Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Side 26
*
26
DV. MANUDAGUR 20. MAI1985.
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Enn möguleiki Coventry
að halda sæti í 1. deild
Celtic bikar-
meistari
Celtic varö skoskur bikarmeist-
ari í 27. sinn á iaugardag þegar liö-
iö sigraði Dundee Utd. 2—1, í úr-
slitaleiknum á Hampden Park í
Glasgow. 100. úrslitaleikurinn í
skosku bikarkeppninni og áhorf-
endurvoru 60.346.
Lengi vel stefndi i sigur Dundee-
Uðsins. Stuart Beedie skoraöi á 54.
min. en þaö snerist heldur betur á
síðustu 13. mínútunum. Þá skoraði
Celtic tvívegis. Davie Provan jafn-
aöi á 77. mín. og Frank McGarvey
skoraði sigurmarkið á 84. mín.
Leikurinn var lengi vel heldur slak-
ur og það var ekki fyrr en eftir
fyrsta markið að talsvert lif færðist
í hann. hsím.
Gott hlaup
Erlings
Grlingur Jóhannsson, Kópavogi,
landsliðsmaöur i spretthlaupum,
hljóp síöastliöinn þriðjudag 800 m á
1:54,1 min. i Osló. Erlingur bætti
Kópavogsmet Þórðar Guðmunds-
sonar 1:57,8 mín. frá 1968. 1 fyrra
setti hann Kópavogsmet i 100 m
11,0 sek., og 400 m, 49,09 sek. Er-
lingur er kominn i hóp 25 bestu 800
m hlaupara landsins frá upphafi.
Um páskana æfði hann með
íþróttafélaginu Tjavle i Osló í
Portúgal. Hann keppir væntanlega
í sumar á norska meistaramótinu. j
— sigraði Stoke á föstudagskvöld og þarf að sigra í tveimur
síðustu leikjum sínum. Liverpool stef nir á annað sætið
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV á Englandi:
Coventry heldur enn i vonina að
halda sér i 1. deild í ensku knattspyrn-
unni eftir 0—1 sigur i Stoke á föstu-
dagskvöld en til þess þarf liðið að sigra
í báðum leikjunum sem það á eftir —
gegn Everton og Luton í Coventry.
Ekkert nema sigrar i þessum leikjum
bjargar Coventry. Liðið er fimm stig-
um á eftir Norwich sem hefur lokið
leikjum sínum. Það er Stuart Pearce
sem skoraði mark Coventry í Stoke úr
vítaspyrnu á 65. min. Eftir leikinn var
írska landsliðsmanninum Sammy Mc-
Ilroy gefin frjáls sala frá Stoke. Man.
City hefur þegar sett sig i samband við
hann en Mcllroy býr enn við Manchest-
er þar sem hann lék um langt árabil
með Man.Utd. — Mcllroy var af að-
dáendum Stoke kjörinn besti leikmað-
ur liðsins á þessu leiktímabili. Liöið
hlaut aðeins 17 stlg sem er minnsti
stigafjöldi sem lið hefur fengið í 1.
deild.
West Ham bjargaði sér frá fallinu á
föstudag með sigri í Ipswich. Tony
Cottee skoraöi eina mark leiksins. Úr-
slit á föstudagskvöld urðu þessi.
l.deild
Ipswich-WestHam 0—1
Liverpool-Watford 4—3
Stoke-Coventry 0—1
Tottenham—Nottm.For 1—0
3. deild
Gillingham—Wigan
Swansea-Bristol City
4. deild
Aldershot-Rochdale
5-1
0-0
5-0
Swansea hélt sæti sínu í 3. deild með
stiginu gegn Bristol City. Burnley féll.
John Bond var rekinn frá Burnley í
vetur og tók þá við stjórninni hjá Swan-
sea í nær vonlausri stöðu.
