Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 28
fþróttir íþróttir fþróttir íþróttir fþróttir íþrt fþróttir fþrótti fþróttij DV. MÁNUDAGUR 26. NOVEMBER1984. Honved varð fyrir • Siguröur Sveinsson. Siggi Sveins er meiddur — og getur ekki leikið með landsliðinu sem hélt utan í morgun Lemgo, lið Siguröar Sveinssonar í vestur-þýska handknattleiknum, mátti þola stórt tap um helgina gegn Diissel- dorf, 17—23. Siguröur lék meö þrátt fyrir meiösli í öxl og skoraði sjö af mörkum Lemgo. Það er nú ljóst aö Siguröur getur ekki leikið meö íslenska landsliöinu sem í morgun hélt til Danmerkur þar sem leiknir veröa tveir landsleikir í vik- unni. Síðan veröur haldið til Noregs á fimmtudag og tekiö þátt í Polar Cup keppninni. -SK. McDougall skoraði eftir 36 sek. — og markið dugði Aberdeen til sigurs Aberdeen rétt marði sigur (1—0) yfir Dumbarton í Skotlandi. Það var Frank McDougall sem skoraöi sigurmark liðsins, eftir aðeins 36 sek. Leikmenn Celtic skoruöu aftur á móti sjö mörk er þeir lögðu St. Mirren að velli, 7—1. Frank McGarvey skoraöi þrjú mörk en þeir Davie Provan, Brian Heroics, Tommy Burns og Paul McStay eitt hver. Þaö var Brian Gallacher sem skoraði fyrst fyrir St. Mirren, en síðan ekki söguna meir. Glasgow Rangers vann sigur í Morton, 3—l.Dundee sigraöi Hearts, 2—1, og Dundee United og Hibs gerðu jafntefli, 0—0, í Edinborg. Staöanernú þessi í Skotlandi: Aberdeen Celtic Rangers Duudec Utd. St. Mirren Hearts Dundee Hibernian Dubarton Morton 15 13 1 15 10 4 15 7 6 Anderlecht óstöðvandi 1 36— 8 27 1 36-11 24 2 17- 7 20 6 25-17 16 8 20—28 15 8 17-25 15 9 19—25 11 8 15-26 11 9 14-21 10 3 1 12 14—45 7 -SOS. Anderlecht hélt sigurgöngu sinni áfram í Belgíu þegar félagið lagði Beerschot að vclli, 2—0, í Antwerpen. Anderlecht er með 26 stig eftir fimmtán leiki, en síðan kemur Ware- gem með 22 stig, FC Brugge og FC Liege með 20, Gent með 19 og Beveren 18. -SOS. „Hafnarfjarðar- hraðlestinni” FH-ingar lögðu ungversku meistarana að velli, 26-20, og tryggðu sér farseðil inn 18 liða úrslit Evrópukeppni meistaraliða — unnu samanlagt 53—51 Ungverska meistaraliðið Honved er úr leik í Evrópu- keppni meistaraliða í handknattleik. Leikmenn liðsins urðu fyrir „Hafnarf jarðarhraðlestinni” í Laugardalshöll- inni í gærkvöldi. FH-ingar keyrðu leikmenn Honved hreinlega niður með hraða sínum og krafti og unnu sætan sigur, 26—22, í fjörugum og skemmtilegum leik sem áhorfendur, sem troðfylltu Laugardalshöllina, kunnu svo sannarlega að meta — sérstaklega þó lokakafla leiksins þegar allt var á suðupunkti og mikill darraðardans stiginn á f jölum Hallarinnar. Um tíma var sem „Hafnarfjarðar- hraðlestin” væri komin út af teinun- um. FH-ingar voru með yfir, 23—18, þegar aðeins 10 mín. voru til leiksloka. Þaö var þá sem hrikti í „lestinni”, sex sóknarlotur í röö runnu út í sandinn og Ungverjarnir voru búnir aö minnka muninn í 23—21 og voru meö knöttinn. • FH-ingar náöu þá hraöupphlaupi og Þorgils Öttar Mathiesen skoraði, 24—21, þegar 2.10 mín. voru til leiks- loka. Vinstri handarskyttan Bordas, sem skoraöi 8 mörk fyrir Honved, svaraöi, 24—22, þegar 1.34 mín. voru til leiksloka. • Allt var komiö á suðupunkt og mikill fögnuöur braust út þegar Bordas var rekinn af leikveUi. • Hans Guðmundsson tók til sinna ráöa þegar 54 sek. voru til leiksloka og sendi knöttinn með þrumuskoti efst upp í markhornið fjær á marki Honved, 25—22. • Og þaö var svo Pálmi Jónsson sem gulltryggði sætan sigur FH-Uösins, 26—22, úr hraöupphlaupi þegar aöeins ein sek. var eftir af leUmum. Sigur FH var í öruggri höfn og áhorfendur voru með á nótunum — þeir hrópuöu FH, FH, FH. .. Hraðinn geysilegur Það var strax í byrjun leiksins sem áhorfendur fengu forsmekkinn af því sem koma skyldi. Bæði Uðin keyröu á fullu og var hraðinn oft geysilegur sem sést best á 54 sóknarlotum í fyrri hálf- leiknum sem stóð yfir í 30 mínútur. FH-ingar settu aUt í botn og voru komnir yfir, 5—1, eftir 9 mín. en Ungverjarnir skoruöu fyrsta mark