Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Side 40
I Fréttaskotið 68-78-58 SIMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá í síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið í hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Stúlkumar björguðust úreldinum Þr jár stúlkur innan viö tvítugt b jörg- uöu sér út af eigin rammleik þegar eldur kom upp í ibúö að Teigaseli 4 í Breiöholti klukkan tíu í gærmorgun. Þegar slökkviliðiö kom á staðinn stóðu þær fyrír utan húsiö. Inni iogaöi eldur í stofunni. Kviknað hafði í sófa. Slökkviliðsmenn báru hann út og kæföu eldinn þar. Ibúðin skemmdist mikiö af sóti og reyk.-KMU. Þrír deila ef sta sætinu Þrír skákmenn eru nú efstir og jafnir á hinu firnasterka skákmóti í London, heimsmeistarinn Karpov, Lev Polugaevski og enski skákmaðurinn Murray Chandler. I fimmtu umferö mótsins, sem tefld var í gær, vann Karpov Speelman og Chandler vann Riblí meðan Polugaevski vann John Nunn. Bandaríski skákmaöurinn Yasser Seirawan er í fjórða sæti með 3,5 vinn- inga og hollenski skákmaðurinn Timman í fimmta sæti meö 3 vinninga. Timman fótbrotnaöi á sunnudag í fót- boltaleik en mætti með fótinn í gifsi í gær og vann Svíann Ulf Anderson örugglega. SINUELDAR ÍB0RGINNI Sinueldar hafa angrað Slökkvilið Reykjavíkur undanfama daga. A mánudag þurfti slökkviliðið til dæmis þrisvar að hafa afskipti af sinueldum sem krakkar höföu kveikt á höfuð- borgarsvæðinu. Slökkviliðið fer á staðinn ef það telur trjágróður, mannvirki eða önnur verðmæti í hættu. Auk þess þarf það að verja fugla sem byrjaðir eru að verpa. Samkvæmt fuglafriöunarlögum eru sinueldar bannaðir eftir 1. maí. -KMU. Arekstur íKópavogi Harður árekstur varð á mótum Dal- brekku og Nýbýlavegar í Kópavogi klukkan 19.43 í gærkvöldi. Tveir bílar rákust saman og skemmdust mikið. Fernt var flutt á slysadeild. Fólkið fékk að fara þaðan að skoöun lokinni. -KMU. LOKI Ég er að ve/ta því fyrir mér hvortþað varði ekki við einhver iög að bjóða upp á itaiska snáka í sjónvarpinu. Undarlegir gestir á lögreglustöðinni í Vestmannaeyjum: Risapöddur á stærð Það eru undarlegir gestir sem gista lögreglustöðina í Vestmanna- eyjum þessa dagana. Risastórar pöddur og köngulær, sérstaklega fluttar til landsins vegna töku kvik- myndarinnar Enemy Mine. Eru þær hér á sérstökum undanþágum, undir strangri gæslu allan sólarhringinn og fær enginn að hreyfa við þeim nema islenskur dýralæknir sem sérstak- lega hefur veríð ráðinn til starfans. Hann nær í kvikindin á morgnana, teiur þau nákvæmlega, síðan er haldið upp á hraun og á kvöldin eru þau talin aftur c® lokuð inni í skáp á lögreglustöðinni. „Pöddurnar eru i þreföldum kössum, ysti kassinn er úr plasti og þeir eru lokaðir hér inni i sicáp,” sagði vakthafandi lögreglu- maður á lögreglustöðinni í Eyjum í samtali viö DV. „Eg leysti dýralækninn af í 3 daga fyrir skömmu og hafði þá yfirumsjón með pöddunum," sagöi Páll Zophoniasson, fyrrum bæjarstjóri i Eyjum, aöspurður um fyrirbærið. „Eg taldi nákvæmlega upp