Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 13
DV. MÁNUDAGUR 26. NOVEMBER1984. 13 Frjáls innflutn- Kjallarinn ff ff ingur - á notendabúnaði við sjálfvirkt símakerfi Pósts og síma 1 reglugerö sem gefin var út af samgönguráðherra 15. júní 1981 um heimild til innflutnings og sölu tækja til tengingar við hið sjálfvirka síma- kerf i er meðal annars tekið f ram: 2. gr. Samþykki stofnunarinnar á ákveðnu tæki takmarkar á engan hátt rétt hennar til þess að hafa sama eöa tilsvarandi tæki á boðstól- um. 3. gr./3.1. Tækið skal uppfylla þær al- mennu tæknilegu kröfur, sem Póst- og símamálastofnunin setur um eiginleika slíkra tækja. 3. gr./3.2. Tækið skal afhent Póst- og símamálastofnuninni til athugunar, rannsóknar og samþykkis eða synj- unar. 3. gr./ 3.12. Póst- og símamála- stofnunin áskilur sér rétt til þess að fy lg jast með f jölda seldra tæk ja. Fsk. 2. gr. 3. Starfsmenn Póst- og símamálastofnunarinnar skulu hafa aðgang að öllum þeim búnaði, sem tengdur er sjálfvirka símakerfinu. Frjáls innflutningur? Hvað er frjáls innflutningur og effleg samkeppni ef Póst- og sma- málastofnunin á að sitja báðum megin við borðið, þ.e.a.s. samþykkja eða synja um tæki frá öörum inn- flyt jendum um leið og þeir eru sjálfir með söludeild. Er það eðlileg sam- ARNAR HÁKONARSON FRAMKVÆMDASTJÓRI RAFEINDAR SF. keppnisaðstaöa að hafa sjö heilsíðu- auglýsingar á besta stað í mest lesna riti þjóöarinnar, símaskránni, sem er fjármögnuð með fé frá hinum al- menna notanda og okkur sem erum í samkeppni við stofnunina? Er það eðlileg samkeppni að vera fyrstur að bjóða vöru sína til nýrra símnotenda, þ.e. þegar starfsmenn Pósts og síma tengja og setja upp nauösynlegan búnaö? Er það eðlileg samkeppni að áskilja sér rétt til að fylgjast með innkaupsveröi og fjölda seldra tækja hjá innflytjendum? Er það eðlileg samkeppni að synja eða veita þjónustuleyfi til annarra innflytj- enda? Við segjum NEI, það er ekki eðli- legt. Hingað til hafa viðskipti okkar við Póst- og símamálastofnunina veriðmjög seinvirk. Niðurstöður á tegundaprófunum hafa aldrei verið skriflegar þannig að við gætum gert viðeigandi ráð- „Hingað tii hafa viðskipti okkar við Póst- og simamálastofnunina verið mjög seinvirk." stafanir til breytinga og lagfæringa á þeim tækjum sem er synjað. Mikill seinagangur og skriffinnskubákn eru einkenni stofnunar af þessu tagi. Hver heilvita maður sér að hér er ekki eðlileg starfsemi í gangi. Hvaö hefur hagsmunafélag símamanna (FlS) með þjónustuleyfisveitingar aö gera? Spurningarnar eru margar en svörin fá ef þau á annað borð berast. Við leggjum til að söludeild Pósts og síma veröi lögð niður, að öðrum kosti verði tegundaprófanir á tækjum í höndum óháðra aðilja. Auk þess leggjum við til að Póstur og sími hafi aðeins umsjón meö lögnum að húsum en þaðan verði löggiltum raf- eindavirkjum heimilt að sjá um lagnir og tengingar, sbr. rafvirkja. Arnar Hákonarson. VIÐSKIPTAUTVARP EÐA FiÖLDAUTVARP? Margt bendir til þess að megin- ágreiningsefnið um frumvarp það til nýrra útvarpslaga, sem nú liggur fyrir Alþingi, verði spurningin um fjármögnun einkaútvarpsstöðva. Hvorki er teljandi ágreiningur um að einkaréttur Ríkisútvarpsins verði takmarkaður í einhverjum mæli né um það sjónarmið að sem flestir þeirra, sem vilja spreyta sig á út- varpsrekstri skuli fá tækifæri til þess, þ.e. fá