Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1985, Síða 48
FR ETTASKOTIÐ Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu efia vitneskju um frétt — hringdu þá i síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krénur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið í hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. MÁNUDAGUR 20. MAÍ1985. Sigurjón Pétursson, Alþýðubandalagi: LÍTIÐ RÚM í FJÖLMIÐLUM ÁSTÆÐAN Skoðanakannanir sem voru gerðar stuttu fyrir síðustu borgarstjómar- kosningar voru svipaöar þessum niðurstöðum,” sagði Sigurjón Péturs- son, borgarfulltrúi Alþýðubandalags- ins, um niðurstööurnar. ,,Það er erfitt aðleggja dóm á skoð- anakannanir og auðvitað eru þær aö mörgu leyti marktækar. Mín skoðun eru sú aö sérstaklega Alþýðubandalag- ið komi alltaf lakar út í skoðanakönn- unum en í kosningum. ’ ’ „Ástæðan er að Alþýðubandalagið fær lítið rúm í fjölmiðlum nema fyrir kosningar þegar lögskipað jafnrétti er í ríkisfjölmiðlunum og viö komum okk- ar skoðunum á framfæri. Þegar við fáum að njóta jafnréttis á við aðra í fjölmiölum þá hafa okkar skoðanir unnið á. Eg hygg að svo verði líka raunin áfram,” sagði Sigurjón Péturs- son. -ÞG Stefán Benediktsson, Bandalagi jafnaðarmanna: „ÝTIRKANNSKI UNDIR FRAMB0D” „Ég segi það nú ekki að menn takist á flug á 1,7 prósenti,” sagði Stefán Benediktsson, þingmaður Bandalags jafnaöarmanna, um niðurstöður skoð- anakönnunar DV. Bandalag jafnaöar- manna hefur ekki boðiö fram í borgar- stjórnarkosningum og að sögn Stefáns hefur ekki verið tekin ákvörðun um framboö Bandalagsins í bogarstjórn- arkosningum. „Það ræðst væntanlega í sumar,” sagði hann. Bandalagið hefur ekki tekið þátt í viöræðum um sameiginlegt framboð með vinstri flokkunum í borgarstjóm. „Það kemur á óvart að við fáum eitthvert fylgi þegar ekki er vitað hvort við bjóðum fram eða ekki en þessar niöurstöður ýta kannski undir framboð Bandalags jafnaöarmanna í næstu borgarstjómarkosningum,” sagði Stefán Benediktsson, þingmaður Bandalagsins í Reykjavík. -ÞG LOKI Það þarf ekki að kjósa í borg Davíðs! Afgreiðsla lánsfjárlaganna: EKKIFYRR EN IVIKUL0KIN Fjármálaráðherra sagöi í viðtali í. DV í fyrradag aö hann vonaðist til að lánsfjárlög yrðu afgreidd á Alþingi í vikunni. Sú óvenjulega staða blasir við að liönir em tæpir fimm mánuðir af þeim tíma sem lánsfjárlögin ná yfir. Frá haustdögum þegar þau vom samin hefur margt breyst og eins síðan fjármálaráðherra mælti fyrir lánsfjárlögum 6. febr. sl. í efri deild. Lánsfjárlög voru fýrir skömmu af- greidd í fyrri þingdeildinni en eru nú til umfjöllunar í fjárhags- og við- skiptanefnd neðri deildar. „Ég á ekki von á því að við af- greiðum málið fyrr en um miöja viku,” sagði Friðrik Sophusson, varaformaður þeirrar nefndar, er hann var spurður um gang málsins. Eitt þeirra mála sem gerir mönn- um erfitt fyrir með að afgreiða láns- fjárlög er hin mikla fjárþörf til hús- byggjenda. Af þremur fjármögn- unarleiðum sem hægt er að fara til aö mæta þeirri fjárþörf er að taka erlend lán. Virðist sá kosturinn helst blasa við. Þingflokkur sjálfstæðismanna mun taka þetta mál fyrir á fundi sin- um í dag. -ÞG Komið með slasafla sjómanninn ð Borgarspitalann i gær. DV-mynd S. Þyrla sótti slasaðan Rússa Um kl. 2 í fyrrinótt barst Slysavama- félaginu hjálparbeiðni frá rússneska skipinu Ostrys. Skipið, sem var statt 240 sjómílur suðvestur af Reykjanesi, var með slasaðan mann um borð. Þyria vamarliðsins hélt áleiöis að skipinu en þegar þangað kom var skollin á svarta þoka svo hún varð frá að hverfa. Rétt fyrir hádegi í gær fór þyrla aftur á staöinn og tókst að ná hin- um slasaöa um borð í hana. Var lent við Borgarspítalann um kl. hálfþrjú í SENDIHERRA KEMURILAX Bandaríkjamenn útnefna íslandsvin tilaðtakaviðaf Brement Ronald Reagan Bandarfkjaforseti hefur útnefnt Nicholas Rowe sendi- herra á Islandi. Hann á að taka við af Marshall Brement. „Eg vissi fyrst af þessu þegar Reagan