Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 48
48 DV. MÁNUDAGUR 26. NOVEMBER1984. Um helgina Um helgina Ólafur Gaukur hljómlistarmaður: Sjónvarpsdagskráin vel þolanleg Ég gat reyndar ekkert horft á sjón- varp yfir helgina en horfi alltaf á fréttirnar þegar ég get. Mér finnst þær ágætar, einkum þættirnir utan úr heimi frá ensku fréttamönnunum. Annars þykir mér sjónvarpsdag- skráin vel þolanleg og margt þar prýðisþátta. Það er vel að sjónvarp skuli telja sér skylt að taka upp og sýna íslensk leikrit, sem svo eru nefnd. Hitt er mjög miður að ekki skuli betur hlúð að gerð íslenskra skemmtiþátta, tónlistarþátta og vandaðra afþreyingarþátta. Ástæð- an sem gefin er fyrir þessu er sú að þetta sé of dýrt en á það má benda að sjónvarpið okkar er auglýsingasjón- varp og mjög líklega væri hægt að fá stærri fyrirtæki í landinu til að f jár- magna ýmsa þáttagerð gegn því að þeirra væri getið hverju sinni. En þetta á örugglega eftir aö koma þeg- arfleiriaðilar fara aðsjónvarpa. Utvarpið hlusta ég talsvert á, eink- um fréttir en oft aðra dagskrárliði. Mér finnst útvarpið hafa verið í nokkuö stöðugri framför á undan- fömum árum og það á vafalaust eftir að batna þegar fram líöa stundir. Eg heyri líka oft rás 2 sem mér finnst hafa farið allvel af stað. Mér myndi þykja til bóta ef fluttar væm stuttar fréttir á klukkustundar fresti, tónhstarval væri fjölbreyttara og höfðaði eitthvað f ram yfir tvítugs- aldurinn og þáttastjórnendur væm ekki endilega nýkomnir af barns- aldri. Vestur í Bandaríkjunum þykir t.d. ekkert tiltökumál þó að stjóm- andi þekktasta plötuþáttar heimsins, Casey Kasen, sé hklega kominn hátt á sextugsaldur. Þar er dæmt eftir því hver getur hvað en ekki hvað hann er gamall. Andlát Hörður Steingrímsson, Sogavegi 158 Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bú- staðakirkju þriðjudaginn 27. nóvember kl. 13.30. Haraldur Þ. Richter, fyrrv. afgreiöslu- maður Morgunblaösins, Sólbergi við Langholtsveg, lést í Landspítalanum 23. nóvember. Svanhildur Ösk Torfadóttir, Melgerði 35 Kópavogi, lést í Landspítalanum aö morgni 22. nóvember. Kristján Sigurðsson, Blönduhhð 10, lést í Borgarspítalanum að morgni 23. nóvember. Hanna Guðjónsdóttir píanókennari, Kjartansgötu 2, er lést í Landspítalan- um 18. nóvember veröur jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 28. nóvember kl. 13.30. Brynjólfur Ingólfsson hjúkrunarfræö- ingur, sem andaðist 17. nóvember, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju þriöjudaginn 27. nóvember kl. 15. Óskar Guðlaugsson frá ísafirði, Mjóu- hlíð 16 Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 27. nóvemberkl. 10.30. Tilkynningar Jólakort Barnahjálpar Sam- einuðu þjóðanna Jólakort Bamahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) eru komin á markaðinn enn á ný., Kortin eru unnin af lístamönnum frá ýmsum löndum og eru allmargar myndanna gerðar sérslaklega fyrir þessi kort. Einnig eru notað- ar eldri myndír eftir fræga listamenn fyrri alda. Barnahjálpin hefur gefið út jólakort á hverju ári frá því 1949 og hefur þessi útgáfa fjármagnað um 10—15% af starfseminni á undanförnum árum. Fjárþörfin er gífurleg. Bamahjálpin hefur á síðustu ámm beint kröftum sínum að langtímaverkefnum til að stuðla að varanlegri lausn vandamála á hverjum stað. Þó fer alltaf töluvert til neyðar- hjálpar. Þurrkarnir i Afríku, t.d. í Eþíópíu, eru dæmi um stað þar sem neyðarhjálp er mjög