Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Qupperneq 40
40
DV. MANUDAGUR 20. MAl 1985.
Valgerður Hinrlksdóttir frá Eskifirði
lést 8. maí sL Hún fæddist á Eskifirði
þann 18. febrúar árið 1901. Foreldrar
hennar voru hjónin Guðný Arnadóttir
og Hinrik Hallgrímsson. Valgerður
giftist Brynjólfi Þórðarsyni, en hann
lést árið 1964. Þeim varð ekki bama
auðið. Utför Valgerðar var gerð frá
Fossvogskirkju í morgun.
Margrét Einarsdóttir lést 9. maí sl.
Hún var fædd á Grænhóli, Alftanesi,
24. nóvember 1899. Foreldrar hennar
voru Einar Guðmundsson og Guðfinna
Bjarnadóttir. Margrét var aldrei gift
en eignaðist einn son. Utför hennar
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag
kl. 15.
Bergþór Vigfússon, fyrrum trésmíða-
meistari, andaðist að Droplaugarstöð-
um 17. maí.
Guðmundur Albert Þórarinsson,
Stangarholti 36, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 21.
maíkl. 13.30.
Guðmundur Magnússon, Dalbraut 23,
verður jarðsunginn frá Laugarnes-
kirkju miðvikudaginn 22. maí kl. 13.30.
Sesselja Guðrún Sveinsdóttir frá Pat-
reksfirði, er lést á Hrafnistu 11. maí
sl., verður jarðsungin frá Fossvogs-
kapellu þriðjudaginn 21. maí kl. 10.30.
Arnþrúður Daníelsdóttir frá Hallgils-
stöðum lést 11. maí. Otför hennar fer
fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
21.maí kl. 15.
(Guðjónia) Þóra Kristinsdóttir, Boga-
hlíð 7, andaöist í Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund aö morgni 16. maí.
Þórður Magnússon, Sólvallagötu 53
lést á uppstigningardag, 16. maí.
Jón Einarsson bóndi, Vestri-
Garðsauka, lést fimmtudaginn 16. maí.
Þuríður Arnadóttir frá Hurðarbaki
andaðist í Ljósheimum Selfossi 15. maí
si.
Jóna Bjarney Jónsdóttir, ekkja Valdi-
mars össurarsonar kennara, lést í
Hafnarbúðum fimmtudaginn 9. maí
1985. Jarðarförin hefur farið fram.
Margrét Gissurardóttir ljósmóðir and-
aðist í Landspítalanum að morgni 17.
maí.
Viftureimar, piatínur, kveikju-
hamar og þéttir, bremsuvökvi,
varahjólbarði, tjakkur og
nokkur verkfæri. Sjúkrakassi
og slökkvitæki hafa hjálpaö
mörgum á neyðarstundum.
«IX
FERÐAR
Um helgina
Um helgina
Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona:
Verðum að standa vörð
um menningu okkar
Það er mest ágætt um útvarpiö að
segja. Sérstaklega vil ég nefna
morgun- og síðdegisútvarp á rás 1. Þú
spyrð mig hvað ég gerði ef ég sæti í
stól útvarpsstjóra. Eg byði út verk á
vegum útvarps og sjónvarps, leikrit
og þætti ýmiss konar. Við eigum mik-
iö af hæfileikafólki, innan sem utan
ríkisútvarpsins, sem full ástæða er
til að nýta betur. Ég er viss um að
með þess konar fyrirkomulagi feng-
ist bæði meira og fjölbreyttara efni.
Þó við viljum auðvitað ekki
einangrast þá verðum viö aö standa
vörö um menningu okkar svo að við
getum áfram haft eitthvað að segja á
þeim vettvangi. Við verðum líka að
átta okkur á því sjálf hve við stönd-
um höllum fæti, sérstaklega í seiiini
tíð, þegar fjölþjóðamenning streym-
ir yfir okkur úr öllum áttum. Þaö er
auðvitaö auðveldara og ódýrara að
kaupa tilbúnar kvikmyndir erlendis
frá og halda úti heilli rás hjá ríkisút-
varpinu sem spilar svo til eingöngu
erlenda tónlist en við verðum að
passa okkur á þessari sefjun. Hún
gæti þýtt að viö týndum niður því
semviðeigumsjálf.
Flosi er týndur
Fresskötturinn Flosi hvarf fimmtudags-
kvöldið 16. maí frá heimiii sínu aðFreyjugötu
38. Hann er alsvartur og ólarlaus. Þeir sem
eitthvað vita um ferðir Flosa hringi
vinsamlegast í síma 12016.
