Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1984, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1984, Blaðsíða 32
32 DV. MIÐVHÍUDAGUR 24. OKTOBER1984. Andlát Krlstján Elriksson hæstaréttarlög- maður lést á Landspítalanum 18. okt. sl. Hann fæddist á Sauðárkróki 7. september 1921. Foreldrar hans voru hjónin Eiríkur Kristjánsson og María Þorvarðsdóttir. Kristján lauk lögfræði- prófi frá Háskóla Islands 1948 og stundaði síðan lögfræðistörf í Reykja- vík. Eftirlifandi kona hans er Eiríka Kristin Þórðardóttir. Utför hans verður gerð frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 25. okt. kl. 15. Einar Gestsson bóndi á Hæli lést 14. október sl. Foreldrar hans voru hjónin Gestur Einarsson og Margrét Gísla- dóttir. Einar lauk gagnfræðaprófi frá Flesnborgarskólanum og stundaði verklegt nám á búgarði í Noregi 1927— 28. Eftirlifandi eiginkona Einars er Halla Bjarnadóttir. stjóri Hagaskóla, er látinn. Hann var fæddur 3. júní 1906 að Skáldalæk í Svarfaðardal. Foreldrar hans voru Þórður Kristinn Jónsson og Guðrún Lovisa Björnsdóttir. Arni lauk kennaraprófi 1932 og starfaði lengst af sem skólastjóri í Hagaskóla. Ami var kvæntur Ingibjörgu Einarsdóttur. Sigurvelg Guðlaug Þorgilsdóttir lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 22. þ.m. Hún verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar- kirkju fimmtudaginn 25. þ.m. kl. 15. Helga Guðrún Ólafsdóttir frá Borgar- nesi, Austurbrún 27, andaðist á Hrafnistu 19. október. Flosi Þórormsson frá Fáskrúðsfirði, Kleppsvegi 82 Reykjavík, andaðist í Landspítalanum 18. október sl. Sveinn Olafsson, Grettisgötu 80 Reykjavík, lést 2. október sl. Utför hans hefur farið fram í kyrrþey. Júlía Sveinbjarnardóttir leiðsögu- maður verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík föstudaginn 26. októberkl. 13.30. Guðmundur Gelrsson, Mýrarholti 7 Olafsvík, sem lést af slysförum sunnudaginn 30. september, var jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 12. október. Þórunn Arnadóttir, Drápuhh'ð 18, and- aöist á Hrafnistu 21. þ.m. Eva Fanney Jóhannsdóttlr, Kirkjuvegi 9 Hafnarfirði, lést sunnudaginn 21. október sl. Gísll Gestsson frá Hæli lést 4. október sl. Foreldrar hans voru hjónin Gestur Einarsson og Margrét Gísladóttir Gkísli lauk stúdentsprófi frá mennta- skólanum i Reykjavík 1926 og stundaöi nám við Polyteknisk Læreanstalt í Kaupmannahöfn 1930. Gisli var ritari í Landsbanka Islands 1931—51 og safn- vöröur í þjóömyndasafninu 1951—78 og sem varaformaður hin síöari ár. Eftir- lifandi eiginkona hans er Guðrún Sig- uröardóttir. Jón B. Bjömsson rafveitustjóri, Sæunnargötu 12 Borgarnesi, lést í Borgarspítalanum föstudaginn 19. október sl. Jarðarförin fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 27. októberkl. 