Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Page 4
4
DV. MÁNUDAGUR26. NOVEMBER1984.
Heimsmeistaraeinvígið í skák:
KARPOVA
SIGURBRAUT
Heimsmeistarinn í skók, Anatolí
Karpov, vann á laugardaginn 27.
einvígisskók sína viö áskorandann
Garrí Kasparov. Heimsmeistarinn
þarf nú ekki meira en einn vinning til
viöbótar til þess aö halda titli sínum
næstu þrjú árin.
Skákin varð alls 59 leikir en
Kasparov gafst upp þegar hrókstap
blasti viö.
27. einvígisskákin:
Hvítt: Anatoií Karpov.
Svart: Garrí Kasparov.
Drottningarbragö.
1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. c4 e6 4. Rc3 Be7
5. Bg5h66. Bxf6
Annað og algengara afbrigöi er: 6.
Bh4. Með textaleiknum hyggst
hvítur treysta á sterka peöamiö-
borösstööu sína í framhaldinu og
gefur því biskupinn fúslega.
6.—Bxf6 7.e3 0—0 8. Dc2
Kasparov notaði þennan leik í vor
gegn Timman i keppninni Sovétríkin
gegn heiminum og vann. Val
Karpovs á þessum leik kemur þvíi
áskorandanum sennilega illa.
8. —c59.dxc5dxc4
Annar möguleiki er 9. — Da5, nú
kemst hvítreitabiskup hvíts út á
borðið í einu stökki.
10. Bxc4 Da511.0—0 Bcx3
Kasparov heldur uppteknum hætti
og leitast eftir uppskiptum með von
um jafntefli.
12. Dxc3 Dxc313. bxc3 Rd714. c6!
Endatafl þaö sem nú er upp komiö
er heimsmeistaranum ekki á móti
skapi. Peöiö á c5 var dauðadæmt og
hann leikur því fram til aö eyðileggja
peöastöðu svarts á drottningarvæng.
14. — bxc615. Habl Rb616. Be2 c517.
HfclBb7?
17. — Bd7 var nauösynlegur leikur.
Nú kemst svartur brátt í bobba meö
því aö hann hefur ekki vald yfir b5
reitnum.
18. Kfl Bd5 19. Hb5 Rd7 20. Ha5 Hfb8
21. c4 Bc6 22, Rel!
Nú er í ljós komið aö hvítur ætlar
sér einfaldlega að vinna c-peð svarts
meö þessum riddara.
22. —Hb4
Ekki gekk 22. - Hb2 vegna 23. Rd3
Bxg2 - 24. Kxg? Hxe2 25. Kfl Hd2 26.
Ha3 ásamt 27. Kel og svarti
hrókurinn er fangaður.
23. Bdl'. Hb7 24. f3!
Balasov, aöalaöstoöarmaöur
Karpovs, sást nú ganga um salinn
brosandi og virtist sannfæröur um
sigur síns manns. Hann haföi líka
ástæðu til gleði, tveir síðustu leikir
heimsmeistarans eru einkennandi
fyrir fágaöan stíl hans: Hann undir-
býr árásina á c5 peðiö af kostgæfni
meö því aö koma strax í veg fyrir allt
hugsanlegt mótspil andstæöingsins.
24. — Hd8 25. Rd3 g5 26. Bb3!
Á ný einkennandi Karpovleikur.
Ástæöulaust er aö heimila svarta
hróknum afnot af b2 reitnum.
26. — Kf8 27. Rxc5 Rxc5 28. Hxc5
Hvítur hefur nú unniö peð en hann
veröur aö tefla framhaldiö vel til
þess aö hagnýta sér liösyfirburði
sína.
28. — Hd6 29. Ke2 Ke7 30. Hdl Hxdl
31. Kxdl Kd6 32. Ha5 f5 33. Ke2 h5 34.
e4!
