Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1984, Síða 11
11
DV. FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER1984.
Miklar breytingar í vændum hjá Ríkisútvarpinu:
MIKIÐ AF LAXI
í ÞEIM ÖLLUM
— en það er ekki víst að þeir bíti alltaf á
Svínadalur er allbreiður og grösugur
víða. 1 honum er nokkurt skógarkjarr.
Mynni dalsins opnast til Leirársveitar,
ofan viö Miðfellsmúla. 1 dalnum eru
þrjú allstór vötn, hið innsta heitir
Geitabergsvatn (Draghálsvatn), Þóris-
staðavatn er í miðiö og Eyrarvatn
neðst. I Svínadal er Vatnaskógur og
þar er KFUM meö sumarbúðir og má
sjá unga og efnilega veiðimenn reyna
þar sín fyrstu köst. Veiöin hjá jseim er
oft ótrúlega góð.
Veiðin í vötnunum í nágrenni
allsherjargoðans í Svínadal hefur
verið töluverð í sumar. Veiðimenn
hafa rennst mikið upp á síðkastið og
margir fengið góða veiði og séö mikið
af laxi í öllum vötnunum, þó sér-
staklega Geitabergsvatni, en þeir voru
tregir að taka agnið. „Viö fengum einn
lax en þeir voru margir og vænir sem
eltu spúninn upp að landinu en vildu
alls ekki bíta á,” sagði veiðimaðurinn
sem renndi í Geitabergsvatnið. Annar
veiðimaður, sem oft hefur veitt á
svæðinu, sagði þetta. ,,Ég man ekki
VEIÐIVON
GunnarBender
eftir að hafa séö eins mikið af laxi
stökkvandi um öll vötnin, þaö var allt
vaöandi af laxi. En hann var tregur að
taka. Þó maður næöi að kasta alveg aö
þeim, létu þeir sem þeir hefðu aldrei
séð maðk. Eg fékk engan lax en
töluvert af silungi en hann var frekar
smár.”
Sumir eru heppnir og fá lax eða laxa
í vötnunum því þeir eru fyrir hendi,
bara að fá þá til að taka, það er
galdurinn. Kannski laxinn taki næstu
daga því það eru veðrabreytingar og
fiskurinn gæti lifnað við og tekið. Það
yrði happdrættisvinningur í öllu lax-
leysinu í stóru ánum þessa síðustu
daga veiðitímans að fá nokkra laxa í
Svínadalnum.
-G. Bender.
□PEL
Frá vigs/u sundlaugarinnar: Sigrún Pótursdóttir tekur fyrsta sprettinn ilauginni.
DV-mynd BB.
Nýir st jórar í nýju húsi
Það veröa nýir Stjórar sem setjast
við stjómvölinn þegar Rikisútvarpið
rýmir húsnæði sitt á Skúlagötu 4 og
flytur í nýja útvarpshúsið við Hvassa-
leiti á miöju ári ’86. Andrés Bjömsson
útvarpsstjóri lætur af embætti um ára-
mót og Guðmundur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri hljóðvarps, skömmu
síðar. Þá munu fréttastjórar á frétta-
deildum sjónvarps og hljóðvarps, séra
Emil Björnsson og Margrét Indriða-
dóttir, einnig hugsa sér til hreyfings
innanskamms.
