Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1984, Blaðsíða 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. JULl 1984.
17
»ttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Pétur Pétursson kemst ekki til Feyenoord:
FÆR EKKIATVINNU-
LEYFI í HOLLANDI
Frá Kristjáni Bernburg, fréttamanni
DVíBelgíu.
Snuðra er hlaupin á þráðinn hjá
Pétri Pétursyni og litlar líkur á því
að hann verði lánsmaöur frá
Antwerpen hjá hollenska liðinu
Feyenoord í Rotterdam næsta leik-
tímabil. Hollensku blöðin skýrðu frá
því í morgun að mikUr erfiðleikar
vteru hjá Pétri að ná félagaskiptun-
um þar sem hann fær ekki atvinnu-
leyfi í HoUandi.
Fyrir tveimur árum voru sam-
I þykkt í HoUandi ný lög — miklu
I strangari en þau sem fyrir voru —
I um atvinnuleyfi í HoUandi. Fólk frá
I löndum utan Efnahagsbandaiags
I Evrépu fær nú ekki atvinnuleyfi þar í
landi, enginn möguleiki á því, að
I sögn hoUensku blaðanna. Þar sem
Pétur er íslenskur ríkisborgari fær
| hann ekki atvlnnuleyfi, þó svo hann
Ikomi frá belgisku félagi, Antwerpen,
eftir þriggja ára veru í Belgíu hjá
PéturPétursson.
Anderlecht og Antwerpen. Tvö árin
þar á undan lék hann með
Feyenoord, sem var fyrsta félagið
sem hann lék með sem atvinnu-
maður. Fyrir fimm árum voru engir
erfiðleikar á að fá atvinnuleyfi í Hol-
landi en fyrir tveimur árum var aUt
bert, eins og áður segir.
Að sögn hollensku blaðanna er
Feyenoord nú í sambandi við
franska landsUðsmanninn Dieter
Six, einn af Evrópumeisturum
Frakka, sem var hjá Mulhouse og
ætlar að reyna að f á hann tU sín í stað
Péturs.
Mér tókst ekki í morgun að ná í
forráðamenn Feyenoord eða Pétur
Pétursson tU þess að fá staðfestingu
þeirra á frásögnum hoUensku
blaðanna. Það þarf þó ekki að efa að
hoUensku blöðin fara með rétt mál og
líkurnar á því að Pétur leiki með
Feyenoord næsta keppnistímabU eru
nánast engar. KB/hsím.
Sævar Jónsson, landsliðsmaður og
fyrrum leikmaður Vals, á leikveUi
Cercle Brugge þar sem hann hefur
leikið undanf arin ár.
Vill heldur
halda
Sævari
— Íriíreynslu
HjáCerde Brugge
Frá Kristjáni Bernburg, frétta-
manni DV í Belgíu.
Belgíska félagið Cercle Brugge
hefur að undanförnu staðið í
samningaviðræðum viö Sævar
Jónsson um áframhaldandi veru
hans hjá félaginu en þær umræður
virðast nú vera að sigla í strand.
Belgíska félagiö hefur fengið tU sín
Norður-Ira, Tony Frazer, til reynslu.
Hann er 24 ára og hefur leikiö með
unglingalandsUði Norður-Irlands.
Hinn nýi þjálfari CS Brugge, Leikens,
viU þó heldur halda Sævari og hefur
óskað eftir fundi með stjórn félagsins
vegna þessa máls. Sá fundur verður
næstudaga.
Samnmgur Sævars við CS Brugge
rann út í vor og hann hefur farið fram á
meira kaup en félagið hefur viljað
borga honum og þar stendur hnífurinn
í kúnni.
KB/hsim.
Guðmundur Steinsson, Fram, sést hér sækja að Lofti Ólafssyni í gærkvöldi.
DV-mynd: BrynjarGautiSveinsson.
„Framarar
heppnir”
— sagði Magnús
Jónatansson
„Ég er ánægður með leik minna
manna. Við vorum mun betri aðilinn í
ieiknum og Framarar voru mjög
heppnir að ná stigi,” sagði Magnús
Jónatansson, þjálfari BreiðabUks, eft-
ir leikinn gegn Fram.
„Liðið er á uppleið. Á því er ekki
nokkur vafi. Mér fannst Framarar
komast upp með of mikla hörku. Þeir
brutu oft mjög gróflega af sér en ekki
við,” sagði Magnús. _SK-
„Máttum þakka fyrir
að ná öðru stiginu”
— sagði Jóhannes Atlason, þjálfari Fram, eftir jafntefli Fram og
Breiðabliks,0:0. Guðmundur Baldursson fékk rauða spjaldið
„Þetta er það slakasta sem við höf-
um sýnt i sumar. Við máttum þakka
fyrir þetta stig sem við fengum í
kvöld,” sagði Jóhannes Atlason, þjálf-
ari Fram, eftir að hans menn höfðu
gert markalaust jafntefll gegn
| Breiðabliki á LaugardalsveDi í gær-
kvöldi. Leikið var við erfiðar aðstæður,
vöUurinn háU sem áU og þungur yfir-
ferðar. Trausti Haraldsson lék ekki
með Fram vegna meiðsla.
