Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Síða 23
DV. MANUDAGUR 20. MAl 1985.
23
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Martröð nýliðanna -
sjö mörk á Akranesi
— íslandsmeistarar ÍA tóku Víði í kennslustund og sigruðu,
7:0. Skagamenn hefðu getað skorað mun fleiri mörk
Frá Sigþóri Elríkssyni, fréttamanni
DV ó Akranesi:
tslandsmeistarar Akraness tóku ný-
liðana, Viði frá Garði, i algera kennslu-
stund á Skaganum þegar liöin léku i 1.
deild íslandsmótsins í knattspyrnu á
föstudagskvöld. Þrátt fyrir að langt sé
liðið frá áramótum voru Skagamenn
með mikla flugeldasýningu og sigruðu
með sjö mörkum gegn engu. Yfirburð-
ir Skagamanna voru miklir og ef smá-
heppni hefði verið með meisturunum
hefði tveggja stafa taia litið dagsins
ljós.
Þrátt fyrir yfirburði Skagamanna
skoruðu þeir ekki mark fyrr en á 28.
mínútu leiksins. Arni Sveinsson skor-
aði markið með föstu skoti frá víta-
teigshorni. Fjórum mínútum síðar gaf
Karl Þórðarson þvert fyrir mark Víðis
og Sveinbjörn Hákonarson átti ekki í
neinum vandræðum með að renna
knettinum í netið, 2—0. Þriöja markið
var skorað þegar mínúta var eftir af
fyrri hálfleik. Sveinbjörn var aftur á
ferðinni eftir fyrirgjöf Arna Sveinsson-
ar. Staðan 3—0 í leikhléi.
Víðismenn héldu aðeins í við and-
stæöinga sína fyrstu mínútur síðari
hálfleiks en síðan kom skriðan. Skaga-
menn skoruöu f jögur mörk á aðeins sjö
mínútum.
Fallegasta mark leiksins var númer
f jögur hjá Islandsmeisturunum. Horn-
spyrna Arna Sveinssonar rataði beint
á koll Sigurðar Lárussonar og þrumu-
skalli hans hafnaði í netinu. Minútu
síðar, á 70. mínútu, vippaði Július Ing-
ólfsson knettinum yfir Gísla í Víðis-
markinu eftir fyrirgjöf frá Olafi Þórð-
arsyni. A 73. minútu kom sjötta mark-
ið. Karl Þórðarson lék þá á þrjá varn-
armenn Víðis og gaf fyrir á Hörð Jó-
hannesson sem átti ekki í neinum
vandræðum með að skora frá mark-
teig. Og þremur mínútum síðar kom
síðasta mark leiksins. Guöjón Þórðar-
son gaf þá fyrir á Hörð sem skoraði án
mikillar fyrirhafnar af markteig. Stað-
an7—0.
Þeir Sveinbjörn Hákonarson, Arni
Sveinsson og Olafur Þórðarson voru
bestir hjá Akranesi en Vilberg einna
skástur hjá slöku VikingsIiðL Leikinn
dæmdi Kjartan Olafsson og var góður.
Ahorfendur 1.060. Liöin voru þannig
skipuð:
Akranes: Birkir Kristinsson, Guðjón
Þorsteinsson, Heimir Guðmundsson,
Sigurður Lárusson, Jón Askelsson,
Karl Þórðarson, Sveinbjörn Hákonar-
son, Júlíus Pétur Ingólfsson, Hörður
Jóhannesson, Arni Sveinsson, Oiafur
Þórðarson.
Víöir: Gísli Heiðarsson, Helgi Sigur-
björnsson, Rúnar Georgsson, Einar
Asbjörn Olafsson, Olafur Róbertsson,
Sigurður Magnússon, Guðjón Guð-
mundsson, Vilberg Þorvaldsson, Sæv-
ar Júliusson, Grétar Einarsson og
Gísli Eyjólfsson.
Maður leiksins: Sveinbjörn Hákon-
arson, IA.
-SK.
• Frakklandsmeistarar Bordeaux 1984 og 1985. Fremsta röð frá vinstri. Hanini, Lippini, Lacombe, Giresse, fyrir-
liði, Muller, Martinez og Audrain. önnur röð. Michelena, þjálfari, Delachet, Tigana, Bourdoncle, Girard, Mémér-
ing, Zenier, Ruffier og Jacquet, þjáifari. Efsta röð. Rohr, Thouvenel, Specht, Trésor, Battiston, Domenech og Tuss-
eau. A myndina vantar Portúgalann Chalana en hann lék fáa leiki á leiktimabilinu vegna meiðsla.
Nice aftur í fyrstu
deild í Frakklandi
— Bordeaux hefur hug á breskum miðherja í stað Dieter Miiller
Frá Arna Snævarr, fréttamanni DV í
Frakklandi.
Nice, sem Albert Guðmundsson
gerði garðinn frægan hjá hér á árum
áður og varð bæði franskur meistari og
bikarmeistari með, liefur unnið sér
sæti í 1. deildinni frönsku á ný. Sigraði
uýlega í 2. deild. St. Etienne varð í öðru
sæti í sínum rlðll og þarf að leika um
sæti í 1. deild. Liðið er nú að fá snjallan
leikmann, Tony Kurbos, sem skoraði
þrjú mörk fyrir Metz í Evrópuleiknum
við Barcelona á Spáni þegar franska
liöið sló Barcclona út.