14. Björgvln Sigurjónsson, Bergstaða- stræti 54, andaöist í Landakotsspitala 22. október. Fjóla N. Relmarsdóttlr, Þórafelli 10 Reykjavík, andaðist í Landspítalanum mánudaginn 22. þ.m. Sigríður Jónsdóttir, Melabraut 34 Seltjamarnesi, andaðist í Borgar- spítalanum þriðjudaginn 16. október. Utförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 25. október kl. 13.30. Gunnar Jósefsson lést 13. október sl. Hann var fæddur að Atlastöðum í Sléttuhreppi. Foreldrar hans voru hjónin Jósef Hermannsson og Mar- grét Katrín Guðnadóttir. Gunnar lærði skipasmíði á Siglufirði og rak um tíma slippinn þar. Síðar fluttist Gunnar til Akureyrar þar sem hann keypti og rak slippstöð í mörg ár. Síðar réðist hann til Vita- og hafnarmálastofnunarinnar sem verkstjóri og starfaöi þar allt fram á síðasta ár. Eftirlifandi eiginkona hans er Olöf Magnúsdóttir. Þau eignuðust sex börn, auk þess sem þau ólu upp eina fósturdóttur. tltför Gunnars verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. í síldinni Síldarstúlkurnar hjá Suðurvör i Þorlákshöfn hafa nóg að gera l síldinni eins og sjá má. Færibandið sór til þess að stúlkumar hafinóg af „siifrihafsins"á millihandanna og hnifarnir skera ótt og títt. DV-mynd: E.J. Tilkynningar Kattaeigendur, merkið ketti ykkarl „Borgin og iandið", sýning á Kjarvalsstöðum Á Kjarvalsstöðum stendur níi yfir vatnslita- myndasýning Katrínar H. Ágústsdóttur. A sýningunni eru 62 verk. Þeir kattaeigendur sem ekki merkja ketti sína geta átt þaö á hættu aö köttum þeirra veröilógaö. Kattavinafélagiö. Sýning í Eden Sigurbjörn Eldon Logason sýnir 30 litlar vatnslitamyndir í Eden, Hveragerði. Sýn- ingin er opin daglega kl. 8—19, einnig um helgar. Málverkasýning í Listasafni A.S.Í. Málverkasýning Jakobs Jónssonar í Lista- safni A5.I. sem opnuö var 6. október hefur veriö framlengd og lýkur henni sunnudaginn 28. október. Sýningin er opin daglega kl. 14— 22. Fornbflaklúbbur íslands götu 27, fimmtudaginn 25. október kl. 20.30. veröur með opið hús í Sóknarsalnum, Freyju- Myndasýning Helga Magnússonar. Hallgrímskirkja — starf aldr- aðra Opiö hús verður haldiö í safnaöarsal kirkj- unnar fimmtudaginn 25. október kl. 14.30. Dagskrá, kaffiveitingar. Safnaöarsystir. Samband veitinga- og gistihúsa Aðalfundur veröur haldinn í Skíðaskálanum Hveradölum, 1. nóvember nk. Rútuferð veröur frá Hótel Esju kl. 11. Þátttaka óskast tilkynnt í símum 27410 eöa 621410 fyrir hádegi i síðasta lagi mánudaginn 29. nóvember. Háskólatónleikar Fyrstu háskólatónleikarnir á þessu ári veröa haldnir í hádeginu í dag kl. 12.30 í Norræna húsinu. A efnisskrá eru verk eftir Hailgrím Helgason. Flytjendur eru Þorvaldur Steingrímsson, fiöla, Pétur Þorvaldsson, seiló, og höfundurinn sjálfur, sem leikur á píanó. Tónleikamir standa í um það bil hálfa klukkustund. Afmæli 80 ára afmæli á í dag 24. október Lára Guðjónsdóttir, Sunnubraut á Akranesi. Hún tekur á móti gestum sínum eftir kl. 16 í dag á heimili Ingibjargar og Haraldar Sturlaugssonar, Vesturgötu 32, þar í bæ. Bíl stolið f rá Hátúni 12 Aðfaranótt sunnudagstas 21. október var bifreiðinni R-11443 stoliö frá Hátúni 12 í Reykjavík. Bifreiðin er af gerðinni Lada, árgerð 1976, bláaðlit. Þeir sem kunna að geta gefið upplýs- ingar um þessa bifreið eru beðnir að láta lögregluna í Reykjavlk vita.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.