Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Síða 40
I
Fréttaskotið
68-78-58
SIMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
síma 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Stúlkumar
björguðust
úreldinum
Þr jár stúlkur innan viö tvítugt b jörg-
uöu sér út af eigin rammleik þegar
eldur kom upp í ibúö að Teigaseli 4 í
Breiöholti klukkan tíu í gærmorgun.
Þegar slökkviliðiö kom á staðinn stóðu
þær fyrír utan húsiö.
Inni iogaöi eldur í stofunni. Kviknað
hafði í sófa. Slökkviliðsmenn báru
hann út og kæföu eldinn þar. Ibúðin
skemmdist mikiö af sóti og reyk.-KMU.
Þrír deila
ef sta sætinu
Þrír skákmenn eru nú efstir og
jafnir á hinu firnasterka skákmóti í
London, heimsmeistarinn Karpov, Lev
Polugaevski og enski skákmaðurinn
Murray Chandler. I fimmtu umferö
mótsins, sem tefld var í gær, vann
Karpov Speelman og Chandler vann
Riblí meðan Polugaevski vann John
Nunn.
Bandaríski skákmaöurinn Yasser
Seirawan er í fjórða sæti með 3,5 vinn-
inga og hollenski skákmaðurinn
Timman í fimmta sæti meö 3 vinninga.
Timman fótbrotnaöi á sunnudag í fót-
boltaleik en mætti með fótinn í gifsi í
gær og vann Svíann Ulf Anderson
örugglega.
SINUELDAR
ÍB0RGINNI
Sinueldar hafa angrað Slökkvilið
Reykjavíkur undanfama daga. A
mánudag þurfti slökkviliðið til dæmis
þrisvar að hafa afskipti af sinueldum
sem krakkar höföu kveikt á höfuð-
borgarsvæðinu.
Slökkviliðið fer á staðinn ef það
telur trjágróður, mannvirki eða önnur
verðmæti í hættu. Auk þess þarf það að
verja fugla sem byrjaðir eru að verpa.
Samkvæmt fuglafriöunarlögum eru
sinueldar bannaðir eftir 1. maí. -KMU.
Arekstur
íKópavogi
Harður árekstur varð á mótum Dal-
brekku og Nýbýlavegar í Kópavogi
klukkan 19.43 í gærkvöldi. Tveir bílar
rákust saman og skemmdust mikið.
Fernt var flutt á slysadeild. Fólkið
fékk að fara þaðan að skoöun lokinni.
-KMU.
LOKI
Ég er að ve/ta því fyrir
mér hvortþað varði
ekki við einhver iög að
bjóða upp á itaiska
snáka í sjónvarpinu.
Undarlegir gestir á lögreglustöðinni í Vestmannaeyjum:
Risapöddur á stærð
Það eru undarlegir gestir sem
gista lögreglustöðina í Vestmanna-
eyjum þessa dagana. Risastórar
pöddur og köngulær, sérstaklega
fluttar til landsins vegna töku kvik-
myndarinnar Enemy Mine. Eru þær
hér á sérstökum undanþágum, undir
strangri gæslu allan sólarhringinn og
fær enginn að hreyfa við þeim nema
islenskur dýralæknir sem sérstak-
lega hefur veríð ráðinn til starfans.
Hann nær í kvikindin á morgnana,
teiur þau nákvæmlega, síðan er
haldið upp á hraun og á kvöldin eru
þau talin aftur c® lokuð inni í skáp á
lögreglustöðinni. „Pöddurnar eru i
þreföldum kössum, ysti kassinn er úr
plasti og þeir eru lokaðir hér inni i
sicáp,” sagði vakthafandi lögreglu-
maður á lögreglustöðinni í Eyjum í
samtali viö DV.
„Eg leysti dýralækninn af í 3 daga
fyrir skömmu og hafði þá yfirumsjón
með pöddunum," sagöi Páll
Zophoniasson, fyrrum bæjarstjóri i
Eyjum, aöspurður um fyrirbærið.
