Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1984, Page 15
DV. MÁNUDAGUR 28. MAI1984.
15
' *
Aðalf undur Kaupfélags
Árnesinga:
Veltan var
451,6 millj.
Aöalfundur Kaupfélags Amesinga
var haldinn á Selfossi 8. maí sl. Kjörnir
fulltrúar á fundinn voru 109 talsins. 1
félagiö gengu 90 manns á síðasta ári og
er fjöldi félagsmanna nú um 2000 tals-
ins.
Heildarvelta kaupfélagsins varö
451,6 millj.kr. og haföi aukist um
tæp 80% frá árinu áður. Launagreiösl-
ur námu 54,8 millj. kr. Hagnaður af
sölu eigna var 5,7 millj. kr.
Á fundinum kom fram aö aðalfram-
kvæmdir á vegum félagsíns á siöasta
ári voru endurbætur og flutningur á
brauðgeröinni á Selfossi og breytingar
á útibúinu í Hverageröi.
Meðal þeirra tillagna, sem sam-
þykktar voru á fundinum, var aö þeim
tilmælum var beint til Samvinnuhreyf-
ingarinnar að nú þegar veröi leitað
allra vænlegra leiða til iönaöarupp-
byggingar í Arnessýslu þar sem það
væri áhyggjuefni allra hugsandi
manna hve fólksflutningar til Reykja-
víkursvæöisins hefðu aukist. Stefnt
skuli aö því aö iönaðaruppbyggingin
veröi gerð í náinni samvinnu við KA.
.. .-Regína^Seliqssi,,
. f' V • •' i SNORRABRAUT 56 SÍMI 1 35 05 GLÆSIBÆ SÍMI 3 43 50
li
Útskrift í Flensborg
Flensborgarskóla var slitiö þriðju-
daginn 22. maí sl. og þá brautskráöir
43 stúdentar og 3 nemendur meö
önnur próf. Flestir brautskráöust af
viöskiptabraut, eöa 11, en 3 voru braut-
skráöir af tveimur brautum í senn.
Bestum námsárangri náði Steina
Borghildur. Níelsdóttir sem lauk prófi
meö ágætiseinkunn af tveimur náms-
brautum: málabraut og viöskipta-
braut, og haföi alls 172 námseiningar,
sem eru 39 einingar umfram þaö lág-
mark sem krafist er til stúdentsprófs.
Aörir nemendur meö ágætiseinkunn
voru Lóa María Magnúsdóttir, sem
brautskráöist af náttúrufræöibraut
eftir 3 ára nám í framhaldsskóla, og
Jón Viðar Gunnarsson sem braut-
skráðist af viöskiptabraut.
Kór Flensborgarskólans söng við
skóiaslitaathöfnina og skólameistari,
Kristján Bersi Olafsson, sleit skólan-
um og afhenti einkunnir og viöurkenn-
ingu fy rir góöan námsárangur.
Leikhúsfólkid skoðar nýbygginguna.
Borgarleikhúsið
nánast uppsteypt
Byggingu Borgarleikhúss miðar all-
vel áfram en samfellt hefur veriö
unnið viö byggingarframkvæmdir sl.
þrjú ár. Stefnt er aö því aö ljúka upp-
steypu hússins um næstu áramót og
byggingin verður vonandi komin undir
þak á fyrri hluta næsta árs. Um þessar
mundir er einkum unniö aö uppsteypu
leiksviðsturnsins og áhorfendasalar-
ins og svæöis þar í kring. I síöustu viku
fór starfsfólk Leikfélags Reykjavíkur í
skoöunarferö á væntanlegan vinnustaö
undir leiösögn Þorsteins Gunnarsson-
ar leikara, sem jafnframt er einn
þriggja arkitekta leikhússins, og voru
meðfylgjandi myndir teknar viö það
tækifæri. Verða mikil viðbrigði aö
koma úr þrengslunum í Iönó í hiö nýja
og veglega leikhús. Aöaláhorfendasal-
urinn í Borgarleikhúsinu mun rúma
um 500 manns, en minna sviðið tekur
frá 150—200 manns í sæti eftir fyrir-
komulagi hverju sinni.
Byggingaraöilar Borgarleikhússins
eru Reykjavíkurborg og Leikfélag
Reykjavíkur og hefur verið stefnt að
því að taka megi leikhúsið í notkun á
200 ára afmæli Reykjavíkurborgar í
ágúst 1986. Til þess að svo megi veröa
er Ijóst að leita verður f jár til fleiri en
ofangreindra aöila og er rétt að benda
fólki og stofnunum á að fjárframlög til
byggingarinnar má leggja inn á póst-
gíróreikning Húsbyggingarsjóös LR
11620-0.
I byggingamefnd Borgarleikhússins
eru Guðmundur Pálsson leikari,
Þóröur Þorbjarnarson borgarverk-
fræðingur og Davíö Oddsson borgar-
stjóri sem er formaður nefndarinnar.
Nemendahópurinn úr Fiensborgarskóia.
NÝ SENDING
OKKAR VERÐ
TOEpJI
-'5T*S^SKÚRINN
VELTUSUNDl 1
21212
Nr. 1340. Hálfuppháir dömuskór úr
mjúku leðrí. L'rtur svart. Stærðir
36-39. Verð kr. 969.
NL 157. Dömurimlaskór úr mjúku
leðri. Litur millibrúnn. Stærðir 37-
41. Verö kr. £25.
Nr. 0250. Mjúkir dömuinniskór úr
leðri.
Litur: hvitt. Stærðir 36-41. Verð kr.
470.
Nr. 0231. Mjúkir dömuskór úr leðri.
Litur svart. Stærðir 35-41. Verð kr.
599.
Nr. 0246. Dömuleðursandalar. Litir:
svart, vínrautt, khaki grænt
(tabacco). Stærðir 36-41. Verð kr.
489.
PÓSTSENDUM
SAMDÆGURS
KREDITKORT
Nr.0230. Dömutauskór. Litur beige.
Stærðir 37-40. Verðkr. 450.
Nr. 236. Spánskar espadrillur, NÝ
SENDING, margir litir, stærðir 36-
45. Verð kr. 169.