Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1984, Blaðsíða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. JULl 1984.
5
Hjörlelfur, Lára og Sigursveinn skoða hér DV glóðvolgt úr prentvélinni.
DV-myndir: EinarÓiason.
Verðlaunin voru afhent að loknum nokkrum hamborgurum. Frá vinstri:
Lára Kjartansdóttir, Gunnar Gunnarsson frá Japis, Guðmundur Óskar
Reynisson, Gissur Kristinsson, framkvæmdastjóri Tommahamborgara, og
Sigursveinn Þórðarson.
Blaðberahappdrætti DV:
Lukkulegir
vinningshafar
Vinningarnir í blaðberahappdrætti jHjörleifur, sögðust bera út samtals 43
DV voru afhentir síöastliðinn fimmtu-|DV-blöð á dag og Moggann að auki.
dag. Þeir sem hrepptu efstu þrjá vinn- Lára ber út 36 og byrjaði fyrir ári en
ingana voru: Lára Kjartansdóttir frá Sigursveinn kvaðst hafa borið útblaðið
Akureyri, Guðmundur Oskar Reynis- í 3 ár. Hjörleifur er nýbyrjaður aö
son frá BolungarvSk og bræðurnir hjálpa bróður sínum. Og hvað skyldu
Sigursveinn og Hjörleifur Þórðarsynir 'þau lesa helst sjálf í DV? „Iþróttir,”
frá Vestmannaeyjum. Lára fékk 1. jvar svarið hjá þeim öllum, „jú, og
verðlaunin, Technics hljómtækjasam- myndasögurnar og Sviðsljós”. Ekkert
stæðu að verðmæti kr. 26.800, jþeirrahafðiunniðíhappdrættiáður.
Guömundur Oskar fékk 2. verðlaun,! Blaðberahappdrættið fór þannig
Panasonic ferðahljómtækjasett að fram að hvert blaðburöarbam sem
verðmæti kr. 13.650 og sams konar borið hafði út kvartanalaust í heila
vinning fengu Sigursveinn og Hjörleif- viku fékk 6 happdrættismiða. Söluböm
urí3. verðlaun. fengu 1 miöa fyrir hver 20 blöð seld.
Krakkamir skmppu til Reykjavíkur Tommahamborgarar lögðu DV lið í
og skoöuðu hvernig DV verður til, en happdrættinu en leikurinn stóð yfir
það gerist á fimm stööum: Síðumúla allan júnímánuö.
12,14 og 33, Þverholti 11 og Skejfunni. Aukaverðlaun, Sony kassettutæki,
Tommahamborgarar buðu svo til fengu þessir: Svava Sigvaldadóttir
hádegisverðarogþarvoru vinningarn- Reykjavík, Benedikt Guðmundsson,
ir afhentir. Síðan var skoðað Sædýra- Elísabet Kristjánsdóttir Selfossi, Haf-
safnið en hinir lukkulegu héldu síðan dís Svanbjörnsdóttir Hofsósi og Sigur-
heim á leið síðdegis. jón Valsson Hveragerði.
Þeir Eyjabræður, Sigursveinn og -pá
STURLUSÝNING A
LANDSBÓKASAFNI
Landsbókasafnið minnist um þessar
mundir með sýningu sjö hundruðustu
ártíðar Sturlu Þórðarsonar, sagnarit-
araogskálds.
Á sýningunni, sem standa mun
sumarlangt, eru sýndar helstu útgáfur
verka Sturlu Þórðarsonar og ýmis
handrit þeirra, ennfremur nokkur rit
um Sturlu. Þá eru sýndar fáeinar
myndir er þau Þorbjörg Höskuldsdótt-
ir og Eiríkur Smith hafa gert eftir efni
Islendingasögu.
Sturla Þórðarson lést sjötugur að
aldri 30. júlí 1284. Hann var skáld gott
og nefndur síöasta hirðskáldið. Kvæði
hans og kvæðabrot hafa varðveist í
sagnaritum hans. Sturla ritaði Land-
námu, þá gerð hennar sem við hann er
kennd og er elsta heila gerð hennar.
Talið er að hann hafi ritað Kristnisögu
og heimild er um að hann hafi ritað
Grettissögu, þótt sú gerð hennar sé nú
ekki varðveitt. Ýmsir þykjast sjá
mark hans á sögum sem Eyrbyggju og
Laxdælu.
Kunnastur er Sturla sem höfundur
Islendingasögu, meginþáttar
Sturlungu.
