Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1984, Blaðsíða 35
DV. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER1984.
35
Islandsmeistarar
í akstursíþróttum
Islandsmeisturum í öllum greinum
akstursíþrótta voru afhent verölaun
sín laugardaginn 8. desember síðast-
liðinn, á árshátíð Bifreiðaíþrótta-
klúbbs Reykjavíkur. Þaö er Lands-
samband íslenskra akstursíþrótta-
félaga sem sér um tslandsmeistara-
keppnina og hafa þessi verðlaun verið
veitt síðan 1979. Til Islandsmeistara er
keppt í 7 greinum, en alls voru veittir
13 titlar, þar sem í þremur greinum er
keppt í fleiri en einum flokki.
Islandsmeistari í Moto Cross, 500 cc
flokki, varð Þorkell Ágústsson og í 250
cc flokki varð Marteinn Pétursson,
Islandsmeistari. Verölaunagripir
þeirra voru gefnir af Vélhjólaíþrótta-
klúbbnum.
I torfæruakstri voru þrjár keppnir
sem gáfu stig og Islandsmeistari 1984
varð Þorsteinn Guöjónsson. Verð-
launin gaf ÖS-umboðið.
1 kvartmílu var keppt til tslands-
meistara i 5 flokkum. I standardfl.
varð Ingólfur Ámason Islands-
meistari. I götubílaflokki Haraldur
Haraldsson. I modified standard
Sigurjón Haraldsson. I streetalter-
flokki Eyþór Eggertsson. I mótorhjóla-
flokki Hilmar Lúthersson.
Islandsmeistari í sandspyrnu varð
Haukur Sveinsson. Gefandi verölauna
var ÖS-umboðið.
I Rally-Cross var einungis haldin ein
keppni sem gaf sig til Islandsmeistara
og varð sigurvegari þar Bjarmi
Sigurgarðarsson og hlaut hann því
titilinn.
Islandsmeistari í Is-Crossi varð Ámi
Oli Friðriksson. I Rally var keppt um
tvenn verölaun. Gefandi verðlauna var
Kristinn Guönason hf.
Islandsmeistari í Is-Crossi varð Ámi
Oli Friðriksson. Gefandi þeirra
verðlauna var Hafrafell hf.
I Rally var keppt um tvenn verðlaun,
þ.e. ökumenn og aðstoöarökumenn.
Fimm keppnir gáfu stig og varð
Eiríkur Friðriksson hlutskarpastur
aðstoðarökumanna og Omar Þ.
Ragnarsson Islandsmeistari öku-
mannal984.
Fyrr um daginn var haustfagnaður
Landssambands íslenskra aksturs-
íþróttafélaga sem fulltrúar allra
klúbba og félaga, sem akstursíþróttir
stunda, sækja. M.a. var á fundinum
gerð dagskrá fyrir næsta ár og em tæp-
lega 50 keppnir fyrirhugaðar í hinum
ýmsu greinum og þar af 36 Islands-
meistarakeppnir.
ÓG
Landssmiðjusalan
lögfest á Alþingi
I gær var samþykkt á Alþingi frum-
varp til laga um heimild fyrir ríkis-
stjórnina að selja Landssmiðjuna.
Lögin öðlast gildi 1. janúar nk.
I febrúar 1984 var Helga G. Þóröar-
syni verkfræðingi faliö að gera for-
könnun á rekstri og rekstrargrundvelli
Landssmiðjunnar. Markmið
könnunarinnar var m.a. að auðvelda
ákvörðun umfangs áframhaldandi út-
tektar á fyrirtækinu og aðstoða starfs-
menn viö að meta möguleika þeirra á
að kaupa fyrirtækið. Uttekt þessari
var lokiö í júní sl.
1 mars sl. stofnuðu 52 af starfs-
mönnum Landssmiöjunnar félag sem
kanna skyldi kaup á fyrirtækinu og
undirbúning hlutafélags ef niðurstöður
Lagafrumvarp um sölu Lands-
smiðjunnar hefur verið samþykkt á Al-
þingi og tekur gildi um áramót. 23
starfsmenn Landssmiðjunnar bafa
myndað hlutafélagið Landssmiðjan hf.
allar bentu til þess að af kaupum gæti
orðið.
Stofnfundur hlutafélagsins Lands-
smiðjunnar hf. var svo haldinn 13.
sept. sl. og voru stofnendur 23 starfs-
menn fyrirtækisins. Hlutafé var
ákveðið rúmar 4 milljónir króna.
