Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Page 15
DV. MlÐVIKUDAGUR 22. MAI1985.
15
Ólafur Lárusson — Nafnlaust, 1985.
Menning Menning Menning
Andlit, hendur, sköp
Sýning Ólaf s Lárussonar að Kjarvalsstöðum
I rúman áratug hefur Olafur Lárus-
son myndlistarmaöur verið fylginn sér
á sviði gjöminga, aksjóna ýmiss konar
og annarra myndlistarframkvæmda
með yfirbragði nýlistar. Aherslur og
markmið þessara verka hafa verið
breytilegar og ekki alltaf auðveit að
átta sig á hugmyndalegri undirstöðu
þeirra — a.m.k. ekki fyrir þann sem
hér pikkar á ritvél.
Þó sýnist mér gerlegt að rekja þróun
þessara verka Olafs, a.m.k. í grófum
dráttum, án þess aö leggja dóm á gildi
þeirra eða vægi í myndlistarlegu tilliti.
Þau hafa oftar en ekki verið byggð upp
sem nokkurs konar átök eða árekstrar
milli listamannsins annars vegar og
umhverfisins hins vegar. I eldri
verkum notar hann náttúruna sem eins
konar mæliker á tOfinningar. Gengur
hann á vit hennar, lætur hana vinna
með sér verkin eöa storkar henni með
því að gefa sig henni á vald um stund-
arsakir.
Mannraunir
Með tímanum veröa gjörningar
listamannsins ákafari og jafnframt
sjúbjektífari. Hann býr til ails konar
hindranir til að streitast á móti þeim,
að því er virðist upp á líf og dauöa,
leggur á sig mannraunir í líki frum-
stæðra ritúala og gengur í skrokk á
sjálfum sér. Olafur var reyndar ekki
einn um þessa hluti á siöasta áratug
því ritúöl og mannraunir tíðkuðust
mjög meðal evrópskra gjömingalista-
manna á þeim tíma.
En þrátt fyrir þær ytri aðstæður sem
listamaöurinn skapaöi sér til aö glíma
við í eigin persónu þá held ég aö þessir
gjömingar hafi fýrst og fremst verið
innhverf verk og án víðari skír-
skotunar, glíma við eigið sjálf.
Það fannst mér koma berlega í ljós í
seinni speglaverkum listamannsins en
þar tekst hann á við spegilmynd sína
sem hann hylur, skreytir eða brýtur.
Hvar er gangverkið?
Ef greina má einhver tengsl milli
fyrri gjörninga Olafs og hinnar undar-
legu sýningar hans að Kjarvalsstöðum
þá liggja þau sennilega I þessum
tilvísunum í sjálfið eða egóið. Sýningin
er einmitt uppfull af andlitum, sem að
vísu ganga undir nöfnum ýmissa goða
og náttúrukrafta, en eru vísast nokk-
urs konar staðgenglar egósins.
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
En þótt tengslin séu fyrir hendi er
ekki hlaupiö að því að finna í þessari
sýningu gangverkið. Fyrir það fyrsta
er hún allt of stór, yfir 200 ítem, og
mörg smærri verkin hverfa eins og
krækiber í hinum staönum. I talsvert
smækkaðri mynd hefði sýningin tekið
sig vel út á heimavígstöðvum Olafs,
Nýlistasafninu. Vart er það
stuðningsyfirlýsing við þá stofnun, að
einn af forsvarsmönnum hennar skuli
kjósa aö sýna aö Kjarvalsstöðum.
Þrátt fyrir þennan mikla fjölda
mynda, er þetta samt furðanlega fá-
breytt sýning og einhæf.
(Jtrás
Sömu mótífin ganga tiibreytingar-
lítið í gegnum hana; stílfærð andlit,
andlit í prófíl, hendur, sköp. Nú eru
tilbrigði um stef leyfileg í myndlist eins
og í tónlist, en þó ætlast maður til meiri
hugkvæmni í úrvinnslu þeirra en
verður vart í my ndverkum Olaf s.
Helst er það í nokkrum stærri
myndum að listamaðurinn breytir til
með því aö klippa pappír og rifa og
gefa honum þannig snefil af þrívídd —
og með því aö magna upp teikninguna.
Þá er mér ekki örgrannt um að sumar
þeirra vakni til lífsins.
Eg efa ekki að listamaðurinn hafi
haft einhverja þörf fyrir þessa útrás i
anda hins „nýja málverks”. En sú þörf
skilar sér ekki nógu vel til áhorfand-
ans, sem þarf að fá hana yfirfærða f
margrætt, hugmyndaríkt myndmál,
átakamikla teikningu og maleríska
hugsun. -AI.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir aprílmánuð 1985, hafi hann
ekki verið greiddur í síðasta lagi 28. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern
byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%,
en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern
byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. júní.
20. maí 1985,
Fjármálaráðuneytið.
/eistu það... ?
:g stend í bakstri og matseld á hverjum degi, meira
íða minna. Ég legg mikið upp úr að steikin verði eins
>g ég vil hafa hana og kökurnar verði jafnbrúnar.
aegar ég fékk mér nýju innréttinguna valdi ég mér
Jlomberg tækin frá Einari Farestveit. Þau eru
ilveg dýrðleg. Þú ættir að skoða þau.
Hofum til solu notaðan Citroén BX 16 TRS árg. 1984, bíl
sem er í fyrsta flokks ástandi, ekinn aðeins 15.000 km,
svartur og fallegur.
Upplýsingar hjá Globus h/f,
símar 81555 og 82739.
Opið laugardaga frá
kl. 2-5.
CITROÉN* CITROÉN* CITROÉNA
Globusr
CITROÉN^
NOTAÐUR CITROÉN
NÆSTBESTI KOSTURINN
STEINOLÍUOFNAR
KEROfUN
Moonlighter:
Radiant 26:
Radiant 36:
2,11 kw. Brennir 6,4 Itr. á
26—36 klst. Hentar fyrir ca. 27 mJ.
1,81 kw. Brennir 3,4 Itr. á
19—27 klst. Hentar fyrir ca. 20 m2.
2,92 kw. Brennir 4,9 Itr. á
16—23 klst. Hentar fyrir ca. 34 m2.
Skeljungsbúðin
Siðumúla33
símar81722 og 38125
Vapona og Shelltox
Lyktarlausu flugnafælurnar
FÁST Á ÖLLUM HELSTU SHELL-STÖÐUM 0G
í FJÖLDA VERSLANA UM LAND ALLT.