmmm
iiiiiiiiiiiiiiiiim