Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Side 34
34
DV. MEÐVKUDAGUR 2. MAl 1984.
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
Birgir Þór Borgþórsson er vel fimur,
þrátt fyrir aö hann keppi í 100 kílóa
flokki í lyftingum. Leikandi létt fer
hann flikk flakk og heljarstökk. „Aö
visu titrar jörðin þegar maöur lendir.
En það gerir ekkert til,” bætir hann
glaðhlakkalega viö.
Hann er skemmtilegur viömælandi.
Hress og snar í svörum. Viö erum ekki
í neinum vafa um aö kappinn er
sterkasti gjaldkeri landsins. Sjálfur
brosti hann aöeins er viö impruðum á
þvi viöhann.
Byrjaði sem smápeð
„Eg byrjaöi í lyftingum sem smá-
peö, 13 ára gamall,” sagöi hann er við
litum inn í „Jakaból”, hrörlega
æfingaraðstöðu lyftingamanna á
Reykjavíkursvæöinu. ,3ólið” er i
Laugardalnum og þar hófu lyftinga-
menn æfingar áriö 1977.
— En hvers vegna lyftingar, Birgir
Þór Borgþórsson?
„Það vildi þannig til aö nokkrir
frægir lyftingakappar unnu í auka-
vinnu á sama stað og móöir mín. Eg
hitti þá stöku sinnum og þeir sögöust
vera aö leita aö mönnum í léttari flokk-
ana.
Þaö varö úr aö ég fór aö æfa. En
samt byrjaði ég ekki fyrir alvöru fyrr
en ég var oröinn 18 ára. Síöan hef ég
veriö í þessu alveg á fullu.”
Þau ár eru nú orðin sjö talsins því
Birgir er 25 ára aö aldri. Þetta meö
sterkasta gjaldkerann. Hann vinnur í
Utvegsbanka Islands í Kópavogi. Og
þaö eru ekki einu gjaldkerastörfin.
Hann er gjaldkeri í stjórn Lyftinga-
sambands Islands.
A meðal lyftingamanna er þaö al-
talaö aö hann sé ein aöaldriffjöörin í
málum lyftingamanna hérlendis.
Ahugi hans á íþróttinni er algjör. Og
þaö er einmitt hann sem er hvað
Birgir Þór Borgþórsson, 25 ára, formaöur Lyftingadeildar KR og gjaldkeri í vegsbankanum í Kópavogi. Hann segir skemmtilega frá því í viðtalinu þegar
stjórn Lyftingasambands íslands. Hann starfar jafnframt sem gjaldkeri hjá Út- hann hóf sín fyrstu afskipti af lyftingum. „Byrjaði sem smápeð, 13 ára gamall.”
Jörðin titrar er hann lendir
fremstur í flokki í byggingu nýs
íþróttahúss fyrir lyftingamenn, sem
verið er aö reisa á KR-svæöinu viö
Frostaskjól.
Upp skal húsið
„Okkur gengur ekki sem best að
reisa þaö. Gamla vandamálið, vantar
peninga. Grunnurinn er kominn og viö
erum nokkrir sem erum harðir á því aö
upp skuli húsiö. Viö verðum að fá nýtt
hús í staö „ Jakabóls”.
Það er í þannig ásigkomulagi núna
aö ef á aö gera það upp þá verður
hreinlega að smiöa nýtt hús utan um
þaðfyrirof fjár.”
Undir þessi orð tekur Dægradvölin.
Húsið er vægast sagt aö niðurlotum
komiö. Tvisvar á síðasta ári kviknaöi í
því. Lyftingamenn hafa gert þaö upp i
bæöi skiptin, en þó svona meira til að
geta haft einhverja aðstöðu. Þetta er
kumbaldi, í orösins fyllstu merkingu.
Söfnun er í gangi vegna nýja hússins
á KR-svæðinu. Þegar þaö veröur
komiö upp veröur þaö örugglega mikil
lyftistöng fyrir íþróttina.
„Þaö sem vantar er fyrst og fremst
aö keppnismenn í lyftingum og þeir
sem æfa, en eru ekki komnir langt í
íþróttinni, geti æft saman.
