Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1984, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1984, Side 20
20 DV. FIMMTUDAGUR 23. AGUST1984. (þróttir íþrótti íþróttir (þróttir lan Rush meiddist íDublin — ogeftil villveröur að skera hann upp í Ármúla 19 Sexfélögíúrslita- keppni4. deildar Ian Rush, hinn marksækni ieikmað- ur Evrópumeistara Liverpool, sem skoraði 49 mörk sl. keppnistimabil, missir af fyrstu leikjum Liverpool. Rush meiddist á hné á mánudags- kvöldið þegar LJverpool vann sigur, 3-0, í vináttuleik gegn Homa Farm í Dublin. Það er nú búið aö tappa af vatni sem var á milli liða í hnénu og síðan mun koma í ljós á sunnudaginn hvort meiöslin eru alvarlegri og þarf að skera hannupp. Meiðsli Rush eru mikið áfall fyrir Liverpool því að vöm félagsins á Eng- landsmeistaratitlinum, sem þaö hefur unniö sl. ár, hefst á laugardaginn í Norwich. •Joe Fagan, framkvæmdastjóri Liver- pool, sagðist vona að meiðsli Rush væru ekki alvarleg — aðeins smátognun á liðböndum en þaö getur farið svo að meiðslin séu mun alvarlegri en það, sagði Fagan. -SOS — 38 þúsund kr. í verðlaun á miklu móti íbilljard sem fram fer íÁrmúlal9 Hinn heimsfrægi billjardkennari, Bob Willlams frá Englandi, kemur til landsins í dag og mun næstu mánuði kenna bllljard í billjardstofunni Ár- múla 19. Er hér um að ræða tækifæri sem áhugamenn um þessa skemmti- legu iþrótt ættu ekkl að láta framhjá sér fara. Dagana 15. og 16. september fer fram úrtökumót í billjardstofunni Ármúla 19 fyrir heljarmikið mót sem haldiö verður að Ármúla 19 um mánaðamótin október nóvember. Þá mæta til leiks valinkunnir billjard- menn frá Englandi, tólf talsins, meðal þeirra atvinnumaðurinn Joe Johnson og í það minnsta tveir enskir landsliðs- menn. Tólf efstu menn á úrtökumótinu etja siðan kappi við þá ensku á stóra mótinu í nóvember. Fyrstu verðlaun þar verða 500pund (20þúsund ísl. kr.), önnur verðlaun verða 250 pund (10 þúsund ísl. kr.) og þriöju og fjórðu verðlaunl00pund(4þúsund). -SK. Nú er ljóst hvaða sex félög taka þátt í úr- slitakeppni 4. deildar. tR, Ármann og Léttir keppa í A-riðli og Tjörnes, Reynir, Arskógs- strönd, og Lelknir frá FáskrúðsBrði í Rriðll. Urslitakeppnin hefst 29. ágúst og lýkur 15. september. Þá leika sigurvegararnir úr riðl- unum tvelmur, sem tryggja sér 3. deildar sæti næsta keppnistímabil, um það hvaða félag verður 4. deildarmeistari. Missa tveir dóm- arar réttindin? Leikmaöur í 1. deild fékk í tvígang eitt refsistig þegar hann átti að fá fþað minnsta þrjú ★ Skiluðu dómararnir inn röngum ieikskýrsium? „Ég get ekkert látið hafa eftir mér um þetta mál á þessu stigl. Ég átti fund með þelm tveim dómurum sem hlut eiga að máli. Þelr skýröu sín sjónarmið í málinu. Þetta mál verður síðan tekið fyrir fljótlega á stjórnarfundi hjá Knattspyrnu- dómarafélaginu,” sagði Grétar Norðfjörð, formaður knattspyrnu- dómaraféiags íslands, í samtall við DV í gærkvöldl. Tveir knattspyrnudómarar sem dæma í 1. deild liggja nú undir grun um að hafa skilaö inn röngum skýrslum til aganefndar KSI. I leik Kefiavíkur og Breiöabliks braut Benedikt Guömundsson mjög gróf- lega á einum