Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Page 11
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. MAI1985.
11
VIÐTALIÐ:
„Auðvitað hlakka
ég svakalega til”
Þór Tulínius heitir 25 ára gamall
Reykvíkingur, nýútskrifaður úr Leik-
listarskóla Islands. Þór heldur í haust
til Frakklands þar sem hann kemur til
með að starfa við Comedie Francais,
eitt elsta og virtasta leikhús Frakk-
lands.
„Comedie Francais valdi Þór úr hópi
200 alþjóölegra umsækjenda til að
koma og starfa í þessu fræga leikhúsi
sem lærisveinn ýmissa helstu leikhús-
frömuða og leikstjóra Frakklands,”
sagði Doudnac, menningarfulltrúi
franska sendiráðsins í Reykjavík, á
fundi með blaðamönnum nýlega þar
sem ýmis starfsemi sendiráðsins í
menningarmálum var kynnt.
— Hvernig komstu fyrst í kynni við
Comedie Francais?
„Eg vissi af ýmsum þeim styrkjum
sem frönsk yfirvöld bjóða Islendingum
í gegnum sendiráð Frakklands í
Reykjavík og spurði menningarfulltrú-
ann hvort ekki væm einhverjir mögu-
leikar á því sem maður kallar taktískt
nám, eitthvað sem tengdist leiklistinni
og ég myndi raunverulega hafa gagn
af. Doudnac menningarfulltrúi var af-
ar hjálplegur, taldi möguleikana góða
á að komast í einhvers konar leikhús,
bæði við nám og starf. Nú í vor þróuð-
ust málin svo þannig að Comedie
Francais kom inn í myndina og mér
var boðið að koma til þeirra í haust.
Þaö er ekki smuga að taka ekki svona
tilboði,” sagði Þór Tulinius.
— Hvemig list þér s vo á allt saman?
„Þessir tveir leikstjórar, sem ég
kem til með að kynnast i Comedie
Francais, Jo Lavandant og Jean Pi-
erra Vincent, eru mjög þekktir leik-
stjórar og tvímælalaust í fremstu röð í
Frakklandi.
Hér er um nokkuð gamalt leikhús að
ræða, stofnsett á dögum Molíere og
Lúðvíks 14. eða um 1680. Það hefur
stundum verið sagt að leikhúsiö sé
nokkuð bundið í formi, íhaldssamt á
nýrri verk, lagt of mikla áherslu á
eldri og klassískari leikhúsverk, en
það hefur síðan breyst mikið síöustu
árin, einkum eftir að Mitterrand for-
seti kom til valda í Frakklandi og
keyrði áfram þessa svoköUuðu
menningarpólitík.
Það er þeirra stefna og trú aö sterk-
ari menning sé hin rétta leið til að
bjarga þjóðfélaginu úr þessari kreppu
sem það er komið í.”
— Eru það einhverjir sérstakir þætt-
HÖFUM OPIMAÐ
IMÝJA
BÓN- OG ÞVOTTASTÖD
O Gufuþvoum vélar
og felgur
O Djúphreinsum
sœtin og teppin
O Notum
eingöngu hið
níðsterka
Mjallarvaxbón
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐIN
V/UMFERÐARMIÐSTÖDINA - Sfmi 21845
ZAN] irORTI m
RAFHA
VARAHLUTA- OG
VIDGERÐARÞJÓNUSTA
h5%
ZANUSSI heimilistœkin eru falleg og
vönduö og njóta vaxandi vinsœlda hér ð landi.
Nú er freistandi vortilboö
hjá Rafha: 15 kæli- og frystitæki frá ZANUSSI meö
15% staögreiösluafslætti og 8% á afborgunarkjörum.
Tilboöiö stendur til 1. júni 1985.
Verslunin Rafha, Austurveri, Háaleitisbraut 68.
Símar: 84445,686035.
Hafnarfjöróur, símar: 50022,50023,50322.
Z 25/2 TR Kælir/frystir
Kælir: 200 Itr.
Frystir 50 Itr.
Frystigeta 3,5 kg á sólarhr.
Mál: (H x B x D):
142 x 52,5 x 60 cm.
Sjálfvirk afhriming á kæli.
Má snúa huröum.
Orkunotkun 1,6 kWh/24T.
-2g.-4&2-
stg. 18.838
ir er þú vUt leggja áherslu á í haust?
„Eg veit það ekki, ég fer út í þetta án
nokkurs sérstaks markmiðs, það má
segja að ég kasti mér út í þetta, opinn
fyrir öUum þeim tækifærum er mér
kunna að bjóðast. Auövitað hlakka ég
svakalega til að fara til Frakklands,
ekki einungis í leikhúsið, heldur einnig
til aö kynnast París, háborg evrópskr-
ar menningar og lista og um leið
stærstu borg Evrópu. Ef við lítum
bara á kvikmyndirnar er París sann-
köUuð gullnáma, aUar kvikmyndir í
gangi á sama tíma, svo ekki sé minnst
á staði eins og t.d. Pompidousafnið
sem er fuUt af alls konar fróðleik.”
Langar mest til að starfa
hér heima en er opinn
fyrir öllu
,ÍIg verð úti í Frakklandi í eitt ár og
ómögulegt að segja hvernig málin
Þór Tulinlu* leggur I haust land undir fót, kamur til moö afl stunda nám vifl
eitt elsta og virtasta leikhús Frakklands, Comedie Francais. Ljósm. VHV.
koma til með að þróast eftir þann tíma,
hvort ég kem heim aftur eöa ílendist
kannski eitthvað í Frakklandi. Mig
langar mest tU að starfa hér heima, en
auövitað verða menn að haga seglum
eftir vindi, ég er a.m.k. opinn fyrir
öllu,” sagði Þór Tulinius.
Þór hefur eins og gefur að skilja tals-
vert unnið við leUdist hér heima, sér-
staklega með Leiklistarskóla Islands
og að þeim leikhúsverkum sem skólinn
hefur sett upp. Ekki kvaðst Þór hafa
mikiö komið nálægt íslenskri kvik-
myndagerð, „nema hvað ég var viðrið-
inn kvikmyndina Sóley sem Róska
vann og leikstýrði, svo lék ég víst ein-
hvem púka hjá þeim í Gullna hliöinu
sem sjónvarpið tók upp um árið,”
sagði Þór.
„I vetur settum viö upp þrjú leikrit í
Leiklistarskólanum, Grænfjöörung í
Lindarbæ í haust, Draum á Jóns-
messunótt í Iönó og svo erum við ný-
búin að frumsýna leikritið Fugl sem
flaug á snúru eftir Nínu Björk Arna-
dóttur, við settum það upp í Lindarbæ
og leik ég þar ungan mann með rós,”
sagði Þór TuUnius, leikari og tilvon-
andi lærisveinn við Comedie Francais,
að lokum.
hhei.
SJONVORP
EIGENDUR ITT SJÓNVARPSTÆKJA
ERU EKKI í VAFA.
VID ERUM ÞAÐ EKKI HELDUR.