Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Page 20
20
DV. MÁNUDAGUR 20. MAl 1985.
Grunnskóli
Eskifjarðar
Tvær kennarastöður eru lausar við skólann. Um er að'
ræða kennslu í tungumálum, íslensku og líffræði í eldri
deildum, auk almennrar kennslu. Kennt er í nýju skólahús-
næði, gpð vinnuaðstaða. Nánari upplýsingar hjá for-
manni skólanefndar, sími 97-6299, og skólastjóra, sími
97-6472 og heimasími 97-6182.
Skólanefnd.
BLINDRAFÉLAGIÐ
Dregið var í happdrætti Blindrafélagsins 7. maí. Vinnings-
númer eru:
1.13818
2.17199
3.39938
Vinninga má vitja á skrifstofu félagsins.
Blindrafélagið,
samtök blindra og sjónskertra,
Hamrahlfð17.
LAN DSVIRKJUN
Hrauneyjafoss — Útboö
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í stækkun starfsmanna-
húss við Hrauneyjafossvirkjun í samræmi við útboðsgögn
1401.
Verkið felur í sér gröft, fyllingu, uppsteypu og fullnaðar-
frágang utanhúss og innan.
Helstu magntölur eru áætlaðar:
Gröftur
Steypa
Mót
Bendistál
700 m3
270 m3
1250 m2
780 kg
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 108 Reykjavík, frá og með fimmtudeg-
inum 23. maí 1985 gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð
kr. 1.000,-.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar í Reykjavík
fyrir kl. 14.00 föstudaginn 7. júní 1985, en sama dag kl.
14.00 verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Reykjavík, 17. maí 1985,
Landsvirkjun
Húsnæðismálaslofnun
rikisins uuúmcúí 77
Útboó
Stjórnir verkamannabústaða á eftirtöldum stöðum óska
eftir tilboðum í byggingu íbúðarhúsa. íbúðunum skal
skila fullfrágengnum samkvæmt nánari dagsetningu i út-
boðsgögnum.
Afhending útboðsgagna er á viðkomandi bæjarstjórnar-
skrifstofum og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins
gegnkr. 10.000,-skilatryggingum.
Tilboðum skal skila á sömu staði, samkvæmt nánari dag-
setningum, og verða opnuð að viðstöddum bjóðendum.
Sauðárkrókur:
14 íbúðir í fjölbýlishúsi; húsið verður 445 m2 5500 m3.
Afhending útboðsgagna er frá 21. maí til 7. júní nk.
Opnun tilboða: 11. júní nk. kl. 11.00.
Siglufjörður:
2 íbúðir í einbýlishúsum; hvort hús verður 63 m2 330 m3.
Afhending útboðsgagna er frá 21. maí til 7. júní nk.
Opnun tilboða: 11. júní nk. kl. 13.30.
F.h. Stjórna verkamannabústaða,
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Tvífrysting:
Borgar sig ef vel
er að henni staðið
— segir Hjalti Einarsson hjá SH og spáir þvíað tvifryst
verði í einhverjum mæli þegar í haust
„Akureyin er aðeins með prufur
fyrir okkur, þetta er lítið magn, gert
í tilraunaskyni, ég held samt að tví-
frysting eigi eftir aö verða stunduð í
einhverjum mæli, en það þarf aö
standa vel að henni.”
Þetta sagði Hjalti Einarsson,
framkvæmdastjóri Sölumiðstöövar
hraðfrystihúsanna, um tilraunir
frystitogarans Akureyjar frá Akur-
eyri á tvífrystingu.
„Það er ljóst að tvífrysting er
kostnaðarsöm, það er mikil orka
notuð viö slíka vinnslu, en ef vel er að
þessu staðið, tel ég að tvífrysting
borgi sig f járhagslega. ’ ’
Hjatti sagði ennfremur að tvífryst-
ing væri ný af nálinni, til dæmis hefði
komiö út skýrsla í kringum 1967 þar
sem fjallað var um tvífrystingu.
Til að útskýra hinn feikilega orku-
kostnaö við tvífrystingu, þá er fisk-
urinn fyrst frystur um borð í togur-
unum, síðan er hann þíddur í landi,
unninn, og aftur frystur.
„Það fer jafnmikil orka í að þíða
fiskinn eins og að frysta hann,” sagði
Hjalti.
Frystitogararnir íslensku full-
vinna aflann nú um borð og selja
beint á erlendu markaðina. „Ég held
að svona verði þetta aö mestu áfram
hjá togurunum, tvífrystingin verði
því aukaverkefni. ”
Hjatti sagöi að lokum að ekki yrði
farið hratt í það að tvífrysta. „Eg á
samt von á aö tvífryst verði í ein-
hverjummæli seinna á þessu ári.”
-JGH
CELAND
TÆ EXOTC NORTH
Eskf irðingar fá
mjólkurhristing
Frá Regínu, Eskiflrði:
Guðmundur Auðbjömsson, málara-
meistari Eskifirði, tók við rekstri
Shellskálans að Strandgötu 13, Eski-
firði 1. október 1984 sl. Starfsemin hef-
ur gengið ljómandi vel, enda frábærir
starfskraftar sem eru á vöktum frá
átta til tólf á kvöldin. Þar sem fólk
kann til starfa við þjónustufyrirtæki
ganga þau alltaf vel og gefa góðan arð.
