Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Page 34
34 DV. FIMMTUDAGUR15. NOVEMBER1984. Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn TÓNUST FRAMTÍDARINNAR TÖLVURNAR HALDAINNREIÐ SÍNA í VERÖLD HUÓMUSTARINNAR Þegar stundir líöa mun tölvutónlist- in skapa svo stórfenglega og fjöl- skrúðuga hljómveröld, aö sú tónlist sem viö höfum alist upp viö frá blautu bamsbeini verður í samanburði bæði hjákátleg og fátækleg, já blátt áfram ömurlegáaðhlýða. Tölvutónlist er nú þegar iðkuð af miklu kappi úti í hinum stóra heimi. Forsprakkar menningarþjóðanna hafa komið á fót tölvuvæddum hljóöverum, tónskáld sem menntuð eru og þjálfuö í sj'gildri tónlist fyrri tíma hafa mörg hver tekið hinni frábæru nýjung fegins hendi og setja sig ekki úr færi til þess að beisla hana, anda sinum og sköpunargáfu til framdráttar. En auðvitað eru þeir til sem gefa henni óhýrt auga og við því er í sjálfu sér ekkrt að segja — slíkt mega allar nýjungar þola, en þeirra er framtíðin. Uppeldi og afþreying Unga kynslóðin á Vesturlöndum litur á hljóðgervla samtímans eins og sjálfsagðan hiut, þeir sem eru lengra komnir tengja einkatölvur sínar við hljómborð og stafræna sveiflusjá og semja með liösinni hugvitssamlegra forrita nýstárleg, heillandi hljóð, þess konar hljóð sem aldrei hafa nokkurn tíma heyrst í heiminum áður, hvorki í mannheimum eöa hinu viilta ríki náttúrunnar. Tölvutónlistin er hugþekk afþreying ungum sem gömlum, hún hentar vel til uppeldis og fræðslu gagnast starfandi tónlistarmönnum á margan máta. Það er nefnilega ekki nóg meö aö unnt sé að semja tónverk með tölvubúnaði, þaö er hægt að flytja voldugar hljómkviður með honum í heimahúsum eða þar til gerðum hljómverum, og eins er hægt aö nýta hann viö nótnaskrift og þar fram eftir götunum. Það er hægt að láta hann skrá og geyma tónsmiðar, sem síðan má kalla fram við hentug- leika til þess að umbreyta, lagfæra og endurskapa eftir þörfum og geðþótta — þess vegna hentar tölvutónlist einkar vel til hljóðsetningar við sjón- varps- og hljóðvarpsauglýsingar, kvik- myndir og videoþætti hvers konar. Lagfærið meistaraverkin! Tölvutónlistin hefur þegar hafið inn- reið sina á heimili Vesturlandamanna og þaö þarf engan aö furða þótt hún innan tíðar víki til hliðar hinum hefð- bundnu hljóðfærum kjarnafjölskyld- unnar, svo sem píanóum, giturum og orgelum, sem höfð eru nærtæk til skemmtunar og uppeldis æskunnar. Hver veit nema sú stund sé líka skammt undan að hljóðfæraleikara veröi ekki framar þörf, en fullkominn tölvubúnaður til flutnings tónverka verði nálega í hvers manns eigu og hver jum og einum verði þar af leiöandi í lófa lagið að semja sín verk, búa þau til flutnings og bjóða síðan vinum og kunningjum til stórkostlegra hljóm- leika í heimahúsum! Og þá stendur líka hverjum og einum til boða að keyra hljómkviður gömlu meistaranna inn í tölvuminni, hamast á þeim eins og þá lystir, umbreyta þeim og gerbreyta á alla vegu. Tölvutónlistin er enn í bemsku og það sér enginn fyrir endann á þroskabraut hennar. Stafræn eftir- líking Hvernig víkur því við að tækni sem upprunalega var hönnuð til útreikn- inga skuli henta svo vel til tónlistarsköpunar? Svarið er einfalt og kannski dálítið óvænt: einmitt vegna þess að hún er hönnuð til útreikninga. Tónlist er nefnilega saman sett úr þrýstibylgjum sem berast um loftið, mannseyraö greinir þessar bylgjur með sérstakri himnu og sendir boð um þær til heilans, en tölvan á tiltölulega auðvelt með aö reikna út þess konar bylgjur og gera af þeim haganlega eftirlíkingu. Sú eftirlíking hljóösins, sem tölvan er fær um aö búa til, er stafræn sem kallað er, en í því felst að hún er byggð upp í þrepum og hvert þrep er unnt að tiltaka með ákveðinni tölu, rétt eins og gert er í línuritum og súluritum. Þessi stafræna eftirlíking hljóðbylgj- unnar er ekki eins og hún, en hún er mjög lík henni, og fái tölvan tilmæli um Tíðarandinn Baldur Hermannsson að láta bylgjuna óma, þá sendir hún hana fýrst í gegnum eins konar síu áður en hún fer i hátalarann, og þessi sía sléttir úr þrepunum svo að úr verður áheyrileg bylgja. Tölvur til að hlusta Hin stafræna eftirlíking hefur þann reginkost, að með henni er hægur vandi að leggja saman tvær eða fleiri bylgjur, margfalda þær saman og vinna með þær á óteljandi vegu. Nú þegar er völ á forritum, sem varpa bylgjunum á skjá og með bendilfara er hægt að laga þær og breyta eins og manni þóknast, rétt eins og gert er meö venjulegum teikniforritum. Nú er það svo að ákveöinn tónn hefur hæð, litblæ og lögun sem svo mætti kalla — hann rís, hnígur svo eilitiö, varir um stund og fellur. öllum þessum atriðum getur tölvan hæglega hermt eftir og hún getur einnig búið til nýja, seiðandi tóna, sem ekkert mannseyra hefur áður numið. Það er eins og roskinn hljómlistar- maður sagði við mig nýlega — ég var þá búinn að rekja fyrir honum nýjustu tiöindi úr veröld tölvutónlistarinnar: „Þetta er alveg makalaust! Tölvurnar búa til ný hljóð og nýja tóna, semja hljómkviður, búa þær til flutnings og flytja þær með jafnmiklum tilþrifum og hundrað manna sinfóniuhljómsveit- ir — nú þarf bara að búa til sérstakar tölvur, sem mæta á þessa hljómleika tilaðhlusta!” -BH A>rnon P)lot D )*t* M)enu Í234SB789Ó^.ÍÍ4ééJ?éé|iÍ54 r ;• IA / \j» A A A • •. /\ / •. : ■ / V v XT*1 63 OSOl OSC >2 L >FO Þegar búin eru til hljóð með aöstoð tölvu er unnt að skoða þau i bak og fyrir á skjá eða fyrir tilstilli prentara, breyta þeim og lagfœra á ýmsa vegu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.