forseti hringdi í mig þegar ég var í frii á Florida fyrir fjórum vikum,” sagði Rowe í samtali við DV frá Washington. „Eg tel þetta mikinn heiður og er mjög ánægður. Eg hef komið til Is- lands á hverju ári í aldarfjórðung til að veiða lax og er vinur og nágranni íslenska sendiherrans í Washington. Þetta var min fyrsta ósk í samræð- um við Hvíta húsið og utanríkisráðu- ney tið að f á að f ara til Islands. ’ ’ Rowe (borið fram ráí) var starfs- mannastjóri Nixons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, frá 1980 til 1984 en það er opinber staða því allir fyrr- verandi forsetar fá að halda starfs- mannastjóra sem ríkið borgar. Sendiherrann tilvonandi býr nú í höfuðborginni Washington D.C. Hann situr um þessar mundir marga fundi í utanríkisráðuneytinu bandar- íska þar sem verið er að kynna honum verkefnin sem hann mun tak- astáviðhérálandi. Nicholas Rowe vann áður hjá utan- ríkisráðuneytinu, frá 1969 til 1975, sem aðstoðarprotokollstjóri. Sem slíkur kom hann til Islands í sendi- nefnd Bandaríkjanna til útfarar Bjarna Benediktssonar forsætisráð- herra. Rowe segist hlakka til að koma til Islands, ekki síst með tilliti til lax- veiðanna. Hann hefur undanfarin tvö sumur veitt í Laxá í AöaldaL -Þ6G Davíð Oddsson, Sjálfstæðisflokki: „Virðast hag- stæðartölur” „Ég legg aðaláherslu á að vinna kosningar, tel minna um vert að vinna skoðanakannanir,” sagði Davíð Oddsson, borgarstjóri og oddviti Sjálf- stæðismanna í Reykjavík, er niður- stöður skoðanakönnunar DV voru bornarundirhann. „Ot af fýrir sig eru þetta jákvæðar tölur þó að athygli veki hve margir eru óákveðnir. Þetta virðast hagstæðar tölur.” „Eg held að Reykvíkingar vilji að málin séu tekin föstum tökum og flokkapólitik látin lönd og leið, sem er skynsamlegt. Það er mikið að gerast í Reykjavík nú og margt í farvatninu,” sagðiborgarstjórinn. -ÞG. Krístján Benediktsson, Framsóknarflokki: „Bervottum hægri sveiflu” „Þessi skoðanakönnun ber greini- lega vott um mikla hægri sveiflu,” sagði Kristján Benediktsson, borgar- fulltrúi Framsóknarflokksins. „Við vorum reyndar með 9% í könn- un sem gerö var fyrir tveimur mán- uðum og erfitt að leggja mat á þá breytingu sem veröur í þessa átt á sama tíma og ekkert hefur gerst í borgarmálunum. „Eg hef enga trú á öðru en Fram- sóknarflokkurinn sé öruggur með 1—2 borgarfulltrúa í Reykjavík. Að vísu, ef fram koma ný framboð á vinstri vængum, þá koma þau til með að taka hvert frá öðru,” sagði Kristján Benediktssonaölokum. hhei. IngibjörgSólrún Gísladóttir, Kvennaframboði: „Okkartap ekki sláandi” gærdag. Maðurinn var með áverka á brjóst- og kviðarholi. Hann mun hafa orðið undir fiskikössum í lest. Líðan hans er góðeftir atvikum. -ÞJV „Það er auövitaö erfitt að túlka þessar niðurstöður svona við fyrstu sýn, en óneitanlega er sláandi hvaö fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins er mikil,” sagði Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, borgarfulltrúi Kvennafram- boðsins. „Hluti óákveðinna og þeirra er ekki vildu taka afstöðu er stór í könnuninni og líklegt að það fólk hafi ekki enn gert upp sinn hug gagnvart minnihluta- flokkunum og þeim stefnumun er á milli þeirra ríkir, annars er okkar tap ekki sláandi miðað við gífurlega fylgis- aukningu Sjálfstæðisflokksins. Eg á bágt með að trúa því að borgarbúar taki svona afstöðu, meirihlutinn verðskuldar þetta ekki ef þessi er raunin,” sagöi Ingibjörg Sólrún að lokum. -hhei. Malaga- fanginn laus , i i Islenski pilturinn, sem setið hefur inni í fangelsi á Malaga á Spáni um níu mánaða skeið, er nú laus. Honum var sleppt úr fangelsinu á laugardagseftir- miðdag án nánari skýringa eða frekari eftirmála. Að sögn Marin Guðrúnar Briand de Crvecoerur, ræðismanns Is- lands á Malaga, var hann hjá henni all- an gærdaginn en dvelur á hóteli rétt við íbúð hennar. Pilturinn vill komast hingaðheimtillslands. -JKH i i 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.