Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Síða 10
10 DV. MANUDÁGim 20. MAI1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Borgaraflokkamir
sænsku hafa hylli
yngri kjósendanna
—fylgi sósíaldemókrata dvínandi og verkfallið gaeti
riðið baggamuninn í þingkosningunum í september
Ulf Adelsohn, leiðtogi Moderataflokksins I Svíþjóð, hefur I stjórnarand-
stöðunni hvergi gefið stjóm Palme grið, þegar hún hefur legið við
höggi. — Flokkur hans tekur í stefnu sinni mikið miö af thatcherisman-
um sem breska ihaldsstjómin hefur aö leiðarljósi.
1 mörg ár hefur ekki orðið annað
eins rask á daglegu lífi Svía eins og í
verkfalli opinberra starfsmanna
þessa dagana og verkbanninu. Um 20
þúsund opinberir starfsmenn eru í
verkfalli, allir flugvellir eru lokaðir,
langar biðraðir við landamæri, inn-
flutningur og útflutningur hefur
stöövast, kjöt, ávextir og grænmeti
voru orðin af skomum skammti í síð-
ustu viku og stórfyrirtæki eins og
Volvo voru alvarlega að hugsa um að
senda starfsliðið heim.
Til aö mótmæla verkbanni hjá
opinberum stofnunum lögðu um 80
þúsund til viöbótar niður vinnu fyrir
viku. Margir skólar lokuðust þá,
skattheimtan, lögreglan ( að hluta)
og póstmenn hættu störfum og allt
þjóðlifiö var meira og minna komið
úrskorðum.
Bitnaöi á öllum
Þetta hefur bitnað á öllum lands-
mönnum. Tómatar, sem Svíum finn-
ast ómissandi ofan á brauð, fjórföld-
uðust í verði. Enginn gat fengiö
skráöan nýjan bil eöa umskráö
vegna sölu því að bifreiðaeftirlitið
var lokaö. Bændur kvarta undan því
að kýmar þeirra séu famar að fitna
um of á meðan sláturhúsin standa
lokuö, og svínin farin að éta hvert
annað.
Isbrjótar Svía á Eystrasalti liggja
bundnir en ennþá ríkir vetur norður
frá og strandferðaskip eru föst í ís.
Og þótt það standi kannski ekki í
neinu sambandi við verkföllin þá
herjar um þessar mundir einhver
plága á elgdýrin svo aö þau hrynja
niður eins og flugur sem þykir tákn-
rænt fyrir að óhamingju Svíþjóðar
verðialltaðvopni.
Svíar hafa tekiö þessu öUu með
töluverðu jafnaðargeði þótt þoUn-
mæði þeirra sé farin aöminnka.
Verkfallsdeilan
mælist illa fyrir
Opinberir starfsmenn undirrituöu
launasamning við fjármálaráðu-
neytið í fy rra en f jármálaráðherrann
var á meðan staddur í orlofi í
ÁstraUu og sagði þann samning
gerðan að sér forspuröum. Þegar
hann kom heim og frétti af máUnu
kaUaöi hann báða aöila „bjána” og
boðaði að samkomulagið mundi
raska verðbólguáætlunum hans og
því mundi hann ekki greiða um-
samdar launahækkanir. Launþega-
samtök boðuðu því til þessa verkfaUs
í mótmælaskyni.
VerkfalUð mæUst annars fremur
iUa fyrir meðal almennings í Svíþjóð
og njóta opinberir starfsmenn ekki
mikiUar samúðar. Þeir hafa ekki
fengið önnur launþegasamtök til Uðs
við sig og er búist við að þeir neyðist
tU að snúa aftur tU starfa. Þeir hafa
séð sitt óvænna og veitt æði margar
undanþágur frá verkfaUinu. A
meðan hefur samt hlotist af máUnu
æði mikiU pólitískur skaði.
Kannanir benda til
falls Palme
Þetta verkfall, ásamt deUum um
leyniáætlanir SviarUcis um kjarn-
orkuvopn frá því fyrir fimmtán ár-
um, hefur orðið tU þess að draga úr
fylgi ríkisstjórnar Olofs PaUne for-
sætisráðherra og sósíaldemókrata.
Nýlegar skoðanakannanir þykja
benda tU þess að stjórnin gæti faUið í
kosningunum sem væntanlega verða
um miðjan september. Hugsanlega
kæmi í staðinn samsteypustjórn
borgaralegu flokkanna, Miðflokksins
og Frjálslynda flokksins með Moder-
ataflokkinn í broddi fylkingar.
Moderatar eru hægrimenn þrátt
fyrir nafnið og stefnu þeirra hefur
vaxiö fylgi meðal kjósenda. Þeir
fara ekki dult með aðdáun sína á
thatcherismanum, stefnu sem kennd
er við Margaret Thatcher, leiðtoga
breska Ihaldsflokksins. Þeir vUja
lækkun skatta, niöurskurð á útgjöld-
umtUfélagsmála.hækkun framlaga
til vamarmála og minnkun kerfis-
bákns þess opinbera.
Frjálshyggjan gengur í
augu unga fólksins
Nær helmingur yngstu kjósenda
Svía fylgir moderötunum. Hinir
ungu íhaldsmenn eru klipptir og
klæddir samkvæmt hefðbundinni
tísku en slá taktinn í diskóhljóðfaUi
meö baráttusöng sinum „Move over
to the right”. Þeirra fylgi er um aUt
land og þeir sækja fast á atkvæðamið
ungs fóUts sem er nýútskrifaö úr
skólum og komið út á vinnu-
markaðinn. Slagorð þeirra „veit oss
frjálsari Svíþjóð” fær æ meiri hljóm-
grunn.