Frönsku meistararnir, Bordeaux,
eru nú að leita að nýjum leikmanni í
stað Þjóðverjans Dieter Miiller sem
vill hætta hjá félaginu. Aldurinn farinn
að segja til sín. Bordeaux hefur mest-
an áhuga á breskum miðherja og er aö
þreifa fyrir sér með Gary Lineker,
Leicester, Garth Crooks, Tottenham,
og Mark McGhee hjá Hamborg. Einnig
er annar leikmaður Hamborgar undir
smásjá Frakkanna, — Wiittke. Þá hef-
ur Bordeaux einnig fylgst náið með Da
Silva, landsliðsmanni í Uruguay, sem
leikur heima fyrir.
Það voru mikil vonbrigði fyrir Paris
Saint Germain að fá ekki franska
landsliðsmanninn Bossis frá Nantes til
sín. Hann valdi Racing Paris frekar en
að fara til þessa ríkasta félags Frakk-
lands. Paris SG hefur hins vegar feng-
ið tvo franka landsliðsmenn, mark-
vörðinn Bats frá Auxerre og Biard frá
Nantes. Fyrrum landshðsþjálfari
Frakklands, Michel Hidalgo, sem hef-'
ur tekið við stjórninni hjá Paris SG hef-
ur hug á að gjörbreyta liði félagsins.
Auk þeirra tveggja, sem hann hefur
fengið, er hann að reyna að fá þrjá
aðra fræga kappa, Le Roux frá
mónakó, Poullain frá Nantes og Lowitz
frá Metz.
hsím.
Valdi Leeds
f rekar en WBA
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV á Englandi.
Leeds Utd. keypti nýlega Ian Snodin,
frá Doncaster Rovers í 3. deild, fyrir
200 þúsund sterlingspund. Það kom
talsvert á óvart að Snodin valdi Leeds
því Johnny Giles, stjóri WBA og fyrr-
um leikmaður Leeds, reyndi mjög að
fá hann til sín. Billy Bremner, fyrrum
fyrirliði Leeds, er stjóri Doncaster og
hefur eflaust haft áhrif á ákvörðun
leikmannsins auk þess sem Doncaster
er skammt frá Leeds í Yorkshire.
Hins vegar er hinn snjalli skoski
landsliðsmaður hér áður fyrr, Frank
Gray, á förum frá Leeds. Stjóri Leeds
er enginn annar en bróðir hans, Eddie,
og þeir náðu ekki samkomulagi um
kaupgreiðslur Franks.
Annar kunnur kappi er einnig að
skipta um félag — David Moss og hefur
fengið frjálsa sölu frá Luton Town þar
sem hann hefur leikið við góðan orðstír
mörg undanfarin ár. hsím.
Gáfu bæði
út plötur
— og lag Everton var
vinsælla
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV á Englandi.
Úrslitaliðin í ensku bikarkeppninni,
Everton og Man. Utd., gáfu bæði út
hljómplötu fyrir úrslitaleikinn sem
leikmenn Ilðanna sungu inn á. 'PIata
Everton bar nafnið Here we go en
plata Man. Utd. nefndist We all follow
Man. Utd. Þær urðu strax mjög vinsæl-
ar. A vinsældalistanum breska í síð-
ustu viku var lag Everton í 32. sæti —
lag Man. U td. í 35. sæ ti. hsim.
LAUGAVEGI49
S,Ml 23876. ^
TILKYNNA
Um helgina háðum við heil-
mikla orrustu við pappakassa og
innréttingar: fluttum heila búð og
allt tilheyrandi á 2 dögum. Nánar
tiltekið þá fluttum við Spörtu úr
Ingólfsstræti 8 og sameinuðum
hana Spörtu á Laugavegi 49.
Þannig er nú öll okkar starfsemi
á einum stað, Laugavegi 49. Við
viljum þakka fjölmörgum, vonandi
ánægðum viðskiptavinum, sem
hafa, í gegnum tíðina, lagt leið sína
til okkar í Ingólfsstræti 8 og bjóðum
ykkur öll velkomin i Spörtu,
Laugavegi 49, og vonumst til þess
að sjá ykkur sem oftast í framtíð-
inni. Þjónustan verður áfram sem
hingað til ekkert vandamál. Vöru-
valið verður áfram jafngott og enn
betra og meira á næstunni. Við
bjóðum öll vinsælustu vörumerkin
á markaðnum: Adidas, Don Cano,
Henson, Hummel, H20, Krazle,
Patrick, Select, Speedo, Tigero.fl.
Sömu símanúmerin, 12024 og
23610 og sama búðin, nú á einum
stað. Ævinlega innilega velkomin.
VASA
EUROCARD
Póstsendum.
SPORTVÖRUVERSLUNIH
Laugavegur 49, simi 23610. 12024
OPIÐ LAUGARDAGA.