Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 21
DV. MANUDAGUR26. NOVEMBER1984. 21 „Voðalegur er Sveinn” Úrsýningu Þjóð/eikhússins á Skugga-Sveini. Þjóðleikhúsið. Skugga-Sveinn efftir Matthías Jochumsson. Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir. Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson. Lýsing: Ásmundur Karlsson. Tónlist: Jón Ásgeirsson. Frumsýning 23. nóvember. Þriðja verkefni Þjóðleikhússins komst loksins á fjalirnar á föstu- dagskvöldið eftir langan meðgöngu- tíma, rofinn af sumarleyfum og verkföllum: Skugga-Sveinn eftir séra Matthías, frægastur alþýðu- sjónleikja okkar, sá leikur sem menn halda í vanþekkingu sinni um leik- listarsögu þjóöarinnar að hafi oftast komist á sviö alira leikrita. Ekki skal um þá staðhæfingu þrætt, vegur og virðing þessa byrj- andaverks er með ólíkindum, eink- um í ljósi þess að mörg merkileg verk íslenskra leikskálda liggja enn ósýnd og ólesin af starfsmönnum ríkisins. Sviðsetning Skugga-Sveins á verkefnaskrá, sem einkennist af takmörkuöu hugarflugi og sárum skorti á metnaði, á sér tylliástæöu í lagalegri skyldu Þjóðleikhússins að sinna fomri leikritun þjóðarinnar, en leikhúsið hefur ekki þekkingu á leik- listarsögu okkar til að sinna því hlut- verki af skynsemi og natni — og skömm, því enn eru leikir Sigurðar Péturssonar ósýndir, enn Sverö og bagall Indriða Einarssonar, enn er ósýndur Sperðill Snorra á Húsafelli, enn ósýndur Gleðilegur afmælisdag- ur Sigríöar Bogadóttur og eru þá ein- ungis taldir fáir leikir úr þeirri sér- kennilegu blöndu leikritunar sem hér þreifst frá 1740 fram að stofnun Leik- félags Reykjavíkur, blöndu af siða- leikjum, ævintýrum, þjóöfélagslegri umræðu og hetjudýrkun. En vita starfsmenn Þjóðleikhússins nokkuð um það? Og á meðan þeir eru hvorki í sambandi við foma hefð eigin þjóð- ar né heldur það sem tilheyrir klassík heimsins nema að litlu leyti, svo ekki sé talað um nútímann, þá fá- um við Skugga-Svein á svið Þjóðleik- hússins með jöfnu millibili. Tvær gerðir Lesendum skal nú skýrt frá því að leikurinn um Svein er til í tveimur gerðum, sú eldri er mjög lík frum- gerð verksins sem leit fyrst dagsins ljós um áramótin 1861—’62, yngri gerðin er nokkuð svipuð en víkur í fá- um atriðum algerlega frá hinni fyrri, og kallast Utilegumennimir og var ekki leikin aftur fyrr en í hátíðarsýn- ingu MR á aldarafmæli leiksins. Síöan hafa menn freistast til að grípa til beggja gerðanna og blanda þeim saman; það gera Brynja og Sigurjón JiSiannsson í þetta sinn og halda þann- ig báðum upphafsatriöunum inni, stúdentum á fjallinu og Sigurði í Dal í stofu sinni. Ekki hef ég haft tæki- Leiklist Páll B. Baldvinsson færi til að bera saman leikgerð þeirra og frumtextana og skoða rit- stjórn þeirra grannt, en víst er að fyrri hluti leiksins verður í sýning- unni allt of langur, atburðarásin hæg og lítið spennandi, jafnvel í atriðum sem maður haföi trú á að gætu orðið kindarleg, innbroti Sveins til sýslu- manns og heimsókn þeirra Grana, Geirs og Héðins á sýslumannssetrið. Og það sem verra er að fyrir bragðið skapast ekki rétt jafnvægi í sýning- una, ris og leiklausn koma seint og um síðir. Leikstjórinn hefur látið þau orð faila á opinberum vettvangi að Matthías hafi slævt ádeilubrodd leiksins í yngri gerðinni og gerir því skóna að verkið fjalli öðrum þræði um kúgun. Slíkur „pólitískur” lestur á Skugga-Sveini er offari og ber vitni dómgreindarleysi en góðum vilja. Leikur Matthiasar hefur enga slíka dýpt aö hann megi lesa sem skilningsríka þjóðlífslýsingu, enginn höfunda nítjándu aldar nema Sigurð- ur Guömundsson hafði vit og mennt- un til slíkrar skoöunar á sögu þjóöar- innar. Ég trúi að þessi vilji við lestur leiksins hafi orðið þeim Brynju og Sigurjóni fjötur um fót við að búa Skugga-Sveini rétta leið á sviðið. Leikritið er bamaleg smíð með örfá- um skýrum persónugerðum, takist ekki að halda því formi sennilegu og eðlilegu er allt fy rir borð borið. Persónur og leikendur Það verður að virða leikurum Þjóðleikhússins til vorkunnar að allt gekk á afturfótunum á frumsýning- unni. Mismæli og rugl, sambands- leysi