nauðsynleg. Barnahjálpin er ein þeirra fjölmörgu alþjóðastofnana sem lagt hafa sitt af mörkum þar. Bamahjálpin þarf að hafa yfir töluverðum birgðum að ráða til að vera viðbúin að veita neyðarhjálp. Hún hefur nýverið tekið birgða- stööina UNIPAC í notkun í Kaupmannahöfn. Með innan viö sólarhrings fyrirvara geta flug- vélar lagt af stað frá flugvellinum í Kaup- mannahöfn með hjálp til nauöstaddra hvar ,em er í heiminum. Auk þessa er UNIPAC birgðastöð fyrir alla þá stöðugu hjálp sem UNIPAC veitir. Jólakortin em til sölu i helstu bókabúöum iandsins auk þess sem þau eru til sölu á skrif- stofu Kvenstúdentafélags Islands að Hall- veigarstöðum en Kvenstúdentafélagið hefur séð um sölu jólakortanna hér á Islandi í rúm 30 ár. Aukin starfsemi Samhjálpar kvenna Samhjálp kvenna er hópur sjálfboðaliða sem aðstoðar konur sem gengist hafa undir aðgerð vegna krabbameins í brjósti. Þessi hópur hef- ur starfað í fimm ár hér á landi og hefur að- stöðu í hinu nýja húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlið 8. Sú nýbreytni verður tekin upp að hafa „opið hús” öðra hverju I vetur fyrir þær konur sem gengist hafa undir siíkar að- gerðir. Þar fer fram umræða og kynntar verða nýjungar í hjálpargögnum. „Opið hús” verður í fyrsta inn í dag, mánu- daginn 26. nóvember, kl. 20.30. Einnig verða viðtalstímar á miðvikudögum kL 16—18. Tímapantanir fyrir þessa viðtalstíma eru í síma 621414. Frá Ferðafélagi íslands ATH. Af óviðráðanlegum ástæöum verður frestað kvöldvöku sem átti að halda 28. nóvemberþartilíjanúarnk. Ferðafélag íslands. Félagsfundur JC Borg 4. félagsfundur JC Borg verður haldinn í Kaffiteríunni í Glæsibæ í dag, mánudaginn 26. nóv.,kl. 20. Gestir fundarins verða: Olafur Hauksson blaðamaöur og Sigurður A. Magnússon rithöf- undur. Umræðuefnið verður „Frjálst útvarp”. Að loknum framsögu- og svarræðum verða fyrirspumir leyfðar úr sal frá fundarmönn- um. Allir JC-félagar og gestir velkomnir á fund- inn meðan húsrúm leyfir. Fundur Sagfræðingafélags íslands Sagnfræöingafélag Islands efnir til fundar í stofu 423 í Árnagarði, Háskóla íslands, mið- vikudaginn 28. nóvember og hefst fundurinn kl. 20.30. Þorleifur Friöriksson sagnfræöingur flytur erindi er hann nefnir: ,,Alþýðuflokkur- inn; alþjóöahyggja í norrænu ljósi”. Fundur- inneröllum opinn. Kynning á borðtennis Frá borðtennisnefnd Iþróttafélags fatlaðra í Reykjavík og nágr. Kynning á borðtennis verður í íþróttahúsi Hlíðaskóla mánud. 26. nóv. nk. kl. 19.00—20.30 og miðvikud. 28. nóv. nk. kl. 20.30—23.00. Hreyfihamlaðir og/eða aðstandendur þeirra eru hvattir til að koma, sjá og reyna. Æfingatimar í borðtennis em á áðumefnd- um stað og tíma. Þjálfari er Stefán Stefáns- son. Frá skrifstofu borgarlæknis: Farsóttir í Reykjavíkummdæmi í september 1984 samkvæmt skýrslum 12 lækna og lækna- vaktar: Inflúensa 20 Lungnabólga 50 Kvef, hálsb., lungnakvef o.fl. 775 Streptókokka-hálsbólga, skarlsótt 19 Einkirningasótt 1 Hlaupabóla 3 Rauöir hundar 5 Hettusótt 2 IðrakVef ogniðurgangur 127 Kláði 2 Flatlús 19 Önnurlúsasmitun 2 Lekandi 14 Þvagrásarbólga (þarafchlamydia41) 55 Athugasemd vegna fréttar Vegna fréttar, sem birtist á baksíöu DV föstu- daginn 9. nóvember síðastliðinn, vil ég geta þess aö söngflokkur sá er ég veiti forstööu syngur ekki eingöngu í Fríkirkjunni í Reykja- vík heldur einnig viö athafnir í Fossvogs- kirkju, svo og öðrum kirkjum, sé þess óskaö. Ágústa Ágústsdóttir. Árlegt símahappdrætti lamaðra og