Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Side 1
í
í
i
i
i
i
i
i
i
í
i
i
i
í
t
t
t
f
FH og Vfkingur í 8-líða úrslit
Hópslysið:
Handleggs-
brutu einn
„slasaðan”
Einn af hinum „slösuöu” slasaðist
þegar hann lést vera helsærður eftir
sviðsett flugslys á Keflavikurflug-
velli.
„Jú, það var ein stelpa frá okkur
sem handleggsbrotnaði og það varð
að flytja hana á Borgarspítalann og
setja hana í gips. Þetta gerðist vegna
þess að heldur kröftuglega var tekiö
á henni þegar veriö var aö bjarga
henni. Þeim slösuöu þóttu her-
mennimir vera helst til fantalegir en
það batnaði þegar fleiri íslendingar
bættust í björgunarliðið,” sagði
Svavar Geirsson í Hjálparsveit
skáta í Hafnarfirði. Það voru nýliðar
þaðan sem léku hluta af þeim
slösuðu. -APH.
Verð á ís-
lenskum
fiskiskipum
óeðlilega
hátt?
Verð á íslenskum fiskiskipum,
samkvæmt húftryggingarverðmæti
þeirra, virðist vera orðið óeðlilega
hátt í mörgum tilfellum miðað við
það sem gengur og gerist á erlendum
mörkuöum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Bjama Þórðarsyni í Islenskri endur-
tryggingu var meðalverð loönubáta
af stærðinni 3—600 tonn um 71
milljón kr. en miðað var viö rúmlega
8 ára gömul skip. Meðalverð á
togurum, yfir 10 ára gömlum, er hins
vegar á bilinu 40—48 milljónir kr.
Samsvarandi tölur um verö fiski-
skipa í Noregi eru þær að loðnubátar
á bilinu 3—500 tonn eru á bilinu 28—
80 milljónir en þar verður að draga
frá verðmæti veiðileyfa sem hið
opinbera úthlutar hverju skipi fyrir
sig en verðmæti þeirra er á bilinu
12—16 milljónir kr. fyrir 4—500 tonna
báta.
Verð á tíu ára gömlum togurum
hér er hins vegar 77 milljónir kr. en
samanburöurinn þar er ekki eins
raunhæfur þar sem yfirleitt er um
eldri skip að ræða í Noregi. -fri.
—sjá nánarábls.24.
Víkingur og FH komust bæði í átta er því komið í átta liða úrslit i helgina við Ystad en töpuðu, 23—19,
liða úrslit í Evrópukeppni. FH sigr- Evrópukeppni meistaraliöa og ogeruþvíúrleik.
aöi í gærkvöldi Honved 26—22 og Víkingur í átta liða úrslit í Evrópu- — Sjá nánar í 8 síðna blaðauka um
Víkingur sigraöi Corunas 28—21. FH keppni bikarhafa. Valsmenn léku um íþróttir helgarinnar.
DV-mynd Brynjar Gauti.
Rússnesk rækja eyðileggst á Siglufirði:
UM 20J0NNAF
RÆKJUA HAUGANA
Fyrir helgina var yfir 20 tonnum af
rækju í skel ekið á sorphaugana á
Siglufiröiog hún grafin þar. Er taliö
að verðmæti þessarar rækju sé um
600 þúsund krónur eða meira.
Rækja þessi mun hafa verið veidd í
Barentshafi en hingaö var hún keypt
frá Sovétríkjunum fyrir um einu og
hálfu ári. Var hún keypt af útgerðar-
fyrirtækinu Þormóði ramma meðan
íslenska ríkið var eigandi að Sigló hf.
á Siglufirði en þar átti að vinna hana.
Gekk mikiö á þegar komið var með
þessa rækju hingað til lands á sínum
tíma. Sovéska skipiö sem kom með
hana gat m.a. ekki lagst aö bryggju á
Siglufirði og var henni þá landaö á
Akureyri og flóabáturinn Drangur
síðan fenginn til að flytja hana til
Siglufjarðar.
Þormóður rammi lenti í fjárhags-
örðugleikum skömmu eftir þetta og
fékkst ekki fyrirgreiðsla til að kaupa
dósir til aö verka rækjuna í, hvað þá
annað.
Ríkið seldi einkaaðilumSigló-verk-
smiðjuna á þessu ári. Hinir nýju eig-
endur höföu fyrir nokkru hug á að
fara að vinna þessa rækju sem þá
var komin í þeirra umsjá.
Kom maður frá framleiðslueftirlit-
inu til að skoða hana áöur, en hann
gaf út þann úrskurð að hún væri g jör-
samlega ónýt og lagði blátt bann við
að hún yrði nýtt á einn eða annan
hátt.
Var því ekkert annað við hana að
gera en aka henni allri á sorphaug-
ana og grafa hana þar.
-klp-
Stórslysaæfing■
ináKefla-
víkurflugvelli
- sjá bls. 20
Stofna félags
hyggjumenn
útvarp?
— sjá bls. 20
Umsögnum
Skugga-Svein
— sjá bls. 21
Enn vinnur
Karpov
-sjábls.4
Reynsluakstur
hjá Ómari
-sjabls. 50-51
■Jrrali