Hér á Eskifirði hefur það ekki þekkst
fyrr að um leið og bíll kemur að bensín-
tönkunum er kominn maður til að setja
bensínábílinn. Eskfirðingar hafa van-
ist því að starfsfólk á viðkomandi bens-
ínstöðvum, en þær eru þrjár hér á
Eskifirði, sé inni aö selja sælgæti eða
lesa blööin með hangandi hendi. Segir
starfsfólkið ferðamönnum að þeir
verði bara að afgreiöa sig sjálfir ann-
ars fái þeir ekki bensín. I áðurgreind-
um Shellskála er alveg frábær þjón-
usta og þjónustufólkiö kann alla
mannasiði. Fjórir vinna í skálanum:
hjónin Amar Valdimarsson og Helga
Hauksdóttir og feðgarnir Auðbjörn
Guðmundsson og framkvæmdastjór-
inn G. Auðbjörnsson. Þama er gott
þvottaplan og söluskáli og allt bensín
afgreitt af tölvudælum. Eskfiröingar
eru mjög ánægðir með hina frábæru
þjónustu sem þeir hafa ekki fyrr
kynnst nema þegar þeir eru á ferð um
Suðurlandiö. Þama er selt mikið af
nýjum drykkjum, svo sem mjólkur-
hristingur, sem fólk hérna hefur ekki
kynnstfyrr.
Shellskálinn á Eskifirði veitir góða þjónustu.
DV-mynd Emil.
24 f engu fimmtíu þúsund
Tuttugu og fjórir rithöfundar hafa
fengið úthlutun úr Rithöfundasjóöi Is-
lands. Hver um sig fékk 50 þúsund
krónur.
Þeir hamingjusömu eru: Álfrún
Gunnlaugsdóttir, Andrés Kristjáns-
son, Arni Bergmann, Ami Ibsen, Björn
Bjarman, Bjöm Th. Björnsson, Elías
Mar, Erlendur Jónsson, Gréta Sigfús-
dóttir, Guömundur Ingi Kristjánsson,
Guðmundur Steinsson, Guðrún Helga-
dóttir, Gunnar Dal, Gunnar Harðar-
son, Gyrðir Elíasson, Hallberg Hall-
mundsson, Isak Harðarson, Jón Dan,
Jónas E. Svafár, Magnea frá Kleifum,
Olga Guðrún Arnadóttir, Sigurður A.
Magnússon, Sigurður Róbertsson,
Sveinn Einarsson.
Verkið vann stjóm sjóðsins, skipuð
Arna Gunnarssyni, Asu Sólveigu og
Birgi Sigurðssyni.
HERB
max scmm
Hin nýja íslandsbók, sem lceland
Review hefur gefifl út er mefl Ijós-
myndum eftir svissnoska Ijósmynd-
arann Max Schmid.
Ný íslandsbók
lceland Review
Iceland Review hefur gefiö út bók
með ljósmyndum frá Islandi eftir
svissneska ljósmyndarann Max
Schmid. Bókin er gefin út á tveimur
tungumálum. A ensku heitir hún Ice-
land — The Exotic North én á þýsku
— Island — Exotik des Nordens.
I bókinni, sem er 96 bls. að stærð, eru
nær 100 ljósmyndir í litum, sem Max
Schmid hefur tekiö á ferðum sínum um
landiö í meira en áratug, ásamt hug-
leiðingum hans um íslenska náttúru
eins og hún kemur ljósmyndara fyrir
sjónir.
Max Schmid hefur tekið ljósmyndir
á Islandi síðan 1968 og hafa margar
þeirra birst í Iceland Review, Atlant-
ica og Storð. I fyrra gáfu Iceland Re-
view og Bókaforlag Odds Björnssonar
út bók meö ljósmyndum Max Schmid
frá Akureyri. Lítur hann nú á Island
sem sitt annað heimili.
Max Schmid er í Islandsmyndum
sínum ekki að skrásetja landslag, heid-
ur miklu frekar að uppgötva listrænan
áhrifamátt þess og festa á filmu. I ljós-
myndum hans erum við i heimi
hreinna forma og samræmdra lita,
engu síður en í skauti náttúrunnar.
Iceland — The Exotic North og Is-
land — Exotik des Nordens eru hann-
aðar af Gísla B. Bjömssyni og Fann-
eyju Valgarðsdóttur, setning var unnin
á Auglýsingastofunni hf. og litgrein-
ingar á Prentmyndastofunni. Bókin er
prentuöíHollandi.
Ferðaáætlun Ferðamiðstöðvarinnar
Meö hverju árinu sem líður verða
ferðamöguleikar fyrir Islendinga er-
lendis fleiri og aðgengilegri. Ferða-
miðstööin gaf nýlega út ferðabækling
sinn og kennir þar margra grasa. Sem
fyrr er Benidorm á Costa Blanca
ströndinni á Spáni ofarlega á blaði sem
vænlegur kostur fyrir alla fjölskyld-
una. Þar gefst líka færi á að gera ýmis-
legt auk þess að liggja í sólskininu;
bömin hafa tækifæri til aö komast i
vatnsrennibrautir, leiktækjasali, tí-
volí, dýragarð og á burtreiðar en hinna
eldri bíður f jörugt næturlíf, íþróttaiök-
un og margvíslegar skoðunarferðir.
Ferðamiöstöðin hefur líka upp á f jöl-
margt annað að bjóða svo sem ferðir í
sumarhús í Þýskalandi, flug og bíl í
Evrópu, sólarstrandardvöl á frönsku
Rívíerunni, grísku eyjunum, Itaiíu,
Marokko, Israel eða Flórída í Banda-
ríkjunum. Auk þess má nefna ævin-
týraferð til Suður-Ameríku, ensku-
námskeiö i Bretlandi, ferö með kanó
niöur lengstu ár Danmerkur og margt
fleira.