Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Blaðsíða 15
DV. FIMMTUDAGUR15. NOVEMBER1984.
15
Úr Prínca-Poloröðinni. LJósm. GBK.
Enn meira popp
Omar Skúlason leikur sér með
myndmál sem stendur nálægt Rausch-
enberg og félögum. Hann tengir saman
á flötinn myndir sem standa fyrir ólíka
tíma og ósamstæð rými. Sérhver mynd
(ljósmynd, teiknimynd, o.s.frv.), sem
fest er á flötinn, felur í sér sinn eigin
sjónblekkingarmótt, sína eigin fjar-
vídd. En á sama tíma er allt gert til að
brjóta upp hina beinu frásögn eins og
við þekkjum hana í hinu hefðbundna
málverki. Samklippurnar koma i veg
fyrir fjarvíddarskynjun. En í verkum
Omars eru samklippumar fremur
grunnur eða einskonar baksvið fyrir
persónulega hlutdeild listamannsins.
Því þó listamaöurinn hrúgi inn alls
kyns myndtáknum er hann sjálfur
Myndlist
Gunnar B. Kvaran
ávallt til staðar sem hluti af listaverk-
inu. Hann teiknar og málar.
Enn möguleiki
Þó svo að myndmálið virðist við
fyrstu sýn hafa gengið sér til húðar og
sé aöeins orðin skrautleg endurtekning
þá kemur listamaðurinn furðu sterkur
og persónulegur út úr seríunum um
eldspýturnar og prince-pólóið. Form-
rænt séð eru þessar dýnamisku mynd-
byggingar og d jörfu litir settir fram af
fagmennsku og upplif un.
Inntakslega skynjum við þessar
myndir sem tímahvirfil þar sem nútíð
og þátíð mætast á fletinum/i rýminu
og áhorfendum er boðið að taka þátt í
leiknum og raða saman lestrarmögu-
leikum myndanna. Því inntakið mark-
ast ekki af fyrirmyndinni — mótífinu
— (ber kona, eldspýta, sveif, o.s.frv.)
heldur af tengingu brotabrotanna sem
áhorfandinn myndar við lestur verk-
anna.
I heild er þetta einkar friskleg og
skemmtileg sýning og þó viðfangsefnið
sé þekkt kemst listamaðurínn oft að
persónulegum og sannfærandi niður-
stöðum.
GBK
Laglegur
lokapunktur
Tónlistardagar Dómkirkjunnar.
Kórtónloikar 11. nóvember.
Stjórnandi: Martoinn H. Friðriksson.
Einleikari: Orthulf Prunner.
Losari: Gunnar EyjóHsson.
Orgekmdirleikur: Helgi Pótursson.
Efnisskrá: Felix Mendelssohn-Bartholdy:
Sónata nr. 1 ( f-moll; Þorkell Sigurbjömsson:
Lofið Guð f helgidómi hans; Knut Nystedt: De
profundis, op. 54; Johann Nepomuk Hummel:
Prelúdfa og fúga ( As-dúr; Hugo Distlor:
Totentanz.
Tónlistardögum Dómkirkjunnar
lauk, eins og þeir hófust, með kórtón-
leikum. Orgeleinleikari var Orthuif
Prunner, organisti Háteigskirkju.
Hann hóf leikinn með orgelsónötu
Mendelssohns númer eitt og inn á
milli lék hann Prelúdíu og fúgu
Johanns Nepomuks Hummels, þess
sem við tók af Papa Haydn í
Eisenstadt. Leikur Orthulfs
Prunners var þróttmikill og
geislandi af lífi, en ekki fannst mér
hann fullkomlega dús við hljóðfæríð
og kom það á sinn hátt fram i leikn-
um. En framlag Prunners var gott
innlegg i þessa tónleika sem annars
voru alfarið í höndum Dómkórsins.
Ekki að neinu flanað
Hann þorði mun betur að beita sér,
kórínn, í verki Þorkels Sigurbjöms-
sonar, Lofið Guö í helgidómi hans,
en í Áminningu nokkrum kvöldum
áður. Það gerðist án þess að slakað
væri á kröfum hreinleikans í söngn-
um og sýnir að hann þarf ekki að
fara alveg eins varfærnislega að þótt
sjálfsagt sé að flana ekki aö neinu og
missa aldrei sjónar á hinum hreina
tóni. Jafnvægi raddanna er allgott,
en þó vantar bit í sópraninn. Mundi
þaö muna miklu i skerpu kórsins ef
hann væri betur brýndur. 1 verki
Þorkels söng Halldór Vilhelmsson
Tónlist
Eyjólfur Melsted
upphafsorðin átakalaust en meö
voldugri röddu — sem sé, þótt
tilefnið væri lítið, þá söng hér Hall-
dór eins og hann syngur best. Orgel-
undirleikinn annaðist Helgi Péturs-
son. Hann vann sitt verk vel og veitti
góðan og öruggan stuðning.
Gáfu ekkert eftir
De profundis Knuts Nystedts söng
kórinn mjög vel. Knut Nystedt er Is-
lendingum að góðu kunnur, bæði af
tónverkum sínum og kórheimsókn-
um, og er óþarft að kynna hann hér
þeim sem til þekkjá en yrði of rúm-
frekt að kynna hann þeim sem ekki
kannast við þetta atorkusama
norska tónskáld og kórstjóra.
Meginverkefni tónleikanna var
Dauðadans Hugo Distlers við texta
Angelusar Silesiusar og Johannesar
Klöcking í þýðingu Hjartar heitins
Kristmundssonar. Til aö flytja þátt
Dauðans fékk kórinn til liðs viö sig
Gunnar Eyjólfsson leikara. Hann
innti sitt verk vel af hendi eins og
hans var von og visa. En kór-
meðlimir þeir, sem á móti honum
lásu, fluttu texta sinn með engu
minni glæsibrag — hvort sem það
hefur verið vegna þess að þau vildu
etja kappi viö leikarann snjalla eöa
hrifust með af því að heyra hans á-
gæta flutning.
Sönginn flutti kórinn mildilega og
söng hreint. Það eina sem mér
fannst ekki koma heim og saman
voru skiptingamar á milli lesturs og
söngs. Þar slitnaði um of í sundur og
verkaði Ukt og rekinn væri fleygur í
annars góða heildarhrynjandi
verksins. En að öðru leyti var
flutningurínn til sóma og var meö
Dauðadansinum settur laglegur
lokapunktur á vel heppnaða Tónlist-
ardaga Dómkirkjunnar.
-EM.
Sérverslun með
Skrifstofuhúsgögn
Ótrúlega hagstætt verð,
i gerð af skrifborði ^
kr. 14.290.
til dæmis stærsta (
Eða hillueiningar, þær bjóða upp á pp
mikla möguleika og verðið skemmir
það ekki. Til dæmis opin hillueining
kr. 5.150 eða eining með hurðum að
neðan kr. 6.800.
Berið saman verð og gæði
Viðartegundir: Ljós eik, dökk eik, beyki, tekk.
Líttu inn eða hringdu og sjóðu hvað
við getum gert fyrir þig.
Á. GUÐMUNDSSON
Húsgagnaverksmiðja, Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími 73100 <
Fi3!* AUGLÝSIR
joggingfatnað í úrvali
Verö í sérf'okki.
f/'/V
i 3 E 3
Laugavegi 41.
Sími 22566. Póstsendum.
wfflm
NS,
NÝTT FRÁ
ÍTALIU
Litir: svartur
svartur/grár.
Stærðir 36—41.
Verð kr. 950,-
PÖSTSENDUM.
/MCCNS
ÞINGHOLTSSTRÆTI I