fatlaðra Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra efnir nú til hins árlega símahappdrættis, en eins og al- kunna er gilda símanúmerin jafnframt sem númer happdrættismiðanna. I þessu sérstæða happdrætti er því ekki um það að ræða að gefa út ótakmarkaðan miðafjölda, heldur miðast fjöldi útgefinna miða algerlega við skráð símanúmer. Vinningar í símahappdrættinu að þessu sinni eru mjög glæsilegir: 5 mismunandi tegundir vinsælla bifreiða frá TOYOTA aö verðmæti rösklega 2 milljónir króna. Verði happdrættismiðanna er stillt í hóf og kosta þeirkr. 150,00. Að sögn Sigurðar Magnússonar, fram- kvæmdastjóra Styrktarfélagsins, er síma- happdrættinu alltaf tekið með vinsemd af símnotendum í öllum þeim aragrúa happ- drætta og fjáraflana sem jafnan eru í gangi. Þannig ættu símnotendur góðan þátt í upp- byggingu og eflingu félagsins. Jafnframt er ástæða að leggja á það áherslu að drætti er aldrei frestað. Avallt dregið á Þorláksmessu og vinningsnúmer birt opinberlega daginn eftir og einnig er hægt strax á aðfangadag að hringja í símsvara sem tilgreindur er á miðunum og fá þannig upplýsingar um vinningsnúmer. Framhaldsstofnfundur makalausra Sl. vor var haldinn fundur í Félagsstofnun stúdenta til að undirbúa stofnun félags maka- lausra, þ.e. samtök einstaklinga sem búa einir eða utan ramma kjamafjölskyldunnar svonefndu. Fjöldi þeirra er ærinn og mun af ýmsum ástæðum hafa vaxið allhratt á undanfömum árum enda var fundurinn fjöl- mennur og kom fram mikill áhugi á samtök- um af þessu tagi. Sökum almennrar fundar- tregðu yfir sumartimann var þó ákveðið að fresta stofnun félagstil haustsins. Það er þó órækur vitnisburður um þörfina fyrir samtök af þessu tagi að þegar er hafið þróttmikið starf þótt félagið hafi enn ekki verið stofnað formlega. Nú þegar em um 300 manns á skrá og hafa þeir haft uppi ýmislegt starf sl. sumar og haust: unnið hefur verið í starfshópum, gefið út fjölritað fréttablað, haldnir tveir dansleikir og fariö í fjórar hóp- ferðir, m.a. til Þingvalla og í Húsafell. Boðað var til stofnfundar í Félagsstofnun stúdenta í byrjun október og var þar fjöl- menni samankomið, ekki sist ef tekiö er tillit til að þetta var í miðju verkfalli og lítt hægt að auglýsa fundinn vegna fjölmiðlaleysis. Ekki tókst að ljúka störfum fundarins og hefur nú veriö ákveðið að halda framhaldsstofnfund sunnudaginn 2. des. að Borgartúni 18 (í saln- um niðri í húsi Sparisjóðs vélstjóra). Fundur- inn hefst klukkan 15.00 og hvetjum vlð hér með alla tilaðmæta. Undirbúningshópur að stofnun Féiags makalausra. Félag ráðgjafarverkfræðinga Dagana 6.-7. september héldu stjórnarmenn félaga ráðgjafarverkfræðinga árlegan sam- ráðsfund, svokallaðan RINORD-fund, að hótel Esju í Reykjavík. Margt bar á góma. Einna forvitnilegust verður þó afstaða danskra stjórnvglda til ráðgjafarverk- fræðinga að teljast. Dönskum rannsóknar- stofum sem njóta fjárveitinga af opinbem fé er t.d. óheimilt að taka að sér verkefni sem venja er að vinna á almennum verkfræði- stofum nema ganga úr skugga um að þær geti eða vilji ekki taka að sér verkefnið. Hinu danska félagi ráðgjafarverkfræðinga er iðulega boðið að eiga fulltrúa í viðskiptasendi- nefndum til þróunarlanda. Samkomulag er um það milli danska félagsins og nokkurra opinberra stofnana að útf lutningur verkfræði- ráðgjafar sé í höndum einkafyrirtækjanna en þau geti aftur á móti fengið lánaða starfsmenn hinna opinbem stofnana sem búa yfir þekk- ingu