Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1984, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1984, Side 14
Þýskukennsla á Hellu Rangárvöllum á vegum Þýsk-íslenska vinafélagsins hefst fimmtudaginn 27. september ’84 kl. 20.30 í grunnskólanum Hellu. Innritun: Súsanna Beug, sími 99-5025 eða Dr. Kortsson, kon- súll, sími 99-5856. Hússtjómarskólí Þingeyinga á Laugum auglýsir hússtjomarbraut frá 9.~janúar til 15. maí 1985 sem metin er í áfangakerfi framhaldsskólanna. Nemendum gefst einnig tækifæri til að taka upp einstakar greinar í 9. bekk sam- kvæmt nánara samkomulagi við Laugaskóla. Upplýsingar í síma 96-43135 eða 9643132. Skólastjóri Nauðungaruppboð annað og síðasta á hluta í Dugguvogi 23, þingl. eign Jóhanns Þ. Jóns- sonar, fer fram eftir kröfu Guðjóns Á. Jónssonar hdl., Ara ísberg hdl., Gjaldheimtunnar í Rvík, Olafs Gústafssonar hdl., Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., Helga V. Jónssonar hrl., Hafsteins Sigurðssonar hrl., Ammundar Backman hdl., Ásgeirs Thoroddsen hdl., Olafs Jóns- sonar hdl., Iðnlánasjóðs, Framkvsemdasjóðs Islands, Þorsteins Egg- ertssonar hdl., Guðmundar Ó. Guðmundssonar hdl., Mgnúsar Fr. Ámasonar hrl., Þórðar S. Gunnarssonar hdl. og Ólafs Thoroddsen hdl. á eigninni sjálfri mánudaginn 10. september 1984 kl. 11.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavik. LAUSAR STÖÐUR Lausar eru til umsóknar nokkrar stöður lögregluþjóna við embætti bæjarfógetans í Keflavík, Njarðvík og sýslumannsins í Gullbringusýslu. Umsóknarfrestur er til 16. september næst- komandi. Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögregluþjóni er veitir frekari upplýsingar um starfið. Keflavík 7. september. Bæjarfógetinn Keflavík, Njarðvík, Sýslumaðurinn Gullbringusýslu, Jón Eysteinsson. Er bíllinn þinn rydgaður ? ? ? Hefur hann tapað þyngd með árunum ? ? Þarfnast hann viðgerð- ar ? ? E.t.v. þarftu ekki að lesa lengra! Eigum fjölbreytt úrval af boddívarahlutum í flestar teg- undir bifreida. Bíllinn * Skeifunni 5, símar 33510 og 34504. Getum afgreitt með stuttum fyrir- vara rafmagns- og dísillyftara: Rafmagnslyftara, 1,5-4 tonna. Dísillyftara, 2,0-30 tonna. Ennfremur snúninga- og hliðarfærslur. Tökum lyftara upp í annan. Tökum lyftara í umboðssölu. Flytjum lyftara um Reykjavík og nágrenni. Líttu inn — við gerum þér tilboð. LYFTARASALAN HF., Vitastig 3,, simar 26455 og 12452. DV. FÖSTUDAGUR T. SEPTEMBÉR1984. og hugsjónir , ^Skítt með alla skynsemi en gáfur eru gull,” var haft efir kalli nokkrum og þótti nú víst ekki fljóta yfir hjá honum af hvoru tveggja. Þessari setningu skýtur þó upp í hugann þegar hagst jórn siöustu tíu til fimmt- án ára hér á landi ber á góma. Hagstæð ytri skilyrði Sjaldan eða aldrei hefur islenska þjóðin iifað annaö eins góðæri ytri skilyrða eins og þennan tíma. Fiskin- um hef ur bókstaflega veriö ausiö upp í kringum landið og náði aflinn hálfri annarri milljón tonna fyrir fáum árum. Dollarinn, sem afurðir okkar seljast að mestu leyti í, hefur nú náð hver ju hámarkinu á fætur öðru. Orkukreppur hafa gengið yfir og hækkað orkuverö en Island er orku- rikt land og ætti því aö standa með pálmann í höndunum í því máli. Of- framleiðsla er á iðnaðarvörum í heiminum og fóöurvörum þannig að öll viðskipti ættu að vera okkur mjög hagstæð og efla þjóðartekur. Islenskur iðnaður blómstrar og dag- lega berast fréttir af nýjum sigrum íslensks iðnaðar, jafnt á framleiðslu- sem tæknisviði, og jafnvel eru út- flutningsmarkaðir að opnast fyrir íslenskt hugvit og iðnaðarfram- leiðslu. Hér ætti að ríkja gullöld, þjóðin ætti að eiga allt sitt á hreinu og tekj- ur almennings að vera með því besta í heiminum. Enginn þyrfti að vinna eftirvinnu og atvinnurekendur og stjómvöld tilkynna stöðugar kaup- hækkanir með bros á vör. Er ástandið þá raunverulega svona? Ríkir hér gullöld þar sem alþýða manna ber það úr býtum sem best gerist í heiminum og afrakstrin- um útdeilt með bros á vör ? Nei, því miður er veruleikinn ekki þannig. Aumt ástand Nýlega er íslenska lýöveldið stigið niður af gullverðlaunapalli verð- bólgu í Evrópu og með þeim sem hæst ber af þeim vafasama heiðri í heiminum. Rætt er um það í fúlustu alvöru aö skuldir þjóðarinnar séu