Minning Jónasar Jónssonar
heiðruð
Bæjarráð Húsavíkur og sýslunefnd
Suður-Þingeyjarsýslu komu saman til
funda hinn 30. apríl sl. A fundum þess-
um var samþykkt í tilefni aldarafmæl-
is Jónasar Jónssonar frá Hriflu hinn 1.
maí að heiðra minningu hans með því
aö gefa annars vegar Héraðsbóka-
safninu á Húsavík og hins vegar
Lestrarfélaginu í Kinn í Ljósavatns-
hreppi peningafjárhæðir til bóka-
kaupa.
Opnunartfmi sundstaða
A fundi borgarráös 30. apríl voru samþykktar
tillögur um breyttan opnunartima sundstaöa i
Reykjavík.
I sumar verða sundstaðimir opnir sem hér
SUNDHÖLLIN.
Mánudaga — föstudaga
(virka daga) 7.00-20.30.
Laugardaga 7.30—17.30.
Sunnudaga 8.00—14.30.
Sumartimi frá 1. júni—1. september.
Morgunopnun tekur gildi 2. maí.
SUNDLAUGARNAR
ILAUGARDAL
Mánudaga—föstudaga
(virka daga) 7.00-20.30.
Laugardaga 7.30-17.30.
Sunnudaga 8.00-17.30.
Sumartimi frá 2. mai —15. september. SUNDLAUG VESTURBÆJAR. Mánudaga—föstudaga
(virkadaga) 7.00-20.30.
Laugardaga 7.30-17.30.
Sunnudaga SUNDLAUG FB IBREIÐHOLTI. Mánudaga—föstudaga 8.00-17.30.
(virka daga) 7.20-20.30.
Laugardaga 7.30-17.30.
Sunnudaga 8.00-17.30.
Sumartimi frá 2. maí—31. ágúst.
Sérstök athygli er vakin á að opnað verður kl.
7.00 á morgnana í Sundhöllinni, Sundlaug
vesturbsjar og i Sundlaugunum i Laugardal.
Sundlaugamar í Laugardal, Sundlaug vestur-
bæjar og Sundlaug FB i Breiðholti verða
opnar til kl. 17.30 á laugardögum og sunnu-
dögum. Sundhöllin verður opin til kl. 17.30 á
laugardögum og kl. 14.30 á sunnudögum.
Lokunartimi er miðaður við þegar sölu er
hætt en þá hafa gestir 30 minútur áður en
visaðeruppúrlaug.
Opið hús hjá
Samhjálp kvenna
Samhjálp kvenna hefur „opið hús” mánudag-
inn 20. maí kl. 20.30 í húsi Krabbameinsfélags-
insviðSkógarhlíð.
Gestur fundarlns er Ami Bjömsson, sér-
fræðingur í lýtalsknlngum. Mun hann fjalla
um brjóstaaðgerðir.
Kaffiveitingar.
Frá Rannsóknastofnun
uppeldismála
Þriðjudaginn 21. mai flytur Einar Guðmunds-
son Úffræðingur erindi um HEILASTARF OG
,,
Leiðinlegt, að ég skuli ekki vera
vinkona nýja sölustjórans, þá
hefði hann kannski hringt í
mig...
Maríanna Friðjónsdóttir, Alþýðuflokki:
„Enga trú á að þetta séu
raunverulegar tölur”
„Það er ekki hægt að túlka þetta
öðruvísi en fólk sé ánægt með stjórn
sjálfstæðismanna í borgarmálum,”
sagði Maríanna Friðjónsdóttir hjá
Alþýðuflokknum í morgun, kannski
Islendingar séu svona mikið fyrir
einræðisstjóm?”
„Auðvitað er alltaf leiðinlegt þegar
flokkurinn dettur svona niður en samt
hef ég nú enga trú á því að þetta séu
raunverulegar tölur. Þið hafið kannski
óvart hitt í sjálfstæðishverfið í borg-
inni,” sagði Maríanna Friðjónsdóttir
aðlokum.
Ekki tókst að ná í borgarfulltrúa né
varaborgarfulltrúa Alþýðuflokksins í
morgun né heldur formann hans og
varaformann. -hhei.
Gjöf til augndeildar
St. Jósef sspítala,
Landakoti
Oddfellow stúkan „Þórsteinn” nr. 5 átti 50
ára afmæli 14. febrúar 1985. Stúkubræður
minntust afmælisins með rausnarlegri gjöf til
augndeildarSt. Jósefsspítala, Landakoti.
