Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1984, Qupperneq 3
DV. FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER1984.
3
Vinnustöðvun1
ísláturhúsum
á Suðurlandi
— f rá og með
17. september
Boðuð hefur verið vinnustöövun í öll-
um sláturhúsum á Suðurlandi frá og
með 17. september nk. Það eru verka-
lýðsfélögin Rangæingur, Þór á Sel-
fossi, Víkingur í Vík og Samherji á
Klaustri sem standa að þessari vinnu-
stöðvun.
Jafnframt þessu hafa þessi verka-
lýðsfélög ákveðiö að vísa vinnudeilu
sinni til sáttasemjara ríkisins.
Verkalýösfélögin sögðu upp launaliö-
um kjarasamninga sinna við vinnu í
sláturhúsum á Suðurlandi í júlí sl. og
miðuðust uppsagnirnar við að 1.
september yrðu launaliðir þessara
samninga lausir.
Verkalýðsfélögin leggja megin-
áherslu á það í kröfum sínum að laun í
sláturhúsum verði þau sömu og Slátur-
félag Suöurlands hefur greitt í afurða-
vinnslum sínum frá 1. júlí, eða 15.913
kr. á mánuöi eftir eins árs starf.
A fyrsta fundi samninganefnda
verkalýðsfélaganna og VSI, sem hald-
inn var 3. sept. sl., höfnuðu fulltrúar
VSI kröfunum og varð sá fundur
árangurslaus. Næsti fundur þann 6.
sept. varð einnig árangurslaus og þá
slitnaði upp úr viðræðum aðila.
-FRI.
Norðlensku árnar
fyllast af laxi
Fiskifræðingar spá miklum göngum þar næstu tvö sumur
,,Samkvæmt því sem viö höfum
lengi haldið fram má búast viö þvi að
næsta sumar verði mikill smálax í
ánum fyrir noröan og norðaustan og
að sumarið 1986 verði einnig mikið af
stórlaxi í þeim,” segir Finnur
Garðarsson, fiskifræðingur hjá
Veiöimálastofnun.
Veiði í þessum ám hefur meira og
minna brugöist um árabil. „Það
hefur vorað illa og verið mjög kalt
mörg undanfarin ár, nema 1980 og nú
í ár. Klak í þessum ám heppnaðist
mjög vel 1980 og seiðin hafa að mestu
gengið út í ár þegar skilyrði eru aftur
góð. Og þessi seiði hafa einnig rúmt
um sig vegna lélegra árganga í
kring. Það má því mikiö bera út af til
þess að okkar spá um laxagöngur
næstu tvö ár bregðist,” segir Finnur.
Hann segir ennfremur að seiðin
hafi farið óvenjusnemma út í ár. En
þar sem vel voraöi og sjórinn var
oröinn mun hlýrri og áturikari en
lengi undanfarið, er ástæða til þess
aö ætla að afföll verði lítil. En það
Laxveiði hefur víða verið treg í sumar en nú er spáð góðri veiði nsstu sumrln.
eru fyrstu dagamir og vikumar í
sjónum sem ráða úrslitum um
afkomu hvers árgangs. Fiskifræð-
ingar Veiðimálastofnunar hafa ein-
mitt bent á afleitar aðstæður í sjón-
um sem orsök lélegra laxaárganga
og allt að því ördeyðu í sumum ám.
„Veiðar í sjó hafa ekki áhrif á
göngu smálaxins, hvað sem um þær
má segja annars. Færeyingar eru til
dæmis með stærðarlágmörk sem úti-
loka að þeir komi með smálax í land
að nokkm marki. Þær merkingar
sem stundaðar hafa verið undan-
farin ár, til dæmis í Vopnafjarðarán-
um, hafa ekki skilaö sér í Færeyja-
laxinum, þótt viö höfum haft mann
til þess að leita þeirra.
