Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1984, Blaðsíða 35
DV. MIÐVIKUDAGUR 24. OKTOBER1984.
35
Meiri harka
nú en 1977”
— segir Páll Guðmundsson sem verið hef ur í
verkfallsst jórn BSRB bæði þá og nú
„Það er miklu meiri harka í þessu
núna af hendi allra aöila en var í
verkfallinu 1977, enda byrjaði þetta
verkfall með lögbroti af hendi kaup-
greiðandans svo kannski er ekki von
á góðu,” sagði Páll Guðmundsson í
samtali við DV er við hittum hann í
höfuðstöðvum BSRB en hann situr
þar í verkfallsstjóm. Páll sat einnig í
verkfallsstjórn BSRB árið 1977 og við
spjölluðum viö hann um muninn á
þessum tveimur verkföllum.
,,Sem dæmi um hörkuna má nefna
að kjaradeilunefnd gengur mun
lengra í öllum úrskurðum sínum en
við áttum von á og að okkar mati hef-
ur hún á stundum farið langt út fyrir
verksvið sitt. Þetta leiðir af sér að ef
við ætlum aö stjóma einhverju í
þessu verkfalli verðum við að ganga
gegn mörgum úrskurðum en þetta
var ekki til staðar í neinum mæh
1977,”sagðihann.
Páll sagði einnig að aldrei hefði
komið til átaka 1977 i sama mæli og
gerst hefur í þessu verkfalli og hvað
skipin varðaði þá var aðeins einu
sinni reynt að koma skipi inn 1977 en
nú er það orðið svo til daglegt brauð í
þessuverkfalli. .jtrx
þessu áfram eins og þurfa þykir,”
sagði hann.
Meiri harka
Allir þeir sem DV hafði tal af í höfuð-
stöðvum BSRB við Grettisgötuna og
höfðu einnig verið í verkfalli 1977 voru
sammála um að mun meiri hörku gætti
í þessu verkfalii en var þá, sérstaklega
frá hendi ríkisvaldsins....Samstaöa
fólksins er hinsvegar álíka mikil nú og
var þá og það er engan uppgjafartón
að finna hjá okkur,” sagði einn þeirra.
Sem dæmi um hörkuna nú nefna
verkfallsverðir aðgerðimar í Sunda-
höfn en þar var ráðist aftan að einum
þeirra, Reyni Guðsteinssyni, og hann
leikinn þannig að hann ber nú kraga
um hálsinn og er af þeim sökum aldrei
kallaður annað en séra Reynir af sam-
herjum sínum.
200 samlokur
á sólarhring
Er DV-menn litu inn í eldhúsið á
Grettisgötunni var mikiö um að vera
þar enda þarf allur sá mannskapur
sem gerður er út af þessum stað eitt-
hvað í svanginn. Þar fengust þær upp-
lýsingar að smurðar væru um 200 sam-
lokur þar á sólarhring, eða um 4000
slikar frá upphafi verkfalls, auk allra
þeirra fleiri hundmð lítra af kaffi sem
hellt hefur verið upp á. Við fengum þær
upplýsingar að stöðugt væru 25 kaffi-
könnur úti frá þeim og ef hver þeirra
tekur 8 bolla geta menn dundaö sér við
að reikna út magnið sem skolast niður
hálsa verkfallsvarða á hverjum sólar-
hring.
-FRI.
Kristján Thorlacius um borð í hafrannsóknarskipinu Bjama Sæmundssyni, en þar dvaldi hann í sólarhring til að hindra brottför skipsins.