Var alltaf troðfullt í Jakabóli
Þegar byrjaö var aö æfa í „Jaka-
bóli” á sínum tíma var þar alltaf troö-
fullt.
Trimmarar æföu þar innan um
keppnismennina. Og þaö varð til þess
aö þeir fengu oft áhuga á lyftingum
sem keppnisíþrótt. Þeir sáu hvaö það
er sem heillar viö lyftingar og tóku því
þáttímótum.
Eftir aö heilsuræktarstöövarnar risu
upp hafa þær tekið við trimmurunum
aö vissu marki. Og nú er svo komið að
fleiri vantar í keppni. Nýja húsinu
okkar er ætlaö að snúa þessu dæmi viö.
Fá fleiritilaðkeppa.”
— Nú eru margir sem tala um lyft-
ingar sem hættulega íþrótt. — Hvað er
tilíþví?
„Já, þaö eru margir sem halda aö
svo sé. En ég er þó ekki á þeirri
skoðun. Reynslan hefur sýnt aö þaö er
furöanlega lítið um slys i iyftingum. I
bandarískri könnun um slys i íþróttum
Hér sýnir Birgir okkur hvernig komiö er fyrir Jakabóii. Stutt í að þessi veggur
molni í gegn. Og í rauninni má segja að Jakabólið í Laugardalnum sé þeirra „f jár-
lagagat” því léleg húsakynni hafa orðið til þess að lyftingamenn eru nú byrjaöir
að reisa nýtt hús á KR-s væöinu.
sýndi þaö sig aö lyftingar eru aftarlega
á blaöiyfir „slysamiklar” íþróttir.
Lenti á skurðarborðinu
Eg játa þó að fyrir einu og hálfu ári
varð ég fyrir því aö meiöast á hné og
lenda á skurðarboröinu, Þaö breytir
því samt ekki aö í öðrum íþrótta-
greinum eru til dæmis hnémei$sli mun
algengari. Þaö er vitaö aö margir
knattspyrnumenn, sem keppa í 1.
deild, eiga í vandræðum vegna hné-
meiðsla.”
— Hversu margir helduröu aö iöki
lyftingar hér á landi?
„Eg held aö þaö séu eitthvað rétt
innan viö hundraö. En það eru samt
fleiri sem koma nálægt þessu. Þeir
keppa hins vegar ekki.”
— Hver er helsta skýringin á því aö
áhugi manna á lyftingum minnkar?
„Mín skoðun er sú aö þaö þarf
margra ára vinnu til að ná árangri.
Árangurinn kemur hægt. Menn þurfa
aö sýna biðlund. Það þarf tíma til að
æfa upp tæknina. Og þaö er einmitt á
þessumtíma sem flestir gefast upp.”
Sem flestir lendi í lóðunum
En aö lokum, Birgir, áhuginn ekkert
aöminnka hjáþér?
„Nei, ekki er það. Eg eyði nánast
öllum mínum frístundum í þessa íþrótt
og svo veröur örugglega áf ram á næstu
árum. Hún hefur veitt mér mikiö.
Eigum viö bara ekki aö segja aö
vonandi lendi sem flestir í lóðunum.
Þetta er heljarinnar upplyfting.” -JGH.
— rætt við sterkasta gjaldkera landsins,
Birgi Þór Borgþórsson lyftingamann
Jakabóiiö hefur gert sitt gagn frá því það var tekið í notkun árið 1977. „Bólið” er
að niöurlotum komiö. Það eru hins vegar ekki þessir lyftingamenn. Þeir lyfta sér
upp í því og iöka æfingar á fullu.
Nýja iþróttahúsiö á KR-svæöinu skal risa. Til merkis um að húsið eigi eftir aö
veröa íþróttinni hin mesta lyftistöng, var þessum lóðum hampaö. Taliö frá
vinstri: Torfi Ólafsson, Óskar Kárason og þeir Ólsenbræður, Báröur og Daníel.
DV-myndir Einar Ólason.