leikmanni IBK og fékk aö sjá gula spjaldið fyrir hjá dómara leiksins. Samkvæmt starfsreglum aganefndar KSI um leikbrot leik- manna á að veita fjögur refsistig fyrir háskalegan ieik, þrjú refsistig fyrir grófan leik og eitt refsistig fyrir „aðra minniháttar óprúðmannlega hegðun”. I skýrsiu dómarans í leik IBK og UBK fékk Benedikt eitt refsi- stig. Eftir leikinn kom Benedikt að máli viö dómara leiksins og spurði hann hve mörg refsistig hann fengi. Dómarinn svaraöi: „Ertu tæpur.” Vitni er að þessum samræðum. Aftur fékk Benedikt eitt refsistíg 1 leik Fram og Breiðabliks braut Benedikt mjög gróflega ó Guðmundi Steinssyni. Flestir voru jafnvel á því að rauða spjaldiö hefði veriö réttlát refsins. Benedikt fékk gula spjaldið. Eftir leikinn ræddi Magnús Jóna- tansson þjálfari Breiðabliks, við dómara leiksins. I skýrslu dómarans til aganefndar fékk Benedikt aöeins eitt refsistig, sem sagt fyrir „aðra minniháttar óprúömannlega fram- komu”. Svo vUdi til að í það minnsta einn meölimur aganefndar KSI var á leiknum og sá umrætt brot Bene- dikts. Það vakti furðu hans að í skýrslu dómarans eftir leikinn fékk Benedikt eitt refsistig. Aganefnd tók málið fyrir A fundi aganefndar var máliö tekið fyrir, rætt og vísað til stjómar Knatt- spyrnudómarasambands Islands þar sem það nú er. Verði þessir tveir dómarar sekir um að hafa skilað inn rangri skýrslu eiga þeir bóðir á hættu að missa dómararéttindi sín. Stjórn KDSI hefur völd til þess aö svipta dómara réttindum sínum verði sannað að þeir hafi gerst brot- legir í starfi. Það hefur aldrei átt sér stað hér á landi að dómari hafi misst réttindi sín fyrir afglöp í starfi og fari svo nú verður brotið blað í sögu dómaramála á Islandi. -SK. • Arnór Guðjohnsen byrjaði vel í belgh skoraði glæsilegt mark fyrir Anderli Tveir titlar til KR KR-ingar urðu Islandsmeistarar í 3. flokki þegar þelr unnu sigur 1—0 yfir Fram í úrslitaleik í Keflavík um sl. helgi. Það var Heimir Guðjónsson sem skoraði mark þelrra í fyrri hálfleik. KR-ingar urðu einnig Islands- meistarar í 2. flokki en aftur á móti misstu þeir af meistaratitlinum í 4 flokki á elleftu stundu — töpuöu úr- slitaleik 1—2 fyrir Akranesi á Selfossi eftir að hafa haft yfir 1—0. Hér á myndinni sjást Islands- meistarar KR í 3. flokki. Lárus Lofts- son þ jálf ar flokkinn. -SOS/DV-mynd: EMM Margir snjall- ir kylfingar — leika golf í Grafarholti NM-mótið hefst á morgun Norðurlandamótið i golfl fer fram á Grafarholtsvelli á morgun og laugar- dag. Keppnin hefst klukkan átta í fyrramálið og verða leiknar 36 holur hvorn dag. Ásamt einstaklingskeppn- inni verður keppt í sveitakeppnl. Sex kylfingar skipa hverja sveit og fimm bestutelja. Búist er við mjög skemmtilegri keppni og vitað er að margir snjallir kylflngar verða á meðal þátttakenda. Meðal þeirra eru menn með mínus einn eða tvo í forg jöf. Verður gaman að fylgjast með íslensku keppendunum á mótinu. Þeir leika á heimavelli og ætti þaö að ýta undir góðan árangur þeirra á mótinu þótt við snillinga sé aö eiga. Má víst telja að enginn áhugamaöur um golf verður svikinn af því, frekar en venjulega, að líta upp í