Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1984, Side 36
FRÉTTASKOTIÐ
687818
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
síma 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst, óháð dagblaö
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984.
VR-fundur
ígærkvöldi:
Andstaða
gegn laugar-
dagsopnun
— en samþykkt með
litlum mun
A fundi Verslunarmannafélags
Eeykjavíkur á Hótel Borg í gær-
kvöldi var samþykkt að heimila nýj-
an afgreiöslutima verslana í Reykja-
vík. Atkvæðagreiðsla féll þannig að
65 greiddu atkvæði með heimildinni
og 56 gegn henni.
,,Fólk er reitt út a( launakjörum
og það endurspeglaðist á fundinum,”
sagði Elís Adolphsson, fulltrúi hjá
VR, í samtali viö DV í morgun. Laug-
ardagsopnunin var þyngst í hugum
fólks, mest andstaða gegn henni. 1
bráðabirgöasamkomulagi VR, sem
gilti um afgreiöslutíma verslana sl.
vetur og fram að sumartíma, var
heimild til að hafa verslanir opnar
tólf tímum lengur fram yfir „venju-
legan” afgreiðslutima. Nú er heimild
aðeins fyrir fimm tímum. Verslanir
geta, eftir að um semst, haft opiö til
kl. 18.30 mánudaga til fimmtudaga,
til kl. 21 á föstudögum og á laugar-
dögum til klukkan fjögur eftir há-
degi. -ÞG
Bruni á Snæfellsnesi:
Feðgin
björguðust
naumlega
Ibúðarhúsið að ökrum 11 á Hellnum
á Snæíellsnesi brann til kaldra kola í
fyrrinótt. Tvennt var í húsinu er
eldurinn kom upp, feöginin Karen
Kristjánsdóttir og Kristján Gunn-
laugsson og björguðust þau naum-
lega undan eldinum.
Þau vöknuðu um nóttina við eldinn
en þá var húsið orðið alelda og ekki
við neitt ráðiö og brann húsið til
grunna á rúmlega klukkustund.
Líklegt er talið að eldsupptök hafi
orðið út frá rafmagni. -FRI.
VISA
Fyrir víðförla.
LOKI
Æth' það só sky/da dóm-
ara að vita ekkert hvað er
að gerast úti í bæ?
Undirskriftasöf nun á Húsavík í gær:
Krefjast þess
að nauðgarínn
verði i haldi
Undirskriftasöfnun var í gangi á
Húsavík í gær þar sem þess var kraf-
ist að maður sá sem framdi kynferð-
isafbrot á 9 ára þroskaheftri stúlku
11. ágúst síðastliðinn verði látinn
sæta gæsluvaröhaldi þar til dómur
hefurveriðfelldur.
Það var aðeins í gær sem undir-
skriftum var safnað. Var farið í hús
og á vinnustaði og samkvæmt upp-
lýsingum blaðsins er þátttaka mjög
almenn.
I texta meö undirskriftalistanum
segir aö þess sé krafist að kynferðis-
afbrotamenn verði látnir sæta gæslu-
varöhaldi þar til dómur hefur verið
felldur. Astæöan fyrir þessari undir-
skriftasöfnun sé sú að maður sá sem
framdi þennan verknað á litlu stúlk-
unni 11. ágúst hafi verið sendur til
Reykjavíkur í geðrannsókn en hafi
verið kominn aftur til Húsavíkur fyr-
irl.september.
I dag verða listamir sendir Krist-
ínu Halldórsdóttur alþingismanni
sem mun koma þeim til dómsmála-
ráðherra.
Maður sá sem hér um getur er á
þrítugsaldri. Samkvæmt upplýsing-
um Sigurðar Briem, sýslufulltrúa á
Húsavík, er málið enn í rannsókn hjá
þeim en beöið er eftir álitsgerð geð-
læknis. ,,Eg hef ekki hugmynd um
hvenær hún kemur,” sagöi Sigurður,
,,en þegar það verður verður máliö
sent saksóknara ríkisins.”
Aðspurður um undirskriftalistana
sagði Siguröur: „Eg hef ekki heyrt
um neitt slíkt enda hef ég ekki hug-
mynd um það sem gerist úti í bæ. Eg
erbaradómari.”
