Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1984, Blaðsíða 34
34
DV. MIÐVIKUDAGUR 24. OKTOBER1984.
Á verkfallsvakt BSRB:
Um 400 manns
eru sendir út
á sólarhring
Júlíus Sigurbjörnsson kennari, einn af þeim sem stjórna verkfallsaðgeröum.
fylgjast með skipum þeim sem koma á
ytri höfnina og koma í veg fyrir verk-
fallsbrot í sambandi við uppskipun úr
þeim. Meðan starfsmenn Reykja-
víkurborgar voru ekki í verkfalli fór
lóðs út á móti skipunum og fylgdi þeim
inn en nú er staðan þannig að þau fá
ekki lóðs.
Annaö stórt verkefni hjá okkur hefur
svo verið flugið á Keflavíkurflugvelli
en við vildum fá að komast inn á Völl-
rnn til að athuga hugsanleg verkfalls-
brot á einum sex vinnustöðum þar sem
félagsmenn okkar vinna á. Við fengum
ekki að fara inn á Völlinn eins og kunn-
ugt er en við höfum sent utanríkis-
ráðherra bréf þar sem beðið er um að
fá aö kíkja inn á Völlinn. Því bréfi
hefur ekki verið svarað enn,” segir
Július.
Á meðan við spjöllum við Július er
hringt í verkfallsstjómina. Er það
læknir á heilsugæslustöð sem hefur
haft ritara í starfi hjá sér sem nú er í
verkfalli. Hann hafði útvegað sér
annan ritara til að vinna önnur störf
fyrir sig en sá fastráðni var ekki
ánægður með það. Vildi læknirinn vita
hvort hann væri að fremja verkfalls-
brot. Erindi hans er sinnt á þá leið að
æskilegt sé aö leysa þetta mál meö
góðu......því öil þurfum við að starfa
saman eftir verkfall. ..”, eins og það
er orðað. Július segir að þeir fái
milljón svona tilfella á dag.
„Dugir fram að jólum"
Nú er komið á aðra viku síðan farið
var að borga úr verkfallssjóði BSRB
en á þeim tíma hafa borist alls um 1100
umsóknir um styrk úr sjóðnum.
Bjami Olafsson er einn þeirra sem
vinna við úthlutanir úr verkfallssjóðn-
um og hann sagði í samtali við DV aö
þeir væru með ákveðnar vinnureglur
sem þeir færu eftir í sambandi við út-
hlutanir.
„Við reynum að hjálpa því fólki sem
fékk lítil sem engin laun útborguð þann
1. október og það er okkar hlutverk
ennþá. Við höfum enn ekki farið út í
endurúthlutanir,” sagði hann.
Hvað varðaði áframhaldandi starf-
semi sjóðsins sagði hann að þeir teldu
sig geta haldiö áfram til jóla ef út i það
væri farið, stöðugt bærust framlög í
sjóðinn, bæði frá einstaklingum hér-
lendis og aðilum erlendis.
„Við erum bjartsýn á að geta haldið
Vísur á borö við þessa má sjá víða
upp um veggi í húsi BSRB við Grettis-
götu þessa dagana en þaöan er stjóm-
að verkfallsvörslu félagsins í verkfalli
því sem BSRB er nú í og ekki er séð
fyrir endann á.
Verkfallsvarslan er rekin eins og
hvert annað fyrirtæki og frá húsinu við
Grettisgötu eru sendir út um 400
manns á sólarhring eða á milli 50 og 80
manns á fjögurra tíma fresti en verk-
fallsverðir standa f jögurra tíma vaktir
í senn. Verkfallsstjóm BSRB er í stöð-
ugu síma- og talstöðvarsambandi við
fólk um allt land og tilfellin sem verk-
fallsstjórn hefur þurft að sinna skipta
nú hundruðum frá því að verkfallið
hófst þann 4. október sl.
DV-menn brugðu sér í heimsókn á
Grettisgötuna til aö fylgjast með starf-
seminni. Fyrstan hittum við aö máli
Júlíus Sigurbjörnsson kennara sem er
einn þeirra er stjóma verkfallsað-
gerðum.
„Stærsta verkefni okkar núna er að
Forráðamenn BSRB ráða ráðum sínum, þelr Gunnar Gunnarsson, Krfstján Thorlacius, Páll Guðmundsson og Haraldur Steinþórsson.
DV-myndir GVA
Verkfallsverðfr ígrunda aðgerðlr dagsins.
,,ÞegarLucý — fer hefurí hótunum
er Höskuldur strax með á nótunum
en það sannast víða
að valt er að hlýða
fólki sem hugsar með fótunum
Höf. ókunnur