Snæf ellingar áhyggjuf uliir:
Svartbakur að eyði
leggja allt fuglalíf
„Agangur svartbaksins er orðinn
slíkur að ef svo heldur fram sem horf ir
verður ekki ein einasta önnur fugla-
tegund eftir á Nesinu. „Þetta sagði
Sævar Friðþjófsson, útgeröarmaður á
Rifi á Snæfellsnesi, í samtali við DV.
Snæfellingar hafa miklar áhyggjur
af útbreiðslu og græögi svartbaksins.
Hér á árum áður lifði svartbakurinn
m.a. á úrgangi fiskvinnslustöðva, en
nú er öldin önnur. „Nú orðið er allt nýtt
í fiskvinnslu og svartbakurinn fær mun
minna æti á þennan hátt,” sagði Sævar
Friðþjófsson. „Það var ekki svona
mikill ófriður af honum áður en nú fær
enginn fugl að vera í friði fyrir honum.
Hér á Rifi er eitt mesta kríuvarp á
Islandi en ég efast hreinlega um að
einn einasti ungi komist á legg, svo
skæður er svartbakurinn. Við vorum
með smáæðarvarp hér, eitthvað um
500 unga. Ég held að enginn þeirra tóri.
Það er staðreynd að svartbaknum
hefur fjölgað um leið og fæðuöflunar-
möguleikum hans hefur fækkað. Það
verður að grípa inn í og hef ja aðgerðir
til að stemma stigu við f jölgun hans,
annars eyðileggst hér allt annað fugla-
líf,” sagði Sævar Friöþjófsson.
ás
Enn stækkar f iskveiðif lotinn:
Bolvíkingar fá
nýjan rækjutogara
Nýtt skip hefur bæst í flotann i
Bolungarvík, Sólrún IS 1, sem er
alhliöa fiskiskip en hefur sérstaklega
verið búið til rækjuveiða. Það er 298
brúttólestir og 36 metrar á lengd. Aðal-
vél skipsins er Mireless Blakstone, 990
hestöfl, 8 strokka, auk þess tvær Lister
ljósavélar. Einnig hefur skipið bóg-
skrúfu og Becker-stýri.
A milliþilfari hefur verið komið fyrir
búnaði til vinnslu á rækju. Er þar um
að ræða vél, sem flokkað getur rækj-
una í f jóra stærðarflokka, suðupott og
tvenns konar hraðfrystibúnað.
Ennfremur verður í skipinu tækja-
búnaður til meltuvinnslu. Þrjár
frystilestir eru í skipinu sem rúma um
200tonn.
Sólrún er í eigu Einars Guðfinns-
sonar h/f, ellefu manns eru í áhöfn og
skipstjóri er Jón Guðbrandsson. KF
Sólrún í heimahöfn í Bolungarvik.
DV-mynd: Kristján Friðþjófsson.
UM 460 HAFNFIRÐINGA
ur í tveim
, — hið fyrra
kemur út nú í haust en hið
síðara næsta vor. Þar
munu birtast um 400
Ijósmyndir af eldra fólki í
Hafnarfirði, sem undir-
ritaður, útgefandi bókar-
innar, tók á árunum
1960 -1979. Eru það sömu
myndirnar og voru á Ijós-
myndasýningu, sem
haldin var haustið 1979.
Með hverri mynd fylgir
æviágrip og fleiri upplýs-
ingar um viðkomandi, en
æviágripin verða um 460
talsins.
Áskrifendur að bókunum
fá þær með sérstöku
afsláttarverði, og tryggja
sér með áskrift bæði
bindin, en svo virðist sem
bókin muni verða eftirsótt.
— í fyrra bindinu munu
verða um 185 myndir, en
um 210 í því síðara.
Áskriftarverð fyrra bind-
isins er kr. 988.00.
Þeir, sem vilja gerast
áskrifendur, eru vinsam-
lega beðnir um að gera
mér viðvart, t.d. með því
að fylla út neðanskráða
áskriftarbeiðni og senda
mér við fyrsta tækifæri
eða koma henni til skila í
skrifstofuna að
Austurgötu 10, Hafnarfirði.
Einnig má tilkynna áskrift
símleiðis, í sima 50764
eða 51874, alla virka daga
frá kl. 5 - 7 e.h. og
9 -10 e.h., til 1. ágúst nk.,
en eftir það á venjulegum
skrifstofutíma.
Áskriftarboðið gildir til
15. ágúst næstkomandi.
Arni Gunnlaugsson
Austurgötu 10, Hafnarfiröi.
ÁSKRIFTARBEIÐNI
Með vísan til auglýsingar í DV i júlí 1984 er hér með óskað eftir áskrift
að báðum bindum Ijósmyndabókarinnar „Fólkið í Firðinum".
Nafn: _______
Heimilisfang:
Sími:
\+UZAHL