Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Qupperneq 6
6 DV. MANUDAGUR 20. MAl 1985. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Sá á kvölina... Hvertáfjölskylda neytendasíðunnar aö fara? Upphaflega hugmyndin var aö senda fjölskyldu neytendasíðunnar í langt leyfi utanlands — ekki veitir henni af eftir allan sparnaðinn og vinnuna við heimilisbókhaldið á árinu. En þaö sæmir samt ekki grandvörum lesend- um að stunda neinn fjáraustur í slíku leyfi og því höföum viö samband við helstu ferðaskrifstofurnar og báöum um aöstoð viö að finna ódýrustu leiðina til þess að koma fjölskyldunni út. En þar sannaðist hiö fornkveðna að sá á völina sem á kvölina — möguleikamir eru fjölmargir og erfitt að finna hið eina rétta. Fjölskyldan okkar er fjögurra manna — venjulegir launþegar — hjón með tvö böm á aldrinum frá rúmlega tveggja ára til tæplega tólf ára. Ætlun- in er að hvíla þau alveg frá amstri hversdagsins — svo sem gluggaum- slögum, hreingemingum, innkaupum, eldamennsku og lestri neytendasíöu. Þrjár vikur er vonandi hæfilegur tími til þess að finna aftur fyrra þrek og því var gert ráð fyrir að f jölskyldan dveldi svo lengi ytra í góöu yf irlæti. Sólarlandaferð var þaö fyrsta sem starfsfólki ferðaskrifstofanna flaug í hug að myndi henta og við tókum það fram að hún mætti ekki vera í anda fyrstu ferða af þeirri gerðinni. Þá var ákveðið að spara við sig matinn og lagt upp með fiskbolludósir, harðfisk, hangikjöt og fleira til þess aö eyöa ekki of miklu af dýrmætum gjaldeyri í út- landinu. Eða til þess að gera langa sögu stutta: Viö báðum um hóteldvöl með hálfu fæði allan tímann. En það var þrautin þyngri að finna út verð á slíkri dvöl því flestar f jölskyldur kjósa núna fremur að búa í íbúð þegar um svo langan tíma er aö ræða. I samræmi við þær óskir em til dæmis sumarhúsa- dvalir í Danmörku. Þó kom í ljós að sums staðar var hægt að fá hóteldvöl með hálfu fæði og er nauðsynlegt að lesa sundurgreiningu á ferðatilboðum til þess að átta sig á því hvað raunveru- lega er innifalið í pakkanum. Einnig að gera sér grein fyrir að ef ferðin er án fæðis er ýmislegt eftir í útreikningi á heildarverði dvalarinnar. Sums stað- ar er ódýrt að borða á veitingastöðum og hægt að fá fæði þannig fyrirhafnar- laust fyrir fjölskylduna. I öðrum lönd- um er það rándýrt og getur hleypt veröinu verulega upp. Og þaö jafnvel þótt eldamennskan falii í hlut feröa- langanna sjálfra. Þannig er margt að athuga þegar draumaferðin er valin en vefst þó varla lengi fyrir þeim hagsýnu úr heimilisbókhaldinu. baj Jón og Gunna okkar á Neytendasíðunni að leggja af stað f langþráð leyfi með Siggu litlu og Palla. Ljósm: GVA. Italía: Italska Rívíeran: 75.150,00 —Terra Travel Við Gardavatniö: 79,150,00 —Terra Travel Lignano: 94.700,00 —Utsýn Rimini: 87.600,00 —Samvinnuf.-Landsýn Rimini-Hotel VA 131,600,00 —Samvinnuf.-Landsýn Grikkland: Rhodos: 120,900,00 —Samvinnuf.-Landsýn Júgóslavía: Dubrovnik: 109.200,00 —Samvinnuf.-Landsýn Spánn: Ibiza: 70,440,00 —Urval Mallorca: 79,550,00 —Atlantik Mallorca: 74,760,00 —Flugferðir-Sólarflug Mallorca: 81,560 —Flugferðir-Sólarflug Austurríki: Týról: 74,688,00 —Farandi Danmörk: Sumarhús: 65,600,00 —Samvinnuf.-Landsýn Helsinger: 95,900,00 —Utsýn Tekiö skal fram að viö samanburð á verði í töflunni vísast tU nánari útUstunar í meðfylgjandi pistlum. Ekki er alltaf það sama í boði þótt grunnhugmyndin hafi verið sú sama og því betra að kynna sér vel hvað aö baki til- boðanna liggur. Úrval: Hótelíbúð á Ibiza Þriggja vikna júlíferð fyrir hjónin okkar með börnin tvö, liggur til Ibiza á vegum ferðaskrifstofunnar Urvals. Fyrir ferðina þurfa hjónin aö greiða 70.440 kr. (flugvallarskattur innifal- inn). Gist er á Hótel Arlanza í hótelíbúð en ekki er um að ræöa aö kaupa fæði á hót- elinu. Samkvæmt upplýsingum Urvals er sáraódýrt að borða í sólarlöndum og var nefnt sem dæmi, að fjögurra manna fjölskylda fengi ágæta máltíð með víni fyrir sem svarar 500 ísl. kr., eða um 2000 peseta. Matvöruverslanir eru í næsta