leyfi til útvarps. Að vísu verður allflókið mál að setja nothæf- ar starfsreglur, bæði fyrir yfirvaldið („útvarpsréttamefnd”) og leyfis- hafana tilvonandi, en það ætti ekki að vefjast fyrir mönnum eftir að meginstefnan hefur veriö mörkuð með löggjöfinni. En lykilatriði við mörkun meginstefnunnar er einmitt fjármögnunin og þar er tekist á um tvær leiðir. Aðra mætti kalla auglýs- inga- eða viðskiptaleið en hina áskrifta-eða fjöldaþátttökuleiö. Báð- ar hafa þær til síns ágætis nokkuð og hvorug er gallalaus með öllu. Eg hef leitast við að halda á lofti áskrifta- leiðinni, ekki vegna þess að hún sé fullkomin eða leysi allan vanda held- ur vegna þess að sú meinloka virðist útbreidd að engin önnur leið sé fær til að fjármagna einkaútvarpsstööv- ar en sú að selja þriðja aðila aðgang að þeim. Ef sú aðgerð verður lög- leidd jafngildir það því að ríkið gefi einkaaðilum verðmæti, sem þeir gera sér síðan að féþúfu. Hver tapar? Spyrja má hvort einhver tapi á þessari ráðstöfun. Því er fljótsvar- að: f fyrsta lagi tapar Ríkisútvarpið vegna minnkaðra auglýsingatekna og í öðru lagi tapar almenningur vegna hækkaös vöruverðs (aug- lýsingakostnaður er aö sjálfsögðu ekki gripinn úr lausu lofti heldur leggst hann, eins og annar kostnað- ur, ofan á söluverð). En hagnast þá enginn nema útvarpsleyfishafinn? Jú, á það má benda að almenningur öðlist aukið frelsi til að velja um út- varpsefni. Það er hins vegar segin saga að fjölmiðill, sem á afkomu sína að miklu eða öllu leyti undir auglýs- ingatekjumá frjálsummarkaði, sem svo er nefndur, getur ekki leyft sér þann munað að styggja þá sem gefa honum sitt daglega brauð, þ.e. aug- lýsendur. Ótal dæmi víðs vegar um heim sanna þessa reglu svo ekki verður um villst. Sú hætta er því mjög raunveruleg að voldugustu auglýsendurnir, m.ö.o. umsvifa- mestu kaupsýslufyrirtæki landsins og stjórnendur þeirra, veröi eins konar útvarpsráð einkastöðvanna. Stundum hefur mönnum fundist út- varpsráði Ríkisútvarpsins mislagð- ar hendur og er það þó kosið með lýð- ræðislegum hætti af réttkjörnum fulltrúum þjóðarinnar. Otrúlegt má telja að útvarpsráði hins óhefta fjár- magns tækist betur upp og fátt í reynslu annarra þjóða sem bendir til þess. Málsvarar auglýsingastefnunnar halda því mjög á lofti að þaö séu í raun notendur (hlustendur) sem séu hæstráöandi í þessum efnum. Bæði eigendur stöðvanna og auglýsendur verði aö beygja sig undir vilja þeirra. Þetta er í meginatriðum fals- kenning jafnvel þótt hún hafi sem betur fer örlítið sannleikskorn að geyma. Meginreglan er sú aö eigend- ur stöðvanna og hlustendur verða að beygja sig undir hagsmuni auglýs- enda. Það er öldungis rökrétt þar sem auglýsendurnir eru eini aðilinn af þessum þremur sem hefur vald á fjármagninu sem rennur til reksturs stöðvanna. Nægar sönnur eru til á þessu lögmáli en naumast verður kosið á betra dæmi en þann atburð fyrir skömmu þegar stofna átti Is- lenska útvarpsfélagið hf. Eftir blaða- fregnum aö dæma ákváðu kaup- sýslumennirnir einfaldlega að losa sig viö áhugamennina mn svokallaö „frjálst útvarp”, enda eru þeir í þeirra augum eins og hver annar óþarfur milliliður. Við þurfum ekki að fara í neinar grafgötur um hvaða hagsmunir verða í fyrsta og öðru sæti þegar þessir aðilar hefja út- varpsrekstur. Þessir hagsmunir munu setja svip sinn á allt dagskrár- efni, þar