Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1984, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1984, Síða 14
DV. LAUGARDAGUR17. NOVEMBER1984. Ætlaröu, lesari góður, að kaupa þér bók fyrir jólin? Ef svo er tekuröu þátt í sókn sem útgefendur og aðrir skjól- stæðingar bókarinnar eru nú að hef ja; sókn sem líklega mátti ekki biða öllu lengur. Það er síður en svo launungar- mál að bóksala hefur dregist saman í landinu á undanfömum árum og eink- um og sér í lagi í fyrra. Eftir vertíöina þá virtist útlitið vægast sagt svart og "umir gengu jafnvel svo langt að spá oksins dauða bókarinnar; upp myndi ■enna eyðiland vídeósins og tölvu- :ækni. Þjóðin yrði með tímanum ólæs á Skarðsbók en því betur að sér í Basic. En nú er semsé ætlunin að sporna við fæti; nú þegar útgefendur eru logandi hræddir um enn minni sölu snúa þeir vömísókn. Við sem skrifum í blöð höfum orð- ið vör við þetta. Fyrir ekki alllöngu síðan boðuðu útgefendur ritstjóra og aörar silkihúfur blaöanna á sinn fund til þess að ræða hvemig bókin mætti fá aukið rými og skilning í fjölmiðlum; nú í vikunni vom svo óbreyttir blaðamenn kallaðir á svipaöan fund. Þar kynntu útgefendur bækur sínar, ræddu um leiðir til þess að stuðla að aukinni sölu þeirra; þeir töluðu um samdrátt sem ekki mætti verða til þess að almennileg rit kæmust ekki á markað, um nýjung- ar í starfsemi sinni og sitthvaö fleira. Þeir báðu um aðstoð blaðanna við aö koma bókaútgáfu í landinu aftur á rétt- ankjöl .. Ekkert af þessu kemur lesendum í sjálfu sér við. Þeir þurfa ekki og eiga í raun og vem ekki að vita um það sem fram fer að blaðabaki; blaðamenn eiga ekki sýknt og heilagt að vera að skrifa um sjálfa sig og vinnubrögð sín. Eg nefni þessa fundi meö útgefendum aðeins sem dæmi um þá viðleitni þeirra aö hefja bókina aftur til vegs og virðingar í islensku samfélagi, og þar koma raunar fleiri viö sögu. Sigurður Pálsson, formaður Rithöfundasam- bandsins, sat seinni fundinn og hann upplýsti að á siðastliönum mánuöum hefðu verið haldnir fjölmargir fundir með fulltrúum rithöfunda, útgefenda, prentsmiðjueigenda, bóksala og fleiri, og umræöuefnið alltaf hiö sama: hvemig best sé aö hlúa aö bókinni. Viö skulum öllsömul hlúa að bók- inni. Hún er vissulega illa haldin þó það sé ástæðulaust aö spá henni bráðum bana. A fundinum meö út- gefendum var vitnað til reynslu ann- arra þjóða sem komnar eru mun lengra en viö í átt til aukinnar tækni með öllum þeim þjóðfélagsbreytingum sem henni fylgir. Þar, eins og hér, hef- ur bókin orðið fyrir miklum áföllum en jafnan staöiö af sér sjóina og siglt heil i höfn. Það er þvi engin ástæða til að vola, en til þess að dallurinn ekki sökkvi verður að ausa. Gera eitthvað í málinu. Og hvað ætla bókaútgefendur svo að gera? A blaðamannafundinum var lögð fram þykk skýrsla um flestallar þær bækur sem út koma nú fyrir jólin, og fljótt á litið virðist útgáfan með svipuðu sniði og undanfarin ár. Það hefur að vísu orðið samdráttur í f jölda þeirra titla sem komast á þrykk, en þeir hafa verið hér um bil 500 undan- farin þr jú ár. Nú er giskað á aö út komi 350—400 bækur. Þessi fækkun stafar að vísu ekki aðeins af lítilli sölu i fyrra; prentaraverkfallið hafði líka sitt að ÆKUR ERU r;ó»\K ÍRÚMI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.