Gjöfin er skurötæki sem gerir kleift að
framkvæma, meö aðstoð smásjár, aðgerð
inni i auga, sem ekki var hægt áöur en þessi
tæki komu til sögunnar. A þetta einkum við
þegar blætt hefur í glervökva augans. Einnig
til að skera á samvexti og strengi inni i auga,
sem valda blindu ef ekki er að gert. Algeng-
asta aðgerðin á augndeildinni er svonefnd
drer aðgerð, en hún er fóigin í því að nema
burt ógagnsæjan augastein. A slN ári voru
gerðar 210 sh'kar aðgerðir á augndeild Landa-
kotsspftala. Eru þessi tæki mikið notuð viö
sllkar aðgerðir.
St jórn spítalans þakkar veglega g jöf sem er
stórt framlag til sjónvemdaimála í landinu.
Myndin er tekin er Oddfellow bræðumir
Gunnar Petersen, Ottar Oktosson, Grétar
Hjartarson, Olafur Jónsson og Sveinn Kragh
afhentu yfirlækni augndeildar St. Jósefsspít-
ala, dr. med. Guðmundi Bjömssyni, skurðtækin.
Grófar-rall:
Bjarmi og
Birgir unnu
Bjarmi Sigurgarðarsson og Birgir
Halldórsson sigruðu í Grófar-rallinu
sem fram fór á Suðurnesjum um helg-
ina. Þeir kepptu á Talbot-Lotus bíl.
Bræðurnir Omar og Jón Ragnarssynir
urðuíöðrusæti. -JH.
HUGSUN í gamla Kennaraskólahúsinu við
Laufásveg kl. 16.30.
Kynntar verða nokkrar hugmyndir um
heilastarf mannsins. Fjallað verður um
skólastarf í ljósi þessara hugmynda.
öllum heimill aðgangur.
Trúnaðarbréf
afhent
Hinn 29. apríl 1985 afhenti Páll Ásgeir
Tryggvason sendiherra Erich Honecker for-
seta þýska alþýöulýðveldisins trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra Islands í þýska alþýðulýð-
veldinu meðaðsetur íMoskvu.
Kiwanisklúbburinn
Setberg 10 ára
Kiwanisklúbburinn Setberg í Garðabæ er 10
ára um þessar mundir. Klúbburinn bauð í til-
efni afmælisins öldruðum Garðbæingum á
Hryllingsbúðina og fór 50 manna hópur á sýn-
inguna. Meginverkefni klúbbsins, sem ann-
arra kiwanisklúbba landsins, er að stuðla og
styrkja félagsstarfeemi og vinna að bættu sam-
félagi í bæjarfélagi sinu. Setberg hefur aöal-
lega styrkt æskulýösstarfsemi í sínum heima-
bæ á starfsferli sínum. Klúbburinn fékk til af-
nota fyrir nokkrum árum gamlan leikskóla
við Faxatún. Félagar hafa lagt mikla vinnu í
stækkun og endurbætur á húsnæðlnu en þar
fer öll starfcemi klúbbsins fram. Núverandi
forseti Setbergs í Garðabæ er Þórir Bjöms-
son.
Tilkynningar
Tapað - fundið
Bikarinn í traustum höndum
Dagskrá ríkisfjölmiðlanna er all-
stööluð um helgar. Þó breytist dag-
skráin öðru hverju, til dæmis þegar
gullmola eins og beinar útsendingar
frá knattspymuleikjum rekur á fjör-
ur áhugamanna um knattspymu. Að
þessu sinni var það „dramatískur”
leikur Everton gegn Manchester
United þar sem United sigraði glæsi-
lega eftir frekar misheppnað sóló hjá
dómaranum er hann rak Moran af
leikvelli.
Ég hef þá skoðun að meirihluti
þjóðarinnar fylgist með slíkum leikj-
um þó að það hafi komið f ram í skoð-
anakönnun að ekki nema 12% þjóðar-
innar hafi fylgst með íþróttum er sú
ákveðna skoðanakönnun var gerð.
Þegar maður sér slíka firru fara
skoðanakannanir að vera tortryggi-
legar.
Með hækkandi sól minnkar fjöl-
miðlanotkun Islendinga. Farið er að
velja úr áhugaverða þætti. Hótel
Tindastóll er auðvitaö á listanum svo
og ýmislegt annað. A laugardaginn
var þáttur með gestum Bryndísar.
Að þessu sinni frekar litlaus þáttur ef
undan er skilinn fatnaður Dóm
Einarsdóttur sem lifgaöi þáttinn
upp. Kvikmyndin var áfallalaus og
óspennandi en gaman aö sjá þessa
frægu gömlu leikara troða upp.
Utvarpið er með hressilegan
fréttaflutning um þessar mundir,
enda margt að gerast í þjóðlífinu.
Fréttaritarar hafa verið virkjaöir á
landinu og er það vel. Nauðsynlegt
að raddir landsbyggðarinnar heyrist
líka.
EJ