á þröngu sviði. Að frumkvæði danska ráðgjafárverkfræðingafélagsins hefur danska þingið veitt fé til undirbúnings því að hugbúnaður vegna notkunar tölva í byggingariönaði verði samræmdur. Danska félagið hefur með höndum skipulagningu þessa verkefnis og býst við áframhaldandi fjárveitingum til þess næstu árin. Hin Norður- iöndin geta ekki státað af svo mikilli velvild og skilningi stjórnvalda sem í Danmörku og Svíar kvarta jafnvel undan andúð stjórnvalda á einkarekstri verkfræðistofa. Auk fundarstarfa heimsóttu fundargestir og makar þeirra forseta Islands að Bessa- stöðum og ferðuðust nokkuð um Suður- og Vesturland. Námskeið fyrir starfsfólk á uppeldis- og viststofnunum Irski uppeldisfræðingurinn dr. Roy McConkey er væntanlegur til Islands á vegum nokkurra kennslustofnana og félagasamtaka í byrjun desembermánaðar nk. Dr. McConkley hef ur um áratugi fengist viö rannsóknir á kennslu vangefinna, bæði við Hester Adrian stofnunina í Manchester og St. Michaels House stofnunina í Dublin. Hann er kunnur sein höfundur bókanna: „Let me play”, „Let me speake”, „Teaching the handicapped child” og „Breaking barriers”. Einn megintilgangurinn með komu McConkeys er að kynna starfsfólki á uppeldis- og viststofnunum þar sem vangefnir eru, svo og foreldmm og öðm áhugafólki, þrjú virieonámskeið sem hann hefur nýlega gert ásamt samstarfsmönnum sínum í Dublin. Námskeiðin em þessi: 1. Let’s Play sem fjallar um það hvernig hag- nýta má leik á kerfisbundinn hátt í uppeldis- starfinu. 2. Putting two words together sem fjallar um hagnýtar aðferðir til málörvunar vangefinna. 3. Community Attitude to Retarded Adults sem er kynning á lífi fullorðinna vangefinna, prógrameraö sem 5 kennslustundir í fram- haldsskóla. Dr. McConkey mun flytja erindi í Kennara- háskóla Islands þriðjudaginn 4. desember kl. 16.00. Heiti erindisins er: Teachbig the mentally handicapped. Sama dag kl. 20.30 flytur hann erindi á vegum Félags ísl. sér- kennara og Félags talkennara og taimeina- fræðinga sem nefnist „Teaching language to mentally handicapped”. Á vegum Landssamtakanna Þroskahjálpar og Styrktarfélags vangefinna flytur dr. McConkey erindi í Norræna húsinu miðviku- daginn 5. desember kl. 20.30. Erindið nefnist „How to change the eommunity attitude to mentally retarded people”. Fimmtudaginn 6. desember heldur McConkey námskeið í Borgartúni 6 sem einkum er ætlað kennurum sérskóla og starfs- liði viststofnana þar sem vangefnir dvelja. Þar mun hann fjalla um videonámskeiðin „Let’s play” og „Putting two words together”. Út er komið almanakshapp- drætti Landssamtakanna Þroskahjálp fyrir árið 1985. Almanakið hefur komiö út árlega á undanfömum árum en er nú með mjög breyttu sniði, bæði hvað varðar útlit og vinninga. Að þessu sinni prýða almanakið grafíkmyndir eftir 13 íslenska listamenn, ein fyrir hvern mánuð, auk forsíðu, og birtist hér árangur samvinnu Landssamtakanna Þroskahjálp og félagsins Islensk grafík. Myndirnar sjálfar, þ.e. frummyndirnar, verða til sölu fyrir milligöngu skrifstofu Þroskahjálpar. 