-KÞ
Arni Þórhallsson og Mercury Comot 74: „Nú er óg loks búinn að finna bilinn minn og ætia að fá hann
afturhvaðsem tautarograular." DV-myndBj. Bj.
Dularfulla bflauppboðið:
Vestfirðir:
Krafanum7%
launahækkun
erréttmæt
— ef „félagsmálapakk-
inn” er undanskilinn
Engin niðurstaða fékkst af
viðræðufundi Alþýðusambands Vest-
fjarða og Vinnuveitendafélags Vest-
fjarða sem haldinn var á Isafirði í
gær.
Aö sögn Péturs Sigurðssonar,
formanns Alþýðusambandsins, voru
aðilar þó sammála um að krafan um
7% launahækkun 1. september væri
réttmæt miðað við þær forsendur
sem Alþýðusambandið legði til
grundvallar. Vinnuveitendur telja
hins vegar að taka eigi meö í reikn-
inginn félagsmálapakkann sem sam-
ið var um i febrúar en þá þarf ekki
nema umsamda 3% kauphækkun til
að halda kaupmætti fjóröa árs-
fjórðungs 1983 eins og samið var um.
Deiluaðilar skipuðu sameiginlega
nefnd til að fjalla um sameiginleg
hagsmunamál Vestfirðinga, svo sem
orkuverð, verðlagsmál, skattamál,
atvinnumál og byggðaþróun. Kjara-
deila þessi er nú í höndum ríkissátta-
semjara en hann hefur ekki boöað til
sáttafundar. ÓEF.
Stöðvast
dagblöðin?
— líkur á verkfalli
— verkfallsheimildar
aflað
Allar horfur eru á aö dagblöðin
stöðvist eftir helgi svo og önnur
prentun í landinu. Verkfall prentara
virðist vera óhjákvæmilegt.
Sáttafundur í gær var árangurs-
laus. Annar fundur hefur verið boð-
aður á morgun, laugardag, klukkan
14. Menn eru svartsýnir á að takist
að hindra að verkfall hef jist á mánu-
dag.
Sambandsstjórn Vinnuveitenda-
sambandsins kemur saman til fund-
ar á mánudag. Tekin verður afstaða
til verkbannsheimildar.
Akvörðun um verkbann ber, sam-
kvæmt lögum, að tilkynna sjö sólar-
hringum áður en ætlunin er að það
hefjist. -KMU.
VERfHJR GJALDHÐMTAN
LÁTIN B0RGA BÍUNN?
„Mér finnst þetta forkastanlegur
fréttaflutningur. Hingað koma menn
með alls kyns furðulegar hugmyndir
og ef við ættum að vera að hlaupa á
eftir þeim öllum gerðum við ekki
mikið annaö,” sagöi Jónas Gústafs-
son hjá borgarfógeta og sættir sig
ekki við frétt DV frá því á
miðvikudag þar sem skilmerkilega
var greint frá uppboði þar sem brúnn
Mercury Comet ’74 var boðinn upp í
misgripum fyrir annan sams konar
grip.
„Við höfum lagt okkur í líma við
að aðstoöa þennan mann og sá
fræðilegi möguleiki er að sjálfsögðu
til staöar að mistökin hafi orðið. En
þá þýðir ekkert að skella skuldinni á
okkur því það er uppboðsbeiðandi
sem kemur með hlutina til okkar á
uppboðsstað og síðan bjóöum viö
upp,”sagðiJónas.
I þessu dæmi er það Gjaldheimtan
sem er uppboðsbeiðandi þannig að
næsta verk bifreiðaeigandans, Arna
Þórhallssonar, verður vafalítið aö
krefja þá stofnun um bætur fyrir
bílinn sinn sem hann hefur leitað að
með logandi ljósi í tvær vikur og fann
loks í Hafnarfirði. „Eg er búinn að
bera saman verksmiðjunúmerið á
bílnum og í skráningarskírteininu og
þau koma heim og saman. Eg ætla
ekki að hætta fyrr en ég finn ein-
hvem sem tekur á sig ábyrgðina á
þessu dularfulla bilauppboði,” sagði
Ámi Þórhallsson. „Eg ætla að fá
bílinn minnaftur.”
-EIR.