Hárfínt leikiö. Hvítur slítur nú upp
peðastöðu svarts kóngsmegin.
34. — fxe4 35. fxe4 Bxe4 36. Hxg5 Bf5
37. Ke3 h4 38. Kd4 e5+ 39. Kc3 Bbl 40.
a3 He7.
Karpov — stutt / sigurinn.
Hér fór skákin í biö og Karpov lék
biðleik.
Flestir stórmeistarar töldu hvítu
stööuna hartnær unna en voru allir
sammála um aö lítiö mætti út af
bregða.
41. Hg4?!
Biðleikur Karpovs. Tal, einn
aöstoöarmanna Karpovs, gaf þegar
þá yfirlýsingu að biðleikurinn hefði
verið slæmur og aö hann gæfi
svörtum færi á hættulegu mótspili.
Loft varð skyndilega lævi blandið
yfir vígvellinum í Moskvu.
41. — h3! 42. g3
Eftir 42. gxh3 Hh7 er ekki að sjá aö
hvítur geti lengur unniö skákina.
42. — He8
Svartur þarf nauðsynlega aö
koma hróknum strax í mótspilið á f-
línunni. 42. — Hf7 er auövitaö grófur
afleikur vegna 43. c5+ og hrókurinn
fellur.
43. Hg7 Hf8 44. Hxa7 Hf2 45. Kb4!
Kóngur hvíts gegnir mikilvægu
hlutverki viö aö koma frípeöinu á c-
línunni upp í borö. Hvítur má engan
tíma missa.
45. — Hxh2 46. c5+ Kc6 47. Ba4+ Kd5
48. Hd7+! jl
ÁsgeirÞ. Árnason
Heimsmeistaranum verður ekki
fótaskortur á úrvinnslunni, honum
tekst nú að þvinga Konung and-
stæðingsins úr vörninni.
48. — Ke4 49. c6 Hb2+ 50. Ka5 Hb8 51.
c7 Hc8 52. Kb6 Ke3 53. Bc6 h2 54. g4
Hh8 55. Hdl Ba2 56. Hel+ Kf4 57.
He4+ Kg3 58. Hxe5 Kxg4 59. He2
Svartur gaf.
Karpov tefldi af mikilli nákvæmni í
lok skákarinnar og notaöi næstum
allan tíma sinn. Kasparov virkaöi
þreyttur en gaf skákina brosandi.
Heimsmeistarinn þarf nú einn
vinning til viðbótar. Næsta skák
verður tefldídag.
Aðalfundur
Neytendasamtakanna:
Nýr
formaður
Jóhannes Gunnarsson var kjörinn
formaður Neytendasamtakanna til
næstu tveggja ára á þingi sam-
takanna sem haldið var I gær.
Jón Magnússon, fráfarandi for-
maður, óskaöi ekki eftir endurkjöri
en hann hefur nú verið formaður í
rúm tvö ár og einnig setiö f jölmörg
árístjórn.
Hinn nýi formaður á langan feril
aö baki í neytendamálum. Hann var
áður formaður Neytendafélags
Reykjavíkur og nógrennis og einnig
varaformaöur Neytendasamtak-
anna. Aö auki er hann ritstjóri Neyt-
endablaðsins.
Auk formanns voru 11 aðrir kosnir
í stjórn og þar af 5 nýir meðlimir.
Ymsar ályktanir voru geröar á
þinginu. Aö þessu sinni var
samþykkt álitsgerö um stefnu og
starf Neytendasamtakanna. Og mun
þetta vera í fyrsta sinn sem svo viða-
mikil heildarmótun stefnu samtak-
anna er gerö.
-APH.
