Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Blaðsíða 6
6 DV. MIÐVIKUDAGUR18. APRIL1984. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur TILRAUNA- ELDHÚS DV Rósakálssúpa og svínakótelettur Svínakótelotturnar ásamt meðlæti í vasana og sósuna. ___________ Ein fyllt\ kóteletta ásamt hrisgrjónum og snittubaunum — hin Ijúffengasta páskamáltid. Hveiti og smjör hrært saman í skál i bolluna. -DV-myndir: GVA. ^ Efsta vika, kyrra vika eöa dymbil- vika, sem er þekktasta nafn þessarar viku, er nú senn hálfnuö. I dag kveðjum viö veturinn og fögnum sumri á morgun. Og meö sumrinu koma páskamir í ár. Matarvenjur ýmsar tengjast páskunum. Heimild- ir frá 18. og 19. öld eru um aö hnaus- þykkur rauöseyddur mjólkurgrautur hafi víöa veriö skammtaöur á skír- dagsmorgun áöur en menn fóru til kirkju. Eftir veturinn nú má búast viö aö lítt séu menn hrifnir af mjólkurgrautum og vilji tilbreytingu meö hækkandi sól og blóm í haga. Því komum við meö indæla súpuupp- skrift í tilraunaeldhúsinu í dag. Páskalömb og páskaegg tengjast dögunum frámundan órjúfanlegum böndum, þrátt fyrir breytingar á öörum sviðum. Svínakjötsneysla hefur jafnan veriö tengd þessum tyllidögum og sjálfsagt aldrei meira en nú, vegna verölækkunar á svína- kjöti meðal annars. Viö matreiðum 'eina páskamáltíö og ef einhver er ekki nú þegar búinn að ákveöa mat- seðilinn fyrir alla dagana þá fær hann eina hugmynd hér. Rósakálssúpa 11 vatn 300 g rósakál 1/2 tsk. salt 3 súputening-ar smjörbolla úr 30 g smjör og 30 g hveiti 1 dl rjómi 1 dl þurrt hvítvín eöa 1/2 dl af þurru sérríi. Verklýsing 1. Rósakálið hreinsaö. Ef þaö er alveg nýtt (tæplega á þessum árs- tíma þó) er nóg að skola þaö úr köldu vatni. Annars veröur aö piUa ljótu blööin af. 2. Rósakáliö látiö í sjóöandi saltvatn og soöið í ca 5—6 mínútur. 3. Á meðan hræriö þiö smjörboll- una, eöa mjölbolluna sem hún er einnig nefnd. Jöfn hlutföll eru á hveitiogsmjöri. Þiö hræriö hveitiö og smjöriö samanískál. 4. Setjiö bolluna út í saltvatniö í pottinum og sjóðiö í nokkrar mínútur. Ef til vili þarf að hræra boliuna aöeins í sundur meö sleif. Þessi aöferð viö súpulögun er lik- lega eldri en „uppbökunaraöferö- in”. Hún er ágæt þegar til dæmis þarf aö sjóöa grænmeti í súpuna, þá þarf ekki að umhella soöinu úr potti í skál og síöan aftur í pottinn. 5. Setjið súputeníngana eöa soökraft út í pottinn og sjóðiö með síðustu mínútumar. 6. Síöast bragöbætiö þiö með rjómanum og víninu og smakkiö til. Vinnutími um 20 mínútur. Hrá- efniskostnaður er um 75 krónur, þar af kostar rósakáliö rúmar 30 krónur, víniö um 20 krónur og rjóminn um 11 krónur. Þessi skammtur ætti aö Vatnið ípottinn, rósakálið hreinsað, þá getum við haldið áfram . . . duga handa fjórum á undan aöal- rétti. Fylltar svínakótelettur 4 þykkar svínakótelettur í fyllingu 3 sneiöar mögur skinka 100 g nýir sveppir 1—2 msk. smjör Sósa 150 g sveppir 2—3 msk. smjör l/2tsk.salt örl. pipar 1 dl r jómi 1 dl vatn Verklýsing: 1. Þerriö kóteletturnar og hreinsið sveppina. 2. Skeriðvasaíhverjakótelettu. 3. Saxið skinkuna í bita og 100 g af sveppunum.Steikiö létt í smjöri (fylling). 4. Setjiö fyllinguna (skinku og sveppi) í kótelettuvasana og lokiö þeim meö tannstönglum. 5. Skeriö sveppina sem fara í sósuna í tvennt eða smærra eftir smekk. 6. Steikið sveppina í smjöri, takið þá síöan af pönnunni og steikið kótelettumar. Kryddiö þær og setjið sveppina aftur á pönnuna, ásamt rjóma og vatni. 7. Látið kótelettumar krauma í 6—8 mínútur. Berið réttinn fram meö hrísgrjónum, brauði eða græn- meti. Því má bæta viö aö ýmislegt annaö má setja í kótelettuvasana en skinku og sveppi, til dæmis ostbita. Vinnutíminn er um 40 mínútur. Hráefniskostnaöur er um 275 krónur. Eitt kíló af svínakótelettum er núna hægt aö kaupa á 227 krónur. Kóteletturnarokkar eru sérstaklega þykkar og kostar hver um 38 krónur. Skinkan í vasana er á um 33 krónur og sveppir rúmar 65 krónur. Svo rjóminn og smjöriö á rúmar 20 krónur. Hvort ein fylltsvínakótelettadugar handa einum manni látum viö liggja á milli hluta eöa einstaklinga. Mikiö matarfólk getur hugsanlega og ef- laust borðað tvær heilar, fylltar svínakótelettur ásamt meölæti. En hvert sem magamálið er óskum viö ykkur gleöilegrar páskahátíðar. Geriö eins og sólin á aö gera á páska- dagsmorgun en þá á hún aö dansa af gleði nokkur augnablik. Gerið þaö bara á fastandi maga. -ÞG Bollan látin út i pottinn, en þar er fyrir vatnið og kálið. Hrærið bolluna i sundur með sleif ef þarf. Skinkan skorin i bita og sveppir, léttsteikt og siðan látið i kótelettu- vasana. Kóteletturnar steiktar með fyllmgunni, lokið vösunum með tannstönglum. Sveppir sem steiktir voru á undan kótelettumm síðan lótnir á pönnuna ásamt rjóma og kryddi. Látið krauma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.