„Eg taldi nákvæmlega upp úr köss-
unum áður en haldið var upp á hraun
og svo aftur að kvikmyndatöku
lokinni. Þetta voru 25—50 stykki af
hverri tegund en tegundirnar hafa
Örugglega verið 5. Eg segi ekki að
þetta hafi verið risastórar pöddur en
þó á stærð við eldspýtustokk á
þykktina,” sagðiPáll.
Pöddurnar þola illa kulda og deyja
þvi næstum jafnharðan og þær eru
kvikmyndaöar á hrauninu þó þar sé
hlýrra en á flestum öörum stöðum
hérlendis. Er þá farið með „likin”,
þau brennd á Keldum og ný kvikindi
látin fylla í skarðið.
-EIR.
Bíl var ekid aftan á 27 ára gamlan mann á reiðhjóli á brúnni
yfir Kópavogslœk í fgrrakvöld. Hjólreiðamaðurinn klemmd-
ist milli brúarhandriðs og bíls og slasaðist mikið, einkum á
fótum. Negddust lœknar til að nema af honum annan fótinn,
samkvœmt upplýsingum Kópavogslögreglunnar.
-KMU/DV-mgnd S.
Krafist viku gæsluvarðhalds yfir fálkaeggjaþjófunum:
ÞÝSKU HJÓNIN VORU
HÉR LÍKA í FYRRA
—Hvað verður gert viö fálkaegg-
in’
Krafist hefur verið viku gæslu-
varðhaldsúrskurðar, eða til 9. maí,
yfir þýsku hjónunum sem handtekin
voru með átta fálkaegg í Gilsfiröi á
mánudag. Hefur dómari tekiö sér
frest fram eftir degi til að taka
ákvörðun um málið. Voru hjónin í
yfirheyrslum hjá RLR í allan gær-
dag. Þau eru nú í Síðumúlafangelsi
og verða yf irheyrð áfram í dag.
Samkvæmt upplýsingum DV er
eiginmaðurinn 24 ára gamall en
eiginkona 20 ára. Þau munu hafa
verið hér á landi á sama tíma í fyrra,
„sennilega í sama tilgangi” að sögn
Ævars Petersen, fuglafræðings.
Það var fyrir tilviljun að upp
komst um eggjaþjófana en tilkynnt
var til lögreglunnar á Húsavik að
bílaleigubíll væri við fálkahreiður í
Dimmuborgum. Var þá leit strax
sett í gang og miðaðist hún við þaðað
útlendingar væru sökudólgamir.
„Það er alltaf gert ráð fyrir, aö
það séu útlendingar sem stundi
þessa iðju. En það er vel hugsanlegt
að Islendingar séu með í spil-
inu,”sagði Ævar Petersen. ,Jíkki
síst þegar litið er á það hversu miklir
'peningareruihúfi.”
„Þau eru ónýt. Það kemur ekki til
greina að unga þeim út. Það yrði svo
erfitt að fylgjast með því hvemig
ungarnir spjöruðu sig. Það kostaði
margra mánaða vinnu, sem engum
árangri skilaði. Við höfum reynt
þetta þegar teknir hafa verið fálka-
ungar af þjófum og þeir ungar sem
við höfum getað fylgst með hafa
fundist dauðir,” sagði Ævar Peter-
sen.
-KÞ
Kröfurflugmanna:
Alltað70%
launahækkun
Mikið ber á milli í deilu Félags
islenskra atvinnuflugmanna og flug-
félaganna. Flugmenn hafa boðað
verkfall dagana 11. og 12. maí næst-
komandi. Sáttafundur hefur verið
boöaöur hjá ríkissáttasemjara
klukkan hálftíu í fyrramálið.
Samkvæmt upplýsingum sem
Flugleiðir hafa látið frá sér fara hefur
flugmönnum verið boðin 13,6% grunn-
kaupshækkun eins og ákveðin var í
samkomulagi ASI og VSI. Kröfur flug-
manna fela hins vegar í sér launa-
hækkanir sem nema frá 42,6% upp í
70,9%. Grunnlaun flugmanna sem
starfa hjá Flugleiöum eru nú frá 32,924
krónum í byrjunarlaun og upp í 81,221
krónur á mánuði.
-ÖEF.