Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 35
DV. MÁNUDAGUR 26. NÖVEMBER1984. GOURMET liákkár Hrærir deig, sker niður græi grænmeti, þe' iiíiiiiiiiiii JÓLAGJÖFIIM FYRIR ALLA FJÖL- SKYLDUNA SATT 1,2 OG 3 Allar 3 SATT-plöturnar ásamt VERÐlLAUNAGETRAUN á verði einnar LP plötu. SPARIÐ TÍMA, FÉ OG FYRIRHÖFN í EINUM PAKKA Litlar líkur á endurgreiðslu Ekki heíur enn fengist úr því skoriö hvað Ríkisútvarpið hyggst gera til að bæta hlustendum þær fjórar vikur sem útsendingar féllu niður vegna verkfallsins. Að sögn Harðar Vilhjálmssonar, fjármálastjóra Ríkis- útvarpsins, verður trúlega fjallað um málið á fundi framkvæmdastjórnar seinna í vikunni. „Það sem einkum kemur til greina er lenging dagskrár en nú þegar hefur verið sjónvarpað tvo fimmtudaga. Ég tel hins vegar ósennilegt að um beina lækkun á afnotagjöldum verði að ræöa,” sagði Hörður, „en þetta er mjög flókið dæmi.” Hörður sagði að Ríkisútvarpiö hefði setið uppi í verkfallinu með allan fastan kostnað og starfsmenn sem ekki voru í verkfalli en engar auglýsinga- tekjur. Þá vildi hann benda á að 14— 15% verðbólga og 10% launahækkanir hjá fólki vægju verulega upp á móti út- varpsleysinu þegar afnotagjöld kæmu til greiöslu í mars. MEIRIHÁTTAR-HLJÓMPLÖTU- Um 2000 titlar, ótrúlega hagstætt verð. Gefum einnig 10—15% afslátt af öllum nýjum plötum og snældum. Hringið og biðjið um PÖNTUNARLISTA í SÍMA 91-16066. En best er þó að mæta á svæðið strax því ekki missir sá sem fyrstur fær. Sjáumst í LISTA- MIÐSTÖÐINNI við Lækjartorg, Hafnarstræti 22,101 Reykjavik. Simar 91-16066 og 15310. ^ERHAFIN BENDUM SÉRSTAK- LEGAÁ nýja, stóra hljómplötu og myndskreytta bók í einum pakka um Nóna „nykurpabba" sem kemur við í KLEIFARVATNI á leið sinni til mannabyggða, en hvort hann finnur leikfé- laga fyrir dóttur sína vitum við ekki nema með þvi að lesa bókina. MINNUM Á MYNDLISTARSÝNINGAR 0KKAR. MYNDLEIGU 0G SÖLUKJÖR VIÐ ALLRA HÆFI. JÓLAGJÖFIN FYRIR FÓLK Á ÖLLUM ALDRI SATT-plötur eöa snældur með ymsum íslenskum flytjendum... ALLT NÝ LÖG NYTT DAGVISTARHEIMIU Nýlega var tekið í notkun nýtt dag- vistarheimili, Hraunborg, við Hraun- berg 10 í Reykjavík. I Hraunborg eru starfræktar tvær dagheimilisdeildir fyrir 34 börn og leikskóladeild fyrir alls 40böm. Þá standa yfir framkvæmdir við þrjú önnur dagvistarheimili: Hálsa- kot, Grandaborg og Rofaborg. Þegar þessar stofnanir, sem nú eru í bygg- ingu, veröa teknar í notkun veröur pláss á dagheimilum fyrir um 14% af bömum aö 6 ára aldri í Reykjavík. A leikskólum verða pláss fyrir 40% barna 2—6 ára og á skóladagheimilum 5% bama6—9ára. -EH. RÆKJUVEIÐAR HAFN- AR í ÖXARFIRÐI — pólitísk hrossakaup stjórnmálamanna, segir fréttaritari Rækjuveiðar hófust í síðustu viku október og hafa þær gengiö vel það sem af er. Þrír bátar stunda veiöamar héðan frá Kópaskeri að þessu sinni og veitir þá rækjuveiði og -vinnsla um 30 manns atvinnu. Er það ekki svo lítiö hlutfall af vinnandi fólki í 200 manna þorpi. Heildarkvóti úr öxarfirði var að þessu sinni ákveðinn af Hafrann- sóknastofnun 200 tonn. Gekk hann til báta frá Kópaskeri og til vinnslu þar. Nokkrum dögum síðar bregöur svo einkennilega viö að með pólitískum uppeldisaðferðum hefur veiðiþol í flóanum aukist um 70 tonn og þau afhent til veiöa og vinnslu á Húsavík. Ekki er við góðu aö búast í stjórn landsmála þegar alþingismenn okkar eru jafngleymnir og raun ber vitni nú. Ekki em liðin nema rúmlega þrjú ár frá því að háttvirtir alþingismenn Norður- landskjördæmis eystra (sem þá sátu á þingi) samþykktu allir með tölu að Kópasker skyldi hafa algjöran forgang um rækjuveiðar í öxarfirði og að ekki kæmi til álita nokkur skipting til ann- arra staða fyrr en í fyrsta lagi að náðst hefði jafnstöðuafli upp á 300—350 tonn. Ekki er heldur hægt að segja að aöstæður hafi breyst því okkur hefur verið meinað af sömu aðilum að byggja upp móttökumöguleika í landi á öðrum fiski og sagt að snúa okkur alfariö að rækjuveiðum og -vinnslu. ,,Orð skulu standa” er því miöur liðin tíð og íbúum hér finnst lítið leggjast fyrir þá hina miklu menn þegar þeir, aö því er virðist, eru farnir að nota lifi- brauð lítils byggðarlags til að kaupa sér atkvæði í öðru stærra. Hvort þessi hrossakaup eru að öllu leyti af pólitísk- um toga spunnin eða að önnur tengsl koma þar einnig við sögu skal ekki dæmt um að sinni en víst er að það sem keypt er óséð er síðan við nánari skoð- un ekki alltaf jafneftirsóknarvert og haldið var í fyrstu. Ekki er heldur trú- legt að atkvæðum þessara ágætu manna f jölgi við næstu kosningar hér í þessu byggöarlagi eftir síðustu hollustuyfirlýsingar þeirra okkur til handa. Auðun Benediktsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.