nágrenni hótelanna og hafa langflestir þann háttinn á að þeir eru sjálfum sér nógir í morgunmat en borða aörar máltíðir á veitingastöð- um. SvokaUaöar fjölskylduferðir eru á boðstólum hjá Urvali frá því í maí og fram í september. I þeim ferðum er veittur talsverður afsláttur fyrir fjöl- skyldufóUi. T.d. fær annað bam hjón- anna okkar ferðina fría en hitt barnið greiöir hálft fuUorðinsfargjald. A. Bj. Farandi: A f jallahóteli í Týról Þrjár vikur á fjaUahóteU í Týról er hægt að fá hjá ferðaskrifstofunni Far- anda fyrir 73.938 kr. fyrir hjón með tvö böm. Þá er flogið til Salzburgar og farið meö lest á ákvörðunarstaö. Dvalið er á fjaUahóteU í Týról. Hótelíbúðirnar, sem boöið er upp á, eru með baðher- berbergi, eldunaraðstöðu, ísskáp og svölum. Sundlaug er á staðnum. Þetta er eins konar meðalverö, þ.e. bæði er hægt aö fá ódýrari ferðir en einnig dýrari ferðir. Inni í þessari töluerekki reiknaður flugvallarskattur en hann er fyrir þessi hjón okkar 750 kr. Þessi ferð er farin, eins og í hinum dæmunum, í júlímánuði. -A.Bj. Flugferðir — Sólarflug: Hótel eða stúdíó á Mallorca Sólarlandaferðir er sívinsælar og sumar löngu orðnar aö þjóðsögu. Flug- ferðir-Sólarflug bjóða fjölskyldunni tvenns konar möguleika á þriggja vikna dvölinni og hvort tveggja á þeirri sögufrægu eyju Mallorca. Þar hafa ófáir Islendingar dvalist síðan sólarlandaferðimar hófust og sumir á hverju sumri árum saman. Valið stendur á milli hóteldvalar og búsetu í stúdióíbúð. Hótelið kostar 81.560 með hálfu fæði og er þá dvalið hvort sem fólk vill úti á Arenal-strönd eða inni í Palma. Ef íbúð verður fyrir valinu er verðið 74.760 fyrir stúdíóíbúð á Arenalströnd. Þá er fæði ekki innifalið eins og jafnan þegardvaliðeriíbúðum. baj Útsýn: Atlantik: r TerraTravel: Italska Rívferan eða Gardavatnið Hvort viltu stúdíó- íbúð á Lignano eða í Helsingör? Þriggja vikna dvöl á ítölsku Rívíer- unni fyrir hjónin okkar og bömin þeirra tvö á vegum ferðaskrifstofunn- ar Terra Travel kostar 87.950 kr. í júlí. (flugvallarskattur innifalinn). I veröinu er innifaliö flug, akstur milli flugvaUar og gististaðar, gisting í íbúð sem er eitt svefnherbergi, stofa, bað og eldhús. Séð er um ræstingu á meðan á dvöUnni stendur. tbúðin er 200—250 m frá ströndinni. Einnig er sundlaug við íbúðina og leikaðstaöa fyrir bömin. Terra Travel gaf einnig upp mögu- leika á íbúöardvöl við Gardavatnið á Italíu. Það myndi kosta fjölskylduna okkar 87.550 kr. í júlímánuði. Hægt væri að fá báðar þessar ferðir mun ódýrari ef þær eru famar í maí, sem er ódýrasti tíminn. Þá kostaði fyrri ferðin 75.100 kr. og sú síðari 79.150 kr. fyrir hjón með tvö böm. Sigríður Magnúsdóttir hjá Terra sagði að fjölskyldufólk kysi frekar að búa í íbúð en á hóteli. Þá hefur fjöl- skyldan meira svigrúm tU athafna og aðstaða fyrir börnin er mun betri. A. Bj. Hjá Utsýn stendur vaUð hjá fjölskyldunni miUi þess aö dvelja í stúdíóibúö á Lignano eða Helsingja- eyri sem sagt ItaUa eða Danmörk. A Italíu er íbúöin á OIipo, hálft fæöi innifaUð og verðið 123.980 krónur. I Danmörku er íbúðin í Hótel Marien- lyst og þar er hálft fæði líka innifaUð í verði sem er 124.200 krónur. Farar- stjóm og ferðir til og frá flugvelU inni- faliö í báðum tUvikum. Verðið er svip- að í báðum dæmunum svo líklega er þá bara að gera eitt upp við sig — hvort viltu norrænt umhverfi eða suðrænt í þessusumarleyfi? Rétt er að það komi fram að hjá Ut- sýn er hægt að fá ferðir tU fjölda annarra staða og á svipuðu verði. Af suðrænum stöðum mætti nefna Spán og Portúgal en norðar England og Mið- Evrópu. baj Á íbúðar- hóteli á Mallorca Þriggja vikna dvöl í júlí fyrir hjónin okkar á Mallorca á vegum ferðaskrif- stofunnar Atlantik Travel er fáanleg fyrir kr. 79.500,- (flugvaUarskattur innifaUnn). DvaUð er á íbúðarhótelinu Royal Jardin del Mar. Boðið er upp á svefn- stofu, svefnherbergi, eldhús og baðher- bergi. Hægt er að fá hálft fæði á hótel- inu og kostar það 200 kr. á mann á dag og lOOkr. fyrir böm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.