„Ríkið hefur of lengi sagt okkur
fyrir verkum,” segir Maria Stock-
haus, einn starfandi félaga úr flokki
moderata. „RQtið ákveður kjör okk-
ar, segir okkur hvernig viö skulum
Ufa lífi okkar, tekur laun okkar aftur
í sköttum og hefur okkur öU í taum-
haldi. — En við vUjum lifa eins og
okkur sjálfum sýnist, ráðstafa tekj-
um okkár eins og okkur sjálfum sýn-
ist. Við viljum fá persónufrelsi okkar
og einkalíf aftur.”
Kynntu sér breskar
aðferðir
Nokkrir þingmanna Moderata-
flokksins voru ekki alls fyrir löngu í
Bretlandi þar sem þeir kynntu sér
sparnaðarráðstafanir Uialdsstjórn-
arinnar og niðurskurð rUtisútgjalda.
Einkanlega voru þeir uppnumdir af
aðgerðum Thatcherstjórnarinnar tU
að koma ríkisfyrirtækjum aftur í
einkarekstur.
Leiðtogi Moderataflokksins, Ulf
Adelsohn, hefur verið skeleggur tals-
maður stjórnarandstöðunnar og
hvergi gefið stjórn Palmes grið þeg-
ar hún hefur legið við höggi. Annars
komst hann sjálfur í heimsfréttimar
á öðrum vettvangi fyrir skemmstu
þegar blaöaljósmyndari náði af hon-
um mynd þar sem hann dansaði í
strápilsi á kjötkveðjuhátíð í Rio de
Janeiro.
Vilja lækka skatta
Adelsohn og moderatarnir heita
því að lækka tekjuskatt úr 80% niður
í 40% komist þeir í stjóm. Þeir ætla
að lækka sjúkradagpeninga úr 90%
niður í 60%, hækka sjúkravitjunar-
gjald lækna úr 200 krónum i 250
krónur, lækka atvinnuleysisstyrki og
koma hluta símaþjónustunnar og
raforkuiðnaöarins í einkarekstur.
Grípa tíl kvikmynda-
áróðurs
Jafnaðarmennimir hafa brugðist
við atlögum stjórnarandstöðunnar af
meiri hörku en áður eru dæmi um úr
sænskum stjórnmálum. Um þessar
mundir er sýnd í öllum kvikmynda-
húsum kvikmynd sem kostaði
1.250.000 krónur að gera en í henni er
úthellt svíðandi háði yfir stefnu
moderatanna. Myndin á að sýna lík-
legustu afleiðingar þess ef hróflað
verður við velferöarkerfinu: Bam,
sem ekki hefur efni á aö borga skóla-
nesti sitt, sætir barsmið og verður að
svelta. Móður sem ekki getur greitt
fyrir læknisþjónustuna og verður frá
að snúa með son sinn veinandi af höf-
uðkvölum. Eldra fólki er smalað eins
og búpeningi inn í skítugar og van-
hirtar stofnanir. Verksmiðjur spú-
andi eitri eftirlitslaust og for-
stjórarnir einir með gasgrímur á
meðan verkafólkið andar ofan í sig
eiturgufunum. — Áróður þessi er æði
hrár og þykir moderötum sem sósía-
listar slái þar fyrir neöan belti en
gera sér vonir um aö þeir hitti þar
sjálfa sig fyrir aftur ef kjósendum
þyki áróðurinn of yfirgengilegur.
Dvínandi persónufylgi
Olof Palme
Persónufylgi Olof Palme þykir
aldrei fyrr hafa veriö í jafnmikilli
lægð á fimmtán ára ferli hans sem
leiðtogi jafnaöarmanna. Það hefur
mikiö vatn mnnið til sjávar síðan á
hann var litið sem undrabamið í
stjómmálum á Norðurlöndunum.
Hann er nú kominn fast að sextugu.
Ýmsum þykir sem hann hafi misst
sín fyrri tök á hlutunum, að hann sé
of einráður, skorti umburðarlyndi og
hafi beitt klókindum um of svo að
það hitti hann sjálfan fyrir.
Hægri stjórn
raunverulegur valkostur
Áf Ulf Adelsohn hafa menn minni
reynslu í þjóðarforystu, en síðast
þegar borgaralegu flokkarnir kom-
ust til valda, sem var 1976, þóttu þeir
klúðra stjóm sinni. Þá fór miðflokk-
urinn með forystu en nú er ljóst að
moderatamir mundu verða forystu-
aflið í slikri hægri samsteypustjóm
sem gæti haft meirihluta yfir
jafnaðarmenn og kommúnista
samanlagða.
A því hamra moderatarnir og
kalla septemberkosningamar fram-
undan tækifæri til breytinga, þar
sem moderatar og borgaralegu
flokkarnir séu raunverulegur val-
kostur til umbóta.
Verkfallið spillir síður en svo fýrir
kosningahorfum hægri flokkanna
sem boða aö þeir muni gera róttækar
breytingar á sænsku þjóðlífi svo að
Svíþjóð verði aldrei söm aftur.
Niðurstöður skoðana-
kannana í aprílmánuði
Þannig hefflu Sviar kosið, ef til atkvæða hefði verið gengið I apríl-
mánuði, þegar þessi könnun var gerð:
Almennt fylgi
Kjósendur
18-21 ðrs
Sósíaldemókratar 42,2% 35,8%
Moderatar 29,6% 43,3%
Miðflokkur 14,0% 11,9%
Frjálslyndir 5,7% 3,0%
Kommúnistar 5,5% 1,5%
Græningjar 2,8% 1,5%