Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1984, Blaðsíða 39
DV. MIÐVIKUDAGUR 24. OKTOBER1984.
39
Noregur:
Gífurleg fjölgun nýrra
útvarps- og sjónvarpsstööva
— leyfi veitt til 318 aðila í útvarpsrekstri og 119 til útsendinga sjónvarps til viðbótar þeim sem fyrir voru
Það virðist ætla að verða lítið lát á
þeim áhuga sem varð á Norðurlöndun-
um þegar þar var aflétt einkarétti rík-
isvaldsins á útvarpi og sjónvarpi.
Einkum á þetta við um Danmörk og
Noreg þar sem fjöldi útvarpsstöðva,
svonefnds grenndarútvarps, og
sjónvarpsstöðva hefur farið í gang
undanfama mánuði og fieiri eru í burð-
arliðnum.
1 Noregi hefur menntamálaráðu-
neytiö gefið leyfi til 318 nýrra útvarps-
stöðva sem munu verða með grenndar-
útvarp á 91 leyfissvæði. Leyfin eru
veitt til tveggja ára frá og meö 1.
september síðastliðnum. Til viöbótar
þessu hefur ráðuneytið gefið leyfi til
119 aðila sem vilja senda út sjónvarps-
efni á einstökum svæðum. Slíkt svæða-
bundið sjónvarp mun sjást á 40 leyfis-
svæðum. Aðgangur að móttöku frá
gervihnöttum mun verða rýmkaður
verulega. A nokkrum svæðum mun
einnig verða veitt heimild til þráö-
lausra sendinga sjónvarps til nærliggj-
andisvæða.
Allt þetta er til viðbótar þeim tíu
einkaútvarpsstöövum og 5—6 kapal-
sjónvarpsstöðvum sem áður höfðu
fengið leyfi á síðustu 2—3 árum og sagt
hefur verið frá hér. Fyrir var af hálfu
ríkisútvarpsins norska tvær landrósir í
útvarpi ásamt mörgum svæöabundn-
um útsendingum og einni sjónvarps-
rás.
Það nýja nú er að blöðin hafa komiö
inn af fuúum krafti. Þar við bætist að
stjórnmálaflokkamir, einkum Verka-
mannaflokkurinn, munu notfæra sér
grenndarútvarp og sjónvarp. 26 dag-
blöð víðsvegar um landiö hafa tilkynnt
um þátttöku sína. Einnig er nýtt nú að
ráðuneytið heimilar tilraunir með
sjónvarp út í loftið á einstökum svæð-
um. Þetta þýðir venjulegt sjónvarp
með sendi og móttöku um loftnet en
ekki um kapal eins og hjá fyrri einka-
stöðvum. Þessi leyfi hafa einkum verið
veitt þar sem kapalnetiö hefur verið
lítt útbreitt.
Nú sem áður er stóra spumingin
hvemig það á að vera hægt að fjár-
magna þetta allt saman. Enn em aug-
lýsingar í útvarpi bannaðar í Noregi.
Spumingin er komin á stjómmálalegt
svið og veröur um hana fjallað í Stór-
þinginu. En auglýsingastofurnar búa
sig undir að auglýsingar í útvarpi og
sjónvarpi verði leyfðar á næstu árum,
jafnvel innan tveggja ára.
Það er hins vegar leyfilegt fyrir að-
ila i atvinnulífinu að veita einstökum
útvarps- og sjónvarpsstöðvum fjár-
stuðning með styrkjum en fyrirtsekin
mega ekki koma fram undir nafni eða
þátttaka þeirra aö koma fram á annan
hátt að sögn Lars Roar Langslet
menntamálaráðherra. Ahugi atvinnu-
lífsins á slíkri þátttöku hefur fram að
þessu verið lítill.
Bæði grenndarútvarp og einkasjón-
varpsstöövar fá möguleika á að selja
25% af senditíma sínum en spurningin
er hver hefur áhuga á að kaupa þegar
hvorki fyrirtæki né framleiðsluvörur
mánefna? ■ -JR
„Vorum á
móti að
gengið
yrði út”
,,Við erum sex sem sjáum um frétt-
imar, fjórlr vaktstjórar auk frétta-
stjóra og varafréttastjóra,” sagði
Helgi Pétursson útvarpsfréttamaður.
„Við höfum enga tæknimenn svo að
allt er sent út í beinni útsendingu.”
Aðspurður sagði Helgi að frétta-
menn útvarpsins hefðu verið á móti því
að gengið yrði út 1. október. „Við telj-
um nauðsynlegt öryggisins vegna að f á
að flytja fréttir.” Við fréttamenn sögð-
um okkur úr BSRB í ágúst sl. og höfum
stofnað sérstakt félag fréttamanna
sem hyggjast sækja um inngöngu í
BHM,” sagði Helgi.
