Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 51
DV. MÁNUDAGUR26. NOVEMBER1984. ðl Lítið teifir af rými aftursæti, en það er þó sæmilega hátt frá gólfi. bíllinn gengur ágætlega frá fyrsta starti. Gangur vélarinnar er svolítið grófur og strax þegar tekið er af stað, finnst að hér er ekki venjulegur bíll á ferð því að fyrsti gír er mjög lágur, nánastskriðgír. Þetta er hins vegar mjög heppilegt fyrir fjórhjóladrifsbíl og þar aö auki er sérstakt „handbensín” neðst í mæla- borði sem hægt er að nota til þess aö stilla ganghraða vélarinnar í torfærum svo hún drepi síöur á sér. Hægt er að taka bílinn af stað í öðrum gír og getur þaö verið nauösynlegt ef menn ætla aö spana áfram, t.d. yfir gatnamót, en mér fannst betra aö taka bílinn aðeins áfram í fyrsta og skipta fljótt í annan. Þótt gírskiptingin sé sæmilega ná- kvæm og bíllinn hrökkvi ekki úr gírum hefur ekki enn tekist meö öllu að losna við vissa ,,gúmmí”kennda tilfinningu við það að skipta milli gíra. Lunkinn á víðavangi Vélin í Pöndu 4x4 er um 10 prósent stærri og aflmeiri en í venjulegri Pöndu, og veitir ekki af því að bæði er fjórdrifspandan þyngri og auk þess er meira fyrir hestana að gera þegar komið er út á víðan völl. Þegar komið er út fyrir veg, kemur fyrsti gírinn lági aö góöum notum og það má nota hann til þess að brjótast upp brekkur eða fara hægar yfir ár og ójöfnur. Vegna þess hve bíllinn er stuttur á milli hjóla og kubbslegur að framan og aftan má smjúga alveg merkilega mikið á honum á milli þúfna og steina og fara yfir krappar hæðir og hryggi. Þannig reyndist Pandan kom- ast ýmislegt sem Toyota Tercel 4 x4 og Subaru af stærri gerðinni gátu ekki vegna þess hve þeir eru lengri og stærri. Þóerekkialltsemsýnistíþess- um efnum því að enda þótt þaö sé vel hátt undir sílsa og botn á Pöndunni liggur drifskaftið þarinig undir bílnum miöjum aö aðeins rúmir 20 sentí- metrar eru undir baulur sem verja og halda hjöruliðum drifskaftanna. Einn- ig liggur púströr undir botninum sem gæta verður að skemma ekki. Það eru 19 sentímetrar undir gír- kassa og 20 sentímetrar undir olíu- pönnu vélar, en prýöis hiifðargrind, sem ver þessi djásn, er hins vegar að- eins 16 sentímetra frá jörðu og það er hálfleiðinlegt að hlusta á hljóðið sem kemur þegar hún riölast á steinum og möl á vegi með d júpum hjólförum. Að framan er Panda 4X4 meö Mc Person f jöðrun og ætti að vera auðvelt aö lyfta bílnum um svona 1—2 sentí- metra með því að setja aukahringi undir gorma ef menn vilja gera dug- legan bíl enn duglegri. Þaö fer hins vegar eftir því hvort menn vilja fara á þessum netta pjakk „alvarlegar” slóðir eöa hvort menn vilja eiga hann fyrst og fremst sem spameytinn, ódýran og lipran bíl sem getur bjargað sér í hálku og ófærö þegar svo ber undir. Að neðan er bíll- inn klæddur vörn úr trefjaefni, sem ver hann fyrir steinkasti. Tekur fjóra menn og hjóla- stól Varahjól er frammi í vélarrúmi og bensíngeymú- fyrir framan afturenda á Pöndu og það þýöir að enda þótt bíll- inn sé stuttur og snubbóttur er furðu mikið farangursrými aftast í honum, meira en á mörgum smábílum sem eru nokkuð stærri. Þaö eru til dæmis fáir bílar í þessum stærðarflokki sem geta tekið hjólastól af fullri stærð í skottiö án þess að þurfa að leggja aftursætiö niöur. En þetta er hægt á Pöndunni. Nokkrar tölur: Panda4X4 Subaru Justy Þyngd: 740 kíló 740 kíló Rúmtak vélar: 965 cc 997 cc Vélarafl: 48 hö/5600 snún. 55 hö/6000 snún. Tog (torque): 7,1 mkg/3500 snún. 8,1 mkg/3600 snún. Hraði í girum viðlOO snúninga: 1.4,9 km/klst 1. 6,1 km/klst 2. 9,2 2. 11,0 3. 14,1 3. 16,4 4. 19,7 4. 24,1 5. 26,2 5. 29,5 bakk 5,3 bakk6,9 Hámarkshraði: 135 km/klst 145 km/klst Eyðsla: 120km/klst 5,91/100 km 5,41/100 km Eyðsla: 90km/klst 7,9 I/100km 7,2 1/100 km Eyðsla: bæjarakstur 7,9 1/100 km 7,2 1/100 km Hröðun 0—100 km/klst 18,2 sek. ca 15—16sek. (ágiskun) Lengd: 3,38 m 3,54 m Breidd: 1,49 m 1,54 m Hæð: 1,46 m 1,39 m Hjólhaf: 2,17 m 2,29 m Sporvídd: 1,26 m 1,33/1,29 m Hæð undir lægsta p. Hæð undir lægsta 0,16 m (hlifðargr.) 0,16 m (púst) viðkvæma punkt 0,19 m (pústoggírk.) 