Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1984, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR
169. TBL. —74. og 10. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 24. JULI 1984.
Viðbrögð ráðherra við ákvörðun BSRB:
KRÖFUGERÐIN
ER ÓRAUNHÆF
sagði Matthfas Bjarnason heilbrigðisráðherra
„Mér finnst kröfugerö BSRB
óraunhæf,” sagöi Matthías Bjarna-
son, ráðherra Sjálfstæðisflokksins, i
samtali við DV, aðji-urður um kröfii-
gerð Bandalags stnrfsmanna ríkis og
bæja sem nú er í mótun. Er þar rætt
um 15—25% kauphækkun.
„Eg verð að segja að mér finnast
þessir launþegar vera að stíga mikið
óheillaspor. Menn geta reynt að
hækka kaupið ef þeir vilja en það
þýðir um leið að verðbólgan siglir
hraðbyri á ný. Ég er þeirrar skoðun-
ar að ýmsir miliiliöir hafi hækkað
laun meira en góöu hófi gegnir og
velti nú sinni hækkun yfir á útflutn-
ingsatvinnuvegina. Það eru auövitað
þjónustuaðilar sem þar eru á ferð-
inni og sjávarútvegurinn sem verður
fyrir barðinu á þessu,” sagöi
Matthías Bjamason heilbrigðis-,
trygginga- og samgönguráðherra.
-ás
„Nokkuð reglulegt"
„Er þetta ekki orðið nokkuö reglu-
legt,” varð Albert Guðmundssyni
fjármálaráðherra aö orði er hann
var beðinn um álit á þeirri ákvörðun
BSRB að segja upp samningum. „Eg
held að menn séu alveg hættir að
kippa sér upp við þetta. ”
Annars vildi Albert ekki tjá sig um
þessa ákvörðun BSRB, sagði að hann
hefði frétt um þessa ákvörðun í gær-
kveldi og að enn væri ekkert þessa
efnis komiö inn á borð hjá honum í
fjármálaráöuneytinu. þjh
— sjá einnig bls. 3
Gamalt hesthús í Víðidal verður hér eldinum að bráð. Húsið var autt þegar eldurinn kom upp og er talið að um íkveikju
hafi verið að rœða. DV-mgnd: S
Austf jarðatogarar hætta
veiðum annað kvöld:
Pólitík
í þessu
— segir Aðalsteinn
Jónsson, Eskifirði
tJtgeröarmenn tíu togara á Aust-
fjörðum hafa ákveðið að kalla skip sín
inn frá veiðum á miðvikudagskvöld.
Stjómendur útvegsfyrirtækja á
Vopnafirði, Fáskrúðsfirði, Breiðdals-
vík og Djúpavogi ætla hins vegar að
bíða með ákvörðun um stöðvun þar til
að loknum fundi með þingmönnum
Austurlandskjördæmis á Egilsstöðum
í fyrramáliö.
„Það er komin einhver pólitík í
þetta,” sagöi Aöalsteinn Jónsson, for-
stjóri Hraöfrystihúss Eskifjarðar, í
morgun þegar DV spurði hann hvers
vegna sumir útvegsmenn hefðu
ákveðið aö stööva en aðrir ekki. „Það
hefur runnið af þeim móðurinn.”
Aðalsteinn sagði að meginástæðan
fyrir stöövuninni væri hið gífuriega
háa olíuverð, sem útgerðin þyrfti að
greiða. Annars ættu þeir við svipuð
vandamál að stríða og önnur útgerðar-
félög á landinu. „Stöðvun blasir við
öllum þessum fyrirtækjum,” sagði
Aðalsteinn. „Við ákváðum hins vegar
aö stöðva allir í einu, frekar en einn í
einu.”
Fyrirtækin sem ákveðið hafa
rekstrarstöðvun eru: Fiskvinnslan hf.
og Gullberg hf. Seyðisfirði, Síldar-
vinnslan hf. Neskaupstað, Hraðfrysti-
hús Eskifjarðar, Skipaklettur hf.
Reyðarfirði og Hraðfrystihús Stöðvar-
fjarðar.
EA
Húseigandanum brá:
Mætti innbrots-
þjófi sem varað
„hreinsa” íbúðina
Manni einum, sem býr í miðbænum,
brá heldur illilega er hann kom heim
úr vinnu sinni í gærdag því hann kom
í flasiö á bíræfnum innbrotsþjófi þar
sem hann var að hreinsa til i íbúð
mannsins, þ.e. ræna búslóðinni. Hafði
hann tekið peninga, ferðatöskur og
sjónvarpið til handargagns er eigand-
ann bar að.
Skömmu áður en innbrotið uppgötv-
aðist hafði innbrotsþjófurinn reynt aö
selja leigubílstjóra sjónvarpið á þús-
und krónur með þeim formálsorðum
að hann hefði nýlega lent í skilnaði,
konan hefði hirt hundinn en hann sjón-
varpið.
-FRI
Samdráttarskeið næstu þrjú árin
—enþá fara frelsistímar í hönd samkvæmt „stjömukorti íslenska lýðveldisins”
„Stjörnukort íslenska lýðveldisins
er að mörgu leyti mjög áhugavert,”
sagði Gunnlaugur Guðmundsson
stjörnuspekingur í samtali við DV.
„Á því sést að frá því fyrir einu ári
hefur sterkur Satúrnus verið ríkj-
andi og mun svo veröa næstu þr jú ár.
Þetta hefur í för með sér að sam-
dráttur er á öllum sviðum. Það sem
hægt er að ráðleggja er að draga
saman seglin á öllum sviðum, endur-
skipuleggja fjármálin og sýna að-
haldog varkárni.”
„Eftir þrjú ár á að giska mun hins
vegar sterkur tJranus fara að segja
— sjá nánar á bls. 14-15
tíl sín. Frá og með þeim tíma fara í
hönd geysimiklar breytingar svo að
jaðrar við byltingu. Það mun kveða
við nýjan tón þar sem frelsi verður
lykilatriði,” sagði Gunnlaugur Guð-
mundsson.
I þættinum Dægradvöl á bls. 34 og
35 er farið rækilega í saumana á
stjörnuspeki og m.a. spjallaö við
Gunnlaug Guðmundsson stjörnu-
speking og fjallað um Stjörnuspeki-
miðstöðina. ás