1 vinninga em: Fiat Uno, sem dreginn verður út 31. janúar nk„ og eitt Sharp-lit- sjónvarpstæki hvem mánuð frá febrúar— desember. Almanakið, sem er meginfjár- öflunarleið Landssamtakanna Þroskahjálp, er gefið út í 16 þúsund eintökum sem seld verða á 200 kr. hvert. Jólamerki Thorvaldsens- félagsins 1984 Jólamerki Thorvaidsensfélagsins 1984 er komið í sölu og er það sjötugasta merkið sem gefið er út á vegum félagsins. Merkið er mynd af glugga, sem Leifur Breiðfjörð glerlista- maður hannaði, og er glugginn í kapellu sem er á Kvennadeild Landspítalans. Enn sem fyrr er jólamerkið aðalfjáröflun Bamauppeldissjóðs Thorvaldsensfélagsins og veitir sjóðnum þann möguleika, sem er á stefnuskrá hans, að styrkja og veita aðstoð þeim, sem minnst mega sín í þjóðfélaginu, það er til dæmis sjúkum bömum og öðmm þeim sem stuðning þurfa, til að hjálpa þeim til heilbrigði og eðlilegs lífs. Það er því von félagskvenna Thorvaldsensfé- lagsins, aö vel verði tekið á móti þeim er þær bjóða merkin til kaups. Einnig þakka þær af alhug öllum þeim fjölmörgu sem mörg undanfarin ár og áratugi hafa sýnt félaginu tryggð og skilning, með því að kaupa jólamerkin og á margan annan hátt, sem er félaginu ómetanlegt í starfsemi þess. Merkiö er selt hjá félagskonum og á Thorvaldsens- basar, Austurstræti 4 Reykjavík. Einnig hefur Frímerkjavarsla Pósts og síma verið svo vinsamleg að dreifa þeim á pósthúsin og eruþau til sölu þar. Verð á merkinu er kr. 5,00 hvert merki og ein örk, sem er með tólf merkjum, kostar því kr. 60,00. Jólakveðja með vinningsvon Gigtarfélag Islands efnir nú til óvenjulegs happdrættis. Hver happdrættismiði er um leið jólakort. Vinningar eru 8 ferðavinningar eftir vali. Það er von félagsins að þessu korti verði vel tekið. öllum ágóða verður varið til að greiða kostnað viö Gigtlækningastöðina sem nú er komin í fullan gang. Kortin fást hjá Gigtar- ÞingASÍ hófstímorgun Þing Alþýðusambands Islands, hið 35. í röðinni, hófst að Hótel Sögu klukk- an 10 í morgun. Þingið mun standa framá föstudag. I dag verður á dagskrá þingsins kjör starfsmanna og starfsnefnda, skýrsla forseta, fyrsta umræða um lagabreyt- ingar og síðan umræður um vinnu- verndarmál og tölvumál. Leitað að jeppa með þremur í Slysavarnafélag Islands leitar nú aö jeppabifreið sem fór einbíla úr Þing- vallasveitinni að Hlööufelli í gær- kvöldi. Var þrennt í bílnum en ekkert hefur heyrst frá þeim síðan. Hannes Hafstein, framkvæmdastjóri SVFI, sagði í samtali við DV í morgun að jeppinn væri án talstöövar en sennilega hefði hann lent i ófærð. Bílar frá SVFl lögöu af stað í morgun á þess- ar slóðir í leit að jeppanum. -FRI. félagi Islands, Ármúla 5, og hjá félags- mönnum víða um landiö. Stjórnin. Siglingar HULL/GOOLE: LENINGRAD: Dísarfell 19/11 Patria 4/12 Dísarfell 3/12 Dísarfell 17/12 LARVIK: Jan 26/11 ROTTERDAM: Jan 10/12 Disarfell 20/11 Dísarfell 4/12 GAUTABORG: Dísarfell 18/12 Jan 27/11 Jan 11/12 ANTWERPEN: Dísarfell 21/11 KAUPMANNAHÖFN: Dísarfell 5/12 DísarfeU 19/12 Jan 28/11 Jan 12/12 HAMBORG: DísarfeU 23/11 SVENDBORG: DísarfeU 7/12 Jan 28/11 DísarfeU 21/12 Jan 13/12 HELSINKI: ÁRÖSAR: Patria 30/11 Jan 29/11 HvassafeU 14/12 Jan 13/12 LtlBECK: GLOUCESTER , M- AmarfeU 29/11 ASS.: SkaftafeU 19/11 FALKENBERG: SkaftafeU 18/12 Arnarfell 1/12 Hvassafell 17/12 HALIFAX, KANA- DA: SkaftafeU 19/12 Heilsugæsía Heilsugæslustöðin á Seltjarnamesi hefur frá 1. október sl. tekið upp kvöld- og helgarvaktir fyrir þjónustusvæði sitt, sem er Seltjarnames og vestasti hluti Reykjavíkur. Kvöldvakt er alla virka daga frá kl. 19.30— 22.00. A laugardögum, sunnudögum og al- mennum frídögum er bakvakt frá 09.00—12.00 og frá 17.00—22.00 síðdegis. Sími bakvaktar er 19600 (Landakot). Hvaða pípu mundir þú velja ef þú værir flottur og glæsilegur ungur maður?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.