Tengsl þarna á milli þarf þó að
kanna betur til þess að fullyrt verði
um þau af eða á, en alla vega eiga
þau ekki að hindra smálaxagöng-
urnar í ámar fyrir norðan á næsta
sumri, ” segir Finnur Garðarsson.
-HERB.
Hafa selt 4300 lestrargleraugu
íHagkaupi:
„Förum fram á
lagabreytingu”
„Nei, við ætlum ekki að hætta sölu á
lesgleraugum. Við erum seigari en
þaö,” sagði Gísli Blöndal, fram-
kvæmdastjóri Hagkaups, er hann var
spurður um hvort Hagkaup hygðist
hætta sölu á lesgleraugum i samræmi
við þá niöurstöðu heilbrigðis- og trygg-
ingaráöuneytisins aö lesgleraugnasala
Hagkaups stangaöist á við lög um sjón-
tækjafræðinga og væri því ólögleg.
„Viö höfum skrifað heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra bréf þar sem
við fórum þess á leit við hann að hann
beitti sér fyrir því að lögum um sjón-
tækjafræðinga yröi breytt,” sagði
Gísli. „Við væntum þess að viðunandi
breyting fáist á þessum lögum svo
unnt sé að halda verði á lesgler-
augunum niöri. En til þess að uppfylla
skilyrði laganna eins og þau eru í dag
munum við auglýsa eftir sjóntækja-
fræðingi til þess að annast sölu á les-
gleraugunum.”
Gísli sagöi að til þess að uppfylla
skilyrði laga um sjóntækjafræðinga
yrði að framvísa recepti í versluninni
við kaup á lesgleraugum og söluna
þyrfti að annast s jóntækjafræðingur.
„Þetta hefur bæði aukafyrirhöfn í
för með sér þar sem kaupendumir
verða nú að gera sér ferö til augnlækn-
is til þess aö fá recept og svo leiðir
þetta einnig til aukakostnaðar. Eg geri
ráð fyrir að lesgleraugu, sem nú kosta
595 krónur, komi til með að kosta um
900 krónur,” sagði Gísli.
Hagkaup hefur nú selt um 4300 les-
gleraugu. Fyrsta mánuðinn seldust um
2000 gleraugu en síðan hafa selst 5—600
lesgleraugu á mánuði. Að sögn Gísla er
langflestir kaupendanna ellilífeyris-
þegar sem ekki hafa haft efni á að
kaupa sér gleraugu á því verði sem
boðist hefur annars staöar.
-ÞJH.
Hópur blaðamanna frá Þýskalandi og með i myndinni aru fulltrúar Ferða-
milaráðs, Flugleiða og Arnarflugs.
Erlendir blaðamenn í landkynningarferð
Blaðamönnum frá Norðurlöndum,
Bretlandi, Þýskalandi, Frakklandi,
Sviss og Hollandi hefur verið boðið
hingaö til lands í sumar til að auka
landkynningu Islands í Evrópu, en frá
þessum löndum koma flestir ferða-
menn hingað.
Blaðamennirnir ferðast vítt og breitt.
um landiö og eiga viðtöl við forráða-
menn í íslensku atvinnulífi.
Heildarfjöldi erlendra blaðamanna,
sem taka þátt í þessum heimsóknum,
verður um 80 og má vænta mikils
árangurs af skrifum þeirra um Island
og íslensk málefni, ekki aðeins fýrir
ferðaþjónustuna í landinu heldur
einnig fyrir íslenskar útflutnings-
vörur.
Aö heimsóknunum standa, auk
Ferðamálaráðs, Amarflug, Flugleiðir,
Hótel Holt, Hótel Saga og Flugleiða-
hótelinLoftleiðirogEsja. -jl.
Bestu kaupin
maxell
gæði
maxell
Fyrirtækiö, sem vinnur fyrir þig
r
n ti H h T^'*3 'hiniflir
IIHII
SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800
Sendum
um allt
land