leiksins. Glæsilegar leUcfléttur sáust og vel útfærð hraðupphlaup. Þegar FH missti Hans Guömunds- son af leikvelU í 2 mín. náðu Ungverjar að minnka muninn í 5—4 á aðeins 60 sek. og síðan aö jafna, 5—5. FH-ingar gáfust ekki upp — komust í 9—6 en síðan mátti sjá tölur eins og 9—9,10— 10 og á 25. mín. komst Honved yfir, 10—11. FH-ingar jafna, 11—11, og komast í 14—11 fyrir leikhlé eöa á einu "stoppistöðinni” í leiknum. .. .og áfram á fullu FH-ingar héldu uppi hraöanum í seinni hálfleik — komust fljótlega í 17—12 og héldu síðan fimm marka for- skotinu þar til staðan var 23—18. Þá kom kaflinn sem sagt var frá hér aö framan og um tima óttuöust menn aö „Hafnarfjarðarhraölestin” væri farin út af teinunum. Sem betur fer var það ekki. FH-ingar voru sterkari á loka- sprettinum í miklum spennuleik sem bauð upp á allt sem handknattleikur hefuruppáaöbjóöa. Þór vann Frá Friðbirni Ó. Valtýssyni, fréttamanní DV í Vestmannaeyjum: Þór og Týr léku fyrri leik sinn í Vestmanna- eyjamótinu i handknattleik um helgina og vann Þór öruggan sigur, 21—14. Staðan í leik- hléi var 16—3. Gylfi Birgisson skoraði 8 mörk fyrir Þór, Steinar Tómasson 5 og Sigbjörn Óskarsson 4. Heiðar Árnason skoraði mest fyrir Tý eða 6 mörk. -SK. Við bjugg- umst við sigri sagði Lajos Moscsai, þjálfari Honved „Ég vil byrja á því að óska FH- liðinu til hamingju mcð þennan sigur. Ég verð að viðurkenna að eftir fyrri leikinn bjuggumst við við því að sigra í þessum lelk,” sagði Lajos Moscsai, þjálfari Honved, cftir tapiö gegn FH í gærkvöldi. „Viö höfum misst tvo leikmenn til útlanda og það veikir okkar lið. Með þessu er ég þó ekki aö draga úr framrnistöðu FH-inga. Þeir léku mjög vel í kvöld og ég myndí vilja hafa skyttur á borö viö þær sem eru í FH í mínu liði. Þá fannst mér sér- staklega, athugavert hversu stað- setningar leikmanna FH voru góð- ar án boltans. Ég get engu spáö um möguleika FH-inga í keppninni í næstu leikjum. Ef þeir lenda á móti liði frá til dæmis Rússlandi eða Tékkóslóvakíu þá verður það mikil barátta fyrir FH. En ef FH-ingar fá til dæmis 116 frá Danmörku þá myndi ég segja að þeir ættu mikla möguleika á að komast áfram í undanúrslitin. „Dómararnir voru sérlega góðir og þeir höfðu mjög góð tök á leikn- um allan tímann,” sagði Lajos Moscsai. -SK. Hans í ham! Hans Guðmundsson, sem af furðu- legum ástæðum missti landsliðssæti sitt, var í miklum ham — hann skoraði alls 10 mörk í leiknum. Níu meö langskotum og eitt úr hraðupphlaupi. Ungverjarnir áttu í miklum erfið- leikum með að stöðva Hans sem lék viö hvern sinn fingur. Fjórar stjörnur skinu Það er óhætt að segja aö fjórar Hafnarfjarðarstjörnur hafi skinið í Höllinni því að aðeins fjórir leikmenn FH skoruöu mörkin 26. Hans skoraöi 10 eins og fyrr segir. Síöan kom Pálmi Jensson með sex mörk. Kristján Arason með 5/2 og Þorgils Ottarmeðð. Kristján Arason átti tvær línu- sendingar, sem gáfu mörk, á Þorgils Óttar. Hans átti tvær línusendingar á Þorgils Ottar sem gáfu vítaköst og mörk. Þessir f jórir leikmenn áttu afburöa- leik meö FH-liðinu og er það örugglega einsdæmi í Evrópuleik að aöeins f jórir leikmenn skori 26 mörk. Haraldur Ragnarsson náði sér aldrei verulega á strik í markinu — varði sex skot. FH-ingar skoruðu 26 mörk úr 51 sóknarlotu í leiknum sem er um 50% nýting. -SOS. • Hans Guðmundsson sést hér lyfta sér h aði níu mörk með langskotum. Tveir nýir dómarar í l.deildinni Búið er að velja þá knattspyrnudómara sem munu dæma í 1. deild næsta sumar. Hóp- urinn, sem skipaður er fimmtán dómurum, er ekki mikið breyttur frá því sem var í sumar. Tveir nýir dómarar dæma í fyrsta sinn i 1. deild næsta sumar en það eru þeir Eyjólfur Óiafsson og Sveinn Sveinsson. Helgi Kristjáns- son dettur út úr hópnum en hann dæmdi í 1. deild í sumar. -SK. • Þorgils Öttar fékk oft óblíðar móttökur hjá varnarmönnum Honved en hann reyndist sterkari og gekk af leikvelli sem sigurvegari. DV-mynd Brynjar Gauti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.