tónstjóra og söngvara, jafnvel klunnaleg senuskipti og erfiðleikar leikara við að komast út af'senunni, allt þetta má flokka undir slys — en slys eiga ekki að henda sýningu sem svo lengi hef ur verið í undirbúningi. Margt snoturt má sjá í vinnu leik- aranna, örn Árnason fór afar þekki- lega með hlutverk Haralds en það er ekki lítil þraut að gera þann pilt svo úr garði að sakleysi hans og drenglyndi verði ekki aðhlátursefni. Ámi Tryggvason átti góöa spretti í Grasa-Guddu, en vantaði á heildar- svipinn — mikil synd er að setja hann svo utarlega á senuna í oröa- skiptunum á undan bæn Gvendar smala að Gudda sjáist ekki, heldur heyrist bara. Hákon Waage gerði skýra manngerö úr Jóni tudda, var nokkuð ýktur til að byrja með og má vara sig á að gera hann ekki að of miklum aula, en var vel samkvæmur sjálfum sér og skoplegur í meira lagi. Randver Þorláksson leikur Gvend smala og á ágæta spretti, en eins og Arna vantar hann skýran heildarsvip á persónuna frá upphafi til enda. Aftur reynir á að gera hverja framkomu leikarans hluta af heildarsvip — hvers vegna þarf Gvendur að vera eins og vangefinn í fyrstu innkomu þegar hann kemur síöar fram sem heilvita unglingur en huglítill? Megineinkenniö á sviðsetningu Brynju er að mínu mati sundurgerð. Augljósar eru þær leiðir sem einstak- ir vilja halda í persónugerð sinni, Pétur Einarsson í sýslumanni, Borg- ar Garðarsson í Siguröi bónda, ýktar manngerðir með áberandi sérkenni, drykkjuskap og sjálfsánægju. En á þeirri leiö eru margar hættulegar gildrur, einkum þegar líður á verkið og eiginleikar sýslumanns og Sigurð- ar koma fram í yfirheyrslunni á úti- legumönnunum, refsigleði og mildi. Þá er svo komið í útfærslu leikstjóra og leikenda á verkinu að allt er í hönk og minnist ég ekki jafnsnaut- legra endaloka á leiksýningu og lyktanna á Skugga-Sveini á föstu- dag. Burtu flýgur bakveggur í sviðs- mynd Sigurjóns, foss blasir viö í bak- sýn og stjarfir standa byggðamenn meðan Skuggi hleypur upp slakkann, stoppar og heldur ræöu áöur en hann steypir sér í fossinn. Auðvitað í fullu samræmi við texta leiksins, en brota- löm á leiksýningunni, kiaufaleg og máttlaus. Skugga sjálfan leikur Erlingur Gíslason og passar hann vel í rull- una, dregur upp skilningsríka mynd af kallinum, en vantar talsvert á til- hlýöilega hörku þess manns sem aldrei iðrast og gefur dauða og djöful í allt. Ketill Larsen bauð okkur upp á sígilda og löngu útvatnaða túlkun á Katli — var ekki kominn tími til að taka þá rullu nýjum tökum? Um láð — og lög Jón Ásgeirsson útsetti íslensku lög- in sem fylgt höfðu leiknum og samdi ný í stað hinna erlendu. Tónlistin var falleg áheyrnar, nokkuð keimlík en vel rödduð. Sigurjón Jóhannsson bjó leiknum leikmynd, afar svipaða stíllega leik- myndum sínum að Smalastúikunni og Tyrkja-Guddu og vænti ég að hann hafi þá tæmt nægtabrunn sinn af útfærslum á þeirri hugmynd. Hvemig væri aö reyna ákast núna á móti lýsingu, hætta þessum hallæris- lega halla sem er orðinn fastur liður í leikmyndum hér og leika á ný á svið- inusjálfu? Búningarnir voru vandaður saumaskapur, fínar flíkur og borgaralegar, enginn sýslumaöur var eins til fara og Kristján fjórði þótt margir vildu honum líkjast. Semsagt. . . Þessi sýning á Skugga-Sveini rifjar vonandi upp kynni fjöldans af þessu margsýnda verki. En vilji Þjóðleikhúsið í alvöru fara að sinna lagalegri skyldu sinni við íslenska leikritun fyrri alda biða mörg verk fyrstu vinnslu og fyrstu kynna við áhorfendur okkar aldar. Við hjá Sjóvá viljum að þú hugsir sem best um sjálfan þig og fjölskylduna. Þess vegna leggjum við til að þú sameinir allar nauðsynlegar og sjálfsagðar vátryggingar í eina fjölskyldutryggingu. Við skiptum vátryggingum í tvennt grunnvernd og viðbótarvernd. Með því að taka þrjár af fjórum vátryggingum grunnverndar hefur þú náð fjölskyldutryggingu. Aðrar vátryggingar eru viðbót enda kallaðar viðbótarvernd. Með fjölskyldutryggingunni bjóðast hagstæðari kjör. ” gerðu Sjóvá aö þínu félagi” Umboðsmenn um land allt _ _ f m _ f SJOVA Suöurlandsbraut 4 -Sími 82500
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.