Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Page 5
DV. MIÐVKUDAGUR 22. MAl 1985.
5
Ríki og borg kljást um Haf narbúðir:
Landakotsspítali með
útibú á hafnarbakkanum?
Samningaviðræður standa yfir
milli ríkis og borgar um að ríkið
kaupi Hafnarbúðir fyrir langlegu-
sjúklinga á Landakoti. Aöur hafði
það komið til tals að Landakot fengi
húsnæöið en því hefur verið harðlega
mótmælt m.a. af stjóm Borgarspít-
alans. I dag eru 25 sjúkrarúm í Hafn-
arbúöum sem Borgarspítalinn hefur
til umráða. Samkvæmt heimildum
DV mun mafsverð ríkisins á húsnæð-
inu vera í kringum 25 milljónir króna
en borgin vill fá á milli 70 og 80 millj-
ónir fyrir Hafnarbúðir.
„Hugmyndin að fá Landakoti
Hafnarbúðir í hendur væri ekki til
bóta. Það væri aðeins verið að færa
vandamál langlegusjúklinga frá
einni stofnun til annarrar,” sagði
Páll Gíslason, forseti borgarstjóm-
ar, í samtali við DV. „En ef ríkið
kaupir húsnæðið handa Landakoti
þýðir þaö að borgin f ær peninga til aö
ljúka við B-álmu Borgarspítalans
fyrr en ella hefði orðið en þar verða 6
öldrunardeildir,” sagði Páll.
Jóhannes Pálmason, framkvæmda-
stjóri Borgarspítalans, tók í sama
streng. „Við erum á móti því að af-
henda Hafnarbúðir,” sagði hann.
„Jú, það er rétt að Landakot hefur
augastað á Hafnarbúöum. Viðræður
um kaup á húsnæðinu eru að komast
á lokastig,” sagði Olafur örn Amar-
son, yfirlæknir á Landakotsspítala, í
samtali við DV. „Mér finnst sann-
gjamt að við fáum eitthvert pláss til
umráöa fyrir langlegusjúklinga en
slík aðstaða er mjög bágborín á
Landakoti,”sagði01afur. -EH.
Fulltrúar samtakanna kynntu I fyrradag tillögur sinar um breytingar é
stjómarskrónni. DV-mynd KAE.
Samtökin jafnrétti milli landshluta:
NÚ VERDISKIPAÐ
STJÓRNLAGAÞING
Afmælis- og vortónleikar
Kaupendur og
seljendur fasteigna:
Verða að
sýna
aðgát
Stefán Ingólfsson hjá Fasteigna-
mati ríkisins telur að leggja beri
niður ÖU óverðtryggð lán í sam-
bandi við fasteignaviðskipti á hús-
næðismarkaðinum og þess í stað
eigi að taka upp verðtryggð lán á
eftirstöðvum.
Hann segir að vegna þess að bæði
séu verötryggð og óverðtryggð lán.
á fasteignamarkaðinum hafi þaö
skapað mismunandi kjör. Þessi lán
eru frábrugðin hvert öðm og verða
kaupendur og seljendur að sýna
fyllstu aðgát þegar verið er að
kaupa eða selja íbúðir með annað-
hvort verðtryggðum eða óverö-
tryggðum lánum. Þetta hafi það í
för með sér að oft sé selt á öðrum
kjörum en keypt sé.
Þessar upplýsingar koma fram í
fréttabréfi Fasteignamats ríkisins.
Þar er bent á að eftir að verðtryggð
lán komu tU sögunnar hafi
greiöslukjör orðið breytUeg. Skipta
megiþeimniðurí þrjá ólíka hópa.
I fyrsta lagi eru íbúðir sem seld-
ar em á fuUverðtryggðum kjörum.
Sala þeirra nemur um 18
prósentum af fasteignaviöskiptum
og útborgun er 64,4 prósent.
I öðm lagi eru íbúðir sem seldar
em skuldlausar á óverðtryggöum
kjörum. Sala sUkra íbúða nemur
um 20 prósentum af markaðinum
og útborgun er um 73,2 prósent.
I þriöja lagi em íbúðir sem seld-
ar eru með blönduðum kjörum. Við
sölu þeirra koma bæði óverðtryggð
og verðtryggð lán til sögunnar. Söl-
ur af þessu tagi eru langalgengast-
ar og eru um 63 prósent af markað-
inum. Utborgun er um 70,1 prósent.
APH
Samtökin jafnrétti milli landshluta
leggja til að skipað verði sérstakt
st jórnlagaþing til að vinna að breyting-
um á stjómarskránni.
Þetta kom m.a. fram er fulltrúar
samtakanna kynntu sínar tillögur um
stjómarskrárbreytingar í fyrradag.
Telja þeir að störf stjórnarskrár-
nefndar hafi gengið hægt og árangur
verið sá einn að í jánúar 1983 hafi verið
lögð fram skýrsla um störf þáverandi
nefndar. Telja samtökin að ástæöan
fyrir því hve lítill árangur hefur náðst í
þessu starfi sé fyrst og fremst sú að
stjómmálamenn hafi látið eigin flokks-
sjónarmið ráða í stað þess að hugsa
eingöngu um heill þjóðarinnar.
Því leggja samtökin til að þegar
verði kosið sérstakt stjómiagaþing. Til
þess sé kjörgengur hver sá Islendingur
sem kjörgengur sé og hafi óflekkað
mannorð. Þó skuli alþingismenn ekki
vera i framboði vegna starfa sinna.
Fulltrúar á stjórnlagaþingi skuli vera
tveir úr hverju kjördæmi, kosnir hlut-
bundinni kosningu.
Samtökin jafnrétti milli landshluta
hafa sent alþingismönnum drög sín aö
breytingumástjómarskránni. .jss
Skagf irskir söng-
menn á Selfossi
Frá Regínu, fréttarltara DV á Sel-
fossi:
Skagfirski söngkórinn heimsótti Sel-
foss nýlega og bauð eldri borgurum í
bænum til tónleika í Selfossbiói á upp-
stigningardag.
Fjölmenni var og loft í hinu aldna
húsi með besta móti þrátt fyrir sól og
hlýindi. 76 manns era í áðurgreindum
kór sem söng af mikilli snilld.
Var kórinn oft klappaður upp og varð
að margendurtaka sum lögin — clúri
borgarar kannski of heimtuf rekir.
Nemendur Siguröar Demetz
Franzsonar, söngkennara í Nýja tón-
listarskólanum, koma fram á tón-
leikum í Bústaöakirkju i kvöld,
miðvikudagskvöld. Tónleikamir eru
haldnir i tengslum viö 30 ára starfs-
afmæli Siguröar hér á landi.
A söngtónleikunum koma framsex
nemendur og þrír píanóleikarar með
þeim sem aUir eru kennarar viö
Nýja tónUstarskólann. Þessir tón-
leikar hefjast klukkan 20.30 í kvöld.
A morgun verða svo síðustu vor-
tónleikar Nýja tónlistarskólans. Þar
leika hljómsveit skólans og nemend-
ur á seinni námsstigum. I lokin fara
fram skólasht. TónleikamU- veröa í
Bústaðakirkju og hefjast klukkan
17.30.
HERB
Schiesser
dömufatnaöur
Einstök gœöi.
glœsilegt útlit
Schiesser®
OLYMPIA =
Laugavegi 26, slmi 13300
sími 31300
■MÍBÉL'r-'K
issK