Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1984, Blaðsíða 1
Heilbrigðisnefnd krefst sótthreinsunar á Barðastöðum:
Annars verður húsið brennt!
Heilbrigðisnefnd Olafsvíkurum-
dæmis hefur krafist þess að
íbúöarhúsnæðiö að Barðastöðum í
Staðarsveit verði þegar í stað rýmt.
Skírskotað er til velferðar tveggja
ára gamals barns á bænum.
Það er mat nefndarinnar að mjög
erfitt verði að koma íbúðarhúsinu í
íbúðarhæftástandáný .
„Nefndin vill þó gefa eigendum
frest til 25. apríl til að gera viðeig-
andi hreingemingar- og sótthreinsi-
aðgerðir en að þeim tíma liðnum, ef
ástand verður óbreytt, telur nefndin
ekki annað fært en að láta brenna
húsnæðið og jafna það siðan við
jörðu,” segir í bréfi sem heilbrigðis-
nefndin sendi hlutaðeigandi aðilum.
Á blaðsíðu 4 er einnig sagt frá þvi
sem hefur verið að gerast á Barða-
stöðumá Snæfellsnesi.
-KMU.
DAGBLAÐIÐ — VISIR
86. TBL. — 74. og 10. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL1984.
Bankamirslást
umkúnnana
— sjábls.5
Tölvurog
afturtölvur
-sjábls. 34-35
Lagt af stað um tvöley tið i nótt.
DV-mynd S
menn
fóruínótt
íNýjadal
„Við erum staddír á Sprengi-1
sandsleið í um 5 kilómetra sunn-1
an við Köldukvísl og miðar ágæt-1
lega áfram. Veðrið er ijómandil
gott og við reiknum með því að |
verða komnir inn aö skálanum í
Nýjadal eftir svona 3 til 4 klukku-
stundir.
Þetta sagði Kristinn Sigur-J
geirsson, félagi í Björgunarsveit [
Ingólfs, er DV haf ði samband við I
hann laust fyrir klukkan níu i|
morgun. En níu félagar úrl
björgunarsveitinni lögöu af stað ]
austur klukkan tvö í nótt
„Við erum á tveimur snjóbilum I
og þremur vélsleðum. Þá erul
með okkur í feröinni tveir menn |
frá Landsvirkjun á snjóbíl. ”
Kristinn sagði ennfremur aðl
þeir væru með vistir eins og mat- j
vörur, bensín, gas, ísvara og I
frostlög. Ætlunin væri að koma I
þessu til vélsleðamannanna ogj
síðan yrði farið með þeim heim [
tilbaka.
Er DV hafði samband við skál-
ann í Nýjadal i morgun varð|
Sigurður Baldvinsson frá Akur-
eyrifyrirsvörum.
„Það liður öilum ljómandi vel [
og það er alls ekkert neyðar-j
ástand hér. Við erum öll á heim-1
leið. Nú er komið hér notalegt [
veður, sóiin farin aðskína.”
Sigurður sagði að fólk hefði j
verið vaknaö klukkan fimm í
morgun. „Noröanmenn hafa
flestir verið að streyma heim og
hluti af sunnanmönnum eruj
famir á móti Ingólfsmönnum. [
Viðviijumsenda kveðju héöan úr |
Nýjadal til allra landsmanna.”
-JGHI
Sjá einnigábls.2
ogábaksíðu
Skoðanakönnun DV meðal þingmanna gefur til kynna:
Bjórfrumvarpið ekki
samþykkt á Aiþingi
—þjóðaratkvæðagreiðsla um bjórinn virðistnjóta meira fylgis
Frumvarp um breytingu á áfengis-
löggjöfinni er heimilaöi bruggun og
sölu áfengs öls hér á landi myndi að
öllum líkindum verða fellt á Alþingi ef
það kæmi þar til afgreiðslu. Hins vegar
virðist meirihluti þingmanna geta
fallist á að úrskuröi í málinu verði
vísað til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þetta er niðurstaða úr athugun sem
DV gerði meðal þingmanna í gær.
Fyrir Alþingi liggja nú tvö mál um
þetta efni. Annars vegar er þings-
ályktunartillaga frá Magnúsi H.
Magnússyni, Friðriki Sophussyni og
fleirum um að þvi verði vísað til al-
mennrar atkvæðagreiðslu er fram fari
samhliöa næstu þingkosningum. Hins
vegar liggur fyrir Alþingi frumvarp
um breytingu á áfengislöggjöfinni,
þess efnis að bruggun og sala áfengs
öls verði heimiluð frá og með næstu
áramótum.
Alls sögöust 17 þingmenn vera sam-
þykkir frumvarpinu, 18 voru því mót-
fallnir, 16 voru óákveðnir eða gáf u ekki
upp afstöðu en 9 þingmenn eru staddir
erlendis. Af þeim sem voru óákveðnir
sögöust 7 frekar vera hlynntir þings-
ályktunartillögunni um þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
1 efri deild er staða máisins þannig
aö af 20 þingmönnum deildarinnar eru
5 samþykkir frumvarpinu, 7 eru
andvígir því, 5 óákveðnir eða gáfu ekki
upp afstöðu sína en 3 þingmenn eru er-
lendis. Af þeim sem eru óákveðnir
sögðust tveir frekar vera hlynntir
þingsályktunartillögunni.
Þingsályktunartillagan hefur komið
til fyiri umræðu í sameinuðu þingi og
var vísað til allsherjarnefndar. Þar er
hún ein af 40 þingsályktunartillögum
sem liggja óafgreiddar hjá nefndinni.
OEF
sjá erl. fréttir á bls. 8 og 9