Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Blaðsíða 27
DV. MÁNUDAGUR 26. NOVEMBER1984.
27
íþróttir
íþrótt
íþróttir
fþróttir
Steinar Birgisson lék mjög vei í gær og
skoraði sjö mörk og lék auk þess mjög
góða vörn.
Ragnar náði
besta skori
Golfsveit GR hafnaöi í áttunda sæti í
Evrópukeppni félagsliða sem fór fram
í Marbella á Spáni, en nítján golf-
sveitir tóku þátt í keppninni.
Islensku kylfingarnir náðu bestum
árangri á síðasta keppnisdegi —
Ragnar Olafsson lék á 72 höggum, Sig-
urður Pétursson á 77 höggum og Ivar
Haukssoná81höggi.
V-Þjóðverjar urðu Evrópumeistárar
— léku á samtal 610 höggum. Islenska
sveitin hafnaði í áttunda sæti — á 625
höggum.
-sos.
Landsliðs-
þjálfari Finna
rekinn
Antti Lanamahi, landsliðsþjálfari
Finna í frjálsum íþróttum, var rekinn
fyrir helgina. Ástæðan fyrir því var að
hann vissi aö hlauparinn Martti
Vainion, sem hlaut silfur í 10.000 m
hlaupi á OL í Los Angeles, hafði tekið
inn ólögleg lyf. Eins og menn muna, þá
féll Vainion á lyfjaprófi í Los Angeles
og var dæmdur til að skila silfur-
verðlaunum sínum.
Lanamahi var kunnugt um að
Vainion hafði tekið lyfið „Anabolic
Steroids”, eða bolann, fyrir maraþon-
hlaup í Rotterdam 14. apríl, eða tveim-
ur mánuðum fyrir OL.
-SOS.
VfKINGAR FÓRU Á
KOSTUM A SPÁNI
— Víkingar sigruðu 3. maí tvívegis 28-21 og eru komnir áf ram í 8-liða úrslit
íEvrópukeppni bikarhafa
„Við vorum betri aðilinn allan
tímann og það var aldrei nein
spurning um að við myndum fara
með sigur af hólmi,” sagði hand-
knattleiksmaðurinn Þorbergur
Aðalsteinsson í samtali við DV í
gær en Víkingur var þá nýbúinn að
slá út úr Evrópukeppni bikarhafa
spánska félagið 3. maí.
Svo einkennilega vildi til að liðin
skoruðu jafnmörg mörk í báðum
leikjunum og enduðu því báðir
leikirnir 28—21 fyrir Víking.
„I fyrri leiknum höfðum við yfirleitt
þriggja til fjögurra marka forskot og
þegar síðari hálfleikur var langt kom-
inn var staðan 23—20 okkur í vil. Við
náöum síðan að sýna okkar bestu
hliöar á lokakaflanum og sigra með sjö
marka mun,” sagði Þorbergur og var
að vonum ánægður með frammistöðu
Víkings.
Tveir úr umferð
í seinni leiknum
„Þeir ætluðu greinilega að taka
okkur í bakaríiö í byrjuninni í síðari
leiknum í gær. Þeir byrjuðu á því að
taka Viggó Sigurðsson úr umferð og
stuttu síðar mig líka. Þetta bragð
þeirra tókst ekki og við náðum átta
marka forskoti í leikhléi, 15—7.”
Þessum mun héldu Víkingar svo til
alveg og í lokin var sama markatala á
töflunni og eftir fyrri leikinn. Víkingar
unnu því samanlagt 56—42 sem er
glæsilegri árangur en bjartsýnir menn
höfðu þorað að vona fyrir þessa
frægðarför Víkinga. Aðspurður um
styrkleika liðsins, sem Sigurður
Gunnarsson leikur sem kunnugt er
með, sagöi Þorbergur: „Það leikur
ekki nokkur vafi á því aö þetta lið er
mun betra en norska liðið Fjell-
hammer sem við unnum á undan Spán-
verjunum. Það eru mjög stórir leik-
menn í liðinu og það er virkilega erfitt
að eiga við þá. Við náðum mjög góðum
leikjum og baráttan var geysilega
mikil. Það börðust allir sem einn
maður og viö vorum staðráðnir í að
sigra Spánverjana aftur í síðari leikn-
mörkgegn3. maí.
um,” sagði Þorbergur Aðalsteinsson
en hann átti mjög góða leiki gegn 3.
maí og skoraði 17 mörk í leikjunum.
Þorbergur skoraði 11 mörk í fyrri
leiknum og 6 í gærkvöldi. Viggó var
einnig mjög góöur og skoraði 12 mörk,
7 á föstudagskvöld og 5 í gær. Karl
Þráinsson skoraði 4 mörk á föstudag
og jafnmörg í gær. Aðrir sem skoruðu í
gær voru: Hilmar Sigurgíslason 3,
Guðmundur Guðmundsson 2 og Einar
Jóhannesson skoraöi eitt mark.
Markahæstur í leiknum í gær var
Steinar Birgisson og var stórgóður í
vörnogsókn.
Með þessum sigri tryggðu Víkingar
sér þátttökurétt í 8-liða úrslitum
keppninnar og verður fróðlegt að sjá
hverjir verða næstir á dagskránni hjá
Víkingum sem virðast vera aö komast
í gang um þessar mundir. „Við erum
bjartsýnir en það fer algerlega eftir
því hvaöa mótherja viö fáum næst
hvort við getum gert okkur einhverjar
stórar vonir. Við gerum okkar besta,”
sagði Þorbergur Aöalsteinsson.
-SK.
ÚRVALSEFNI
VIÐ ALLRA HÆFI
AskriftarsIminn er
27022
Valur úr leik
— Valsmenn töpuðu fyrir Ystad, 19-23
Valsmenn eru úr leik í IHF-keppn-
inni í handknattleik. Valur tapaði fyrir
sænska liðinu Ystad í síðari leik lið-
anna í Svíþjóð í gær með 19 mörkum
gegn 23. Sviarnir komust þvi áfram á
einu marki. Því Valur vann fyrri leik-
inn20—17.
Staöan í leikhléi var 10—10 en ekki
tókst Valsmönnum að halda fengnum
hlut og verður þessi frammistaða að
teljast mjög slök þar sem sænska liðið
er langt f rá því að vera sterkt.
Jón Pétur skoraði 7 mörk í gær fyrir
Val og Þorbjörn Jensson 4, Jakob Jóns-
son skoraði þrjú mörk.
-SK.
N -ÞAKSTEINN
UM MEÐ STUTTUM FYRIRVARA MÚRSTEIN OG
ÞAKSTEIN í HÁUM GÆÐAFLOKKI.
EIGUM FYRIRLIGGJANDI BRÚNAN
ÞAKSTEIN ÁSAMT FYLGIHLUTUM.
Bakkasiðu 1,600 Akureyri.
Sími 96-22251.
Smiðjuvegi 28, 200 Kðpa-
vogi.
Sími 91-79277.