Sjömörká Anfield
Aðalleikurinn á föstudagskvöld var
í Liverpool. Watford skoraði tvö fyrstu
mörkin, sjálfsmark Beglin og síðan
Colin West. Þá fóru Liverpool-vélin í
gang á Anfield. Liðiö skoraði næstu
m
Sammy McDroy — til Man. City?
fjögur mörk. Rush og Dalghlish jöfn-
uðu í 2—2, á 59. mín. náði Rush svo for-
ustu fyrir Liverpool. John Wark skor-
aöi f jórða mark liðsins úr vítaspyrnu.
John Bames þriðja mark Watford.
Mark Falco skoraði eina markið í
leik Tottenham og Forest og við sigur-
inn komst Tottenham upp fyrir Man.
Utd. hefur 78 stig en United 77 stig.
Liverpool getur enn hæglega náð öðru
sætinu. Hefur 73 stig. hsím.
Tveggja stiga forskot
Bayem
3 leikir eftir
Það leit ekki vel út hjá Bayern Mun-
chen í leik liðsins gegn Bayer Lever-
mikil spenna á toppi Bundesligunnar í vestur-þýsku knattspymunni.
Lárus Guðmundsson skoraði fyrir Uerdingen
i
Stærðir: 27 — 38.
Litir: blár
rauður.
Verð kr.
990,-
Rio.
leðurskór.
Stærðir: 31 —43.
|| Litir:
hvitur/blár.
Verð kr.
890-990,-
® ASTUflD ®
SPORTVÖRUVERSLUN
Háaleitisbraut 68
Sími 8-42-40 æ-?
Austurver
kusen í vesturþýsku Bundesligunnl í
knattspyrnu á laugardag. Norbert
Nachtweih mlsnotaði vítaspyrnu á 26.
mínútu og tólf minútum síðar skoraði
Bayer Leverkusen. Norbert Eder jafn-
aði fyrir Bayern og Holger Willmer
skoraði síðan sigurmarkið. Bayem
hefur því tveggja stiga forystu í deild-
inni á næsta lið, Werder Bremen.
Aðalkeppinautar Bayern Munchen,
Werder Bremen, léku á föstudags-
kvöld og tóku þá Kaiserslautern í
kennslustund, sigraði 6—1, og eru að-
eins tveimur stigum frá efsta sætinu
þegar þrjár umferðir eru eftir.
FC Köln er í þriöja sæti með 39 stig
en úrslit í öðrum leikjum um helgina
urðu þessi:
Mannheim — Hamburger
Dortmund — Frankfurt
Bielefeld — Braunsweig
Bayer Uerdingen — Karlsruhe
Stuttgart — Mönchengladbach
Köln — Bochum
Diisseldorf — Schalke
3-1
2-1
3-2
3-0
2-3
2-1
1-2
A þessum úrslitum má sjá að
frammistaða Islendingaliðanna var
ekki til að hrópa húrra fyrir. Aðeins
Lárus Guðmundsson og félagar hans
hjá Bayer Uerdingen unnu sigur. Lár-
us Guðmundsson lék allan leikinn og
skoraöi fyrsta markið fyrir Uerdingen.
Staöan í deildinni er þannig eftir leiki
helgarinnar:
Bayern Munchen
WerderBremen
Cologne
Borussia
Mönchengladbach
BayerUerdingen
Hamburg
Waldhof Mannheim
Schalke
Bochum
Stuttgart
Bayer Leverkusen
Eintracht Frankfurt
Borussia Dortmund
Kaiserslautern
Fortuna Dusseldorf
Arminia Bielefeld
Karlsruhe
Eintracht Braunsweig
31 18 8 5
31 16 10 5
31 18 3 10
31 14 8
31 14 8
31 13 9 9
31 12 11 8
31 12 7 12
30 10 10 10
31 13 4 14
31 8 12 11
31 9 10 12
31 12 4 15
30 8 11 11
31 8 9 14
31 6 13 12
31 4 11 16
31 8 2 21
71 38 44
83 48 42
62 52 39
I 70 48 36
l 55 43 36
55 46 35
44 45 35
59 58 31
47 46 30
73 55 30
45 45 28
57 63 28
47 59 28
39 54 27
49 63 25
41 58 25
42 80 19
37 75 18
-SK.