Strax á 2. mínútu leiksins skaU hurð
nærri hælum hjá Fram þegar Vignir
Baldursson fékk ákjósanlegt mark-
tækifæri í vítateig Framara en besti
maður Fram í leUcnum, Guðmundur
Baldursson markvörður, náði að
verja. TU leikhlés sóttu BUkar mun
meira og engu líkara en Framarar
hefðu ekki nokkurn áhuga á þvi að
vinna leikinn. Lítið sem ekkert var
hugsaö um að sækja að marki andstæö-
ingsins, nær eingöngu að fá ekki á sig
mark. BreiðabUksUðið fékk nokkur góð
færi í fyrri hálfleik sem þeún tókst ekki
að nýta.
Það munaði ekki miklu að Framarar
skoruöu á fyrstu mínútu síöari hálf-
leiks, í eigið mark. Fyrirgjöf eins BUk-
ans skaust í hné Þorsteins Þorstems-
sonar og sleikti stöng Frammarksms.
Guðmundur Torfason komst í dauða-
færi á 12. mínútu en Friðrik varði vel
og nú tóku Framarar aðeins að hress-
ast. Leikur Uösins gat reyndar ekki
versnað mikið. Guömundur Steinsson
lét Friðrik verja frá sér í dauðafæri og
aftur komst Guðmundur í færi stuttu
siðar en bjargaö var í hom. BUkar
sóttu inn á milli og Benedikt Guð-
mundsson skaut yfir úr miðjum víta-
teig Fram, frekar hátt yfir. Og Sigur-
jón Kristjánsson átti tvö góð færi. I því
fyrra skaut hann í einn varnarmann
Fram og góðan skaUa hans varði Guð-
mundur Baldursson í Fram-markinu
af tandurhreinni snilld. Framarar
sóttu mikið siöustu minútur og nokkur
harka haföi hlaupiö i leikinn. Mikið um'
gul spjöld og ljót brot. Framarar skor-
uðu mark þegar nokkrar minútur voru
til leiksloka en það var dæmt af vegna
rangstöðu. Kristinn Jónsson skoraði
markið með skoti frá markteigshomi.
BUkarnir léku oft laglega í þessum
leik en þess á mUli datt leikur Uðsins
niður á lágt plan. Einum þehra var
vikið af leikveUi í lok leiksms. Guð-
mundur Baldursson fékk þá gula
spjaldiö í annað srnn í leiknum og það
rauða hófst því á loft af eðUlegum
ástæðum. Þorsteinn HUmarsson var
emna bestur hjá BUkunum en Guö-
mundur Baldursson var langbestur
Framara og bjargaði iiöinu frá tapi að
þessu sinni.
Liðm voru þannig skipuð: Fram.
Guðmundur, Þorsteinn V., Þorsteinn
Þ., Hafþór, Sverrir, Kristinn, Viðar,
Rafn Rafnsson (Bragi Bjömsson),
Omar, Guðmundur T. (örn Valdimars-
son), Guðmundur Stemsson.
BreiðabUk. Friðrik, Benedikt, Omar,
Loftur (meiddist í s.h. og inn kom
Magnús Magnússon), Olafur, Vignir,
Þorsteinn H., Jóhann, Jón E., Guð-
mundur B, Sigurjón.
Leikinn dæmdi Ragnar öm
Pétursson og dæmdi hann mjög vel ef
frá eru skilin nokkur atvik varðandi
spjöldin. Nokkuð misræmi í mati
brota, einn leikmaður bókaður fyrir
það sem annar komst upp með.
Viðar Þorkelsson og Guömundur
Steinsson, Fram, fengu gul spjöld,
Benedikt Guðmundsson, UBK, fékk
gult og Guðmundur Baldursson, UBK,
rautt. Áhorfendur voru 611. Maöur
leiksins: Guðmundur Baldursson,
Fram. -SK.
ITT Ideal Color 3304,
-fjárfesting í gæöum
á stórlækkuðu veröi.
23.450.
VERÐ A 20" ITT
LiTASJÓNVARPI
ST.GR
Sambærileg tæki fast ekki odyrari
ITT er fjárfesting í gæöum.
mmwm
TTT
Vegna sérSamninga við
ITT verksmiðjurnar í
Vestur Þýskalandi, hefur
okkur tekist að fá
takmarkað magn af 20"
litasjónvörpum á
stóríækkuðu verði.
íttir
íþróttir
íþróttir
SKIPHOLTI 7 SIMAR 20080 & 26800
I