Kaupsamningur var undirritaður á
milli rikisstjómarinnar og Lands-
smiðjunnar hf. með fyrirvara um sam-
þykki ríkisstjómarinnar og Alþingis
20. september sl.
I umræðum á Alþingi um frumvarpið.
sagði Sverrir Hermannsson iönaðar-
ráðherra m.a. að ríkið hefði ekki sinnt
Landssmiöjunni sem skyldi á meðan
það fyrirtæki var í eigu þess.
Alþýðubandalagið á máfí
Alþýðubandalagið var andvigt frum-
varpinu og sagði Hjörleifur Gutt-
ormsson, talsmaður þess í málinu, að
engin frambærileg rök heföu komiö um
að hagkvæmt væri fyrir ríkið að afsala
sér hlutdeild í Landssmiöjunni á þann
hátt sem gert er ráð fyrir í frum-
varpinu. Þvert á móti taldi hann lík-
legt að ríkið biöi af því beint fjárhags-
legt tjón.
Samtök um kvennalista sátu hjá við
atkvæðagreiðslu um fmmvarpið.
Guörún Agnarsdóttir sagðist draga í
efa að þessi viðskipti væm rikinu hag-
stæð og kvaðst undrast þann hraða
sem á afgreiðslu málsins væri.
Kaupverð Landssmiðjunnar er
rúmar 22 milljónir króna. Undanskilin
eru hlutabréf í eigu Landssmiðjunnar
og fasteignir, svo sem grunnur við
Skútuvog, sem metinn er á um 66
milljónir króna. Tilraunafiskimjöls-
verksmiðja, sem unnið hefur verið að á
vegum Landssmiðjunnar, er einnig
undanskilin í sölunni.
Samkvæmt nýsamþykktum lögum
er heimilt að lána kaupanda, hluta-
félaginu Landssmiðjan hf., hluta af
söluandvirði með verðtryggðum
kjöram til allt að 10 ára gegn þeim
tryggingum sem ráðherra metur
gildar.
-ÞG
Fiskflutningar: r
Ekkert útboð hjá SIS
„Þaö væri ekki trúverðugt ef við ins, aöspurður hvort SIS færi að dæmi
færum aö bjóöa út fiskflutninga okkar. SH og byði út fiskflutninga sína.
Við erum meö eigin skipadeild og hún ,,Ég á ekki von á öðru en skipadeild
hefur alltaf séð til þess að við væmm okkar lækki sín verð til samræmis við
vel samkeppnisfærir við aðra,” sagði það sem gerist hjá SH eftir útboðin,”
Sigurður Markússon, framkvæmda- sagðiSiguröurMarkússon.
stjóri sjávarafuröadeiidar Sambands- -EIR.
Hér má sjá Islandsmeistarana í akstursíþróttum 1984. Efri röð frá vinstri: Ingóifur Amason, Eyþór Eggertsson,
Haraldur Haraldsson, Valur Vifilsson, sem tók við verðlaunum fyrir Hauk Sveinsson, Sigurjón Haraldsson, Þorkeil
Ágústsson, Marteinn Pétursson og Hilmar Lúthersson. Neðri röð frá vinstri: Þorsteinn Guðjónsson, ArniOli
Friöriksson, Helga Jóhannsdóttir, sem tók við verðlaunum fyrir mann sinn, Omar Ragnarsson, Eirikur
Friðriksson og Bjarmi Sigurgarðarsson. Mynd OG.
Verð, staðgr. kr. 6.268.
Sendum í póstkröfu.
Kreditkortaþjónusta. Varahluta- og viðgerðarþjónusta.
Allt fyrir BMX
Torfæruhjól
BMX-hanskar
BMX-hjálmar
BMX-grímur
BMX-peysur
BMX-buxur
BMX-skór
BMX-sokkar
BMX-hnéhlífar
BMX-púðar
BMX-merki
Iferslunin
MAR
Suðurlandsbraut 30. Sími 35320
D
=4
ÞREKHJÓL
FRÁ KETTLER
V-ÞÝSKALANDI
• Vönduð og traust
þrekhjól
• Fjórar mismunandi
gerðir
• Verð frá kr. 4.888
• Sendum í póstkröfu
• Kreditkortaþjónusta
• Varahluta- og
viðgerða-
þjónusta
Ferslunin
/M4RKID
Suðurlandsbraut 30 — Sími 35320
4.
✓