0,16 m(púst) Innanbreidd: 1,21 m 1,30 m Farangursrými: 272—10881. ca 200—9001. (ágisk.) Snúningshringur: 9,2 m (hjól) ca 9,2 m Hjólbarðar 145-13 145—12 Ekki laus við „jeppahre yfing- ar" Panda 4X4 fer ágætlega á vegi þótt maöur verði dálítið var við það ef ekið er mikið yfir löglegum hámarkshraða. Hávaði á grófum malarvegi reyndist minni en ég bjóst við, og ívið minni en á flestum bílum af þessari stærð, eöa 80—81 desibel á 70 km hraöa. Ef vélin er þeytt fer hávaðinn í henni upp í 81 desibel. Fjöörun á Pöndu 4x4 er stinn- ari en á venjulegri Pöndu og blöðin í afturf jööur eru þrjú í staðinn fyrir eitt. Fyrir bragðið verður bíllinn stinnari og hærri aö aftan, en það hefur í för með sér aö hann stingur meira stömp- um og fær „báta”hreyfingar þegar ekiö er um öldóttan og ójafnan veg; á Á Justy eru lægstu punktar annars vegar hlíf undir gírskiptingu og pönnu og hins vegar púst, hvort tveggja 16 sm frá jörðu á óhlöðnum bíl. Þaö er síst hærra en gengur og gerist á fólksbílum af svipaðri stærö. Á Pöndu er hlífðar- grind lægsti punktur, 16 sm frá jörðu, en lægstu „viðkvæmu” punktar, gír- kassi, pústkerfi og olíupanna, liggja 3—4 sentímetrum hærra. Á móti þessum kostum Pöndu sem ófærðarbíls vega síðan þeir kostir Justy aö vera um 14 prósent aflmeiri, 9 sentímetrum breiðari að innan, venju- legri og huggulegri í innréttingu, og með möguleika á fimm dyrum. En Pandan býður upp á heldur meira farangursrými. Á Pöndu er Prjónað á pjakknuml það jafnvel til að hoppa að aftan þegar enginn situr í aftursæti. Þetta er auð- vitað skiljanlegt þegar þess er gætt hve stuttur bíllinn er á milli hjóla, sem aftur gefur honum betri möguleika í torfærum. Stinnari afturfjöörun gerir það hins vegar að verkum að bíllinn sígur minna niður aö aftan en ella ef hann er hlaðinn. Samanburður við Justy Þegar þessum bíl er reynsluekið verður óhjákvæmilegt að gera saman- burð við eina keppinautinn í þessum stærðar-og verðflokki: Subaru Justy. I upphafi greinarinnar var minnst á þann mismun sem er helstur á þessum tveimur bílum og veldur því að kaup- endur munu velja á milli þeirra eftir þörfum og smekk og aö bílarnir muni henta tveimur stórum, aðskildum hóp- um. Subaruinn sýnist leggja minna upp úr því aö vera torfærubíll í bókstaflegri merkingu þess orð, er fremur snarpur og lipur fólksbíll sem hægt er að skella í fjórhjóladrif í hálku og minni háttar ófærð. Subaruinn hefur sjálfstæða fjöðrun á hverju hjóli, og við hleðslu minnkar hæö undir drifkiilu að aftan úr 20 sm niður í 15. Afturöxull Pöndu er hins vegar „stífur” sem kallað er, þ.e. heil hásing, og hæðin undir drifkúlu því ávallt 17 sm (miðað við sléttan flöt). Hins vegar gefur sjálfstæð fjöðrun betri hreyfingar aö öðru jöfnu. Á þúsund snúningum í 1. gír er hraði Pöndu 4,9 km/klst. en Subaru Justy 6,1 km/klst. Á móti vegur að Justy hefur nokkru meira tog (torque) en engu að síöur hentar lægsti gír Pöndunnar bet- ur til ófærðar- og torfæruaksturs en lægsti gír Justy. Felgur Justy eru tommuminni enPöndu. kveikjan aftan og ofan á vélinni, en kerfi að framan og alternator fyrir framan vél. Á Subaru Justy er kveikj- an hins vegar beint fyrir aftan viftu- spaða en alternator hægra megin við vél og kertin aftan á. Niðurstaða Niðurstaðan er sú að Fiat Panda 4x4 hljóti að höföa til allstórs hóps hér á landi sem hefur þörf fyrir lipran, spar- neytinn og tiltölulega ódýran farar- skjóta, miðað viö þaö að hann er búinn fjórhjóladrifi og breytingum í þá átt að duga vel í hálku, ófærð og á slæmum vegum og vegleysum. Þetta er svo sem engin drossía né pluss-þæginda bíll, heldur ódýr og ein- faldur smábíll sem ætti að komast oft- ar frá A til B og geta farið f jölbreyti- legri leiöir en gengur og gerist. PUJS: Ódýr. Sparneytlun. Lipur og smýgur vel. Lágur fyrsti gír (í ófærð). Hagkvæm og hugvitssamleg innrétting. Nýtní á rými, miðað við stærð. Ekki hávær á malarvegi. Hlífðargrhid undir vél og drifi. MtNUS: Fremur kaldranalegur og hrár að innan. Mætti vera hærra undir lægsta punkt. „Bátahreyfingar” og afturenda- skopp á vondum og ójöfnum vegi. Þröngt og ekki þægöegt í aftursæti fyrir fullvaxna. Girskiptihreyfingar svolítið „gúmmí”kenndar. LJÓS & ORKA Suöurlandsbraut 12 simi 84488 LÝSANDI KROSSAR Á LEIÐI -iiióMe\\ixnR Hafnarstræti 3. í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.