Setja upp söngleik
íHveragerði:
Allir í gaggó
á leikæfingu
„Eyjapeyjar, Hverapíur, eldgos,
ástir og allt hitt”. Menn eru ekki
alveg á eitt sáttir, en aö líkindum
veröur þetta nafniö á söngleiknum
sem nemendur í gagnfræðaskóla
Hverageröis eru að æfa um þessar
mundir. Aö sögn er gífurlegur óhugi
hjá nemendum og varla heyrist
lengur í skellinöðru á kvöldin i
Hverageröi því allir eru á æfingu.
Meö hlutverk í söngleiknum fara
um 35 manns en alls eru i skólanum
87 nemendur á aldrinum 13—16 ára.
Auk þess þarf mannskap til að
annast miöasölu, sætavísun o.fl. svo
segja má aö meirihluti nemenda sé
önnum kafinn. Söngleikinn sömdu
kennarar viö skólann og er ætlunin
aö frumsýna í byrjun desember í
Félagsheimili ölfusinga sem er viö
hliðina á blómastaðnum Eden.
Leikstjóri er Margrét Oskarsdóttir.
EH.
j dag mælir Dagfari________j dag mælir Dagfari_______Sdagmælir Dagfari
Hamingjusamasta þjóð í heimi
Aö undanförnu hafa menn verið aö
skattyröast út í seðlabankabygging-
una rétt einn gangmn enn, og Jó-
hannes seðlabankastjóri Nordal hef-
ur fengið sinn skammt af skömmum
af því tilefni.
En er þetta nú sanngjarnt? Fer
ekki að koma að því að augu þjóðar-
innar opnist fyrir því að maður á
borð við Jóhannes hefur unniö til
þess, að eiga sér samastað í fínasta
gierhúsi landsins?
Ekki er nóg með að Jóhannes hristi
fram úr erminni uýja samninga viö
Aiusuisse og skipi ríkisstjórnmni að
fella gengið, svona rétt eins og aðrir
fá sér kaffi fyrir og eftir hádegi. Það
er ekki nóg með þetta. Nú hefur
seðlabankastjórinn bætt á sig nýjum
blómum með því að stjórna skoðana-
könnun sem leiðir það í ljós að ts-
lendingar eru með hamingjusömustu
þjóðum heims. Auk þess eru færðar
sönnur á að þjóðin sé stolt af sjálfri
sér og trúi á Guð.
Satt að segja hlýtur það að vera
áleitin spurning hér á iandi hvort
Guð hafi ekki eignast keppinaut í Jó-
hannesi og er rétt að um það verði
spurt í næstu skoðanakönnun. Þegar
meöal okkar lifir maöur sem hefur
það i valdi sínu aö gera aö engu
kjarabætur fjögurra vikna verkfails
með einni gengisfellingu og sanna
það svo á næsta degi að lífshamingj-
an sé ómæld í landinu er ástæðulaust
að leita til himna í trúnni. Krafta-
verkamaðurinn er mitt á meðal okk-
ar.
Kannski er þjóðin einmitt svona
hamingjusöm af því að hún veit af
Jóhannesi?
Sumir hafa iátið i Ijós nokkra
undrun með þessa hamingjusömu
niðurstöðu skoðanakönnunarinnar.
En þegar betur er gáð þarf hún ekki
að koma á óvart.
Opinberir starfsmenn stóðu að
vísu i langvinnu verkfalli, en það var
samdóma álit þeirra sjálfra að verk-
fallið hefði verið afskaplega
skemmtilegt. Það var gaman í verk-
fallinu sögðu þeir og sungu ættjarð-
arsöngva til hátiðabrigða. Varla
eru þeir óhamingjusamir.
Dagsbrúnarmenn höfðu ekki fyrr
frétt af gengisfellingunni en þeir
söfnuðust til fundar og hylltu fjár-
málaráðherra í einum kór. Stóðu
jafnvel upp af einskærri gieði. Varla
eru þeir óhamingjusamir.
Fiskvinnslan var ekki fyrr búin að
skrifa undir 20% hækkun en hún fékk
því framgengt að gengið væri fellt aö
sama skapi, svo varla eru fisk-
vinnslumenn óánægðir.