Þó ekki tengist það þessum til-
færslum er nú unnið af kappi að skipu-
lagsbreytingum á rekstri Ríkisút-
varpsins. „Þetta er tímabært starf og
höfum við fengið skipulagsdeild
norska útvarpsins okkur til aðstoðar,”
sagði Höröur Vilhjálmsson, fjármála-
stjóri Ríkisútvarpsins, í samtali við
DV. „Það er unnið að sammna ýmissa
deilda útvarpsins, mikil vinna hefur
verið lögð í að koma safnamálum
öllum undir einn hatt og tölvuvæðing
er að halda innreið sína. ”
Ekki er stefnt að neinum breytingum
í yfirstjóm Ríkisútvarpsins. Utvarps-
stjóri mun áfram sitja sein æðsti
yfirmaöur stofnunarinnar og mun
starf hans verða auglýst laust til um-
sóknar innan tíðar. Samkvæmt
heimildum DV má gera ráð fyrir að
launakjör hans veröi tekin til endur-
skoðunar því erfitt mun að finna hæfan
mann á þeim kjörum sem útvarps-
stjóri hefur þurft að iáta sér nægja:
rúmar 30 þúsund krónur á mánuði.
-EIR.
Á myndinni halda þeir Garðar örn Dagsson, Sigurður Garðarsson og Sig-
urður Már Dagsson á fallegri veiði úr Svínadalnum. Já, þetta hefur verið
mokveiðihjá þeim fólögum. DV-myndDagur.
Vötnin í Svínadal:
Ný sundlaug á Seltjamamesi var
vígð og tekin i notkun í gær. Sund-
laugin er lokaáfangi í íþrótta- og fé-
lagsmiðstöö Seltjarnamesss, þ.e.
íþróttahús, sundlaug, félagsheimili og
íþróttasvæði.
Sundlaugin er aö hluta skólamann-
virki og mun öll aðstaöa til sund-
kennslu gjörbreytast við tilkomu
laugarinnar, segir í f réttabréfi.
Hafist var handa um smíði
laugarinnar árið 1981 og er hún
25X12,5 metri að stærð, auk bama-
laugar. Einnig em tveir heitir pottar.
Búningsklefar taka um 200 gesti.
Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri
Seltjarnamess, sagði að Seltimingar
hefðu veriö duglegir aö heimsækja
Vesturbæjarlaugina svo að nú væm
allir velkomnir í nýju laugina þeirra
nesbúa.
Vígsluathöfnin var klukkan 16 í gær
og synti Sigrún Pétursdóttir fyrsta
sprettinn í lauginni, en hún vann til
silfurverðlauna á ólympíuleikum fatl-
aöra fyrr í sumar en þeir voru haldnir í
Bandaríkjunum.
Mannvirkið var síðan til sýnis og var
boöið upp á kaffisopa.
Sigurgeir sagði aö laugin yrði opin
Keppt verður á tveimur OPEL CORSA -
bílum sem hlotið hafa viðurkenningu
um heim allan fyrir aksturseiginleika,
útlit og hönnun.
Verið velkomin!
SVÆÐISNARFARA VAKTAÐ
Hörður Bjamason, formaður
Snarfara, félags sportbátaeigenda,
hafði samband við DV vegna fréttar
síðastliðinn mánudag um innbrot í
sportbát. Hörður vildi að fram kæmi
að viðkomandi bátur hefði ekki legiö
á hinu nýja athafnasvæði Snarfara,
sem er vaktað allan sólarhringinn,
heldur á gamla svæðinu.
Jafnframt vildi Hörður koma því á
framfæri að þeir aðilar, sem ennþá
ættu eigur á gamla svæðinu, fjar-
lægöu þær hið fyrsta og eigi síðar en
um næstu mánaðamót.
Þess má geta að Snarfaramenn
ætla næsta laugardag að fjölmenna
út í Viðey upp úr hádegi og halda þar
kvöldvöku.
-KMU.
daglega frá 7.10—20.30 virka daga,
7.10—18.30 laugardaga og 8—18.30
sunaudaga.
-JI.
• •
OKULEIKNI
ÍSLANDSMÓTí GÓÐAKSTRI. /j
ÚRSLITAKEPPNIFER FRAM O *T
I.A LIGARDAGINN 8. SEPTEMBER
AÐ HÖFÐABAKKA 9,
ÁRTÚNSHÖFÐA, KL. 13.00.
Seltjarnarnes:
NÝ SUNDLAUG OPNUÐ
l