Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1984, Qupperneq 46
Utboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í Vesturlandsveg frá
Brautarholti í átt að Gufá.
Helstu magntölur:
ValkosturA: Lengd2,0km
Fylling og burðarlag 20.000 m3
Verkinu skal lokið 1. maí 1985.
ValkosturB: Lengd5,4km
Fylling og burðarlag 68.000 m3
Sprengingar 35.000 m3
Verkinu skal lokið 1. júlí 1985.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík og
í Borgarnesi frá og með 26. nóvember 1984.
Skila skal tilboðum fyrir kl. 14.00 þann 10. desember 1984.
Vegamálastjóri.
FORSTOFUSETT
16 TEGUNDIR
fTfl
ILJI
Bláskógar
Ármúla 8. Sími 68-60-80.
DV. MÁNUDAGUR 26. NOVEMBER1984.
Matthias Bjarnason heilbrígðis- og tryggingaráöherra skýrir frá hækkun á bótum almannatrygginga á
fundi með blaðamönnum. DV-mynd KAE.
14% hækkun bóta
almannatrygginga
— Barnalífeyrir og mæðralaun hækka um 17%
Bætur almannatrygginga munu
hækka um 14% frá 1. nóvember sl. og
bamalifeyrir og mæðralaun um 17%.
Þetta kom fram í reglugerð sem gefin
var út af Matthíasi Bjamasyni heil-
brigðis- og tryggingaráðherra í fyrra-
dag. Þessi hækkun kemur til vegna
þeirrar rýrnunar sem hefur orðið á
kaupmætti og tekið er mið af launa-
skriði og nýgerðum kjaraskerðingum.
Bætur almannatrygginga hækkuöu
síðast um 3% 1. september sl. Elli- og
örorkulífeyrir er frá 1. nóvember kr.
4.045 og hjónalífeyrir kr. 7.281. Barna-
lífeyrir vegna eins barns er nú 2.477
krónur.
Þá lagði heilbrigðis- og trygginga-
ráöherra fram reglugerð um breytingu
á reglugerð um greiöslur sjúkra-
tryggðra. Viðtal á lækningastofu mun
kosta kr. 75 og kr. 110 fyrir hverja
vitjun læknis til sjúkllngs. Af innlend-
um sérlyfjum greiði samlagsmaöur
fyrstu 120 kr. en sjúkrasamlagið
afganginn. Af erlendum sérlyfjum
skulu eili- og örorkulífeyrisþegar
borga kr. 50 og kr. 100 fyrir hverja af-
greiðslu. Þá er í reglugeröinni lögð
áhersla á að aldrei megi krefja sjúkl-
ing um nema eina greiðslu fyrir rann-
sókn og skipti þar ekki máli hve
margar tegundir rannsókna um er aö
ræða. Sagði Matthías Bjarnason að
nokkur brögð hefðu verið að því aö
sjúkrahúsin kreföust greiðslu af sjúkl-
ingum i hvert sinn er rannsókn færi
fram þó aðeins væri um að ræöa hluta
stærri rannsóknar.
-EH.
Morten Fangelog nemendur hans hafa klættalla veggi með afrakstri námskeiðsins.
D V-mynd KAE
Verkef nastjórn á vegum Háskólans:
Danskur sérfræðingur
með námskeið
Nú er nýlokiö námskeiði í verkefna-
stjórnun sem var haldiö á vegum
endurmenntunarnefndar Háskólans.
Sams konar námskeið var haldið hér í
apríl sl. og í bæði skiptin hefur Morten
Fangel, frægur danskur sérfræöingur í
verkefnastjórnun, verið fenginn hing-
að til lands til að stjórna námskeiðun-
um. Fangel er verkfræðingur og við-
skiptafræðingur að mennt og rekur
umfangsmikið ráðgjafarfyrirtæki sem
m.a. lagði á ráðin um rafvæðingu
dönsku ríkisjárnbrautanna.
I framhaldi af þessum námskeiöum
hefur verið stofnað sérstakt félag um
verkefnastjórnun og eru félagar um
110 talsins. Ætlunin er að námskeiöa-
haid í verkefnastjórnun geti farið fram
undir íslenskri leiðsögn í framtíðinni
en Fangel yröi fenginn hingað einu
sinni á ári til að halda framhaldsnám-
skeið.
„Félag um verkefnastjórnun mun
beita sér fyrir eflingu fræðslu og bættri
verkefnastjórnun á tslandi sem við
teljum að hafi verið mjög ábótavant,”
sagöi Tryggvi Sigurbjarnarson verk-
fræöingur sem hefur haft umsjón meö
námskeiðinu. „Þessi námskeið hafa
mælst mjög vel fyrir. Þátttakendur
eru nú 30 frá ýmsum fyrirtækjum og
stofnunum.” Tryggvi sagði ennfremur
að slíkt námskeið stæöi í viku og væri
lögð á þaö rík áhersla aö þátttakendur
væru virkir. Á námskeiðinu, sem nú er
nýlokið, var tekin sem dæmi um verk-
efnastjórnun fiskeldisstöðin sem nú rís
í Olafsfirði en á námskeiðinu þar áður
var viöfangsefnið kísilmálmverk-
smiöjan á Reyðarfirði.
-EH