þvílíkar að sjálfstæði landsins, bæði efnahagslegt og stjómmálalegt, bíði hnekki af og að íslenska þjóðin sé orðin einhver gustukavera i því sam- félagi þjóðanna sem hún svo stolt gekk inn í frjáls og fullvalda fyrir fjömtiu árum. Laun alþýðu manna hafa verið skert frá fjórðungi upp í þriöjung á síöustu mánuðum til þess, að því er sagt er, á einhvern furðulegan hátt að greiða niður margnefnda verð- bólgu sem allir vissu þó að var hrein og bein lagaieg vitleysa og elti bara skottið á sjálfri sér. Millifært hefur svo verið stórlega í hita þessa hátimbraöa bardaga frá launafólki en aðstandendur hafa allir verið hnakkakertir mjög af sigrinum. „Við sigruðum verðbólguna en þið sigruðuö hana bara h'ka,” fær launa- fólk að heyra, en minna er getið Kjallarinn GUÐLAUGUR TRYGGVI KARLSSON HAGFRÆÐINGUR jafnrar skiptingar herfangs milh sigurvegaranna allra. Ofan í launaskerðinguna og verð- bólgubardagann berast síðan tilkynningar um það að hagvöxtur sé á niðurleið, sem þýðir auðvitað minna til skiptanna fyrir alla, einnig aðatvinnuleysi hafi gert vart viö sig og má þá segja að síðasta rósin í hnappagati hagstjómarinnar sé að blikna því hingað til hafa þó allir verið sammála um það að næg væm verkefnin í landinu við ysta haf. Hvað veldur þessu voðaástandi og hvað er til ráða? Gæluverkefni og geðþóttaákvarðanir Svarið er næsta einfalt þótt eftir- leikurinn, leiðin til aukinnar hag- sældar, liggi auövitað ekki á lausu. Ráðamenn þjóðarinnar hafa nefni- lega verið allt of kæmlausir með fé' hennar og fjármunum hefur verið gegndariaust kastað á glæ gælu- verkefna og geðþóttaákvarðana án þess aðnokkur efnahagsleg rök væm fyrir fjárfestingunni. Ösjaldan eru fagrar hugsjónir kallaðar til leiksins en við nánari skoðun birtist ómerki- legt kjördæmapot og atkvæðakapp- hlaup, stutt því furðulega óréttlæti sem viðgengst i kjördæmaskipan landsins. Ófögur mynd Það sem upp snýr er svo oft æði kyndugt. Ráðist er til atlögu við eld- f jall til að virkja það. Hálendi lands- ins er flutt meira eða minna úr stað í einhverju virkjanaæði án þess að nokkuö sé hugað að orkusölu, helst eyðilagt það sem fyrir var í þeim efn- um. Línur eru lagðar út og suður og þvi síðan lýst yfir af ráðamönnum iönaöarmála að þær séu hreint drasl ef kæmi til einhverrar raunverulegrar þarfar á orku- flutningi, eins og t.d. við stóriðju. Iðjuver em teiknuð og áætluð þvert ofan í vilja heimamanna, jafnvel þótt alhr útreikningar sýni að þau em allt að helmingi hagkvæmari annars staðar. Þjóðin hamast vi.ð að greiða niður mat í útlendinga en bannað er með lögum að flytja inn niðurgreiddar matvörur erlendis frá. Fiskiskipum er fjölgað langt fram yfir þörf þannig að botnlaust tap virðist vera á helsta bjargræöis- vegi þjóðarinnar. Þetta er gert jafnvel þótt s jómennimir sjálfir vari ítrekað við off járfestingu í greininni sem geti ekki leitt til neins annars en tapreksturs og minnkandi afla- hlutar. Stór hluti þjóðartekna og f járlaga islenska rikisins er svo sam- kvæmt lögum ákvarðaður í fram- kvæmdir og fjárfestingu sem ætla mætti að hinu opinbera kæmi bók- staflega ekkert við. Enda á það þrjá ríkisbanka og seðlabanka til þess að annast verkið. Auk þess er nánast bundið í óskrifaöa stjómarskrá lýðveldisins að bankastjórar þessara stofnana megi síst af öllu vera alþingismenn á kapphlaupi eftir at- kvæðum, svo er kvittað fyrir með f jármagni þjóðarinnar s jálfrar. Betri tímar , jSkitt meö alla skynsemi en gáfur eru gull,” sagði kalhnn. Islenska þjóðin er bæði skynsöm og gáfuð en hún er einnig með afbrigðum vinnu- söm og úrræðagóð. Skynsemina og gáfumar notar hún tU þess að hrista upp í kolvitlausu kerfi þannig aö af- rakstur vinnuseminnar gagnist henni raunverulega. Þá geta Islend- ingar gengið hnakkakerrtir og skuld- lausir í samfélagi þjóðanna eins og t.d. frændur vorir Norðmenn. Þá mun raunverulegur arður verða af vinnunni, þjóðartekjur síga upp á við og aUir sigurvegarar verðbólgufor- aösins njóta réttra sigurlauna, líka þeir með lægstu launin sem tilkynnt er að hafi greitt verðbólguna niður án þess að eiga fá eina einustu krónu fyrir vikið. Guðlaugur Tryggvi Karlsson. Hagstjóm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.