Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Side 16
16
DV. MANUDAGUR 20. MAI1985.
Spurningin
Hver er uppáhaldsávöxtur-
inn þinn?
Herdis J6nsd6ttir, hjúkrunarfræðing-
ur og húsmöðlr: Mér hafa alltaf þótt
eplin best.
Stefán Rögnvaldsson verkstjóri: Eg
segi appelsínur. Eg borða lítið af
á vöxtum en aðallega appelsínur.
Valdimar Helgason kennari: Epli. Eg
borða yfirleitt eitt epli ó dag og lika
eplakökur.
Sigurður Vlggósson jórnsmiður:
Perur. Eg borða mikið af perum ef
ekki er búið að boröa þær frá mér.
Krakkamir eru vitlausir í þetta.
Kolbrún Sigurðardóttir, vlnnur í Hag-
kaupl: Kiwi. Hann er brúnn og loöinn
ogmjöggóður.
Pétur Helgi Frfðrfksson smiður: Ban-
anar eru í uppáhaldi hjó mér. Ég borða
svona einn banana á ári.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Olæti við Grettisgötu
Slgurlaug Vllhjálmsdóttir og Guðrún
Björgvinsdóttir höfðu samband:
„Við búum við Grettisgötuna og
hingað flutti inn fólk í október sl. Síð-
an hefur ekki verið líft hér í húsinu
fyrir hávaöa og látum jafnt um helg-
ar sem í miðri viku. Aðfaranótt
mánudagsins kölluðum við á lögregl-
una enn einu sinni en þá stóð partiiö
til klukkan hálfátta um morguninn.
Það bætir ekki úr skák að þrátt
fyrir að lögreglan hafi komið hér
margoft og tekið skýrslur þá finnst
hvorki tangur né tetur af þeim niðri á
stöð. Við viljum að sjálfsögðu hafa
eitthvað í höndunum ef þetta heldur
svona áfram og við förum með málið
í lögfræðing.
DV hafði samband við Guðmund
Hermannsson yfirlögregluþjón og
sagði hann að það eina sem lögregl-
an gæti gert í svona málum væri að
votta um hávaöann með skýrslutöku.
Heimilisvanda gætu þeir ekki leyst.
„Við erum með nokkrar skýrslur
vegna kvartana íbúanna við Grettis-
götu. Skýrslurnar eru hins vegar
ekki eins margar og íbúarnir þar
halda fram og fjarskipti lögreglunn-
ar staðfesta það,” sagði Guðmundur.
Lána-
málin
„Gramir” höfðu samband:
Maður getur farið í vont skap við að
lesa greinar eins og þessa sem f jaliaði
um lánamál Jónu Sigurðardóttur í DV
fyrir skömmu. Steingrímur Her-
mannsson er sagður hafa tekið til at-
hugunar lánabeiðni hennar hjá Hús-
næöisstofnun eftir að Jóna talaði við
hann á beinni línu DV. Svona fólk segir
að „kerfið” sé að setja sig á hausinn.
Þó svo að þaö sé langt í að „kerfið” sé
eitthvað til að hrópa húrra fyrir þá er
manni spum hvort þetta fólk geti ekki
kennt sjálfu sér svolítið mikið um
hvernig komið er fyrir því.
Fjöldi
gesta á
vínveit-
inga-
húsum
Borgari skrifar:
Starfsfólk Isbjarnarins fór sér til
skemmtunar í Broadway sl. laugar-
dagskvöld, sem ekki er í frásögur fær-
andi. Snæddi þar kvöldverð, fylgdist
með skemmtiatriðum og dansaði eins
og gengur. Var allt gott um það að
segja en hins vegar blöskraði mér og
vinnufélögum mínum sá ofboðslegi
fjöldi fólks sem troðið var inn í húsið
þegar leið á kvöldiö. Mér er spum: er
ekkert eftirlit með því hversu mörgu
fólki er hleypt inn eða hvað margt fólk
má vera á sUkum skemmtistað?
Mér þætti vænt um ef blaðið.vildt'fá
svör.við þessum spurningum .mínum í
hjá lögreglu, öpinbgru eftirliti eðá við-
komanöiýfitv^láum.j | í f 1 * * f
? -Í • '» 1 \ i I \ I f ( ? í 5 i
. sj « f i •; < * | r ? 4 I 5 '5 1 *
Samkvæmt þeim upþlýsingum sem •
fengust á' skrifstofu lögreglustjóra þá *
era tveir lögreglumenn alltaf á neyðar-
vakt i Broadway á föstudags- og laug-
ardagskvöldum og hafa eftirlit með
því aö ekki séu fleiri í húsinu i einu en
þrettán hundraö manns.
Tveir fbúar við Grettisgötu eru óhressir með skemmtanafíkn nógranna sinna.
Magnús segir aðþað só þröngt í vólumFlugleiða.
Magnús Skúlason hringdl:
Ég var að koma úr flugvél og mér
finnst reginhneyksli hvemig Flug-
leiðir troða sætum í vélar sínar. Það
er svo þröngt að venjulegt fólk kemst
ekki fyrir. Eg hef flogið erlendis með
vélum af sömu gerð og það kom mér
á óvart að þetta geta verið þægilegir
farkostir. Mér finnst ekki hægt að
bjóöa þjóðinni upp á þetta. FlUgleiðir
sitja einar aö fjölmörgum leiðum og
fyrirtækinu ber að þjóna farþegun-
um eins og fólki.