Glæsimark Sævars
tryggði Val sigur
1 skemmtilegum sóknarleik Vals og
Þróttar í 1. deild á föstudagskvöld í
Laugardalnum fór Valur með
sanngjarnan sigur af hólmi, 2—1, eftir
að Þróttur hafði lengi haft forustu í
leiknum. Valsliðið var talsvert breytt
frá 1. umferðinni, Hilmar Sighvatsson
með á ný og heildarsvipur á leik liðsins
var mun betri. Hins vegar gekk Vals-
mönnum lengi vel illa að brjóta niður
mjög öfluga vörn Þróttar.
Það var talsvert um færi í leiknum
en fyrstu tvö mörkin voru skoruð eftir
mikil vamarmistök. A16. mín. skoraði
Þróttur, þegar engin hætta virtist til
staöar. Langspyrna fram völlinn. Guð-
mundur Kjartansson virtist eiga
auðvelt með að ná knettinum en missti
hann klaufalega framhjá sér. Páll
Olafsson fylgdi á eftir og skoraði
örugglega h já Stefáni Arnarssyni.
Þróttur varð fyrir því áfalli að
missa tvo snjalla leikmenn út af vegna
meiðsla, fyrst Pétur Arnþórsson og
síðan Jóhann Hreiðarsson á 59. mín.
Aðeins fjórum mínútum síðar fékk
Þróttur á sig mark. Kristján Jónsson,
sem hafði komið inn á sem varamaður,
hitti knöttinn illa og hann barst inn í
vítateiginn. Þar kom Guðmundur Þor-
bjömsson á fullri ferð og skoraöi.
Þróttur var þrisvar nærri því að ná
forustu á ný á næstu mínútum. Páll
tvívegis við að sleppa í gegn en
bjargað frá honum í horn og Jóhannes
Eðvaldsson átti skalla framhjá. Það
var dýrt fyrir Þrótt því á 76. mín.
skoraöi Sævar Jónsson sigurmark Vals
— gull af marki — eftir hornspymu
Hilmars. Þrumufleygur. Eftir markið
opnaðist vörn Þróttar illa, þegar leik-
menn liðsins reyndu að rétta sinn hlut.
Valur Valsson og Hilmar fóm þá illa
með opin færi við Valsmarkiö.
1 heild nokkuö skemmtilegur leikur.
Guömundur Þorbjömsson, Hilmar,
Guðni Bergsson og Magni Pétursson
(sem bakvörður) góðir í liði Vals en
hjá Þrótti vom vamarmennimir
lengstum bestir. Arsæll Kristjánsson
besti maður á vellinum, Jóhann góður
meðan hann var inni á, og Búbbi þétti
mjög vömina lengstum þó að hann léki
sem framvöröur. Mikiö í honum
ennþá. Páll alltaf hættulegur þó
æflngin í knattspyrnunni sé ekki mikil.
Liðin vom þannig skipuð.
Valur. Stefán, Öm Guömundsson,
Þorgrímur Þráinsson, Guðmundur
Kjartansson, Sævar Jónsson, Magni,
Guðni, Hilmar, Guðmundur Þor-
björnsson, Valur og Ingvar Guömunds-
son. Þróttur. Guðmundur Erlingsson,
Nikulás Jónsson, Loftur Olafsson, Ar-
sæll, Pétur (Amar Friöriksson 28.
mín.) Jóhann (Kristján 59. mín.),
Jóhannes, Páll, Daði Harðarson,
Sverrir Pétursson og Birgir
Sigurðsson. Dómari BaldurScheving.
Maður leiksins. Ársæll Kristjáns-
son, Þrótti.
-hsím.