Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Síða 7
DV. MANUDAGUR26. NOVEMBER1984.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
smellurinn
hún hittir beintímarH nýjasta sanr
TFe^IiiqCgS enda gaeðin
verðið í lágmarki, eða
Stórkostlegir skemmtarar
meö ótrúlegum möguleikum
t.d. Digital trommum og Dig PP ^ Q0 g^Q,
Það fullkomnasta, SK-250 27.790,
hreint undratseki.
Panasonic
Rafmagnsrakvél.
Lítil og handhaeg
rafmagnsrakvél sem
fer vel I vasa þanmg að
þú getur haft hana með
þér hvert sem þú ferð.
Verð aðeins
Panasomc
Þessi ótrúlega s£
Allt I einu tæki o
• komin aftur.
ótrúlegt eða
asonic Rx C45 Veröaöein
mörgum nýjum stórglaesilegum feröi
■ meö 20 vatta magnara °9 .lau*V"L
Ý kerfi Tekur allar gerðir af spólunv
ggður plötuspilara formagnan, sem |
egt er að tengja plotuspilara be
;em magnara fyrir plötusptoann _
á Panasonic tækjum er fra 4.980.
án raksápu
Verð aðeins
Hver verður jólagjöf in í ár?
JOLAVERTIÐ KAUP-
MANNA AÐ HEFJAST
Hver verður jólagjöfin í ár? Verður
það gjöfin handa honum eða henni eða
kannski fyrir alla vísitölufjölskyld-
una? Það er líklega of snemmt aö geta
sér til um hver hún veröur eöa hvort
hún verður. Nú er hugmyndaflugiö
kannski á þrotum hjá þeim sem hafa
verið svo snjallir að telja ráðvilltum
jólagjafakaupendum trú um aö fóta-
nuddtæki sé ómissandi eða þá les-
lampi.
Við slógum á þráðinn til nokkurra
aðila sem eru nú að undirbúa sig fyrir
mestu vertíð kaupmanna á árinu. Þó
svo að ekki verði nein sérstök jólagjöf í
ár eru margir hlutir sem eru gjald-
gengir ár eftir ár, sama hvað á dynur.
Bókin er t.d. einn slíkur hlutur.
„Bókin er alltaf jólagjöfin fyrir
stóran hóp og í ár verður óvanalega
mikið af góðum bókum. Það koma út
um 350 bókatitlar,” segir Árni Einars-
son, verslunarstjóri Máls og menning-
ar.
Bækur kosta nú á bilinu 598 upp í 778
krónur.
Ævisögur eru eitthvaö dýrari og
liggja á bilinu 950 upp í 1300 krónur.
Svo er að sjálfsögðu hægt aö kaupa
bækur frá því í fyrra sem eru í raun
jafngóðar ef þær eru enn ólesnar.
Islenskar skáldsögur frá því í fyrra
kosta um 650 krónur. Geta má þess að
bækur hafa ekki hækkað nema um 10
til 20 prósent frá því í fyrra og mun það
vera minnsta hækkun í 10 ár.
Hljómplötur hafa veriö skæöur
keppinautur bókarinnar í gegnum
árin.
„Platan er vinsæl jólagjöf. Hún stóð
sig vel gagnvart bókinni í fyrra og þá
var metsala á plötum. Við búumst við
enn meiri sölu nú um jólin. Það er
mikið að gerast í poppinu erlendis um
þessar mundir og margar nýjar
plötur,” segir Sveinbjöm Kristjáns-
son, afgreiðslumaður í Fálkanum.
Vegna gengisfellingar hækkuðu
plötur og snældur um 50—100 krónur
eða yfir 20 prósent. Þær eru nú á 449 og
499 krónur.
Svo eru að sjálfsögðu margir aðrir
hlutir sem koma til greina. Leðurbindi
kostar t.d. 240 krónur og eitt venjulegt
úr taui kostar 198 krónur. Peysur eru
vinsælar á jólum og eru þær á 990—
1190 krónur. Buxur kosta um 1200
krónur og skyrtur, sem eru í tísku,
kosta990krónur.
öll rafmagnstæki sem nöfnum tjáir
aö nefna eru vinsæl til jólagjafa.
„Við erum meö margar góðar jóla-
gjafir, bæði dýrar og ódýrar,” segir
Magnús Karlsson, verslunarstjóri í
Sjónvarpsbúðinni. Hann nefnir út-
varpsklukkur, útvarpstæki og ótal
gerðir af hljómflutningstækjum.
Vegna verðbólgu hafa þessi tæki
hækkað um 14—18 prósent.
„Jú, þetta er heldur betur ein af ver-
tíöunum hjá okkur en enn er ekki
komin nein hreyfing. Eg á erfitt með
að gera mér grein fyrir því hver
verður jólagjöfin í ár. Það er hugs-
anlegt að símarnir sem við seljum
verði vinsælir sem jólagjafir. Þeir eru
mjög ódýrir og kosta aðeins rúmlega
1000 krónur,” segir Kort Asgeirsson,
verslunarstjóri í Gevafoto.
Hann saeði einnie að búast mætti við
yrðu vinsælar jólag jafir.
Af ofansögðu er ekki gott að gera sér
grein fyrir því hvert hugurinn stefnir
hjá fólki þessi jól. Fjárhagurinn ræður
oft þeirri stefnu og ekki síst nú þegar
biarmað hefur verið að launafólki.
Nú fer jólaösin að hefjast og flestir fara á stúfana til aö leita að gjöfum
Afmæli:
Búseti
lárs
Húsnæðissamvinnufélagið Búseti
efnir til fundar í kvöld í Norræna
húsinu. Þar er ætlunin að kynna
búseturéttarformið eins og það er
nú á hinum Norðurlöndunum. I dag
er einmitt eitt ár frá því að Búseti
var stofnaður. Fundurinn í kvöld er
öllum opinn og hefst hann klukkan
20.30.
APH.