Um það leyti sem skoðanakönnun-
in stóð yfir var skrúfaö fyrir alla f jöl-
miðla, dagbiöð, útvarp og sjónvarp.
Almenningur gat því einbeitt sér að
myndböndum samkvæmt eigin vali
og undi glaður við sitt.
Varla er almenningur óhamingju-
samur.
Nemendur þurftu ekki aö sækja
skóla og kennarar þurftu ekki að
mæta í vinnu. Varla eru þeir óham-
ingjusamir.
Tollarar iögðu niöur vinnu með
þeim afleiðingum að smyglarar
gengu inn og út um landið án eftir-
lits. Varla hafa þeir verið
óhamingjusamir.
Svona mætti endalaust áfram
telja.
Sannlcikurinn er sá að þeir einu
sem virtust óhamingjusamir voru
stjórnarandstæöingar því að þeir
höfðu svo miklar áhyggjur af því
hvað þjóðin var óhamingjusöm. En í
rauninni voru þeir hamingjusamir
líka því að hamingjuhjói þeirra
byggist á því að þjóðin sé óhamingju-
söm út í stjórnina. Eða þannig sko.
Nei, Jóhannes Nordal á það fylli-
lega skilið að búa um sig í glerhúsi
Seölabankans. Og við getum veriö
hamingjusöm með það því að þeir
kasta ekki steinum sem í glerhúsum
búa.
Dagfari
SAMBTUUSMIBT
Könnun Hagvangs á gildismati og mannlegum viðhorfum íslendingæ
Erum hamingjusöm,
stolt og trúhneigð þjóð
... . . MorfuabUAtfi/FriötiJdíur
Nordal .fhoodir St*ÍB*rÍBÍ HrmuM^ fonætiorUWrr. ruo
•ókBBíögn ll«fru|( no (ildknut n m>noU-( .iiborf Utadiafn.
ilóttl LofliriOam I f«r þu tttn kjnnur rom fyrntu nMvntMnr 6
ridamikhi könnnn llafrnnfi hf. á fiMimnnti of m.nnkfum riáborfnm
ídcndiafn. tn könnun þeaai tt IU«r I alþjMlcfrl ranMÓkn, ntm þtfar befnr
reríá ferá i n>.b. 25 öi
lalendingar virðaat vera aáttari
við Iffið en fleatar aðrar þjóðir,
sem rannsóknin tekur til. Engin
Evrópuþjóð telur aig jafn ham-
ingjusama og einungia Danir telja
aig ánægðari með llfið um þesaar
mundir. Hið eina, sem skyggir á
lifsgleði islendinga er megn
óánægja þeirra með fjárhagslega
afkomu sina. Þar eru þeir I flokki
með þjóðum i Suður-Evrópu, en
nágrannaþjóðir á Noröurlöndum
eru I þessu efni meðal hinna
ánægðustu.
Niðurstóðurnar leiða I Ijós að
Islendingar eru mjðg triihneigðir.
Þeir segjast flestir sækja huggun
og styrk I trúna og guð skiptir
miklu málí I llfi þeirra. Alj* “
er upp á teningnum þegar spurter
um trúariðkanir. Kirkjuaókn er
áberandi litil og innan við helm-
ingur segist taka sár tima til að |
hiðjast fyrir eða tll annarrar and-
legrar iðkunar. Meirihluti lalend-
inga telur fullyrðingar um að til sé I
einhvers konar alheimsandi eða |
lifskraftur komast næst trú sinni,
en á hinn bóginn telur innsn við
fimmtungur að til só pcrsónulegur
guð.
Eáar þjóðir segjast stolUri af I
þjóðerni sinu en Islendingar og |
þeir skera sig greinilega úr öðrum
Norðurlandaþjóöum um þetu.
Margt annað forvitnilegt um
' ' *jniríslendingaeraðfinna