með taldar fréttir og annan fróðleik og upplýsingar. Almannaheill Margir líta svo á að rafsegulbylgj- ur loftsins séu sameign almennings og þær megi aðeins nota til almanna- heilla. Þessi skilningur er til dæmis lagöur til grundvallar í bandarísku útvarpslöggjöfinni frá 1927 þótt ekki hafi allt tekist sem skyldi í fram- kvæmdinni þar í landi. Islensku út- varpslögin hafa hingað til tekið af öll tvímæli um það aö frumskyldur Ríkisútvarpsins væru við almenning í landinu. Þessi andi laganna breytt- ist ekki við það að starfsliö Ríkisút- varpsins brást þessari háleitu skyldu í upphafi verkfalls í síðasta mánuði. Ef útvarpslagafrumvarpið verður samþykkt óbreytt táknar það aö viö- skiptahagsmunir munu koma í stað hagsmuna almennings í landinu. Naumast mun það ríða þjóðinni að fullu en spyrja má hví við skyldum kalla slíkt yfir okkur að þarflausu. Fjölgun útvarpsleyfa þarf alls ekki að fela í sér upphaf viðskiptaútvarps hér á landi. A þessari stundu höfum við, eöa nánar tiltekið fulltrúar okk- Kjallarinn ÞORBJÖRN BRODDASON LEKTORí FÉLAGSFRÆÐI VID HÍ ar á Alþingi, frjálst val um þaö hvort þeir vilja stofna til viðskiptaútvarps eða fjöldaútvarps. Ef leið fjöldaút- varps verður farin losnum viö alger- lega við auglýsingar úr útvarpi en hins vegar þarf hún engan veginn að útiloka alls kyns tilkynningar og fróðleiksmiðlun um annað en sölu- varning. Fjöldaútvarp er fjármagn- að með þeim hætti aö hver einasti þegn þjóðfélagsins (eða hvert heim- ili með útvarpsviðtæki) greiðir út- varpsiðgjald meö nákvæmlega sama hætti og hingað til. Munurinn verður þó sá að i staö þess að allt iögjaldið renni til Ríkisútvarpsins verður því skipt þannig að ákveðið hlutfall renn- ur þangað en afgangurinn til annarr- ar eða annarra útvarpsstöðva sam- kvæmt frjálsri ákvörðun greiðand- ans. Ef greiðandinn vill ekki styöja neina nýja útvarpsstöð má láta allt gjaldið renna til Ríkisútvarpsins eða til dæmis í sérstakan sjóö til stuðn- ings tilraunastarfi á sviði fjölmiðla. Kostnaðarauki vegna innheimtu þessa gjalds yrði nákvæmlega eng- inn þar sem útvarpsiðgjald er inn- heimt nú þegar. Kostnaðarauki al- mennings yrði sennilega minni en enginn vegna þess að fjármögnun nýrra útvarpsstöðva með þessum hætti verður væntanlega ódýrari en næmi hækkun vöruverðs vegna aug- lýsingaútvarps. Aöferðin er eins lýð- ræðisleg og unnt er að hugsa sér vegna þess aö menn mundu einungis greiða til þeirrar starfsemi sem þeim líkaði. Mér hefur verið bent á að hugmyndin um fjöldaútvarp úti- loki ekki að fjársterkir aðilar leggi eigið fé í stöð í áróðursskyni. Eg hef svarað því til að ekkert kerfi geti úti- lokað slíkt og að minu áliti sé reynd- ar engin ástæða til að reyna það. Mér býður í grun að þeir f jársterku aöilar sem hefðu hug á slíku yrðu fyrst og fremst fjöldahreyfingar svo sem hugsjóna- og hagsmunasamtök ým- iss konar. Fjöldaútvarpið mundi þannig bera nafn með rentu hvort sem litið yrði á iðgjaldahliðina eða fjármögnun meö styrkjum. Þær út- varpsstöðvar sem hvorki nytu hylli fjöldans né ættu sér trausta og fjöl- menna stuðningsmannasveit mundu hins vegar tæpast kemba hærurnar. Mér er ljóst að f jöldaútvarp er ekki svar við öllum vandamálum en ég tel það a.m.k. jafngóöan valkost og við- skiptaútvarp. Þorbjörn Broddason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.