Grafarholt. Keppnin hefst eins og áður sagöi klukkan átta í fyrramálið. Þá fer fyrsta hollið í karlaflokki út og síöan verða næstu holl ræst út með tíu mín- útna millibili. Karlarnir hefja síðan seinni átján holumar á morgun klukkan hálftvö. Keppni kvenna hefst klukkan tíu í fýrramáliö og þær hefja síðari hring- inn klukkan hálffjögur. Mótsstjóri verður Gunnar Torfason. -SK. Amór skorac góðuvbanana — Anderlecht vann stórsigur, 9:2, gegn nýHðum I belgísku knattspyrnunnar í gærl Frá Kristjáni Bemburg, fréttamanni DVíBelgíu: Anderlecht, liðlð sem Amór Guðjohnsen leikur með í Belgíu, byrj- aði keppnistímabilið með glæsibrag. Liðið vann nýliða Racing Jet á útivelll með miklum mun, 9—2. Amór Guð- johnsen kom inn á sem varamaður fyr- ir Frank Araesen í leikhléi og skoraðl sjötta mark Ánderlecht með góðu bananaskoti fyrir utan vítateig. Stuttu síðar reyndi Amór sama leik en þá sá markvörður nýllðanna, Everaert, við Ámóri og tókst að slá knöttinn í slá og yfir. Fimmtán þúsund áhorfendur tryllt- ust af fögnuöi eftir aðeins 40 sekúndur þegar Racing Jet náöi forystunni öll- Lewis talar íkirkju Carl Lewis, sem vann fern gullverðlaun á nýafstöðnum ólympiuieikum, er væntanlegur til Hollands um miðjan næsta mánuð, nánar tiltekið til borgarinnar Utrecht. Kappinn mun breyta út af vananum f þetta skiptið svo um munar. Hann hvorki hleypur né stekkur í fþréttamótum. Hann ætlar sér að taia f kirkju f bænum en hann er sagður mjög trúaður maður og mun tilheyra elnhverjum sértrúarsöfnuði f Bandarfkjunum. -SK. um á óvart. Það var Ferguson sem skoraði markið. I kjölfarið fylgdu fjög- ur mark frá Anderlecht áður en Gee- beelen minnkaði muninn í 2—4. Þeir sem skoruðu fyrir Anderlecht voru: Czemiatynski 2, Grun 2, Scifo, Van Der Berg, Vercauteren, Amesen og Amór. öruggur sigur andstæðinga Skagamanna Meistarar Beveren, andstæðingar Skagamanna í Evrópukeppni meist- araliða, sigmðu nokkuð örugglega lið Beerschot á heimavelli, 3—1. Nollet skoraöi þó fyrsta mark leiksins fyrir Beerschot. Stuttu síðar fékk Beveren vítaspymu sem Scönberger misnotaði. Jöfnunarmark Beveren var sjálfs- mark Eikelboom, Scönberger bætti síðan fyrir mistökin og skoraði 2—1 og Peter Creve skoraði síðan þriöja mark Beveren og innsigiaði sigur meistar- anna. • Sævar Sigurðsson og félagar í Cercle Brugge náöu aðeins jafntefli á heimavelli gegn FC Liege 0—0. Searing, sem lýst var gjaldþrota ekki alls fyrir löngu, er nú rekið af gömlum leikmönnum liðsins og flestallir núver- andi leikmenn liösins eru ungir að ár- um. Þeir gerðu sér lítið fyrir og náöu jafntefli gegn bikarmeisturum Ghent á heimavelli, 3—3. DV-lið 15. umferðar Þrfr nýliðar eru f DV-liði 15. umferðar 1. deildarkeppninnarsemerþannigskipað: Bjaml Sigurðsson (5) Akranesi Guðmundur Kjartansson (1) Val ÞorsteinnÞorsteinsson (2) Fram Haildór Áskelsson (2) Þór Slgurjón Kristjánsson (2) Brelðabllki Bjaml Sveinbjörasson (3) Þér Þorsteinn Vilhjálmsson (1) Fram GuðniBergsson (6) Val Sveinbjöm Hákonarson (2) Akranesi Hilmar Slghvatsson (1) , Val Guðmundur Steinsson (6) Fram (þróttir íþróttir íþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.