Eftir að samþykkt var í útvarpsráöi
að biðja um undanþágu fyrir lág-
marksfréttaflutning hafa veriö sendar
út fréttir tvisvar á dag, klukkan 12.20
og 19.00. -EH
Fréttavakt Rikisútvarpsins sér um að koma saman tvaim stuttum fróttatimum á dag.
Alltaðverða
tóbakslaust:
„Þá fæ ég mér alveg
eins reyktan fisk”
Það aö þú mættir nágrannanum í
morgun með gildan vindil í munnvik-
inu þar sem áður hékk venjulega
kryppluð sígaretta sannar ekki endi-
lega aö hann sé kominn út í sjálfstæö-
an atvinnurekstur.
Ástæðan er fremur sú að veitinga-
hús og verslanir landsins eru ein af
annarri að verða tóbakslausar í kjöl-
far verkfalls BSRB. Þær verslanir í
Reykjavík sem við höfðum samband
viö í gær höfðu flestar orðið síga-
rettulausar fyrir helgi, á örfáum
stöðum voru eftir nokkrir pakkar en
þaö voru þá ekki beinlínis vinsælustu
tegundirnar. I flestum verslunum
hafði verið tekin upp skömmtun
þegar séð var fram á tóbaksskortinn
og var algengt að selja engum fleiri
en tvo pakka.
Að öðru leyti var ekki kvartaö
mikið yfir vöruskorti í búðum. Helst
eru það ávextir og grænmeti, sem
hefur lítiö geymsluþol, sem horfið er
úr hillunum: ferskjur, plómur,
nektarínur, vínber, kínakál, iceberg,
agúrkur og fleira.
Skapið hefur ekki verið upp á það
besta hjá öllum reykingamönnum í
þessu skyldubindindi sem er að
skella á þá. Þegar einum var boðiö
upp á mjóar, brúnar og langar sígar- sér tegundina sína í einni sjoppunni, mér alveg eins reyktan fisk.”
ettur, þegar hann ætlaöi að kaupa hreytti hann út úr sér: ,,Þá fæ ég SGV
aca | Kk B :
Wps5r---t
Það erorðið tómlegti tóbakshillum verslananna.
DV-mynd Kae.
Veðrið
Suðaustanátt og rigning um
sunnan- og vestanvert landið,
suðlægari og slydduél þegar líður á
daginn. A Norðurlandi verður bjart
framan af degi en þykknar síðan
upp. A Austurlandi veröur skýjað
og smáskúrir í fyrstu en síðan
þurrt.
Hitastig
víða um heim
Amsterdam 13, Aþena 25, Berlín
15, Brussel 13, Chicago 14, Dublin
13, Frankfurt 12, Genf 15, Helsinki
8, Hong Kong 26, Jerúsalem 22,
Kaupmannahöfn 10, Lissabon 23,
London 15, Miami 30, Montreal 12,
Moskva 11, New York 23, Osló 7,
París 15, Peking 24, Rio de Janeiro
32, Róm 23, Stokkhólmur 8, Sydney
21,Tokyo21,Vínl8.
/ Gengið
Gengisskráning 23. október. -
cinmg Kaup Sala iollgengi
□ollar 33,620 33,720 33.22
Pund ■ 40.487 40,607 41.409
Kan. dollar 25,498 25,574 25.235
Dönsk kr. 3,0366 3,0457 3.0285
^ Norsk kr. 3,7862 3,7975 3.7916
Sænsk kr. 3,8681 3,8797 3.8653
j Fi. mark 5,2663 5.2820 5.2764
Fra. franki 3,5790 3.5896 3.5740
Belg. franki 0,5429 0,5445 0.5411
' Sviss. franki 13.3373 13,3770 13.2887
Holl. gyllini 9,7351 9.7640 9.7270
V-Þýskt mark 10,9823 11,0149 10.9664
It. líra 0,01774 0,01779 0.01761
1 Austurr. sch. 1,5626 1,5673 1.5607
j Port. escudo 0,2056 0,2062 0.2073
Spá. peseti 0,1948 0,1954 0.1959
Japanskt yen 0,13633 0,13674 0.13535
' Írskt pund 33,973 34,074 33.984
SDRIsérstök 33J264 33,4254
jdráttarrétt.) 163
Símsvari vegna gengisskráningar 2219Ct
Útvarp
Dagskráin í dag.
Dagskrá útvarps verður eins og
undanfama daga í verkfalli, fréttir
lesnar kl. 12.20 og kl. 19. Þá verða
veöurfréttir lesnar kl. 8.15, kl. 10.10, kl.
12.45, kl. 16.15, kl. 18.45, kl. 22.15, kl.
01.00, kl. 4.30 ogkl. 07.00.
Rétt og jöfn
loftþyngd eykur öryggi,
bætir aksturshæfni,
minnkar eyðslu eldsneytis
og
nýtir hjólbarðana betur.
Ekki þarf fleiri orð um þetta
-NEMA-
slitnir hjólbarðar
geta orsakað alvarlegt '
umferðarslys.
yas™