úr köss- unum áður en haldið var upp á hraun og svo aftur að kvikmyndatöku lokinni. Þetta voru 25—50 stykki af hverri tegund en tegundirnar hafa Örugglega verið 5. Eg segi ekki að þetta hafi verið risastórar pöddur en þó á stærð við eldspýtustokk á þykktina,” sagðiPáll. Pöddurnar þola illa kulda og deyja þvi næstum jafnharðan og þær eru kvikmyndaöar á hrauninu þó þar sé hlýrra en á flestum öörum stöðum hérlendis. Er þá farið með „likin”, þau brennd á Keldum og ný kvikindi látin fylla í skarðið. -EIR. Bíl var ekid aftan á 27 ára gamlan mann á reiðhjóli á brúnni yfir Kópavogslœk í fgrrakvöld. Hjólreiðamaðurinn klemmd- ist milli brúarhandriðs og bíls og slasaðist mikið, einkum á fótum. Negddust lœknar til að nema af honum annan fótinn, samkvœmt upplýsingum Kópavogslögreglunnar. -KMU/DV-mgnd S. Krafist viku gæsluvarðhalds yfir fálkaeggjaþjófunum: ÞÝSKU HJÓNIN VORU HÉR LÍKA í FYRRA —Hvað verður gert viö fálkaegg- in’ Krafist hefur verið viku gæslu- varðhaldsúrskurðar, eða til 9. maí, yfir þýsku hjónunum sem handtekin voru með átta fálkaegg í Gilsfiröi á mánudag. Hefur dómari tekiö sér frest fram eftir degi til að taka ákvörðun um málið. Voru hjónin í yfirheyrslum hjá RLR í allan gær- dag. Þau eru nú í Síðumúlafangelsi og verða yf irheyrð áfram í dag. Samkvæmt upplýsingum DV er eiginmaðurinn 24 ára gamall en eiginkona 20 ára. Þau munu hafa verið hér á landi á sama tíma í fyrra, „sennilega í sama tilgangi” að sögn Ævars Petersen, fuglafræðings. Það var fyrir tilviljun að upp komst um eggjaþjófana en tilkynnt var til lögreglunnar á Húsavik að bílaleigubíll væri við fálkahreiður í Dimmuborgum. Var þá leit strax sett í gang og miðaðist hún við þaðað útlendingar væru sökudólgamir. „Það er alltaf gert ráð fyrir, aö það séu útlendingar sem stundi þessa iðju. En það er vel hugsanlegt að Islendingar séu með í spil- inu,”sagði Ævar Petersen. ,Jíkki síst þegar litið er á það hversu miklir 'peningareruihúfi.” „Þau eru ónýt. Það kemur ekki til greina að unga þeim út. Það yrði svo erfitt að fylgjast með því hvemig ungarnir spjöruðu sig. Það kostaði margra mánaða vinnu, sem engum árangri skilaði. Við höfum reynt þetta þegar teknir hafa verið fálka- ungar af þjófum og þeir ungar sem við höfum getað fylgst með hafa fundist dauðir,” sagði Ævar Peter- sen. -KÞ Kröfurflugmanna: Alltað70% launahækkun Mikið ber á milli í deilu Félags islenskra atvinnuflugmanna og flug- félaganna. Flugmenn hafa boðað verkfall dagana 11. og 12. maí næst- komandi. Sáttafundur hefur verið boöaöur hjá ríkissáttasemjara klukkan hálftíu í fyrramálið. Samkvæmt upplýsingum sem Flugleiðir hafa látið frá sér fara hefur flugmönnum verið boðin 13,6% grunn- kaupshækkun eins og ákveðin var í samkomulagi ASI og VSI. Kröfur flug- manna fela hins vegar í sér launa- hækkanir sem nema frá 42,6% upp í 70,9%. Grunnlaun flugmanna sem starfa hjá Flugleiöum eru nú frá 32,924 krónum í byrjunarlaun og upp í 81,221 krónur á mánuði. -ÖEF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.